Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 56
BRUIMBOT
Ip^ír -AFÖRYGGISÁSTÆDUM
NYTT SIMANUMER:
696000
FÓSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987
VERÐ I LAUSASOLU 55 KR.
&& ^ | f ALHLIÐA PRENTPJÓNUSTA
iWTÖPllttlJpMlÐPÍV ^ GiiðjónÓ.hf
| / 91-2 72 33
91-2 72 33
Söluskattur á lögfræðiþjónustu banka ekki innheimtur:
Bankar segja óljóst um
innheimtu skattsins
VIÐRÆÐUR standa nú yfir
milli banka og ríkisskattstjóra
vegna kröfu um að bankarnir
innheimti sérstakan söluskatt
af lögfræðiþjónustu sinni.
Bankarnir segja að mjög óljóst
sé hvort, eða með hvaða hætti
eigi að innheimta þennan sölu-
skatt og hafa því ekki gert það.
Stefán Pálsson formaður Sam-
bands íslenskra viðskiptabanka,
sagði að þetta mál hefði verið rætt
í sambandinu en ekki hefði verið
tekin afstaða til þess þar. Hann
sagði þó að mjög óljóst væri hvort
greiða ætti söluskatt af lögfræði-
þjónustu bankanna og ef svo væri,
þá með hvaða hætti. „í lögunum
segir að taka skuli söluskatt af
lögfræðiþjónustu og þjónustu hag-
deilda bankanna. Þetta eru deildir
innan bankanna, lögfræðingar
þeirra eru starfsmenn á föstum
launum og töluvert af innheimt-
unni er unnin af ólöglærðum
starfsmönnum, sem þá er ekki lög-
fræðiþjónusta. Einnig er spuming
hvemig á að meta til dæmis ráð-
gjöf,“ sagði Stefán.
Stefán sagði að leitað hefði ver-
ið álits virtra lögmanna sem teldu
að þetta væri aðeins hluti af banka-
starfsemi. Engum vafa væri
undirorpið að aðkeypt þjónusta
væri söluskattskyld en þama væri
aðeins um að ræða hluta af inn-
heimtu bankanna á vanskilaskuld-
um.
Stefán sagði aðspurður að niður-
stöðu úr viðræðunum við ríkis-
skattstjóra væri að vænta innan
skamms.
Harður árekstur fjög'-
urra bifreiða á Akureyri
EINN maður var fluttur á slysa-
deild eftir harðan árekstur
fjögurra bifreiða á Akureyri í
gær. Bifreiðamar skemmdust
mikið og þijár þeirra sýnu mest.
Áreksturinn varð á mótum Þór-
unnarstrætis og Hrafnagilsstrætis
um kl. 19. Bifreið var ekið norður
Þórunnarstraeti og annarri ofan
Hrafnagilsstræti, i austur. Ökumaður
þeirrar síðamefndu kveðst hafa virt
stöðvunarskyldu, en ekið af stað aft-
ur þar sem hann sá ekki bifreiðina
sem kom norður Þórunnarstræti.
Skipti því engum togum að bifreið-
amar skullu saman af miklu afli.
önnur kastaðist austur yfír gatna-
mótin og lenti á kyrrstæðri bifreið,
sem síðan kastaðist á næstu fyrir
aftan.
Tilraunaútflutn-
ingur á kjöti til
* Bandar íkj anna
MARKAÐSNEFND landbúnaðar-
ins hefur ákveðið að gera tilraun
með útflutning á lambakjöti til
Bandaríkjanna.
Ákvörðun þessi er tekin í fram-
haldi af markaðsathugun sem gerð
var fyrir nefndina. Könnunin svaraði
ekki afdráttarlaust spumingunni
hvort hægt sé að selja kjötið, en að
mati markaðsstjóra matvæla hjá
ÚtflutningBráði íslands benda þó
fleiri atriði til þess en hins. Markaðs-
Umboðsmaður Alþingis:
Tillaga um
Gauk Jörunds-
son prófessor
Á NÆSTU dögum er reiknað
með þvi að lögð verði fyrir Al-
þingi tillaga um Gauk Jörunds-
son prófessor í embætti
umboðsmanns Alþingis
Síðasta þing samþykkti að stofna
embætti umboðsmanns Alþingis, en
honum er ætlað að gæta hagsmuna
almennings gagnvart stjómvöldum.
stjórinn lagði til að farið yrði út í
tilraunaútflutning og síðan markaðs-
setningu ef vel tekst til. Að sögn
Auðuns Bjama Ólafssonar fram-
kvæmdastjóra Markaðsnefndar er
áætlaður kostnaður við tilraunaút-
flutninginn 3 milljónir kr.
í könnuninni, sem náði til rúmlega
500 veitingastaða á austurströnd
Bandaríkjanna, kom m.a. í ljós að
lambakjöt er algengara á matseðlum
veitingastaða á þessu svæði en áður
var talið, eða í 80% tilvika. Það virð-
ist vera vinsælast í New York, þar
næst í Boston og síðan í Atlanta og
Washington. Um 20% forráðamanna
veitingastaða I tveimur fyrstnefndu
borgunum höfðu mikinn áhuga á að
taka íslenskt lambakjöt inn á mat-
seðla veitingahúsa sinna og um 57%
höfðu áhuga á að reyna kjötið.
Morgunblaðið/Sverrir
Jóhanna Signrdardóttir mætti ekki á ríkisstjómarfund í gærmorgnn eins og hún hafdi tilkynnt. Fundi
var svo frestað og honum fram haldið í gærkvöldi klukkan 19 og þá kom Jóhanna til fundarins. Þessi
mynd var tekin þegar Hans Kr. Eyjólfsson, dyravörður stjórnarráðsins, tók á móti félagsmálaráðherra.
Happdrætti Háskólans:
Níu milljónir
á Sauðárkrók
HÆSTI vinningur i Happ-
drætti Háskóla íslands, sem
dregið var í í gær, reyndist
vera niu m’lljónir króna.
Vinninginn hlaut maður á
Sauðárkróki. Hann átti miða sem
einnar milljónar króna vinningur
kom á, en þar sem miði hans var
nffaldur fékk hann samtals níu
milljónir.
Næsti vinningur var tvær millj-
ónir króna. Sá sem þann vinning
hlaut átti ekki trompmiða og því
margfaldaðist vinningur hans
ekki.
Félagsmálaráðherra segist standa og falla með því að fá lög fyrir jól:
Húsnæðisfrumvarpið
til umræðu í gærkvöldi
JÓHANNA Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra segist standa
og falla með því að húsnæðis-
frumvarpið verði afgreitt sem
lög frá Alþingi fyrir jólaleyfi og
segir ljóst að það mál ráði úrslit-
um um hvort hún sitji áfram í
ríkisstjórninni. Frumvarpið var
tekið á dagskrá kvöldfundar Al-
þingis í gærkvöldi og verður
aftur á dagskrá á fundi á laugar-
dag.
Jóhanna sat ekki ríkisstjómar-
fund fyrir hádegi í gær, sem var
síðan frestað og fram haldið í gær-
kvöldi. Jóhanna sat þá fundinn og
sagði við Morgunblaðið að náðst
hefði samkomulag í ríkisstjóminni
um að þessu máli yrði hraðað gegn-
um þingið og yrði eitt af forgangs-
málum, sem fengist afgreitt sem lög
fyrir jól.
Onnur umræða um húsnæðis-
frumvarpið var tekin á dagskrá
neðri deildar Alþingis í gærkvöldi
og mælti Alexander Stefánsson
formaður félagsmálanefndar fyrir
áliti meirihluta nefndarinnar áður
en umræðunni var frestað fram á
laugardag. Samkomulag hafði orðið
milli forseta deildarinnar og for-
manna þingflokka að þessi háttur
yrði hafður á vegna þess að nefnd-
arálitum og breytingartillögum var
ekki dreift til þingmanna fyrr en í
gærkvöldi. Umræður um þingsköp
vom í rúman klukkutíma og deildu
stjómarandstæðingar hart á þá
málsmeðferð að slíta umræðuna í
sundur með þessum hæ.tti.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði við
Morgunblaðið að hún væri sátt við
það samkomulag sem,náðst hefði í
félagsmálanefnd um frumvarpið.
Þar hefðu aðeins verið gerðar
minniháttar breytingar sem ekki
breyttu í neinu tilgangi og mark-
miði frumvarpsins.
í breytingartillögum meirihluta
nefndarinnar er ekki gert ráð fyrir
að sú grein frumvarpsins, sem
heimilar húsnæðismálastjórn að
skerða eða synja um lán ef ríkar
ástæður eru fyrir hendi, taki gildi
fyrr en frumvarpið er samþykkt.
En í frumvarpinu sjálfu var gert
ráð fyrir að ákvæðið tæki gildi frá
21. október. Jóhanna sagðist hafa
talið betra að þessi afturvirkni
næðist fram en um það hefði ekki
náðst samkomulag.
DAGAR
TIL JÓLA