Morgunblaðið - 23.12.1987, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987
69
Blönduós:
Lionessur gefa eldri
borgurum myndbönd
Blönduósi.
NÝSTOFNAÐUR Lionessu-
klúbbur á Blönduósi, sem ber
nafnið Liljur, færði ellideild Hér-
aðshælisins á Blönduósi mynd-
bönd að gjöf.
Það hefur löngum verið sagt að
jólin séu hátíð bamanna og er þá
líkast til hægt að líta á þessa full-
yrðingu í víðara samhengi og álíta
sem svo að átt sé við bamið í okk-
ur öllum. Það vill stundum gleymast
í öllu amstrinu fyrir jólin og jafnvel
oftar að til eru þeir einstaklingar
sem lítið ber á en hafa unnið sinn
starfsdag og dvelja nú á elliheimil-
um. Konur í Lionessuklúbbnum
Liljum hugsuðu til gamla fólksins
á aðventunni og fóru í heimsókn á
ellideild Héraðshælisins á Blönduósi
og færðu gamla fólkinu að gjöf
myndbönd með stiklum Ómars
Ragnarssonar. Einnig sungu Lion-
essumar jólalög fyrir heimilisfólkið
og ríkti sannkölluð jólastemmning
í setustofu ellideildarinnar og kunnu
eldri borgaramir vel að meta þessa
heimsókn.
— Jón Sig.
Konur úr Lionessuklúbbnum
Liljur færðu ellideild Héraðs-
hælisins á Blönduósi myndbönd
og sungu jólalög.
Morgunblaðið/Árni Helgaaon
Stykkishólmur:
Litlu jólin í
„spítalaskólanum“
Stykkishólmi.
LITLU jólin voru haldin fyrir
börn á dagheimilinu á Sjúkrahús-
inu í Stykkishólmi fyrir skömmu.
Sjúkrahúsið í Stykkishólmi hefur
í áraraðir rekið hér af miklum
myndarskap dagheimili fyrir böm.
Hefur þetta komið sér ágætlega
Það er alltaf gaman á litlu jólun-
um.
fyrir mæður sem stunda störf utan'****'
heimilis. Þá var í áraraðir rekið af
sömu aðilum bamaheimili og komu
þangað böm víðsvegar að. Þetta
var til mikils hagræðis, vel sótt og
vel metið. Systir Lovísa hefur allaf
verið í fararbroddi dagheimilisins
og haft með sér gott lið.
Litlu jólin er árviss viðburður og
kom fréttaritari við á litlu jólunum
sem haldin voru á föstudaginn. Þar
voru samankomin böm og fullorðn-
ir og var sungið og dansað í
kringum jólatréð. Auk þess sem Jón
Svanur var með harmonikkuna sína
og spilaði falleg jólalög og víkivaka.
- Árni
Aðventukvöld í
Fáskrúðsfirði
Fáskrúðsfirði.
AÐVENTUKVÖLD var haldið
fyrir skömmu i Fáskrúðsfjarðar-
kirkju.
Á aðventukvöldinu sungu böm
úr sunnudagaskólanum jólalög og
voru með ýmsa helgileiki. Einnig
sýndu þau brúðuleik og ein stúlka
lék á blokkflautu. Stjómandi sunnu-
dagaskólans er Ingigerður Jóns-
dóttir.
Kirkjukórinn söng síðan jólalög
undir stjóm Jónatans Buckley en
hann er hér tónlistarkennari. I lok-
in fór sóknarpresturinn, sr. Þorleif-
ur K. Kristmundsson, með stutta
bæn.
— Albert
Börn úr sunnudagaskólanum
sungu jólalög á aðventukvöldi
sem haldið var í Fáskrúðsfjarð-
arkirlqu.
Morgunblaðifl/Albert Kemp
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
Jólatónleikar
a Skagaströnd
Skagaströnd.
HINIR árlegu jólatónleikar Tón-
listarskólans á Skagaströnd voru
haldnir 16. desember. Tónleik-
arnir voru haldnir i sal grunn-
skólans og var salurinn troðfull-
ur af fólki sem skemmti sér hið
besta.
Alls komu um 35 nemendur fram
á tónleikunum og spiluðu á blokk-
flautu, þverflautu, píanó og gítar.
Meðal atriða á tónleikunum var
leikur á gítar og blokkflautur.
Þá söng skólakórinn 2 lög og 3
ungar stúlkur sungu saman lag.
Nemendur Tónlistarskólans eru nú
um 40 talsins og kennarar eru 2,
þær Steinunn Berndsen og Jane
Sillar.
MikiII uppgangur hefur verið flr-*
tónlistarllfínu á Skagaströnd und-
anfarin 2-3 ár og eru margir
smeykir um að breyting geti orðið
til hins verra ef hugmyndir um að
færa rekstur tónlistarskólanna al-
farið yfír á sveitarfélögin verða að
veruleika.
-ÓB.____