Morgunblaðið - 11.12.1987, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 1987
KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND
Stýrir Otto II
Werder Bremen
til sigurs?
- eða verður hann að sætta sig við annað sætið í
Bundesligunni enn eitt árið
„Werder Bremen hefur komið
skemmtilega á óvart - það
reiknuðu fáir með því að félag-
ið yrði á toppinum þegar
vetrarfríið hæfist. Það er hreint
ótrúlegt hvað Otto Rahhagel
nær miklu út úr leik Bremen-
liðsins," sagði Ásgeir Sigur-
vinsson, fyrirliði Stuttgart,
þegar hann var spurður um
gengi Bremen, sem hefur ör-
ugga forustu í Bundesligunni -
nú þegar keppnin er rúmlega
hálfnuð og félögin farin í vetr-
arfrí.
Það bendir allt til að Bremen
og Bayern Munchen komi til
með að berjast um V-Þýska-
landsmeistaratitilinn í ár, eins
og undanfarin ár. Við skulum
til gamans og fróðleiks renna
yfir árangur liðanna og spá í
spilin.
Otto Rehhagel, þjálfari Werder.
Bremen, hefur enn einu sinni
sýnt það hvað hann er snjall þjálf-
ari — undir hans stjóm hefur
Bremen-liðið náð
frábærum árangri
frá 1981. Það áttu
ekki margir von á
því að Bremen yrði
með í toppbaráttunni í vetur. Félag-
ið hafði misst Rudi Völler til Roma
á Ítalíu, Sidka til Tennis Borussia
Berlín og Austurríkismaðurinn
Frá
Jóhannilnga
Gunnarssyni i
V-Þýskaiandi
Bmno Pezzey og markvörðurinn
Dieter Burdenski vom hættir að
leika.
Otto II, eins og hann er svo oft
nefndur vegna þess hvað Bremen
Plarre Littberskl hefur leikið mjög
vel með Köln.
ADIDAS LASER
kominn aftur í
nýjum litum.
Dökkblár -
svartur -
kóngablár og
hvítur jakki með
dökkbláum
buxum.
Stæröir:
150-198.
Verðkr.
6.950,-
Póstsendum samdægun
SPORTVÖRUVERSLUNIN
semm
LAUGAVEGI 49 SIMI 12024
hefur oft lent í öðm sæti undir
hans stjóm - 1983, 1985 og 1986,
lét ekki bugast. Hann hefur sýnt
það að hann er mjög snjall að móta
unga leikmenn. Margir ungir leik-
menn hafa leikið mjög vel með
Bremen í vetur, eins og Frank Od-
enewitz, sem hefur skorað 9 mörk
og Karl-Heinz Riedle, sem hefur
skorað flögur mörk. Þá hefur gamla
kempan Manfred Burgsmiiller sýnt
að hann hefur engu gleymt. Það
var sterkur leikur hjá Ottó að kaupa
Ulrich Borowka frá Gladbach. Hann
hefur styrkt vöm Bremen mikið.
Það er erfítt að eiga við leikmenn
Bremen á heimavelli. Það er víst
að Ottó hefur mikinn hug á að velta
Bayem Munchen úr sessi. Spum-
ingin er hvort að hinn snjalli þjálfari
verði kallaður Otto I þegar upp
verður staðið.
FCKöln
FC Littlattek, eins og gámngarnir
kalla nú liðið, hefur komið mikið á
óvart. Udo Lattek, sem kom til
Kölnar frá Bayern, gjörbreytti
hugsunarhætti forráðamanna fé-
iagsins, leikmanna og þjálfarans
Christoph Daum. Lettek, sem tók
við framkvæmdastjórninni, kom
með nýar hugmyndir og þá keypti
hann nýja leikmenn. Það höfðu
ekki margir trú á því að Pierre Litt-
barski, fyrmm leikmaður félagsins,
myndi gera miklar rósir þegar hann
kom aftur frá Racing Club París.
Hann myndi ekki fylla það skarð
sem Klaus Allofs skildi eftir sig
þegar hann fór til Marseille í
Frakklandi.
Þeir menn vom fljótir að breyta um
skoðun. Littbarski kom með nýtt
blóð og hefur leikið geysilega vel.
Þá var það klókt hjá Lattek að
kaupa varnarleikmanninn og lands-
liðsmanninn Júrgen Kohler frá
Mannheim. Þessi snjalli leikmaður
hefur náð að þétta vöm liðsins -
hefur stjórnað vamarleiknum af
festu og öryggi. Daninn Morten
Olsen, 38 ára, hefur leikið vel sem
leikstjómandi og einnig hefur landi
hans Flemming Poulsen verið góður
- skorað sjö mörk.
Spumingin er nú, hvort að leikmenn
Kölnarliðsins takist að halda flug-
inu út keppnistímabilið.
Bayem Múnchen
Eins og alltaf er mikil pressa á þjálf-
ara Bayern Múnchen, ríkasta og
þekktasta félagsliði Evrópu. Bayern
byijaði keppnistímabilið mjög vel,
en síðan kom erfiður tími - þijú
töp á útivelli í röð. Upp á síðkastið
hafa komið upp háværar raddir um
að reka Jupp Heynckes, þjálfara
Bayern. Stuðningsmönnum Bayern,
sem heimta sigur í öllum leikjum,
voru ekki ánægðir eftir að Bayern
tapaði fyrir Dortmund í Múnchen.
Bayern stóð sig mjög vel sl. keppn-
istímabil - tapaði þá ekki leik í
Bundesligunni og tryggði sér meist-
aratitilinn. Einnig vann Bayern
sigur í Super Cup og lék til úrslita
í Evrópukeppninni gegn Porto, þar
sem félagið’ tapaði óvænt..
Ekkert er til sparað til þess að
Bayern nái árangri. Forráðamenn
félagsins láta Uli Honess, fram-
kvæmdastjóra, fá eins mikið af
peningum og haun þarf til kaupa
nýja leikmenn til að styrkja Bay-
Ásgelr Slgurvinsson, fyrirliði Stuttgart, er einn besti miðvallarspilari V-
Þýskalands.
em-liðið. Þess vegna heimta þeir
að Bayern sé á toppnum - þeir vilja
fá sigra og aftur sigra fyrir pening-
ana. Mark Hughes hom með nýtt
blóð til Bayern, sem er talið að eiga
svo marga snjalla leikmenn, að það
getur stillt upp tveimur jafnsterkum
liðum. Þess vegna er það spuming-
in - dugað það Bayern í vetur, eða
verða gerðar miklar breytingar hjá
félaginu eftir þetta keppnistímabil.
Mönchengladbach
Leikmenn Mönchengladbach, eða
Gladbach eins og félagið er kallað
í daglegu tali, léku frábærlega vel
seinni hluta sl. keppnistímabil og
þeir byrjuðu með látum á þessu
keppnistímabili. Það var þá ekki
annað að sjá að koma Wolf Werner
í stað Jupp Heynckes, sem fór til
Bayern, hafi skipt máli. Þegar líða
tók á - dalaði Gladbach. Lykilmenn
eins og Uwe Rahn og Hans-Gúnter
Bruns léku ekki eins vel og áður.
Hollenska félagið Eindhoven sýndi
áhuga á að fá Rahn, sem var kjör-
inn leikmaður ársins í V-Þýskalandi
1987. Nú er það komið svo-, að allt
bendir til að Rhan verði seldur. Fjár-
hagserfiðleikar Gladbach eru mikl-
ir. Ég hef trú á að það verði erfitt
fyrir Gladbach að halda fjórða sæt-
inu. Hef ekki trú á að félagið náði
UEFA-sæti þegar upp verður stað-
ið.
Númberg
Spútnikliðið Núrnberg, sem er efni-
legasta liðið í Bundesligunni og lið
framtíðarinnar í V-Þýskalandi -
þ.e.a.s. ef stóri bróðir, Bayem
Múnchen, kaupi ekki einu sinni sem
oftar alla efnilegustu leikmenn fé-
lagsins. Númberg lék vel undir
lokin og vann sex leiki í röð. Mikil
gleði hefur verið í Núrnberg vegna
framgöngu leikmanna liðsins, sem
hafa stöðugt verið í sókn. Félagið
var síðast V-Þýskalandsmeistari
1967 - þá undir stjórn Max Mer-
ker. Með félaginu leika efnilegir
leikmenn eins og Dieter Eckstein,
Stefán Reuter, Manfred Schwabl
og Rudi Stenzel, sem allir hafa
komið við sögu í landsliðshópi V-
Þýskalands. Félagið á með sama
áframhaldi að vera með í baráttu
um UEFA-sæti.
Stuttgart
Arie Haan hefur komið, séð og sigr-
að hér í V-Þýskalandi - Hollending-
urinn fljúgandi, eins og hann er oft
kallaður, kom frá Anderlecht til
Stuttgart og hann hefur svo sannar-
lega gert góða hluti þar. Haan hefur
gjörbreytt andrúmsloftinu hjá
Stuttgart - í staðin fyrir að skamm-
ast stöðugt í leikmönnum eins og
fyrrum þjálfari Stuttgart, hefur
hann náð einstöku lagi að ná því
besta fram hjá hveijum leikmanni
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Leikir U J T Mörk U J T Mörk Mörk Stig
W. BREMEN 18 8 1 0 19: 3 5 3 1 12: 6 31: 9 30
1. FCKÖLN 19 8 1 0 21: 3 3 5 2 11: 11 32: 14 28
BAYERN 19 10 0 1 33: 14 3 1 4 11: 13 44: 27 27
GLADBACH 19 8 2 0 25: 9 4 0 5 16: 19 41: 28 26
NURNBERG 19 4 5 1 17: 9 5 1 3 13: 7 30: 16 24
STUTTGART 19 6 1 2 24: 7 2 4 4 17: 21 41: 28 21
LEVERKUSEN 19 5 3 2 14: 10 1 4 4 13: 17 27: 27 19
HSV 19 4 4 1 23: 15 2 2 6 11: 27 34: 42 18
FRANKFURT 19 5 1 4 17: 9 2 2 5 13: 20 30: 29 17
MANNHEIM 19 4 4 2 13: 12 1 3 5 9: 18 22: 30 17
KARLSRUHER 19 4 3 2 12: 9 2 1 7 11: 28 23: 37 16
HANNOVER 96 19 4 1 3 14: 10 2 2 7 13: 24 27: 34 15
KAISERSL. 19 5 3 2 20: 12 1 0 8 10: 26 30: 38 15
DORTMUND 18 3 2 5 16: 17 1 3 4 7: 13 23: 30 13
BOCHUM 18 3 2 4 16: 16 1 3 5 7: 16 23: 32 13
UERDINGEN 19 4 1 4 16: 16 1 2 7 9: 19 25: 35 13
HOMBURG 19 3 5 2 18: 19 0 2 7 7: 20 25: 39 13
SCHALKE 04 18 4 2 2 15: 10 1 1 8 10: 30 25: 40 13