Morgunblaðið - 23.12.1987, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 23.12.1987, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987 1 -|Í Molar af gnægtaborðinu Þingflokkarnir svara fyrirspurn „Bróar“ um þróunaraðstoð Brú nefnist félagsskapur áhugafólks um þróunarlönd, þró- unarsamvinnu og neyðarhjálp. A aðalfundi sl. vor var samþykkt að senda þingflokkunum fyrir- spurnir um þessi málefni. Fara svör þeirra hér á eftir. Þess ber að gæta að svörin hafa borist á nokkuð löngu tímabili og enn- fremur að ekki ber að líta á þau sem formlega afstöðu flokkanna, en fremur sem innlegg í umræðu um þessi mál — nema annað sé tekið fram. Brú hefur óskað eft- ir að fá svörin birt í Morgun- blaðinu. Fyrirspumin frá Brú var á þessa leið: Opinbert framlag íslendinga til þróunarsamvinnu og hjálpar- starfs í þróunarlöndum er innan við tíunda hluta þe'ss sem Sam- einuðu þjóðimar hafa sett velmegunarþjóðum heims sem mark að keppa að og flest Norð- urlanda era komin fram úr. Vorið 1985 ályktaði Alþingi að þessu marki skyldi náð á sjö ámm. Siðan þá hefur framlagið lækkað. Af þessum ástæðum vill Brú, félag áhugamanna um þróunar- lönd, biðja stjóramálaflokka og framboð, sem eiga fulltrúa á Alþingi, að skýra afstöðu sína til þessa máls. Við förum þess á leit að m.a. verði tekið mið af eftir- farandi atriðum: a) Hvernig ætlar viðkomandi flokkur (samtök) að beita sér fyrir þvi að ályktun Alþingis verði framfylgt? b) Hvaða hátt er vænlegast að hafa á þessu framlagi: fastan lið á fjárlögum, sérstakt gjald i þessu skyni eða aðrar leiðir? c) Hvaða hugmyndir hefur ykk- ar flokkur (samtök) um framkvæmd þróunarsam- vinnu og hjálparstarfs í þróunarlöndum? Alþýðuflokkurinn Á minnisblöðum, sem lögð voru fram við stjómarmyndunarviðræð- ur núverandi ríkisstjómar, var rækilega á það bent hve illa Islend- ingum hefði gengið að uppfylla sáttmála Sameinuðu þjóðanna um framlög til þróunarmála. Jafnframt var á það bent, að Alþingi hefði ekki framfylgt eigin ályktun frá 198r um framlög til þessa mála- flokks. I stjómarsáttmálanum er hins vegar lítið fjallað um þróunar- mál, — aðeins sagt, að auka beri framlög til þróunarmála. Það hefur verið yfirlýstur vilji Alþingis og ríkisstjóma á undan- fömum árum að gera betur í þróunaraðstoð, án þess að þar hafi verulegar breytingar orðið á. Um framkvæmd ályktunarinnar frá 1985 þarf ekki að hafa mörg orð. Henni hefur ekki verið framfylgt. Alþingi íslendinga hefur ekki tekið Ti ' mark á eigin ályktunum, ekki fylgt eftir eigin ákvörðunum. Framlög til þróunarmála eru í engu betra horfi en þau hafa verið á undanfömum árum. Það hlýtur að vera meginverkefni áhugamanna um þróunaraðstoð innan þings sem utan, að knýja á um að ályktuninni frá 1985 verði framfylgt. Spurt hefur verið hvort tryggja eigin framlög til þróunarmála með beinum framlögum á fjárlögum, eða huga að sérstökum mörkuðum tek- 1 justofni, t.d. ákveðnum hundraðs- hluta af söluskatti. Markaður tekjustofn er að mínu mati freist- andi aðferð til að tryggja framlög til þróunaraðstoðar. Það má hins vegar ekki verða til þess að hækka söluskattsstigið, sem þegar er alltof hátt. Hvort tiltekinn hundraðshluti verður tekinn af söluskatti, eða framlög ákveðin á fjárlögum skiptir ekki máli, heldur það hvort vilji er fyrir hendi að auka framlögin og ná því marki, sem t.d. aðrar nor- rænar þjóðir hafa þegar náð, þ.e. markmiði sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar, að ekki væri fráleitt að leggja á sérstakan þróunarskatt, beinan skatt. Slíkur skattur myndi stuðla að því, að hver greiðandi yrði sér meðvitaður um þátt sinn í aðstoð við þróunarlöndin og þá ábyrgð, sem við berum hvert og eitt gagn- vart samborgurum okkar á móður Jörð. Þá er mjög brýnt, að auka alla umfjöllun um þróunarmál, eink- um á Alþingi, en einnig í samfélag- inu almennt, og þá ekki síst í skólum landsins. Varðandi framkvæmd þróunar- muna, og markmið og verk- efnaval stofnunarinnar verði skilgreint nákvæmlega nokkur ár fram í tímann. — Að komið verði á fót sjóði, er láni áhættuíjármagn til undir- búnings verkefna í þróunarlönd- um._ — Að íslendingar taki þátt í þróun- arsamstarfi OECD-ríkjanna og í starfi DAC-nefndarinnar. Árai Gunnarsson Borgaraflokkurinn Mér, undirrituðum, hefur verið falið að svara fyrirspum yðar og skýra afstöðu þingflokks Borgara- flokksins til aðstoðar við þróunar- lönd. Það er um leið harmað hversu það hefur dregist að svara erindi yðar, en vegna aðstöðuleysis í upp- að fyrirtæki og einstaklingar á Is- landi hefðu að nokkru leyti frum- kvæði um að taka að sér. Hugsanlegt væri, að myndaður yrði sérstakur þróunarsjóður með lög- boðnum fjárframlögum ríkisins í samræmi við ályktun Alþingis frá 1985. Fyrirtæki og einstaklingar í samvinnu við aðila í þróunarlöndun- um gætu síðan sótt um styrk til verkefna á sviði hjálparstarfs, at- vinnulífs og menningarmála, svo dæmi séu tekin. Júlíus Sólnes Sjálfstæðisflokkurinn a. Með störfum sínum á Alþingi og í ríkisstjóm. b. Heppilegast er að hafa um þetta fastan lið á Qárlögum. c. í álytkun landsfundar Sjálfstæð- samvinnu og neyðarhjálpar er rétt að benda á eftirfarandi atriði. — Að framlagi okkar verði ráðstaf- að samkvæmt þörfum þróunar- landa, en fari ekki eftir atvinnuhagsmunum á íslandi. — Að aðstoðin fari til fátækustu landanna. — Að þegar verði gerð úttekt á allri þróunaraðstoð íslendinga til þessa. Hve miklum ijármunum hefur verið varið af opinberri hálfu og sjálfstæðra stofnana, og hvemig hefur skiptingin ver- ið í tvíhliða og marghliða verkefni, neyðarhjálp og þróun- arsamvinnu. — Að þegar verði komið á öflugu samstarfi íslenskra hjálparstofn- ana, svo fjármunir megi nýtast betur. Einnig að leitað verði eft- ir nánara samstarfi við norrænar þróunarstofnanir, samvinnu um verkefni og þjálfun íslenskra starfsmanna. — Að fræðsla um þróunarmál og málefni þriðja heims verði aukin og efld í skólum landsins. — Að allt starf Þróunarsamvinnu- stofnunar íslands verði eflt til hafi kjörtímabils hefur verið óhægt um vik. Borgaraflokkurinn hefur mikinn áhuga á samstarfi við ríki þriðja heimsins, svokölluð þróunarlönd. Ef til vill eigum við íslendingar meira sameiginlegt með mörgum þessara ríkja en okkur grunar. Þannig flytjum við fyrst og fremst út óunnið hráefni og erum tiltölu- lega einangraðir frá §ármagns- heimi vestrænna iðnríkja. Þingflokkur Borgaraflokksins mun fylgjast vel með framvindu mála á Alþingi, sem lúta að sam- starfi við þróunarlöndin. Við erum þeirrar skoðunar, að til þes að að- stoð okkar við þróunarlöndin komi að sem mestu gagni, sé vænlegast, að hún sé byggð á samstarfi um ákveðin verkefni. Dæmi um slíkt eru þeir samningar um rafvæðingu sveita í Kenýa, sem voru langt á veg komnir í tíð Alberts Guðmunds- sonar, þáverandi iðnaðarráðherra. Þannig er það skoðun okkar, að opinbert framlag íslendinga til hjálparstarfs í þróunarlöndum eigi fyrst og fremst að beinast til ákveð- inna verkefna, sem æskilegt vaeri isflokksins 1985 var tekið á þessu máli með svofelldum hætti: „Vegna hinna frjálslyndu mannúðarviðhorfa sem eru grunnþáttur sjálfstæðisstefn- unnar hefur Sjálfstæðisflokkur- inn sérstakri skyldu að gegna við mótun og framkvæmd skyn- samlegrar stefnu gagnvart þróunarríkjunum. Auka skal framlag til þróunaraðstoðar og renni það fyrst og fremst til verkefna sem íslendingar geti sjálfir framkvæmt. Skal með ráðum og dáð hlúð að viðleitni þróunarríkjanna til að komast til bjargálna, ekki síst með frjáls- um utanríkisviðskiptum." Sigurbjörn Magnússon, f ramkvæmdastjóri. Kvennalistinn Á síðasta þingi vöktu Kvenna- listakonur máls á málefnum þróunaraðstoðar bæði við afgreiðslu fjárlaga og í umræðum um skýrslu utanríkisráðherra. Einnig beindu þær sérstakri fyrirspurn til utanrík- isráðherra um málefni Þróunarsam- vinnustofnunar íslands. Til glöggvunar eru hjálögð afrit af ræðum sem fluttar voru við þessi tækifæri af hálfu Kvennalistans. Þar kemur fram afstaða Kvenna- listans til málefna þróunarsam- vinnu svo og hvemig Kvennalistinn hefur leitast við að fá því til leiðar komið að við ályktun Álþingis um opinber framlög til þróunarsam- vinnu verði staðið. Mun Kvennalist- inn áfram beita sér með þessum hætti til að knýja á um að ályktun Alþingis verði framfylgt, þ.e. verði Kvennalistinn áfram í stjómarand- stöðu. Verði Kvennalistinn hins vegar aðili að ríkisstjóm gefst betra færi á að sjá til þess að staðið verði við ályktun Alþingis. Hvað b) lið fyrirspumarinnar varðar telur Kvennalistinn vænleg- ast að framlög til þróunarsamvinnu komi beint úr ríkissjóði á fjárlögum ár hvert, enda hefur Alþingi þegar samþykkt að svo skuli vera. Þar sem slík samþykkt liggur fyrir telj- um við ekki æskilegt að sérstakt gjald eða skattur verði lagður á landsmenn í þessu skyni, enda er skattheimta á almenning þegar gífurleg og vandséð hvernig rétt- mætt er að taka eitt málefni fram yfir annað á þennan hátt og rök- færa aukna skattlagningu til þess frekar en annarra knýjandi verk- efna. Síðasti liður fyrirspumarinnar er all víðtækur og ekki gefst færi á að svara honum ítarlega hér. í stuttu máli leggur Kvennalistinn áherslu á að þróunarsamvinnu verði beint að vandlega undirbúnum tvíhliða verkefnum þar sem íslensk þekking, jafnt huglæg sem tækni- leg, nýtist til hins ýtrasta. Við leggjum áherslu á að jafnan fari fram ítarlegar kannanir á aðstæð- um og samfélagsháttum í viðtöku- landinu áður en verkefni em ákveðin til þess að tryggt megi vera að þau komi viðtakendum að raunverulegu gagni og stuðli í reynd að þeirri þróun til sjálfshjálp- ar sem öll þróunarsamvinna miðar að. Samkvæmt lögum er undirbún- ingur og framkvæmd slíkra verk- efna í höndum Þróunarsamvinnu- stofnunar íslands, og teljum við það eðlilegt. Hins vegar álítum við að neyðaraðstoð sé betur komin í hönd- um aðila eins og Hjálparstofnunar kirkjunnar og Rauða krossins sem hafa aðgang að alþjóðlegu hjálpar- starfsskipulagi sem ríkið hefur aftur á móti alla jafnan ekki. Fyrir hönd Kvennalistans, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir. Alþýðubandalagið' a) Þingflokkur Alþýðubandalags- ins telur að standa beri við samþykkt Alþingis frá vordög- um 1985, þ.e.a.s. að auka beri framlög til þessa málaflokks í áföngum þar til tilsettu marki er náð. Alþýðubandalagið hefur á hverju ári við afgreiðslu fjár- laga gagnrýnt ónógar fjárveit- ingar til þróunarsamvinnu og bent á að ótvíræð samþykkt Alþingis væri brotin. b) Þingflokkurinn telur að hér hljóti f.o.f. að verða um framlög úr ríkissjóði að ræða og sér ekki ástæðu til .að ráðstafa í þennan málaflokk mörkuðum tekju- stofni fremur en í fjölda önnur verkefni. Þingflokkurinn hafnar þó ekki þeim möguleika að afla sérstakra tekna í þessu skyni og lýsir sig tilbúinn til viðræðna um slíkt ef aðrir stjómmála- flokkar telja það vænlegt til árangurs. c) Þingflokkur Alþýðubandalags- ins telur að við allt starf á sviði þróunarsamvinnu verði að taka mið af séríslenskum aðstæðum, smæð þjóðarinnar og sérhæf- ingu í atvinnulífí og menntun. Því beri að miða beina aðstoð okkar sem mest við hóflega verkefnisstærð, viðráðanlegar aðstæður og sérsvið svo sem sjávarútveg eða nýtingu jarð- hita. Að öðru leyti er eðlilegt að nokkur hluti þess fjár sem
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.