Morgunblaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
spurt og svarad
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
>
Staðgreiðsla skatta
Hér fara á eftir spumingar les-
enda Morgunblaðsins um stað-
greiðslu opinberra gjalda og svör
embættis ríkisskattstjóra við
þeim.
Guðrún Ingimarsdóttir, spyr:
Hvemig snýr staðgreiðslukerfið
að iðnaðarmanni sem hefur tekið
að sér verk sem hann vinnur á
þessu ári og t.d. fram í mars á
næsta ári en fær það ekki greitt
fyrr en verkinu er að fullu lokið?
Hvemig eru orlofsgreiðslur skatt-
lagðar?
Svar: 1. Hafi reikningur vegna
einhvers hluta verksins verið gef-
inn út fyrir áramót teljast þær
tekjur tilheyra 1987. Uppgjör á
staðgreiðslu iðnaðarmannsins eft-
ir áramótin fer eftir sömu reglum
og gilda um aðra sjálfstætt starf-
andi menn. Hann telst launagreið-
andi enda þótt hann greiði engum
laun. Honum ber að reikna sér
endurgjald (reiknuð laun) og gera
mánaðarleg skii í samræmi við
endurgjaldið.
2. Hafi orlofsféð verið lagt inn
á sérgreindan orlofsreikning
launamanns fyrir áramót telst það
tilheyra árinu 1987 og verður það
því ekki skattlagt í staðgreiðslu.
Ef maður er í launuðu orlofi, t.d.
opinber starfsmaður, falla þau
laun sem greidd era út á orlofstí-
manum undir staðgreiðsluskyld
laun.
Hjalti Elíasson, spyr: Hvað
þarf einhleypur sjómaður að
greiða í skatt af tekjum uppá 1,5
milljónir króna miðað við að hann
sé 8 mánuði til sjós á árinu? Hvað
þarf hann að greiða af 2,5 milljón-
um? Hvað hefði hann þurft að
greiða samkvæmt gamla kerfinu?
Svar: Sé miðað við þær for-
sendur sem nú liggja fyrir, þ.e.
að skatthlutfall sé 35,2%, per-
sónuafsláttur kr. 177.554 á ári,
sjómannaafsláttur kr. 408 á hvem
lögskráningardag og að dagamir
verði 200, má búst við að af
1.500.000 kr. tekjum verði
greiddar kr. 268.846 í stað-
greiðslu eða 17,92% af heildar-
tekjum. Af tekjum sem nema
2.500.000 kr. á ári greiðist sam-
kvæmt þessu kr. 620.846 eða sem
nemur 24,83% af heildartekjum.
Ekki er raunhæft að bera saman
eldra álagningarkerfi við stað-
greiðslukerfið en rétt þykir að
geta þess að sjómannaafsláttur
er að nokkra ákvarðaður með hlið-
sjón af 12% frádrætti sjómanna
og hinum sérstaka frádrætti sjó-
manna vegna lögskráningardaga.
Skattþrep í tekjuskatti gamla
kerfisins vora 18%, 28,5% og
38,5%. Útsvar var nokkuð mis-
munandi eftir sveitarfélögum, en
almennt frá 10—10,5%. Sjúkra-
trygpngargjuld var 2% af út-
svarsstofni yfir vissri fjárhæð og
einnig vora álögð kirkjugarðs- og
sóknargjöld mismunandi eftir
sóknum. Þá var og innheimt sérs-
takt gjald í framkvæmdasjóð
aldraðra.
Guðmundur Ólafsson, spyr:
Fái launþegi greiddan bííastyrk
með föstum greiðslum mánaðar-
lega hefur hann þá ekki mögu-
leika á að fá útlagðan kostnað
vegna aksturs dreginn frá skatti?
Svar: Bílastyrkur er skattlagð-
ur í staðgreiðslu en við endanlegt
uppgjör fæst sannanlegur útlagð-
ur kostnaður frádreginn.
Guðlaugur Jóhannsson, spyr:
Mér skilst að orlof vikukaups-
manna sé skattlagt. Koma þeir
sem fá greitt mánaðarlega ekki
betur út hvað varðar orlofið í stað-
greiðslukerfinu?
Svar: Um þetta vísast til svars
við spumingu Guðrúnar Ingim-
arsdóttur.
Núpur í Dýrafirði:
Strákarnir bökuðu
kökur fyrir litlu jólin
Núpi, Dýraíirði.
SAMKVÆMT veiyu voru litlu
jólin haldin hátíðleg við Grunn-
skóla Mýrahrepps síðasta skóla-
dag fyrir jól. Fluttar voru
skrítlur, upplestrar, söngur og
haldin spurningakeppni. Svo
voru borðaðar kökur sem strák-
arnir höfðu bakað.
Í skólanum era nú 5 piltar í heim-
anakstri auk tveggja stúlkna í
forskóla einn dag í viku.
Tveir starfsmenn era við skólann,
þau Valdimar Gíslason skólastjóri
og Edda Amholtz kennari.
— Kári
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Frá litlu jólunum í Grunnskóla Mýrahrepps.
Ég óska ölliun
vinum og vandamönnum mínum
- gleðilegra jóla og farsæls komandi árs,
með þökk fyrir hið liðna.
Svana Jóhannsdóttir Hodgson,
p.o. box 56,
Cummaquid, Mass, U.S.A.
Fjölmennt var á litlu jólunum í Stykkishólmi og margt gert sér til skemmtunar.Morgunblaðlð/Árnl Helgason
Litlu jólin haldin í Stykkishóhni
Stykkishólmi.
LITLU jólin voru haldin fyrir
skömmu í Stykkishólmi. Tvær
skemmtanir voru haldnar; fyrir
yngstu nemendurna í Grunnskól-
anum og fyrir eldri nemendur i
Nýja skólanum.
Yngstu nemendurnir komu sam-
an í gamla barnaskólanum og var
það ánægjuleg stund. Börnin höfðu
teiknað og málað ósköpin öll af
myndum sem minntu á jólin og
hengt út í glugga og á veggina.
I nýja skólanum vora síðan hald-
ÁHEIT
TIL HJÁLPAR
Gírónúmer
6210 05
KRÝSUVÍKURSAMTÖKIN
ÞVERHOLTI 20 • 105 REYKJAVÍK
® 62 10 05 OG 62 35 50
X-Jöfðar til
X Xfólks í öllum
starfsgreinum!
in litlu jólin fyrir eldri bekkina. Þar Um kvöldið fengu börnin síðan
hófst skemmtunin á því að sóknar- að dansa í félagsmiðstöðinni.
presturinn talaði til bamanna. — Ámi
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Vegagerð ríkisins hefur staðið í ströngu við almennt viðhald vega
í sýslunni vegna einmuna veðurblíðu ( vetur.
Mýrahreppur:
Sumarstörf
við viðhald
Núpi, Dýrafirði.
SÖKUM einmuna veðurblíðu og
hlýinda í allan vetur hefur Vega-
gerð ríkisins staðið í ströngu við
almennt viðhald vega í sýslunni.
Að sögn Guðmundar Gunnars-
sonar verkstjóra hefur verið mikið
að gera v;3 heflun og lagfæringar
sýsluvega, sem annars er unnið við
á vorin og sumrin.
í desember
vega
Annars sagði Guðmundur að
þjóðvegurinn gegnum sýsluna væri
að mestu orðinn bundinn föstu slit-
lagi og því að miklu viðhaldsfrír.
Því væri það að í slíku árferði væri
meira aflögu til að sinna sýsluveg-
unum út frá honum.
— Kári