Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987
27
ERLENT
koma í veg fyrir smit er einangrun.
I bandaríska vamarmálaráðuneyt-
inu í Pentagon er leynilegar tölvu-
upplýsingar einungis sendar um
kapla, sem umluktir eru sérstöktum
gasfylltum leiðslum. Reyni einhver
að komast að köplunum fellur
þrýstingurinn í gasleiðslunum og
viðvörunarkerfí fer í gang. Öllum
lykilorðum er breytt reglulega —
nokkrum sinnum á dag í sumum
tilfellum.
Slíkar ráðstafanir kunna þó ekki
að vera nægar til þess að bægja
frá færum skemmdarverkamanni,
sem vinnur innan viðkomandi stofn-
unar. Sérstakt gildruforrit getur
skráð lykilorð hvers notanda í hvert
skipti, sem þeir slá það inn og þann-
ig er hægt að fylgjast með öllum
breytingum á þeim. Og enda þótt
sum kerfi geti gefið notendum
mismikinn aðgang, eftir því hversu
langt þeir mega komast, nota nær
öll kerfi sömu kerfisforritin á ein-
hverjum vinnslustigum. Þannig
gæti maður, sem hefði mjög tak-
markaðan aðgang, kómið veiru
fyrir í einföldu kerfísforriti, sem lítil
eða engin ástæða er til þess að loka
fyrir. Næst, þegar einhver með
meiri aðgang notaði sama forrit,
yrði um smitun að ræða og áður
en varði væri veiran komin út um
allt.
Tölvur eru nú notaðar í ólíkleg-
asta tilgangi og hefur notkunin
breiðst út í nær allar atvinnugrein-
ar. Þegar menn hafa rætt um
tölvuglæpi fram að þessu, hafa
menn mestar áhyggjur haft af að-
gangi óviðkomandi aðila að við-
kvæmum upplýsingum og hættunni
á fjárdrætti. Skemmdarverkastarf-
semi er hins vegar nýr þáttur, sem
verður að gefa gaum, enda gífurleg-
ir fjármunir í húfí. Öllum að óvörum
geta upplýsingar glatast skýringar-
laust og starfsemi heilla fyrirtækja
lamast.
Flugvélakosti sovézka
hersins fleygir fram
London. Reuter.
FLUGSTYRK sovézka hers-
ins hefur fleygt fram og
hafa Sovétmenn þróað nýja
orrustuþotu, sem gefur
beztu bardagaflugvélum á
Vesturlöndum ekkert eftir,
að því er segir í 1988 útgáfu
hinnar virtu flugvélabókar
Jane’s, All the World’s Airc-
raít.
„Það væri óviturlegt af NATO-
ríkjunum að halda að þau nytu
ennþá þeirra yfírburða í flugvéla-
kosti sem þau hafa haft allt frá
lokum seinni heimsstytjaldarinn-
ar,“ segir John Taylor, ritstjóri, í
formála bókarinnar.
Taylor segir að á sama tíma og
allt hafi verið lagt upp úr því á
Vesturlöndum að endumýja flug-
vélakost með eins hagkvæmu móti
og hugsast gæti, hefðu Sovétmenn
þróað og smíðað nýjar herflugvél-
ar, sem tækju fyrri bardagavélum
þeirra langtum fram.
Hann getur sérstaklega endur-
bættrar útgáfu af Sukhoi Su-27
orrustuþotunni sem dæmi um
framfarir í flugkosti sovézka flug-
hersins. „Séu hreyflar hennar og
ratsjár jafn fullkomnar og nýstár-
legar og vélin er að öðru leyti þá
virðast Sovétmenn ráða þar yfír
bardagaflugvél, sem engin flugvél
á Vesturlöndunum tekur fram.
Taylor segir ennfremur að
sovézkir orrustuflugmenn séu fam-
ir að sýna af sér meira hugrekki
og dirfsku en fyrr og beri að gefa
því sérstakan gaum. Einnig leggi
flugsveitir nú á það áherzlu að
eignast fyrirmyndarflugmenn. Að
sögn Taylors er atvikið yfír Bar-
entshafí í september, þegar sovézk
orrustuþota klippti af hreyfli nor-
skrar eftirlitsflugvélar, dæmi um
hinn nýja kjark sovézkra herflug-
manna.
Bestu þakkir til allra, sem glöddu mig á 80
ára afmceli minu.
GuÖ blessi ykkur öll.
Guölaug Jónsdóttir,
„ Miklaholti.
Hjartans þakkir fceri ég öllum þeim, sem glöddu
mig meÖ gjöfum og skeytum á 70 ára afmœli
mínu 18. október sl.
Guðjón O. Bjarnason,
Ennisbraut 18,
Ólafsvík.
JÓLASTUND MEÐ
BONEY M
í Háskólabíói, sunnudaginn 13. desember kl. 15.00 og 17.00
Lög á borð við „Mary’s Boy Child",
„White Christmas", Jingle Bells", „Joy to the World"
auk fjölmargra íslenskra jólalaga munu hljóma í Há-
skólabíói og sameinast um að gera þessa jólatónleika
ógleymanlega.
* Eiríkur Fjalar(Laddi)
* BjartmarGuðlaugsson
* Eiríkur Hauksson
* Eyjólfur Kristjánsson
* Stuðkompaníið
* Sniglabandið
* HörðurTorfason
Helga Möller
Guðrún Gunnarsdóttir
Kynnir: PéturSteinn
Guð mundsson
Hljómsveit Magriúsar
Kjart anssonar
Forsala aögöngumiða í Kringlunni í dag kl. 13.00 - 20.00 og á morgun
kl, 10.00-18.00. Auk þess eru niiðar seldir í Háskólabíói og í hljómplötuversl-
unum Steina hf., Austurstræti 22, Rauðarárstíg 16, Glæsibæ og við Strandgötu
í Hafnarfirði.
Aðgöngumiðaverö aðeins kr. 950.-
MISSIÐ EKKIAF ÞESSUM EINSTÖKU JÓLA-
TÓNLEIKUM ALLRAR FJÖLSKYLDUNNAR
Borgartúni 32
☆ STEINAR HF ☆
Nýbýlavegi 4.200 Kópavogi. Simi 45800