Morgunblaðið - 24.12.1987, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.12.1987, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987 Hornafjörður: Hvítanesið er enn á strandstað Höfn í Homafirði. Saltfiskflutningaskipið m.s. Hvítanes, sem strandaði í Horna- firði í fyrradag, var enn á strandstað er blaðið fór í prentun í gær. Um borð í skipinu eru Innanlandsflug: Ekki flogið til Eyja í gær INNANLANDSFLUG gekk vel hjá Flugleiðum á Þor- láksmessu. Fyrirhugað var að fljúga 23 ferðir frá Reykjavik, en fella varð nið- ur þijár ferðir til Vest- mannaeyja vegna veðurs. Flugleiðir fluttu milli 800 og 1000 farþega milli staða innan- lands í gær, að sögn Þórarins Stefánssonar aðstoðarstöðvar- stjóra. Daginn fyrir Þorláks- messu voru fluttir um 1100 farþegar. Sagði Þórarinn að þetta væru ekki óvenjumiklir farþegaflutn- ingar. Farþegafjöldi færi oft upp í 1200 um helgar. í dag, aðfangadag, er fyrir- hugað að fljúga á alla áætlunar- staði Flugleiða á landinu. 1075 tonn af saltfi.ski að verð- mæti um það bil 4,6-4,8 milljónir bandaríkjadala. Á flóði í gærmorgun var reynt að ná skipinu af strandstað en án árangurs. Taug var komið yfir í Suðurfjörur og var ætlunin að toga í skipið þaðan á flóði í gærkvöldi. Guðmundur Ásgeirsson eigandi Hvítanessins var um borð í Hvíta- nesinu í gær og sagði hann að engar skemmdir hefðu orðið á skipi eða farmi. Hann kvaðst bjartsýnn á að aðgerðir björgunarmanna beri árangur. 10 manna áhöfn er á Hvítanesinu og væsir ekki um mannskapinn um borð, að sögn Guðmundar. Jón Gunnar Morgunblaðið/Þorkell Arnór áritar „Arnór, bestur í Belgíu“ Amór Guðjohnsen, karittspyrnumaðurinn kunni sem nú leikur með belgíska Iiðinu Anderlecht er nú heima í jólafríi frá knattspyrnunni. Hann dreif sig í gær í bókabúðina Pennann, Hallarmúla og áritaði þar fyrir unga aðdáendur bókina „Arnór, bestur í Belgíu“ eftir Víði Sigurðsson. Húsnæðisstofnun ríkisins: Útgáfa lánsloforða hefst um mánaðamótinjanúar-febrúar Evrópumót ungl- inga í skák: Þröstur vann í 5. umferð - segir Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastj óri „SÉRSTAKUR vinnuhópur starfsmanna Húsnæðisstofnunar og fé- lagmálaráðuneytisins vinnur nú að samningu nýrrar húsnæðisreglu- gerðar og er miðað við að þeirri vinnu verði lokið 10. til 15. janúar. Og ef vel gengur að semja við lífeyrissjóðina ættu svör að fara að berast umsækjendum i lok janúar eða um mánaðamótin," sagði Sig- urður E. Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar rikisins í samtali við Morgunblaðið. Jafnframt reglugerðarendur- umsókn berst Húsnæðisstofnun skoðuninni sagði Sigurður að skuli svar berast umsækjanda um stofnunin myndi herða á lífeyris- lánsrétt hans. Um fjárhæð og af- sjóðunum með það að ganga frá greiðslutíma lánsins skal umsækj- eða skert lánsmöguleika þeirra, sem fyrir eiga fleiri en eina íbúð. Einnig er stofnuninni veitt heimild til þess að skerða lánsrétt eða breyta láns- kjörum, til handa fólki sem á skuldlitla íbúð stærri en .180 fer- metrar, að bílskúr undanskildum og er að minnka við sig. Er þetta gert til þess að flýta fyrirgreiðslu þeirra sem t.d. þurfa að stækka við sig af fjölskylduástæðum. Sigurður sagðist ekki geta ætlað annað en að lífeyrissjóðimir myndu bregðast vel við þessum breytingum og vonaðist hann til þess að ekki myndi gæta neinnar tregðu af þeirra hálfu. Að sögn Sigurðar bíða nú um 6.000 lánsumsækjendur eftir láns- loforðum Húsnæðisstofnunar og eru um 40% þeirra að byggja eða kaupa í fyrsta sinn og verða þeir áfram í forgangshópi sem fyrr. Um það hvernig hin 60% kæmu út úr hinum nýju forgangsreglum vildi Sigurður ekki tjá sig, þar eð ekki hefði enn verið gerð könnun á því. ÞRÖSTUR Þórhallsson vann Tyrkjann Tuncay Meri(; í 5. umferð Evrópumóts unglinga í skák, sem haldið er i Arnhem í Hollandi. Þröstur hefur þá fengið 2'/2 vinning og er um miðjan hóp 32 keppenda. Sovétmaðurinn Vassilij Ivantsjuk er efstur á mótinu með 4V2 vinning en þrír skákmenn eru með 4 vinn- inga, þeir Boris Gelfand frá Sov- étríkjunum, Lars Bo Hansen frá Danmörku og Artur Pieniazek frá Póllandi. Ivantsjuk er að veija Evr- ópumeistaratitil sinn á mótinu. samningum við stofnunina um skuldabréfakaup fyrir árið 1989—90. „Það er jú forsenda fyrir því að unnt verði að ganga frá út- gáfu lánsloforða til handa félags- mönnum þeirra að sjóðir þeirra hafi gengið frá samningum um skuldabréfakaup. Að sögn Sigurðar munu umsækj- endum berast svör um lánsrétt og hugsanlega um afgreiðslutíma. I núgildandi lögum er gert ráð fyrir því að lánsumsækjendum berist bindandi svar um lánsrétt og af- greiðslutíma tveimur mánuðum eftir að umsókn berst Húsnæðis- stofnun. í hinum nýju lögum er hins vegar kveðið svo á um að inn- an þriggja mánaða frá því að anda hins vegar berast svar ekki síðar en einu ári áður en lánið kem- ur til afgreiðslu. Með hinum' nýju húsnæðislögum breytast nokkuð reglur um for- gangshópa. { núgildandi lögum er kveðið á um það að lán skuli af- greiða í sömu röð og umsóknir bárust stofnuninni, en í raun er umsækjendum skipt upp í tvo hópa; forgangshóp og víkjandi hóp. í fyrri hópnum eru þeir sem eru að byggja eða kaupa í fyrsta sinn og aðrir í hinum. Með hinum nýju lögum er haldið áfram í þessa tvíflokkun, en fyrirkomulagið verður þannig um þá sem ekki eiga undir fyrmefnda flokkinn, að Húsnæðisstofnun getur synjað þeim umsækjendum um lán Rússar vilja kaupa 30 þús. tunnur til viðbótar Fara fram á sama verð og í fyrra, en SÚN neitar að veita afslátt SOVÉSKIR saltsíldarkaupendur hafa lýst sig reiðubúna að stað- festa kaup á 30.000 tunnum af Sslenskri saltsfld til viðbótar þeim 150.000, sem þegar hafa verið staðfest. Farið er fram á afslátt af þessu viðbótarmagni, en Síldarútvegsnefnd hefur haf nað þvi. 30. október síðastliðinn náðist milli SÚN og hinna sovésku kaup- samkomulag milli Sfldarútvegs- nefndar og sovésku stofnunarinn- ar Sovrybflot um fyrirframsölu á 200.000 tunnum af heilsaltaðri Suðurlandssfld. Við undirritun samkomulagsins voru staðfest kaup á 150.000 tunnum, en Sov- étmönnum gefinn tveggja vikna frestur til þess að staðfesta kaup- in á hinum 50.000, sem sækja þurfti um sérstakt gjaldeyrisleyfi fyrir til viðkomandi sovéskra stjómvalda. í nóvember tókst samkomulag enda um heimiid til að afgreiða frá' yfirstandandi vertfð um 20.000 tunnur, sem vantaði á fulla afgreiðslu frá vertíðinni 1986 og sökk með ms. Suðurlandi fyrir ári, til viðbótar þegar staðfestum tunnum. Hafa því verið saltaðar um 170.000 tunnur af því magni sem samið var um við Sovétmenn. Nýlega barst SÚN telexskeyti frá Sovrybflot, þar sem tilkynnt er að stofnunin sé nú reiðubúin að staðfesta kaup á 30.000 tunn- um til viðbótar. í skeytinu er farið fram á það, að veittur verði af- sláttur af viðbótarmagninu, þannig að verðið verði hið sama og í fyrra í Bandaríkjadollurum. Sfldarútvegsnefnd hefur svarað erindi Sovétmanna á þann hátt að afsláttur komi ekki til greina og auk þess sé staðfestingin of seint fram komin, þar sem vertíð sé lokið. í svarinu er þó tekið fram, að SÚN sé reiðubúin að kanna við sjávarútvegsráðherra og aðra viðkomandi aðila hvort einhver grundvöllur sé fyrir við- bótarveiðum sem svari til fram- leiðslu á umræddum 30.000 tunnum, enda verði verðið hið sama og kveðið er á um í þegar undirrituðum fyrirframsamningi. * __ Utflutningur frá janúar til október: Yerðmæti saltfisks 51,3% meira en 1986 Heildarverðmæti útflutnings jókst um 18,6% VERÐMÆTI útflutnings íslendinga frá janúar til október 1987 nam rúmum 44 milljörðum króna. Það er 18,6%, eða tæpum 7 milljörðum króna meira en á sama tíma í fyrra. Mest varð aukning á útflutn- ingi saltfisks, 51,3% milli ára. Til aukins útflutnings á saltfiski má rekja 38,9% af heildaraukning- unni. Á þessu tímabili nam útflutn- ingsverðmæti saltfisks 18% af útflutningi landsmanna eða 7,9 milljörðum króna en var í4%, eða 5,2 miilljarðar á sama tímabili í fyrra. Alls nam útflutningur sjávaraf- urða tæpum 34 milljörðum króna á umræddu tímabili og er það aukn- ing um 18,2% frá fyrra ári. Frystar fiskafurðir, þar með talin sfld og loðna, voru fluttar út fyrir 17,1 milljarð sem er 4,7% aukning frá viðmiðunartímabilinu. Verðmæti loðnumjöls og loðnulýsis var tæpir 2 milljarðar. Útflutningsverðmæti iðnað- arvara jókst um 16,9% milli ára en langmest varð aukningin á svoköll- uðum hlunnindavörum, það er ísaður og frystur lax og dúnn. Út- flutningur þess konar vamings jókst um 147,4% milli ára, úr 95 í 235 milljónir króna. Laxeldi í Hrísey? HUGMYNDIR eru uppi um að koma á fót laxeldisstöð í Hrísey. Fisk- eldi Eyjafjarðar hf. hefur áhuga á að vinna að fiskeldi í Eyjafirði og hafa forsvarsmenn fyrirtækisins meðal annars rætt við hrepps- nefnd Hríseyjar. Þá var könnunarferð farin til eyjarinnar fyrir nokkrum dögum. Enn sem komið er, er málið allt á könnunarstigi þar sem niðurstöð- ur um vatnsmagn og hitastig liggja ekki ennþá fyrir, en eins og fram hefur komið í fréttum fengu Hrísey- ingar heilmikinn „lottóvinning" fyrir skemmstu þegar bor frá ísbor hf. boraði niður á allt að 80 gráðu heitt vatn. Hríseyingar hafa hingað við allt það úrvalsvatn sem nú hef- ur komið upp á yfírborðið. Ef hugsanlegt laxeldi verður að veruleika má búast við að til þess fáist allt að 50 sekúndulítrar af 80 gráðu heitu vatni. Nú þegar starfa sérfræðingar hjá Fiskeldi EyjaQarð- ar hf. á Hjalteyri við lúðueldi og hefur sú hugmynd skotið upp kollin- til átt við mikinn vatnsvanda að um hvort ekki mætti nýta þeirra etja, en nú er svo komið að þeir sérþekkingu til laxeldis hjá Hrísey- vita varla hvað þeir eiga að gera ingum enda stutt á milli staðanna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.