Morgunblaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
11
Borgarspítalinn:
Nýr yfirlæknir
svæfinga- og
gj örgæsludeildar
Landsbankinn kaupir
smámynt af Flugleið-
um með 30% afföllum
LANDSBANKINN kaupir erlenda smámynt af Flugleiðum með 30%
afföllum. Fyrirtaekin hafa með sér sérstakan samning' um þessi
viðskipti og eru þau undantekning frá þeirri almennu reglu að
bankar kaupi ekki erlenda smámynt.
STJÓRN sjúkrastofnana
Reykjavíkurborgar samþykkti á
fundi hinn 13. nóvember sl. að
ráða Ólaf Þ. Jónsson í stöðu
yfirlæknis á svæfinga- og gjör-
gæsludeild Borgarspítalans frá
1. janúar 1988. Þorbjörg Magn-
Flytur
trúin fjöll?
- dregur bjórinn
úsdóttir, sem verið hefur yfir-
læknir deildarinnar frá
upphafi, hefur sagt starfi sínu
lausu frá sama tíma.
Ólafur Þ. Jónsson lauk lækna-
prófí frá Háskóla íslands árið
1962. Hann stundaði framhalds-
nám við Massachusetts General
Hospital í Boston, Serafímerlasa-
rettet í Stokkhólmi og háskóla-
sjúkrahúsið í Lundi. Hann hefur
starfað sem sérfræðingur í svæf-
ingum og deyfíngum við Borg-
arspítalann frá árinu 1969. Hann
var dósent í svæfíngalæknisfræði
við Háskóla íslands um 5 ára
skeið.
Ólafur Þ. Jónsson
Ólafur var formaður læknaráðs
og jafnframt yfírlæknir Borg-
arspítalans 1983 til 1987.
Foreldrar Ólafs eru Jón Þor-
varðarson, fyrrum sóknarprestur,
og kona hans, Laufey Eiríksdóttir.
Ólafur er kvæntur Báru Þor-
grímsdóttur hjúkrunarfræðingi og
eiga þau þrjá syni.
„Ef við gerum undantekningu
frá þeirri reglu að taka ekki við
erlendri smámynt þá kaupum við
hana með 30% afföllum," sagði
Hannes Þorsteinsson aðalféhirðir
Landsbankans. „Þá gildir einu hver
myntin er. Kostnaður okkar vegna
þessara viðskipta er mjög mikill.
Við sendum úr landi um það bil
hálft tonn af erlendri mynt á ári
og fraktin og úrvinnslan er mjög
kostnaðarsöm. Helst viljum við
vera lausir við þetta en gerum
undantekningu í þessu tilfelli. Við
auglýstum fyrir 3-4 árum að afföll-
in hækkuðu úr 10 í 30% vegna
þess að mikið tap var á þessari
þjónustu en Flugleiðir settu hækk-
unina ekki fyrir sig.“ Hannes tók
skýrt fram að ekki væri skipt er-
lendri smámynt í afgreiðslum
bankans og hér væri um undan-
tekningatilfelli að ræða.
Sólon Sigurðsson forstöðumaður
gjaldeyrisdeildar Búnaðarbankans
sagði að bankinn keypti aldrei er-
lenda smámynt og gilti einu hvort
afföll væru boðin eður ei. „Það
tíðkast almennt ekki hjá bönkum,
hvorki hér né erlendis, að kaupa
erlenda smámynt og við höfum þá
reglu í heiðri. Auk þess hljóta þessi
viðskipti að vera óhagkvæm vegna
mikils tilkostnaðar," sagði Sólon
Sigurðsson.
úr heildarneyslu
áfengis og bætir
þj óðarheilbrigði?
MORGUNBLAÐINU hefur boris
eftirfarandi fréttatilkynning fr.
Áfengisvarnaráði:
í Morgunblaðinu 17. desember
sl. birtist ályktun 133 lækna um
bjórinn þar sem fram kemur að
þeir telja litla ástæðu til að ætla
að leyfí til sölu áfengs bjórs muni
hafa veruleg áhrif á heildarneyslu
áfengis hérlendis eða vandamál
vegna áfengisneyslu.
Veigamesta atriðið varðandi
bjórinn er hvort hann leiði til auk-
innar heildameyslu áfengjs í
landinu. Bjór er ekki aðeins nýtt
form áfengis hér, honum fylgja
einnig nýir siðir og venjur. Af þeim
sökum m.a. eru sterkar líkur á að
áfengisneysla muni aukast verði
bjórinn leyfður.
Læknamir halda því fram að einu
hliðstæður erlendis bendir til að
heildameysla muni lítið breytast.
Sú hliðstæða sem næst stendur
okkur íslendingum em Færeyjar,
en þar var sala á áfengum bjór leyfð
um mitt sumar árið 1980 með mikl-
um takmörkunum eins og menn
trúa að yrði raunin á hér. Árið
1979 drukku Færeyingar að meðal-
tali 5,3 lítra af hreinum yínanda á
íbúa, 15 ára og eldri. Árið_ 1986
var neyslan komin í 6,1 lítra. Áfeng-
isneysla íslendinga stóð hins vegar
í stað á þessum tíma, 4,5 lítrar
bæði þessi viðmiðunarár.
Því er þess hér með óskað að
einhver hinna 133 lækna, sem hér
um ræðir, bendi opinberlega á þær
hliðstæður sem þeir ýja að í ályktun
sinni og rökstyðji þá skoðun sína
að heildameysla muni ekki aukast
verði sala á áfengum bjór heimiluð,
svo og að líklegt sé að neyslan bein-
ist frekar að veikum drykkjum (les:
bjór) en sterkum. Einnig væri fróð-
legt að heyra álit þeirra á þeirri
stefnu Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar, sem kemur m.a. fram í
drögum að heilbrigðisáætlun fyrir
íslendinga, að draga þurfí úr neyslu
áfengis eins og kostur er. Eðlilega
spyrja menn sig að því hvort líklegt
sé að heimild til sölu áfengs bjórs
í landinu stuðli að því.
ÖD PIOIMEER
HUÓMTÆKI
IOI oi DAII óskar landsmönnum gleöilegm L/TvA%/ jólaogfamlskomandiárs
Nýársfagnaður
Hátíðarmatseðill
Kalkún ogkjúklinga Marías
HúmarBisque
Léttsteiktur nautahryggur
‘A la Chateaubriand
Dessert Sublime
Yfirmatrciöslumaöur: Francoif^
Louis Fons
Yfirþjónar: Gísli GuÖmundsson -
fíaldur Sæmundsson
VERÐ AÐEINS
KR. 4.500,-
fyrir Ijúfíenga hátíðar-
máltíð og stórkostlega skemmtun,
hatta, skraut og knöll.
Nú verður
SÖNGUR, GLEÐIOG GAMAN
í Broadway með hinum frábæru, landsþekktu
og sívinsælu skemmtikröftum sem höfða til
landsmanna allra
Hljómsveitir Ingimars Eydals ásamt söngvur-
unum Þorvaldi Halldórssyni, Erlu Stefáns-
dóttur, Helenu Eyjólfsdóttur, Grími Sigurðs-
syni og Ingu Eydal rifja upp lögin
A sjó - í sól og sumaryl - O hún er svo sæt
- Bjórkjallarann - í fyrsta sinn ég sá þig -
Róti raunamæddi o.fl. o.fl.
Dansarar frá Dansstúdíói Alice sýna frábæra
tilburði við túlkun þessara sígildu laga.
Handrit og verkstjórn: Saga Jónsdóttir.
Ómar Ragnarsson
og Haukur Heiöar flytja
gamanmál eins þeim einum
er lagið.
Hin frábæra hljómsveit Ingimars
Eydals leikur fyrir dansi
fram eftir nóttu.
Miða- og borðapantanir í síma 77500 daglega.