Morgunblaðið - 23.12.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987
47
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Eftir dagskrá í kirkjunni færðu kórfélagar og gestir sig í safnaðar-
heimilið þar sem voru kaffiveitingar.
Aðventutón-
leikar á Nes-
kaupstað
Neskaupstað.
KIRKJUKÓR Norðfjarðar hélt
sína hefðbundnu aðventutón-
leika sunnudaginn 13. desember.
Á tónleikunum söng Laufey Eg-
ilsdóttir frá Egilsstöðum einsöng
við undirleik Sigurbjargar Helga-
dóttur tónlistarkennara sem einnig
er frá Egilsstöðum. Tveir ungir
flautuleikarar, þær Sigrún Þor-
bergsdóttir og Hildur Svavarsdóttir,
báðar héðan af staðnum, aðstoðuðu
kórinn. Þá lék stjórnandi og organ-
isti kórsins, Ágúst Ármann Þorláks-
son, einleik á orgel.
Tónleikamir fóru fram í tvennu
lagi, fyrst um klukkustundar dag-
skrá í kirkjunni en síðan færðu
kórfélagar og gestir sig í safnaðar-
heimilið, en þar fór fram kaffisala
á vegum kórsins og kórfélagar slóu
á léttari strengi og skemmtu með
léttri tónlist.
Fjölmenni var á tónleikunum og
gerður góður rómur að.
— Ágúst.
Lögreglublaðið
er komið út
LÖGREGLUBLAÐIÐ er nú kom-
ið út í 22. sinn. Meðal efnis í
blaðinu að þessu sinni er grein
um viðbrögð við sprengjuhótun,
ný og fullkomin vegabréf eru
kynnt, rætt um sprengjueyðing-
ar og störf víkingasveitar lög-
reglunnar.
Lögreglublaðið er gefið út af
Lögreglufélagi Reykjavíkur og er
ristjóri þess Svavar G. Jónsson. Auk
þess efnis sem talið er hér að ofan
eru greinar um þjóðvegalögregluna,
eldsvoða af völdum rafmagns,
bílasíma, lögreglukórinn, nýjungar
í fjarskiptamálum, vopnasmygl og
fleira.
Blaðinu er dreift til allra lög-
reglumanna, ríkisstofnana og
stjómsýslustofnana sveitarfélaga
og allra þeirra er tengjast réttar-
gæslu. Þá verður blaðinu einnig
Saga um eitur-
lyfjaviðskipti
VASAÚTGÁFAN hefur gefið út
skáldsöguna „Dóphringur í
Danaveldi" eftir Frank Jensen.
Þessi saga fjallar um eiturlyfja-
viðskipti og segir í kynningu
útgefanda að höfundurinn, Frank
Jensen, hafi starfað um árabil í
fíkniefnadeild dönsku lögreglunnar
og lýsi því vel hvemig alþjóðlegir
sölumenn dauðans starfa.
Bókin er 160 bls. og skiptist nið-
ur í 32 kafla. Steingrímur Pétursson
íslenskaði en Kjartan Amórsson
gerði kápumynd. Bókin er prentuð
í Prentstofu G. Benediktssonar.
dreift til almennings á Q'ölfömum
stöðum fyrir jóíin. Lögreglublaðið
er 126 blaðsíður, prentað í fjórlit á
vandaðan glanspappír. Forsíðu-
mynd er eftir Bjama Ólaf Magnús-
son, lögreglumann.
DÓPHRINGUR
Skólavörðustíg 17a, sími 25115.
Jarðabók um
Eyjafjarðarsýslu
TÍUNDA bindi Jarðabókar Árna
Magnússonar og Páls Vídalíns
er komið út í nýrri ljósprentaðri
útgáfu. Þetta tíunda bindi er um
Eyjafjarðarsýslu og var samið á
árunum 1712 og 1713.
Á bókarkápu segir að um Jarða-
bók Áma og Páls hafí m.a. eftirfar-
andi verið ritað: Hún er merkasta
heimild um hagsögu landsins á
þessum tíma, hrein fróðleiksnáma
um landshagi og efnahagsmál. En
jafnframt er hún málfræðingum,
sem við ömefnarannsóknir fást,
ómissandi heimildargagn (Halldór
Halldórsson prófessor).
Hinni ljósprentuðu útgáfu verður
væntanlega lokið á næsta ári og
verður síðan gefið út ýmislegt efni
sem snertir jarðabókarverkið.
Gunnar F. Guðmundsson sagnfræð-
ingur sér um þá útgáfu og semur
atriðisorðaskrá um öll bindin.
Gerðusvovel!
Sérlaijaöir
\ réttir lieint til
|)ín í vinnuna
Nýttu dýrmætan vinnutímann í jólaönnum til Ms og
njóttu vel, því eldhúsið okkar er opið til kl. 23:30 á
hverju kvöldi.
Við sendum af öllum matseðlinum okkar til þín ásamt
meðlæti og drykkjarföngum að óskum.
Vell dönn, mídíum eða rer?
fiSKUR
\
Suðuriandsbraut 14 • Pöntunarsími 681344 -Geymdunúmerið!
\