Morgunblaðið - 23.12.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987
Rómantík á
norðurslóðum
Brúðurin kom í flugvél en brúðguinimi atogara
fsafírði.
GRÆNLENSKI raekjutogarinn
Nagtoralik frá Sisimiut kom til
ísafjarðar síðastliðinn föstudag.
Aðalerindið var að taka olíu og
vistir, en á bryggjunni beið ung
kona, Tordis Grétarsdóttir Kra-
gesteen frá Þórshöfn I Færeyj-
um, en hún hafði komið fljúgandi
til Isafjarðar daginn áður. Erind-
ið var að giftast unnusta sínum,
Össuri Simonsen, 1. vélstjóra á
skipinu.
Hjónavígslan fór fram í kapell-
unni í Hnífsdal og annaðist sóknar-
presturinn, séra Jakob Agúst
Hjálmarsson, vígsluna. Nýráðinn
organisti, Gyða Halldórsdóttir, lék
við upphaf og 'lok athafnarinnar,
auk þess sem hún söng einsöng við
undirleik Beötu Joó.
Ástæða giftingarinnar í Hnífsdal
var sú, að þau Tordis og Össur
höfðu ákveðið að gifta sig í Þórs-
höfn um jólin. En þar sem brúð-
guminn gat ekki fengið fri í
skiprúminu ákváðu þau að hittast
við þessar óvenjulegu aðstæður
frekar en að seinka brúðkaupinu.
Tordis er af íslenskum ættum. Hún
er fædd á Sandi í Færeyjum en
faðir hennar er íslenskur.
Brúðhjónin eyddu svo hveiti-
brauðsdögunum í brúðarsvítunni á
Hótel ísafirði um helgina, en á
mánudagsmorgun hélt eiginmaður-
inn með skipi sínu vestur á Græn-
landshaf, en eiginkonan. fór
fljúgandi áleiðis til Færeyja.
Úlfar
Morgunblaðið/Sveinn Guðbjartsson
Brúðhjónin ásamt sóknarprestinum á fsafírði í Hnífsdalskapellu.
Útvegsbankamálið:
SÍ S efnir ekki til
frekari
„ÞRÁTT fyrir góða málefnalega
stöðu hafa Sambandið og sam-
starfsfyrirtæki þess ekki hug á
því, að svo stöddu, að efna til
frekari deilna um þetta mál eða
langvarandi málaferla við ríkið
út af sölu hlutabréfanna en bíða
átekta eftir aðgerðum rikisins
um endurskipulagningu banka-
kerfisins í samræmi við yfirlýsta
stefnu ríkisstjórnarinnar,“ segir
meðal annars í ályktun sem bor-
ist hefur frá SÍS um þá ákvörðun
Jóns Sigurðssonar viðskiptaráð-
i dag
li
i(Wii> kí JOLATIU'.f)
deilna
herra, að hafna tilboði Sam-
bandsins í hlutabréf ríkissjóðs í
Útvegsbanka íslands hf. og
hætta að svo stöddu viðræðum
nm sölu bréfanna.
„Við lítum svo á, að meðferð
stjómvalda á þessu máli hljóti að
teljast ámælisverð og ekki í sam-
ræmi við viðskiptahætti. Samband
íslenskra samvinnufélaga hefir hins
vegar jafnan ástundað vinsamleg
samskipti við stjómvöld og mun
gera það hér eftir sem hingað til,“
segir ennfremur í ályktuninni. Þar
segir einnig að þær ástæður sem
viðskiptaráðherra færi fram fyrir
synjun sinni hafí ekki við rök að
styðjast. Ekki verði séð að sala
hlutabréfanna til Sambandsins eða
samstarfsfyrirtækja þess hafi brotið
í bága við stefnu ríkisstjómarinnar
í bankamálum. Engin skilyrði eða
fyrirvarar hafí verið í tilboði ríkis-
stjómarinnar. Af hálfu viðskipta-
ráðherra hafí heldur ekki annað
komið fram, þegar bréfið um sam-
þykkt SÍS um kaupin var lagt fyrir
hann, en að skiiyrði væru uppfyllt.
„Við teljum því ljóst að raunveruleg
synjunarástæða viðskiptaráðherra
fyrir því að standa við tilboð ríkis-
sjóðs gagnvart Sambandinu sé af
pólitískum toga,“ segir í ályktun
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga.
INNLENT
Morgunblaðið/SPB
Elisabet Hauge og litli sonurinn rétt áður en þau lögðu af stað heim til Valþjófsstaða af sjúkrahúsinu
á Húsavik í gær.
„Ekki í vafa um að
beltin björguðu öllu“
— segir Elísabet Hauge, sem ól barn eftir útafakstur í Kelduhverfi
„ÉG VAR orðin svolítið sein
fyrir, var á leið í mína síðustu
kennslustund fyrir jólin, en það
tókst ekki betur til en þetta.
Ég hafnaði utan vegar. Það
má ekki tala mikið um þetta
enda má maður vist ekki keyra
svona hratt þegar hálka er á
vegum,“ sagði Elisabet Hauge
i samtali við Morgunblaðið í
gær, en hún varð fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu fyrir
skömmu að missa stjóm á bíl
sinum, komin átta og hálfan
mánuð á leið, með þeim afleið-
ingum að fæðingin fór af stað.
Elísabet er 33 ára gömul, tón-
listarkennari í Skúlagarði, og býr
hún ásamt manni sínum Bimi
Halldórssyni að Valþjófsstöðum í
Núpasveit í Norður-Þingeyjar-
sýslu. Þau áttu tvo stráka fyrir,
6 og 7 ára, svo að nú bætist sá
þriðji í hópinn. Móður og nýfædd-
um syni heilsaðist prýðilega er
blaðamaður ræddi við Elísabetu í
gærmorgun og voru þau mæðgin-
in að tygja sig til heimferðar þá
um daginn. Litli drengurinn átti
ekki að koma í heiminn fyrr en
þann 5. janúar á næsta ári, en
svo virðist sem hann hafí ekki
haft meint af, að minnsta kosti
var hann nógu stór, 55 sm og 15
merkur.
„Þetta var laust fyrir klukkan
13 á miðvikudaginn. Ég ók heim-
an frá mér, en lenti ekki í hálku
fyrr en nær dró Skúlagarði. Svo
missti ég einfaldlega stjóm á
bflnum. Bfllinn stakkst á nefíð
vinstra megin við veginn og datt
aftur niður. Ég var ég í öryggis-
beltum, guði sé lof, og er ég ekki
í neinum vafa um að beltin björg-
uðu öllu. Engin umferð var þama
svo ég kom mér út úr bflnum og
fór að ganga, en þá var legvatnið
farið að leka niður. Ég gekk í um
það bil 20 mínútur í hálkunni að
bænum Hóli og hringdi þaðan til
Kópaskers. Sjúkrabfll þaðan kom
skömmu siðar. Ég var komin á
sjúkrahúsið á Húsavík um kl. 15
og fæddi um kl. 19 þá um kvöld-
ið,“ sagði Elísabet.
Hún sagði að hræðslutilfinning-
in hefði komið yfír sig um leið
og hún missti stjóm á bflnum.
Hinsvegar hefði sú tilfinning horf-
ið þegar bfllinn loksins staðnæmd-
ist utan vegar. Þá hefði aðalatriðið
verið að hugsa rökrétt og bregð-
ast rétt við á þeirri stundu.
Elísabet sagðist hafa verið þokka-
lega vel klædd. Veðrið hafi verið
ágætt, sól og blíða þennan dag.
Eldey býður í þrjú skip
Keflavflc.
Útgerðarfélagið Eldey hf. hef-
ur nú gert tilboð i þijú fiskiskip
sem eru um og yfir 200 tonn. Jón
Norðfjörð stjóraarformaður Eld-
eyjar hf. sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann gæti ekki
gefið upp nöfnin á skipunum á
þessu stigi, en menn væru bjart-
sýnir á að samningar tækjust.
Eldeyjarmenn höfðu áður gert
tilboð í Amarnesið ÍS sem er
togari, en þar strönduðu samn-
ingar á óvissu í kvótamálum.
Spurningar
og svör um
staðgreiðslu
STAÐGREIÐSLA skatta
hefst 1. janúar næstkomandi
og í tilefni af þvi gefur Morg-
unblaðið iesendum sínum
kost á að fá svarað á síðum
blaðsins spurningum sem
kunna að vakna varðandi
staðgreiðslukerfið.
Morgunblaðið kemur þeim
spumingum sem berast á fram-
færi við embætti ríkisskatt-
stjóra. Spumingamar og svör
við þeim birtast síðan í blaðinu.
Lesendur geta hringt í síma
Morgunblaðsins 691100 kl.
10-12 árdegis mánudaga til
föstudaga og borið fram spum-
ingar sínar.
Sem kunnugt er var Eldey hf.
stofnað að tilstuðlan nokkurra at-
hafnamanna á Suðumesjum og er
félagið eign heimamanna sem hafa
lagt til hátt í 100 milljón krónUr í
hlutafé. Á stofnfundi félagsins kom
fram að þróun í útgerð á Suðumesj-
um væri orðið alvarlegt áhyggjuefni
og mörg fískveiðiskip með mikinn
kvóta hefðu verið seld burtu að
undanfömu. Væri Eldey hf. ætlað
það hlutverk að snúa þessari þróun
við til betri vegar fyrir Suðumesja-
menn.
Nú hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri til félagsins, hann
heitir Bragi Ragnarsson 36 ára út-
gerðartæknir úr Mosfellsbæ og
hyggst hann flytjast suður með sjó
í kjölfar ráðningarinnar. Jón Norð-
§örð sagði að línur skýrðust
væntanlega á milli jóla og nýárs í
tilboðsmálum því dagsetningar
væm á tilboðunum.
BB
Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Hvítanes strandar í Homafirði
Hðfn í Homaflrði.
M.S. HVÍTANES strandaði um klukkan 7 í gærmorgun er það var
nýkomið inn úr Homafjarðarós. Skipið var á leið til Hafnar í Homa-
firði til að taka saltfisk. Reynt var að ná skipinu á flot á flóðinu
klukkan 18 í gær en án árangfur og verður aftur reynt á árdegis-
flóðinu í dag.