Morgunblaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
skrifstofustgóri.
Samvinnubankinn
opnar útibú á Höfn
Hðfn, Hornafirði.
Á tuttugu og fimm ára afmæli
Samvinnubankans, 17. nóvember
sl., var opnað útibú bankans á
Höfn í Hornafirði.
Bankinn er til húsa á Hafnar-
braut 36, en þar var áður til húsa
hluti af Hafnarskóla. Bankinn býð-
ur öll almenn bankaviðskipti.
Starfsmann bankans eru fjórir og
útibússtjóri er Edvard Ragnarsson.
- JGG
2. í jólum
★ SANNKALLAÐ JÓLABALL ★
Hljómsveitin
KARMA og Kristjana
sjá um stemmninguna meðallskonar
uppátækjum og jólasprelli.
Uppúr miðnætti mætir
Bjartmar Guðlaugsson
fjallhress að vanda og flytur
með hljómsveit öll sín bestu lög.
Þrusustuð til kl. 03.00.
hótel
SELFOSS
Qteáiíeft jól
^aricett homcin
°9
ch
kótet
SEIFOSS
i Eyravej'i 2, simi 2500»
Bergþóra í betra lagi
Hljómplötur
Sveinn Guðjónsson
BERGÞÓRA Árnadóttir lætur
ekki deigan síga í þeirri við-
leitni sinni að koma tónsmíðum
sínum og hugsjónum á fram-
færi við landsmenn. Á undanf-
örnum árum hefur hún sent frá
sér hljómplötur með jöfnu milli-
bili og má þar finna mörg
prýðisgóð lög og innihaldsríka
texta þótt oftast hafi þau farið
fyrir ofan garð og neðan hjá
almenningi. Það er eins og að
herslumuninn hafi alltaf vantað
og einhverra hluta vegna hafa
lög Bergþóru ekki náð alþýðu-
hylli, þótt hún eigi vissulega
sinn aðdáendahóp meðal vísna-
vina. Nýja platan hennar, „í
seinna lagi“, á sjálfsagt ekki
eftir að breyta miklu hvað
varðar almennar vinsældir, en
platan er þó að mínum dómi
tvimælalaust framfaraspor á
tónlistarferli Bergþóru.
„í seinna lagi“ ber þess glöggt
vitni að Bergþóru hefur vaxið
ásmegin með árunum og virðist
nú ná mun betri tökum á við-
fangsefni sínu en áður. Þá sakar
ekki að hljóðfæraleikur er betri
en á fyrri á plötum hennar og
útsetningar hnitmiðaðari og
líflegri, þar sem gítarleikarinn
Tryggvi Hiibner á dijúgan hlut
að mál. Þá hefur upptökustjórinn
Sigurður Rúnar Jónsson unnið
gott verk, en sum laganna eru
tekin upp á hljómleikum, sem
haldnir voru í Stemmu og sýndir
í Ríkissjónvarpinu ekki alls fyrir
löngu. Hefur vel tekist til með þá
upptöku sem og raunar alla aðra
tæknivinnu á plötunni.
Ég hef með sjálfum mér reynt
að leita skýringa á því hvers vegna
Bergþóru hefur ekki tekist að ná
eyrum landans betur en raun ber
vitni. Lög hennar eru mörg piýðis-
góð og þótt hún sé ef til vill engin
afburðasöngkona er hún alls ekki
slæm sem slík. Helst dettur mér
í hug að innihald textanna kunni
að eiga þar einhvem hlut að máli.
Þeir eru yfirleitt tregablandnir og
lausir við bjartsýni. Ef til vill er
það viðfangsefni orðið svolítið
„þreytt" í dag.
Öll lögin á plötunni, sem eru
ellefu talsins, em eftir Bergþóm
auk þess sem hún hefur samið
nokkra af textunum. Fjögur lag-
anna hafa áður komið út á
hljómplötum og rýrir það alls ekki
gildi þessarar plötu þar sem hér
er um að ræða lög úr hópi hinna
Bergþóra Árnadóttir.
bestu, sem hún hefur sent frá
sér, en það em lögin „Tvenn
spor“, „Draumur", og „Frá liðnu
vori“ og „Ljóð án lags“. Af nýrri
lögunum má nefna „Sandkom"
sem dæmi um ágæta sköpunarg-
áfu Bergþóm sem lagasmiðs, án
þess að ástæða sé til að gera sérs-
taklega upp á milli tónsmíðanna
á þessari plötu. í heild er hún hin
áheyrilegasta og hefði þess_ vegna
alveg getað borið heitið „í betra
lagi“.
Model:
Ekki meir, ekki meir
HLJÓMSVEITIN MODEL er
um margt afar sérkennilegt
fyrirbrigði í tónlistarsögunni.
Hún var stofnuð sérstaklega til
að taka þátt i Eurovision-for-
keppni, laut í lægra haldi, en
lifði það samt af. Það út af
fyrir sig er afrek. Líklega hef-
ur mönnum þar á bæ ekki þótt
fullreynt með keppnislag sveit-
arinnar „Lífið er lag“, enda
hefur það nú verið endurútgef-
ið á nýrri hæggengri hljóm-
plötu sem ber nafn hljómsveit-
arinnar.
Margir hafa lýst vanþóknun
sinni á þeirri hugmynd að halda
lífínu í Módel og ef til vill er það
að bera í bakkafullan lækinn að
taka undir þær skammir. Ég verð
þó að játa að mér fannst hug-
myndin ekki góð, kannski fyrst
og fremst vegna þess tónlist
hljómsveitarinnar höfðar ekki til
mín persónulega. Það út af fyrir
sig gefur mér þó engan rétt til
að níða skóinn niður af hljómsveit-
inni eða plötunni sem slíkri. Henni
er auðvitað ætlað að höfða til
annars þjóðfélagshóps, sem þegar
hefur meðtekið þetta tónlistar-
form og það fólk hefur auðvitað
fullan rétt á að hafa sína tónlist
í friði fyrir einhveiju geðvonskur-
öfli í körlum úti I bæ.
Skylt er og að geta þess að
eitt lag á þessari plötu er dágott
að mínum dómi og talsvert hafíð
yfír önnur, en það er „Ástarbréf
(Merkt X)“ eftir Reginu Richards
við ágætan texta Eiríks Hauks-
sonar. Hnitmiðaður flutningur
hljómsveitarinnar á þessu lagi
gæti ef til vill náð að réttlæta
útgáfu plötunnar, auk þess sem
hljóðfæraleikur yfírhöfuð og tón-
gæði á allri plötunni eru eins og
best verður á kosið í þessari teg-
und tónlistar, enda eru hér á ferð
einhveijir mestu fagmenn á þessu
sviði á íslandi.
Það sem ég hygg að hafí hins
vegar aðallega farið fyrir bijóstið
á mönnum varðandi þessa plötu
er umgjörðin. Hún lyktar dálítið
af sýndarmennsku og „gervigla-
mor“. Það er eitthvað „óekta“ við
þetta allt saman. Tökum dæmi:
Jóhann Ásmundsson, félagi þeirra
Gunnlaugs og Friðriks úr Mez-
zoforte spilar bassann í meira en
helming laganna og er hlutur
hans í tónlistinni öllu burðugri en
bakraddakvennanna. Hann fær
þó ekki að vera með á glansmynd-
inni, enda hefur hann sjálfsagt
ekki þótt passa þar inn í. í auglýs-
ingu, fréttatilkynningum og
myndbandsskotum af hljómsveit-
inni er því gert skóna að Edda
Borg sé hljómborðsleikari flokks-
ins. Á plötuumslagi eru hins vegar
þær upplýsingar að allur hljóm-
borðs- og hljóðgervlaleikur sé í
höndum Don Snow og Eyþórs
Gunnarssonar. Þá hefur aðstand-
endum plötunnar þótt ástæða til
að geta þess að Simbi hafi annast
hárgreiðslu á hljómsveitarmeðlim-
um og Elín Sveinsdóttir förðun.
Það er eins gott að hafa það á
hreinu. Myndbandsskotið af
hljómsveitinni, þar sem meðal
annars er reynt að gera töffara
úr manni, sem greinilega er það
ekki að eðlisfari, hefur þó líklega
riðið baggamuninn. Eflaust hefur
þessi uppákoma fallið í kramið
hjá unglingum en á fullorðið fólk
virkar þetta „hallærislegt.“
Ég vil taka það skýrt fram, að
það er ekki af illgimi eða kvikind-
isskap í garð aðstandenda plöt-
unnar, sem ég læt þessi orð falla.
Þvert á móti tekur mig sárt að
sjá gott fólk og frábæra tónlistar-
menn sitja í svona súpu. í þessu
sambandi dettur mér eiginlega
ekkert annað í hug en orð skálds-
ins í kvæðinu um Hallgrímskirkju
forðum: „Ekki meir, ekki meir“.
/ /
CASABIMCA M HATIBARNAR
26. des. annar í jólum - opið til kl. 03.00.
30. des. sjötti í jólum - opið til kl. 01.00.
31. des. gamlárskvöld - opið til kl. 04.00.
1. jan. nýársdagur - opið til kl 03.00.
2. jan. annar í nýári - opið til kl. 03.00.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!
3AZP
JAZZTONLEIKAR
hvert
sunnudagskvöld
27. des.
Frá Bloomington
Indiana.
Heiti potturinn - Duus-húsi