Morgunblaðið - 23.12.1987, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987
59
Það má framleiða marga gersemi úr gullinu
Frá Vísindamiðstöðinni
Allt á fleygiferð í skautahöllinni
meira. Þá er hitinn úti að mjaka sér
í nánd við 50 gráður.„ Núna er
rólegra, segir forstjórinn mér,„
enda hitinn ekki svo mikill á þessum
árstíma."
Ég rak augun í það í bæklingi
um Skautahöllina, að gert var ráð
fyrir sérstökum tímum fyrir stráka
og öðrum fyrir stelpur. Og að strák-
amir áttu einir að sitja að stóra
svellinu. Ég spurði því þennan væna
mann, hvemig á því gæti staðið,
að hann virti ekki reglur sem um
skautahöllina gilda. Hann benti út
á völlinn, þar sem kátir krakkar
renndu sér af ákefð. „Hvað held-
urðu að gæti gerzt hér,“ sagði
hann.„Það er engin hætta á að
neinn komist upp með ósiðsemi.
Annað hvort væri nú, en hér kynn-
ast krakkamir ósköp heilbrigðan
hátt. Ég held að foreldrar séu mjög
ánægðir, ef þeir vita af krökkunum
sínum hér. 0g það hefur breytt
andrúmsloftinu í höllinni eftir að
ég ákvað að leyfa báðum kynjum
að vera saman. Það er engin ástæða
til að búa til fleiri vandamál en
bráðnauðsynlegt er,“ sagði Abdul-
wahab. Svo fómm við í te upp á
skrifstofuna hans og hann sýndi
mér nýtt merki, sem var nýbúið að
teikna fyrir höllina. Hann sagðist
ekki vera nógu ánægður með það.
„Kannski ég geri bara merki sjálf-
ur. Þeir kunna ekki við annað en
taka það og nota ef það kemur frá
mér.“ Við herra Abdulwahab
kvöddumst svo með virktum og ég
hét því að senda honum kort frá
Tjöminni, þegar hana legði.
Nafnið á Kuwait þýðir „litli kast-
ali. “ Því er skipt niður í fjögur
umdæmi eða héruð, þar er höfuð-
borgin auðvitað eitt, hin heita
Jahra, Hawalli og Ahmadi. Landið
er ekki stórt tæpir 18 þúsund
ferkílómetrar og að megninu til
eyðimörk. Veðráttan er langtum
breytilegri en ég átti von á. Hæsta
hitastig sem hefur mælzt var 51
stig í júlí 1978, en algengt að hann
sé 45 stig júlí og ágúst. Lægstur
hefur hitinn orðið 6 stiga frost í
janúar 1964, en mér skilst að með-
alhitinn sé í þeim mánuði um 8 stiga
hiti. Þessum veðrabreytingum fylg-
ir afar misjafnlega mikil úrkoma,
stundum rignir árið allt 22 milli-
metra og síðan hoppar rigningin í
352 millimetra það hið næsta.
Að því er bezt er vitað búa um
1,8 milljón manns og spáð að árið
2000 verði íbúafjöldinn kominn í 3
milljónir. Það vakti athygli mína,
þegar ég gluggaði í tölur, að fijó-
semi hjá Kuwaitum er minni en hjá
útlendingunum, sem búa í landinu
eða 3.7 % á móti 5.1% Og eru þó
Arabar þekktir fyrir annað en spara
við sig bameignir.
Þótt glansinn hafí dofnað af olíu-
ævintýrinu bíða mörg verkefni
varðandi þróun annarra atvinnu-
greina. Mér var sagt, að engar
hömlur yrðu settar í náinni framtíð
á því, að innflutningur manna frá
Austurlöndum nær og fjær héldi
áfram. Mér fannst meiri vinsemd
með Kuwaitum og Austurlandabú-
unum, en í ýmsum öðrum Flóaríkj-
um. En svona blandað þjóðfélag
hefur líka sínar veiku hliðar. Út-
lendingamir - að Palestínumönnun-
um frátöldum - setjast ekki að.
Þeir vinna í nokkur ár og safna sér
fé og fara. Kannski er þetta ein
skýringin á því, hversu höllum fæti
Flókaríkin standa gagnvart írönum.
Kuwaitar eiga það sameiginlegt
með öðrum olíuríkjum við Flóann,
að hafa notað gróðann í mikið upp-
byggingarstarf í þjóðfélaginu.
Miðstöð allra rannsókna er Vísinda-
stöð Kuwait. Ég tók mér ferð á
hendur þangað einn morguninn og
hitti þar stúlkuna Reem A1 Hus-
seini, sem sagði mér frá því helzt
sem er unnið að.
Vísindastöðin er í stórri og til-
komumikilli byggingu í útjaðri
höfuðborgarinnar. Rannsóknar-
starfssemin er ótrúlega íjölþætt.
Auðvitað em ofarlega á blaði
olíurannróknir, þróun á byggingum
í olíuiðnaðinum og samhliða þeim
jarðvegs og efnarannsóknir. Þá er
að geta umhverfisrannsókna, til
dæmis á eðli sandstorma. Inní þeim
væri einnig könnun á olíumengun
í vatni og sjó. Mikil áherzla er á
matvæla- og akuryrkjurannsóknir.
Gerðar hafa verið í auknum mæli
tilraunir með sauðfjárrækt og
hænsnarækt og lofar góðu. Aðkall-
andi er að finna beztu leiðina til
að hreinsa salt úr sjó, og tilraunir
með að nota slíkt hreinsað vatn til
vökvunar hafa tekizt vel. Þá skal
nefna líftækni á ýmsum sviðum,
erfðarannsóknir og í raungreinum
er auðvitað verkfræði, rafeinda og
laserrannsóknir, tölvuþróun og ég
veit ekki hvað. Loks má nefna rann-
sóknir á að nýta meira sólar- og
vindorku og er þá aðeins stiklað á
stóm.
Það er augljóst af öllu að þama
er ekki sparað til að gera vísinda-
mönnum kleift að stunda rannsókn-
ir sínar. Stúdentar í háskóla Kuwait
njóta og góðs af starfinu og em
þar í þjálfun ákveðinn tíma eftir
tilteknum skilyrðum. Flestir
vísindamennimir em kuwaitskir, en
einnig margir erlendir. Allir hafa
doktors eða mastersgráðu í sinni
grein.
Mér hafði auðvitað leikið hugur
á að komast út í eyðimörkina. En
vegna ólgunnar óróans em tak-
markanir settar við ferðum manna.
Það fer maður að skilja og virða,
eftir að hafa verið þama stund. Svo
að það verður að bíða betri tíma.
En bedúínahefðin er sterk í landinu,
eins og víðar og þeir menn stoltast-
ir, sem með réttu geta lýst því yfír
að þeir séu bedúínar.
Svo var kominn tími til að halda
heimleiðis. Með stuttri viðkomu í
Bahrein.Það er án efa jafn misjafnt
og mennimir, hvað verður eftir-
minnilegast þegar heim er komið
frá nýjum og framandlegum stað.
Það er hvorki stríð né vísindi, sem
koma upp í hugann þegar ég hugsa
til Kuwait. Það er allt þetta sítrón-
ute. Og svo gosbrunnamir sem
dönsuðu. Ef ég væri gosbrunnur,
vildi ég eiga heima þar.
Texti:
Jóhanna Kristjónsdóttir
Þorláksmessuganga
Þorláksmessuganga verður farin
í fímmta skipti miðvikudaginn 23.
desember og verður gengið að venju
frá Hlemmtorgi niður Laugaveginn.
Safnast verður saman á Hlemmi
klukkan 17.45 og kyndlar tendrað-
ir. Gangan leggur af stað klukkan
18.00. Þrír kórar verða með í för.
Bamakór Kársnesskóla, Hamra-
hlíðarkórinn og Háskólakórinn.
Göngunni lýkur á Bakarabrekkunni
með stuttu ávarpi og söng.
Fréttatilkynningu þessari fylgir
éftirfarandi ávarp:
Um þessi jól hefur mannkynið
meiri ástæðú til bjartsýni en oft
áður.
Mestu veldi heims, Bandaríkin
og Sovétríkin, hafa loks komið sér
saman um að fækka gereyðingar-
vopnum. Við berum öll þá von í
brjósti að samningamir tákni upp-
haf nýrra tíma. Tíma þar sem
valdamenn hlusta á rödd almenn-
ings, fólksins í löndunum, fremur
en á gjallandi herforingja.
Við megum þó ekki láta blindast
af bjartsýni. í raun er vinnan rétt
að hefjast. Hvert sem við lítum
sjáum við sveltandi böm þriðja
•heimsins í skugga allsnægta Vest-
urlanda. Sumir landsfeður þessara
bama kaupa fremur vopn en brauð.
Fyrir andvirði einnar sprengjuflug-
vélar má útrýma sulti á stómm
landsvæðum. Fyrir andvirði kafbáts
má kenna þúsundum barna í þriðja
heiminum að lesa.
Þeirra vegna og vegna okkar eig-
in bama megum við ekki sofna á
verðinum, þótt byrinn sé hagstæð-
ur.
Við viljum:
☆ stöðva vígbúnaðarkapphlaupið
til þess að forða mannkyni frá
fortímingu,
☆ að íslensk stjómvöld styðji á
alþjóðavettvangi algert bann við
kjamorkuvopnatilraunum,
☆ að íslensk stjómvöld beiti sér
fyrir því að fjármagn það sem var-
ið er til vígbúnaðar verði notað til
þess að seðja hungur þeirra sem
svelta,
☆ vinna gegn því að ísland verði
vettvangur aukins vígbúnaðar,
☆ hafna kjamorkuvopnum á landi
okkar og í hafinu umhverfís,
☆ spoma gegn hvers kyns ofbeldi
í fjölmiðlum, gegn sölu stríðsleik-
fanga og leggjum áherslu á uppeldi
til friðar.
Til að búa bömum okkar örugga
framtíð verðum við öll að leggja
okkar af mörkum í þágu friðar.
Gleðileg jól.
Friðarhópur fóstra, Friðar-
hreyfing íslenskra kvenna,
Friðarsamtök listamanna,
Menningar- og friðarsamtök
islenskra kvenna, Samtök
islenskra eðlisfræðinga gegn
kjarnorkuvá, Samtök lækna
gegn kjarnorkuvá, Samtök
um kjarnorkuvopnalaust ís-
land.
Hægindastóll
með ruggu og
snúning.
Staðgreiðsluverð
kr. 12.500.-
VALHÚSGÖGN
ÁRMULA 8. SIMI 82275.
r Demantur ^
fyrir döm una
Gull og demantar
Kjartan Ásmundsson, gullsmiður,
Aðalstræti 7. Sími 11290.