Morgunblaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
>
Um ástina
Ég ætla I tilefni dagsins að
skrifa um kærleika og ást
manna á meðal. Öll viljum
við verða hamingjusöm í ást
og veltum því eðli ástarsam-
banda töluvert mikið fyrir
okkur. Staðreyndin er hins
vegar sú að skilnaðir eru tíðir
og þvi er greinilegt að margt
fer miður i mannlegum sam-
skiptum og ekki tekst alltaf
jafn vel til og við viljum.
Sjálfsþekking
Ég held að fyrsta forsenda
þess að geta átt gott ástar-
samband sé sú að þekkja
sjálfan sig og vera nokkurn
veginn heilsteyptur persónu-
leiki. Önnur forsenda góðs
ástarsambands er sú að elska
ástvin okkar vegna eigin
verðleika, þ.e. að elska hann
sjálfan eins og hann er, en
ekki að elska draum okkar
um ástina.
Draumaprinsinn
Ef við hugleiðum þessi atriði
sjáum við um leið það sem
. oft fer miður í ástarsambönd-
um. í fyrsta lagi, ef við
þekkjum ekki okkur sjálf, þá
vitum við ekki hverjar þarfír
okkar eru og vitum um leið
ekki hvaða einstaklingar eru
góðir fyrir okkur og hverjir
ekki. Hvað varðar að elska
drauminn um ástina þá
þekkjum við það sjálfsagt
flest að við erum oft að elt-
ast við einhverja innri mynd
af ástinni. Konan min á að
vera svona og svona. Og svo
þegar hún uppfyllir ekki
kröfumar verð ég fyrir von-
brigðum eða reyni að breyta
henni til sæmræmis við
drauminn. Að sjálfsögðu með
slæmum afleiðingum.
VinnubrjálœÖi
Auk þess er hið séríslenska
fyrirbæri. Streitan, lífsgæða-
kapphlaupið og vinnan er það
mikil að fólk flarlægist hvort
annað og fer á endanum yftr
um, eins og sagt er. Þreyta,
lífsleiði og óánægja brjótast
fram og eyðileggja sambönd
okkar. Þetta þýðir í raun að
ef við fslendingar viljum
bæta ástarsambönd okkar,
-þurfum við m.a. að hægja á
ferðinni, vinna minna og
slaka á óheyrilegum kröfum.
f stað þess þurfum við að
taka ti. við að rækta sam-
skipti okkar hvort við annað.
Ástin krefst vinnu eins og
annað og henni þarf að gefa
tíma og aðhlynningu.
Hin fullkomna ást
Hið fullkomna ástarsam-
band? Það má reyna. Konan
min kemur til mín og segir:
„Elskan mín, þú veist mig
hefur alltaf langað í nám til
Þýskalands. Hvað segir þú
um að vera eftir hér heima,
sjá um börnin og senda mér
peninga til að iifa á?“ Ég
svara að sjálfsögðu og segir:
„Ástin mín, þó það nú væri,
ef þú verður hamingjusöm
við það að fara til Þýskalands
þá verð ég ánægður.“ Þó
þetta dæmi sé kannski lang-
sótt, er boðskapur þess eigi
að síður sannur. Það að elska
er að vilja sjá þann sem við
elskum njóta sín. Að elska
er að hjálpa hvort öðru, jafn-
vel þó sú hjálp sé stundum á
skjön við eigin þarfir. Sá sem
er eigingjam, þvingar eða
ætlar sér að þröngva öðrum
í farveg sem hentar eigin
þörfum fær aldrei ást til
baka. Sá sem gefur og hjálp-
ar öðrum fær kannski ekki .
sjálíkrafa ást til baka, en
hann fær þakklæti og mögu-
leikar hans á því að öðlast
ást og hamingju verða tölu-
vert meiri.
GARPUR
GLEÐILEG JOL,G/?ETTlR.'OPN-
AOÚ PAtCKriNA >/NA,rÉLAS/.
HVAV TEFUK >1G?
y'gz ER , j
1 BAR4AÐN7OTA1
>6TTA ETR BESTI Pasu(?’ARSiMS.
ALLÚR AGREININCSUR ER
GLEy«DUR OGGRAFINN OG
ALLIR sVna ÖLLUM. ASTOÐ
/VIEÐ pvi AÐ GEFA GJAFIR
SEAI pEIR HAFA BOlÐ TIL FÐA
TOMMI OG JENNI
UÓSKA
FERDINAND
SMÁFÓLK
om,mo..pon'ttell me
IT'5 60IM6TO RAlN!
Æ, nei, það ætlár þó ekki
að fara að rigna?
Bændurnir þurfa regn!
Bændur? Hvaða bændur?
Já, einmitt... mér hættir
til að gleyma ...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þrátt fyrir 35 punkta á milli
handanna og tvo fimmliti liggja
spil NS ekki nógu vel saman til
að réttlæta alslemmu. En það
er erfitt að sleppa henni:
Norður gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ DG842
V G53
♦ 106
♦ G85
Norður
♦ Á763
VÁD984
♦ Á82
♦ K
Austur
♦ 9
♦ 1076
♦ 97543
♦ 10962
Suður
♦ K105
♦ K2
♦ KDG
♦ ÁD743
Spilið kom upp í tvímennings-
keppni og mörg pör freistuðust
til að reyna sjö grönd. Þau
byggjast klippt og skorið á því
að hjartað gefi 5 slagi. Til þess
þarf liturinn að brotna 3-3 eða
G10 að vera tvíspil. Fyrir-
framlíkur á því eru einungis
39%.
Lesandinn sér að legan er
hagstæð, en kemur hann auga
á það hvernig einn sagnhafinn
tapaði spilinu, eigi að síður?
Sagnir höfðu gengið þannig:
Vestur Norður Austur Suður
— 1 hjarta Pass 2 lauf
Pass 2 spaðar Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Pass 6 grönd
Pass
Vestur sá á sínum spilum að
makker gat ekki átt málaðan
mann. Hann vissi líka að hjartað
lægp vel fyrir sóknina. Eina
raunhæfa vonin væri því að leiða
sagnhafa á villigötur — gefa
honum kost á því að spila af
sér. Hann kom því út með hjarta-
gosann!!
Hugmyndaríkt útspil, sem
gekk fullkomlega upp þegar
sagnhafi drap strax á kónginn
og svínaði níunni í næsta slag.
Umsjón Margeir
Pétursson
f Evrópukeppni skákfélaga í ár
kom þessi staða upp í viðureign
stórmeistaranna Nigel Short,
sem hafði hvítt og átti leik, og
Búlgarans Velikov.
23. Dxh6! - Dxc4, 24. Hxg7+!
- Rxg7, 25. Rg5 - He8, 26.
Hgl - Dd4, 27. Dh7 - Kf8, 28.
Rxe6+! — Rxe6, 29. Dh6+ og
svartur gafst upp, því mátið blas-
ir við.