Morgunblaðið - 23.12.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987
Aukin skerðing á
smábáta hneyksli
- segir Kristinn Pétursson,
framkvæmdastjóri á Bakkafirði
MIKILL kurr er nú í eigendum
smábáta og ibúum þeirra staða,
sem háðir eru útgerð þeirra
vegna fyrirhugaðrar aukinnar
skerðingar á aflaréttum smábáta
i frumvarpi til laga um stjórnun
fiskveiða. Kristinn Pétursson,
framkvæmdastjóri á Bakkafirði,
segir að hann eigi tæpast orð til
að lýsa furðu sinni á þessari fyr-
irhuguðu skerðingu, en frekari
takmörkun á veiðum smábáta en
gildi i dag, sé algjört hneyksli.
„Þeir alþingismenn, sem taka
þátt f því að skerða veiðar báta
Evrópumeistara-
mót unglinga í skák:
Þröstur tap-
aði fyrir
Norwood
Amhem í Hollandi, frá Þráni Vigfússyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞRÖSTUR Þórhallsson tapaði
skák sinni gegn alþjóðlega meist-
aranum David Norheim frá
Englandi í fjórðu umferð Evr-
ópumeistaramóts unglinga í
skák, sem tefld var i gær. Skák
efstu manna mótsins, Sovét-
mannsins Gelfand og Spánveij-
ans Fernandez var ólokið i
gærkvöldi, en Sovétmaðurinn
hafði þá peð yfir og betri stöðu.
Tveir næstu menn á mótinu, Liaf-
bem Riemersma frá Hollandi og
Vassily Ivanchuk frá Sovétríkjun-
um unnu báðir skákir sínar í fjórðu
umferð í gær og eru nú með þijá
og hálfan vinning. Fimmta umferð
verður tefld í dag, miðvikudag.
undir 10 brúttólestum frá því, sem
verið hefur, ættu að hugsa ráð sitt,“
sagði Kristinn í samtali við Morgun-
blaðið. „Þetta er lítilsvirðing við þær
Qölskyldur, sem að þessum atvinnu-
rekstri standa. Einhvers staðar
verða byijendur í útgerð að hafa
möguleika. Rétt er einnig að minna
á að byggðarlög eins og Bakka-
fjörður og Grímsey hafa átt fullt í
fangi með að glíma við Atlants-
hafið og veðurguðina, þótt stjóm-
málamenn gangi ekki fram að auki
og torveldi þessum aðilum að
stunda atvinnurekstur sinn umfram
það, sem þegar er orðið með bann-
dögum.
Til hvers á að trufla þessa at-
vinnustarfsemi og búa til byggða-
vandamál af þeim sökum? Er það
til þess að geta sent Byggðastofnun
á vettvang til að „leysa" málin eft-
ir tvö ár eða svo? Tæplega því þama
er um að ræða nýliðun og vaxtar-
brodd í útgerð. Á smábátunum eru
útgerðarmenn framtíðarinnar að
byggja sig upp. Hvers konar lög-
gjafarsamkunda er það, sem
stundar það að skemma möguleika
þessara manna? Raunverulega á
maður ekki orð til að lýsa hneyksl-
an sinni. Mér datt aldrei annað í
hug, en þessi vitleysa fengist lag-
færð í meðferð þingsins. Verði þetta
jólagjöf Alþingis til arftaka í gjald-
eyrisöflun landsmanna, hefur
þessari þjóð verið unninn skaði, sem
seint verður hægt að bæta fyrir,“
sagði Kristinn Pétursson.
©
INNLENT
Reykjavík;
Ekkert frost hefur
enn mælst í desember
MARGIR borgarbúar þurftu að
skafa af rúðum bíla sinna í
gærmorgun, í fyrsta sinn í des-
ember, og aðeins hafði jörð
gránað. Samkvæmt upplýsing-
um Veðurstofunnar mældist þó
ekki frost í Reykjavík þessa
nótt. Hiti í Reykjavík var 3 stig
kl. 6 um morguninn.
„Reykjavík er stór, en hiti er
aðeins mældur á einum stað í
borginni, efst í Hlíðunum," sagði^
Bragi Jónsson veðurfræðingur í
samtali við Morgunblaðið. „Sam-
kvæmt mælingum okkar á
Veðurstofunni hefur ekki enn
mælst frost í Reykjavík í desemb-
ermánuði.
Hélan á bflrúðum stafaði af
útgeislunarkælingu á fleti. Það
er allt annars eðlis en hiti, en
hann er alltaf mældur í tveggja
metra hæð frá jörðu."
Haffjarðará, Oddastaðavatn og jarðir sem land eiga að ánni.
Morgunblaðið/Gói
Haffjarðará metin
á 66 milljóiiir króna
EYJAHREPPUR, Kolbeinsstaða-
hreppur og leigjendur jarðanna
Kolviðarness, Gerðubergs og
Stóra-Hrauns visuðu til mats-
nefndar tilboði Óttars Yngvason-
ar lögmanns og Páls Jónssonar,
eiganda heildverslunarinnar Pól-
aris í Haffjarðará, Oddastaða-
vatn og 10 jarðir í Kolbeinsstaða-
hreppi og Eyjahreppi í
Hnappadalssýslu en það hljóðaði
upp á 118 milljónir króna. Svan-
ur Guðmundsson, oddviti Kol-
beinsstaðahrepps, sagði að
nefndin hefði metið Haffjarðará
á 66 milljónir króna, Oddastaða-
vatn á 1,7 milljónir króna og
lækkað það verð sem upp var
sett fyrir Gerðuberg, Kolviðar-
nes og Stóra-Hraun.
Svanur sagði að hrepparnir tveir
og ábúendur jarðanna Gerðubergs,
Kolviðamess og Stóra-Hrauns
hefðu frest fram að jólum til að
Steingrímur Hermannsson, utanríkisráðherra:
Kaupskrámefnd á við af-
ar mikinn vanda að etja
„Síðan ég tók við þessu starfi hafa verið, má ég segja, stöðug-
ar kvartanir yfir kaupi og kjörum á Keflavíkurflugvelli og það
hefur allt saman farið fyrir kaupskrárnefnd. Ég hef út af fyrir
sig ekki séð að annað kerfi leysi þetta hiutverk betur,“ sagði
Steingrimur Hermannsson, utanríkisráðherra, í samtali við Morg-
unblaðið aðspurður um viðbrögð hans við bréfi fundar trúnaðar-
manna starfsmanna varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, þar sem
fram kemur óánægja með kaupskrárnefnd og óskað er eftir breyt-
ingum á henni.
„Kaupskrámefnd er í ákaflega
erfíðri stöðu. Hún þarf að bera
saman launagreiðslur utan vallar
og innan og inn í það spilar til
dæmis launaskrið mjög mikið,
sumt ekki staðfest, og svo fram-
vegis. Kaupskrámefnd hefur
afgreitt öll erindi, sem til hennar
hafa borist núna. Ég veit að það
em ekki allir ánægðir með þá af-
greiðslu og ég hef hugsað mér að
skoða ásamt Alþýðusambandinu
og vinnuveitendum hvort það má
koma þessum málum betur fyrir,
en ég er ekki viss um að það sé
svo auðvelt," sagði Steingrímur
ennfremur.
Hann sagðist telja að það þyrfti
að vera einhver aðili eins og kaup-
skrámefnd sem skæri úr í deilu-
málum. Hann teldi það þó til bóta
ef hægt væri að sameina öll félög-
in á Keflavíkurflugvelli í eitt, enda
hefðu margir minnst á þann mögu-
leika við hann og talið til bóta.
ákveða'hvort þeir myndu nýta for-
kaupsrétt sinn. „Matsnefndin mat
Hafijarðará á 66 milljónir króna
og Oddastaðavatn á 1,7 milljónir
króna," sagði Svanur. Nefndin
lækkaði það verð sem upp var sett
fyrir Kolviðames úr 6 milljónum
króna í 2,2 milljónir króna, Gerðu-
berg úr 6,5 milljónum króna í 4,7
milljónir króna og Stóra-Hraun úr
6 milljónum króna í 5 milljónir
króna. Hins vegar keypti leigjandi
Syðri-Rauðamels, Guðmundur
Halldórsson, jörðina 14. desember
sl. á því verði sem sett var upp
rír hana eða 6,5 milljónir króna.
!g tel að það verð hafi einnig ver-
ið of hátt en það komst þó næst
raunvirði.
Óttar Yngvarsson og Páll Jóns-
son gerðu í fyrra samning við böm
Richards Thors um leigu á Haf-
fjarðaránni til 10 ára fyrir um fjórar
milljónir króna á ári. Sú upphæð
er um töluvert lægri núna vegna
þess að upphæðin er bundin gengi
bandaríkjadals. Matsnefndin komst
að þeirri niðurstöðu að eðlilegt verð
fyrir leiguna á ánni væri um 6 millj-
ónir króna á ári. Við teljum að sú
upphæð sé of lág þvi ég tel að við
getum fengið 7 til 8 milljón króna
telqur af ánni árlega.
Við höldum því fram að með
þessum leigusamningi sé verið að
halda okkur frá forkaupsrétti því
ef við keyptum ána fengjum við
ekki meira en þessar 4 milljónir
króna á ári í tekjur af hennii Við
treystum okkur því ekki til að festa
kaup á ánni. Hins vegar hefur Eyja-
hreppur áhuga á því að eignast
Höfða og Ytri-Rauðamel en þessar
tvær jarðir eru um fjórðungur af
hreppnum.
Fimm bama Richards Thors em
þinglýstir eigendur að Haffíarðar-
ánni, Oddastaðavatni og jörðunum.
í september seldi hins vegar Helga
M. Thors tveimur systkinanna þtjár
jarðanna, Höfða og Ytri-Rauðamel
í Eyjahreppi, Ölviskross í Kolbeins-
staðahreppi og fíórðung árinnar á
19 milljónir króna en þeim kaupum
hefur hins vegar ekki verið þing-
lýst. Okkur var ekki boðið að nýta
forkaupsrétt okkar á þessum eign-
um og við munum höfða mál vegna
þess,“ sagði Svanur.
Umferðargetraun:
Yerðlaun
afhent á
aðfangadag
UM 30 þúsund skólabörn hafa nú
spreytt sig á getraun um um-
ferðarmál, sem kallast „í jóla-
umferðinni". Frestur til að skila
svörum rann út 18. desember og
275 böm verða heimsótt á morg-
un, aðfangadag, og þeim afhent-
ar bækur í verðlaun.
Getraunin fólst í því, að bömin
áttu að svara því hvemig jólasveinar
ættu að hegða sér í umferðinni. Ein
spumingin var til dæmis á þann veg
hvort Giljagaur mætti halda á Stúf
í framsætinu í jeppa þeirra sveina. í
frétt frá lögreglunni segir, að aldrei
áður hafi þátttaka í getrauninni ver-
ið jafn góð og nú, en því miður sé
ekki hægt að veita öllum bömum
verðlaun, sem sendi rétt svör. Því
verður dregið úr réttum lausnum og
275 böm í Reykjavík, á Suðumesjum
í Hafnarfirði og fleiri þeim stöðum
þar sem efnt var til getraunarinnar
fá heimsókn frá lögreglunni á morg-
un, þar sem þeim verður afhent bók
( verðlaun.
Lögreglan, Umferðamefnd
Reykjavíkur, Umferðarráð og Farar-
heill ’87 óska bömum um allt land
gleðilegra jóla og vonast til að eiga
við þau góða samvinnu á nýju ári.
Fréttatilkynning.