Morgunblaðið - 23.12.1987, Side 62

Morgunblaðið - 23.12.1987, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987 fclk f fréttum ÁLFTANESSKÓU Göngum við í kringum... Bömin f Álftanesskóla í Bessa- staðahreppi, nágrannar forset- ans, héldu jólaskemmtun nú fyrir skemmstu. Þegar Morgunblaðs- menn bar þar að var jólaskemmtun yngri bamanna á aldrinum 6 til 9 ára f fullum gangi. Krakkar úr 11 ára bekk vom að sýna leikritið „Jólagrautinn" sem íjallar um sam- skipti manna og búálfa. í þetta sinn hafði mannfólkið nærri gleymt að færa búálfunum jólagrautinn en gleymist það, boðar það árs ógæfu. Allt fór þó vel að lokum, rétt eins og f ævintýmnum og að „Jóla- grautnum" loknum tók frumsamin JBakkabræðrasyrpa" 6. bekkinga við. Hún vakti mikla hrifningu meðal áhorfenda, sem klöppuðu leikumnum lof í lófa. Þá var gert örstutt hlé á skemmtuninni og not- uðum við tækifærið til að spjalla við þau Þómnni Jóhönnu Júlíus- dóttur 8 ára, Viktoríu Jensdóttur 6 ára og Hlyn Þór Hjaltason 7 ára. Þau vom hin hressustu og sögðu að sér þætti mjög gaman á skemmt- uninni. „Það er leiðinlegast að hafa ekki alvöru jólatré," gall Hlynur við, stríðnislegur á svip. öll komu þau fram á skemmtuninni, léku og sungu og sögðust ekki hafa verið vitund feimin. Þau vom þó á því að skemmtilegast af öllu væri að búa til jólaskraut. Við vildum ekki te§a þau lengur því nú var komið að því að syngja og dansa f kringum jólatréð og var mikill hamagangur í öslq'unni þegar verið var að skipa krökkunum í hringi í kringum jóla- tréð. Fljótlega gat þó dansinn hafíst, að sjálfsögðu á „Göngum við í kringum..." Mannfólkið hafði nærri gleymt að færa búálfunum jólagrautinn. Morgunblaðið/Þorkell „Við vorum ekkert feimin,“ sögðu Hlynur Þór Hjjaltason, Viktoría Jensdóttir og Þórunn Jóhanna Júlfusdóttir í Álftanesskóla. Chris- Maria sýnir okkur dýrðina. CHRIS-MARIA HuBER Greiðsla í lagi Pað verður mörgum starsýnt á makkann hennar Chris-Mariu Hulber þar sem hún þrammar um götur Vestur-Berlfnar. Hárið, sem nær henni í mittisstað, er allt flétt- að f 82 örþunnar fléttur og hefur hún hengt litlar bjöllur neðst f hveija fléttu. í þeim klingir í hvert sinn serhhúnhreyfir höfuðið en það gerist æði oft, þvf Chris-Maria er söngkona og dansari. Hún segir það allt annað líf að vera með fléttum- ar, „hárið varð mjög fljótt skítugt áður en ég fléttaði það en nú þarf ég ekki annað en að bleyta það og vinda eins og borðtusku. Mjög hag- kvæmt." „Ekki svo,“ segja þeir sem fjármálavitið hafa, því einn galli er á gjöf Njarðar; Á átta vikna fresti þarf að laga fléttumar og þvo og það tekur litla 15 klukkutfma. Fyr- ir þá handavinnu mkkar hár- greiðsludaman hennar Chris hana um 22 þúsund krónur.innifalið í verðinu er kaffí og meðlæti. Keuter TELPUKORNIÐ MABEL Faðmlag við Eirík Vélmennið Eiríkur hlaut langt og innilegt faðmlag frá henni Mabel þegar hann af sjálfsdáðum bað um eitt slfkt. Mabel, sem er orðin 10 ára, er hreint ekki vön að vélmenni ávarpi hana og varð því heldur hvumsa þegar Eiríkur lauk upp munni sínum. Hún var þó fljót að jafna sig og rauk um háls hans og rak honum rembings- koss að auki. Eiríkur var að vonum alsæll með viðbrögðin og unir nú hag sínum stómm betur en hann hefur verið til sýnis f stórversluninni Harrods í Lund- únum. Reyndar er Eiríkur falur fyrir 80 þúsundir króna en sölu- mönnum leikfangadeildar Harrods hefur gengið treglega að selja hann. Mabel og Eiríkur faðmast f jólaösinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.