Morgunblaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987 47 Meint misnotkun föður á dóttur: Akvörðun um málshöfðun , í næstu vikir BÚIST er við að embætti ríkis- saksóknara afgreiði í næstu viku mál miðaldra manns, sem er sak- aður um að hafa misnotað dóttur sína kynferðislega í 5 ár. Maðurinn, sem er búsettur á Suðurlandi, var handtekinn þann 14. október og hefur setið í gæslu- varðhaldi síðan. Rannsóknarlög- regla ríkisins sendi málið til ríkissaksóknara til ákvörðunar um málssókn um miðjan nóvember. Maðurinn er sakaður um misnotkun á dóttur sinni undanfarin 5 ár, en hún er nú 14 ára gömul. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. janúar, en búist er við að málið verði afgreitt frá ríkissaksóknara í næstu viku. Þó Fischer sé hættur lifir goð- sögninenn Nýr bæklingur: — „Oáfengt. Já, takk“ ÁTAK gegn áfengi og öðrum fíkniefnum, sem er samstarf rúm- lega fjörutíu aðila, samtaka, stofnana og stjórnmálaflokka, hefur gefið út bæklinginn „Óá- fengt. Já, takk.“ Bæklingurinn er prentaður í 20.000 eintökum og dreift til matvöruverslana fyrir jólin. Ýmsir aðilar styrktu útgáf- una. C- Aukin áhersla á heilbrigði og holl- ar lífsvenjur, svo og aukin þekking á áhrifum áfengis á heilbrigði hefur leitt til vaxandi áhuga fólks á öðrum drykkjum en áfengi. í kjölfar þess hefur fjölbreytni og framboð ýmissa ávaxta- og gosdrykkja aukist. Einnig er nú um fleiri tegundir óáfengra vína að velja en fyrr. í bæklingnum er minnt á ýmsar ástæður fyrir því að fólk neytir ekki áfengis. Sumir vilja varðveita og tryggja heilsu sína og útlit sem best, ná árangri í starfi eða íþróttum, vemda böm sín fædd og ófædd eða halda hæfni sinni óskertri í flóknum heimi hraðans. Aðrir telja áfengi með öllu óþarft og vilja njóta lífsins alls- .pc* gáðir. í bæklingnum er sérstaklega bent á að öllum veitingahúsum með vínveitingaleyfi ber að hafa á boð- stólum úrval óáfengra drykkja á hóflegu verði. Þar er minnt á að sá sem biður um óáfengan drykk með matnum á veitingahúsi á að geta fengið drykk er hæfír réttinum sem hann hefur pantað, ekki síður en sá sem kýs áfenga drykki. Átak gegn áfengi bendir á að stefnt er að því að draga úr neyslu áfengis fram til næstu aldamóta. Því er i bæklingnum fjöldi ljúffengra uppskrifta að óáfengum drykkjum við allra hæfi og við allar aðstæður. Jól og áramót eru kjörinn tími til að endurskoða lífsstefnu sína og venjur, þar á meðal áfengisneysluvenjur. Stefnum að bættu heilbrigði. Minni áfengisneysla. Betri heilsa. (Fréttatilkynning.) „Hann var aldrei taugaveiklaður, hann horfði beint fram á við og allar hliðar taflmennsku hans voru framúrskarandi,“ segir Mednis. Mednis bætir því við að Fischer hafi ekki enn fengið það tilboð um að snúa aftur sem honum hafi fundist nógu gott. „Það leik- ur enginn vafi á því að hann er oft á báðum áttum um hvort hann eigi að snúa aftur," segir Mednis. Á veggjum Manhattan skák- klúbbsins í New York þar sem undrabamið vann sína fyrstu sigra hangir olíumálverk af Fisch- er þar sem hann stýrir hvítu mönnunum einbeittur á svip. I næsta herbergi sýnir svart-hvít ljósmynd aðdráttarafl snillingsins strax á unga aldri. Hann situr þungt hugsi með hönd undir kinn, umkringdur hópi áhorfenda. Manhattan klúbburinn var stofnaður árið 1887 og nú er rek- inn þar skákskóli fyrir unga skákmenn. Ef til vill í þeirri von að nýr Fischer komi fram í dags- ljósið. Klúbbfélögum fjölgaði gífurlega í þá mund er Fischer malaði úrvalslið þessa heims í upphafí áttunda áratugarins. En félögunum fækkaði þegar Fischer hvarf af sjónarsviðinu. í fyrstu gerðu menn ráð fyrir að þetta væri bara eitt af þessum uppá- tækjum Fischers en á sjöunda áratugnum hætti hann þrisvar sinnum taflmennsku um lengri eða skemmri tíma. Þó sjálfskipuð útlegð mannsins sé líkast til var- anleg í þetta skipti hefur orðstír hans engan hnekki beðið. „Ó hve við söknum hans,“ segir Dougias Bellizzi formaður Manhattan skákklúbbsins. Byggt á Reuter. GOÐSÖGNIN um Bobby Fischer lifir góðu lífi meðal fremstu skákmanna heims þó 15 ár séu liðin síðan hann lék sinn síðasta leik. Bandaríkjamaðurinn sem varð að þjóðhetju þegar hann heimti heimsmeistartignina úr höndum Boris Spassky árið 1972 í Reykjavík hefur ekki teflt opinberlega síðan þá. Þótt mörgum ofbyði heimtu- frekja Fischers og duttlungar þá vildi hann veg skáklistarinnar ætíð sem mestan. Honum er að þakka há verðlaun á skákmótum, betri aðstaða fyrir keppendur og aukin virðing manna fyrir skák- íþróttinni. En Bobby var ætíð kurteis þegar sest hafði verið að tafli og krafðist þess hins sama af félögum sínum. Sovéski stór- meistarinn Eduard Gufeld segir frá þv? að eftir kandídatamótið í Curacao neitaði Fischer að ferðast með sömu flugvél og Pal Benkö því hann grunaði hann um að hafa selt síðustu skákina sem er seljist enn grimmt og bætir við: „Bobby er Elvis Presley skák- arinnar, nafn hans halar inn peninga þó ferlinum sé lokið". „í hvert sinn sem teflt er um heimsmeistaratitilinn svífur andi Fischers yfir vötnum," segir Larry Parr ritstjóri bandaríska skák- tímaritsins Chess Life. Fischer sem er stigahæsti skák- maður sögunnar missti titilinn árið 1975 án taflmennsku þegar hann neitaði að fallast á fyrir- hugaða tilhögun einvígis hans og Karpovs. Eliezer Agur sem skrifað hefur greinar um skákir Fischers í tíma- Fischer þungt hugsi i einvíginu við Spassky í Reykjavík árið 1972. hann tefldi í mótinu. Slík var ærutilfinning Bobbys. Marga skákáhugamenn dreym- ir enn um að Fischer snúi aftur til skákborðsins. Aðrir þykjast vita að Fischer myndi nú bera skarðan hlut frá borði í viðureign við Karpov eða Kasparov og sætta sig við að meistarinn skuli hafa hætt á toppnum. Reyndar sagði hinn öflugi bandaríski skákmaður Reuben Fine sem einnig var sál- fræðingur fyrir um að eitthvað þessu líkt myndi gerast í skák- heiminum. Fine sem skrifaði bók um sálfræði skákarinnar sagði menn sem keppa að heimsmeist- aratign líta á heimsmeistarann sem föðurímynd. Þegar ímyndin væri yfirunnin þá hefði viðkom- andi unnið bug á þráhyggju og viss tómleiki gripi um sig. Auð- velt er að heimfæra þetta upp á Fischer því faðir hans yfírgaf hann og móður Fischers þegar Bobby var komungur. Bandaríski skákbókasalinn Ed Labate segir að bækur um Fisch- rit leynir ekki aðdáun sinni: Þegar hann „hætti að tefla virtust mögu- leikar hans takmarkalausir". Fischer er nú 44 ára gamall og býr í kyrrþey í Pasadena í Kalifomíu. Hann lætur sér nægja tekjur af sölu bóka sinna. Ekki verða menn varir við nokkurn áhuga hjá Fischer að taka á ný þátt í keppni. Sumir segja að Fischer lifi mjög fábrotnu lífi, lesi bækur um öfgastefnur í stjóm- málum og afneiti fólki sem hefur samband við fjölmiðla. Sagt er að vinunum fari sífellt fækkandi. „Bobby lifir í kyrrþey. Hann hitt- ir einungis nánustu vini og þeir halda vemdarhendi yfir honum," segir sterkur skákmaður. Að sögn vina hans tekur Fischer þó ein- staka sinnum eina og eina skák og fylgist með hvað er að gerast í skákheiminum. „Það er lítil von til þess að Bobby snúi aftur," segja kunnugir. Fyrr á þessu ári hafnaði Fischer kostaboði um að taka þátt í alþjóðlegu móti. „Hann hefði getað þénað svimandi upp- hæð,“ segir einn þeirra sem til þekkja. Fischer neitar að láta taka viðtal við sig og þeir hinir fáu sem hitta hann neita að gefa upplýs- ingar um daglegt líf Fischers. „Þannig hefur Bobby misst alla vinina," segir einn hinna von- sviknu. Shelby Lyman . sem sér um vikulega sjónvarpsþætti frá ein- víginu í Sevilla eyddi fyrir skemmstu stærstum hluta eins þáttarins í að fjalla um Fischer. Ljósmyndir sýna ungan dreng í stuttbuxum með snoðaðan koll. Þrettán ára gamalt undrabamið var farið að ferðast um allan heim til að taka þátt í skákmótum. Myndinni lýkur þegar Fischer stígur út úr flugvélinni í Keflavík sem færði hann á vit einvígisins við Spassky. „Það er bara einn Fischer á öld,“ segir Lyman. Edmar Mednis stórmeistari sem skrifaði árið 1973 bók um hvemig leggja mætti meistarann að velli, segir að Fischer hafi ver- ið öflugasti skákmaður allra tíma. |Á TAKK! 10 ást.uður f yri r .k') drekka óáiengt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.