Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987
9
^ HERRASKYRTUR
Vorum aö -taka upp glæsilegt úrval
af enskum herraskyrtum, peysum og
náttfötum.
GEtfSiB
H
SVAVA JAKOBSDÓTTIR
áritar bók sína
GUNNLAÐAR SAGA
íverslunokkar ídag kl. 16-18.
Sendum áritaöar bækurí póstkröfu.
EYMUNDSSON
Austurstræti 18
Starfshættir Alþingis
Starfshættir Alþingis hafa lítið breytzt á undanförnum árum og
jafnvel áratugum. Það er fyrst nú síðustu misseri, sem sjá má
merki þess, að breyting er að verða á vinnuskipulagi þingsins.
Nú fyrir nokkrum vikum var t.d. byrjað að halda þingfundi að
hluta fyrir hádegi, sem er auðvitað sjálfsagt, m.a. til þess að
greiða fyrir því, að fjölmiðlar geti betur komið því sem gerist í
þinginu til skila til almennings. En þrátt fyrir þær umbætur, sem
gerðar hafa verið á starfsháttum þingsins, er mikið starf óunn-
ið. Oddur Ólafsson, aðstoðarritstjóri Tímans, fjallar um þetta
mál í pistli í blaði sínu í gær. í Staksteinum í dag er vitnað til
þeirra skrifa.
Tímaþröng á
Alþingi
Oddur Ólafsson segir
m-a. í Tímannm i gser um
vinnubrögð á Alþingi nú
og vísar þar m.a. til um-
ræðna um byggingu á
nýju húsi fyrir skrifstof-
ur þingmanna og aðra
starfsemi: „Það er góðra
gjalda vert og sjálfsagt
að búa vel að Alþingi og
ðllu því starfl, sem þar
fer fram. En hitt er ann-
að mál, hvort starfs-
hættir þingsins þarfnist
síður endurbóta en sú
umgjörð, sem byggingar-
listin setur starfseminni.
Nú, um miðbik jólaföstu,
er ólokið afgreiðslu allra
mikilsverðustu mála, sem
tekin verða fyrir á þing-
inu í vetur. Þau eru venju
fremur mörg og flókin
að þessu sinni, enda
stendur nú fyrsta þing
eftir kosningar og allt
önnur ríkisstjóm er við
völd en sú, sem réði lög-
um og lofum á siðasta
kjörtimabili. Miklar
breytingar standa fyrir
dyrum á þýðingarmikl-
um lagabálkum og er
verið að ræða þá alla
samtímis og ætlast er til
að afgreiðslu verði lokið
fyrir jól. Er sýnilegt, að
tímaþröngin, sem háir
Alþingi, er mun verri en
húsnæðisþrengslin."
Fast haldið í
gamlar hefðir
Síðan segir Oddur Ól-
afsson: „Starfstími
Alþingis er enn miðaður
við bændasamfélag og
þá samgönguerfiðleika,
sem við var að glima,
þegar það var og hét. Svo
fast er haldið í gamlar
hefðir að aldrei kemur
til mála að kalla þingið
sainan utan þess tíma
sem vorverk, heyannir
og göngur og slátrun
standa yfír i sveitínni. Sl.
vor var kosið samkvæmt
nýjum kosningalögum og
þingmönnum var fjölgað.
Umboðslaus stjóm starf-
aði fram á mitt sumar,
þegar ný ríkisstjóm var
mynduð. Alþingi sem
slíkt kom þar hvergi
nærri. Þingflokkamir
vom kallaðir saman aft-
ur og aftur tíl skrafs og
ráðagerða um stjómar-
myndun. Þegar hún var
komin á laggimar fóm
þingmenn heim án þess,
að Alþingi hafl staðfest,
að ný ríkisstjóm væri
tekin við völdum. Sam-
þykki meirihluta þings-
ins fólst í samþykktum
þingflokkanna."
Fát o g írafár
Loks segir Oddur Ól-
afsson: „Það er ekkert
nýtt í þingsögunni að
hespa verður af málum
fyrir jól og siðan þing-
lausnir. En þeir, sem
verkum stjóma, ættu að
vera famir að átta sig
á, að ef fjárlög og aðrir
stórbálkar eiga að öðlast
lagagildi um áramót er
nauðsynlegt, að þingið-
taki til starfa fyrr á
haustin svo að afgreiðsl-
an lendi ekki öll i fátí og
írafári i miðjum jólaönn-
um. Hjá öðrum stofnun-
um eða fyrirtælqum
þættu svona vinnubrögð
slóðaskapur.
FYRSTA OG FJÓRÐA HEILRÆÐIFRÁ
VERÐBRÉFAMARKAÐIIÐNAÐARBANKANS
TIL PEIRRA SEM ERU AÐ BYRJA AÐ SPARA:
1
Leggiö fyrir fasta fjárhæð við hverja út-
borgun. Það er meira virði að halda þessá
reglu en hversu há fjárhæðin er.
4
Haldið lausafé í lágmarki og á sem hæstum
vöxtum. Þegar vextir eru háir er dýrt að
liggja með fé sem ekki ávaxtast.
... OG ÞAÐ ER EKKERT ERFTTT AÐ STÍGA FYRSnTU SKREFIN!
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla7, 108 Reykjavík. Sími68 1530