Morgunblaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
49
Barðaströnd:
Garðablóm
springa út
og brum
þrútnar
Miðhúsum, Reykhólasveit.
ÞAR SEM nú eru stystu dagar
ársins, og margt óveiyulegt um
veðurfar, þá er ekki úr vegi að
athuga aðeins gróðurinn hér.
Tún eru farin að grænka og
munar þar dag frá degi. í garðin-
um er alparifs farið að laufgast
og einnig er stutt í að Alaskavíð-
irinn laufgist. Brumhnappar á
birki og reyni eru farnir að
þrútna, garðablóm eru farin af
stað og er þrenningarfjólan með
nýútsprungin blóm. Regnfangið,
vallhumallinn og bláfífillinn
halda víst að vorið sé komið.
Nú er það svo að ef ekki fer að
kólna á næstu dægrum er hætt við
því að gróður skemmist og sérstak-
lega mun Alaskavíðinum vera hætt.
Hér mun engin lús vera á barrtijám
og eru því ekki skemmdir á þeim.
En hvort hægt verður að vama því
að lúsin berist hingað vestur verður
að teljast ólíklegt. Aðrar víðisteg-
undir hafa lítið á sér bært í þessum
skammdegishlýindum enda hafa
þær aðlagað sig lengur mislyndi
íslenskrar verðráttu.
Hér er útlit fyrir að jólin verði
friðsæl og verða messur á jóladag
á Reykhólum og Gufudal og á ann-
an í jólum á Garpsdal.
Sveinn
Jólahrað-
skákmót
í Kópavogi
HIÐ árlega jólahraðskákmót
Taflfélags Kópavogs verður
haldið sunnudaginn 27. desem-
ber.
Skákmótið hefst kl. 14.00 í Kópa-
vogsskóla, vesturálmu.
Eldur í plasti
og pappa
ELDUR kom upp undir stiga-
palli fjölbýlishúss við Vesturhóla
rétt fyrir miðnætti á mánudag.
Reyk lagði inn í húsið og urðu
nokkrar skemmdir á fatnaði í
þvottahúsi.
Eldurinn kviknaði í plastboxum
í pappakassa undir stigapallinum
og lagði reykinn inn um glugga
þvottahúss. Talið er víst að um
íkveikju hafí verið að ræða.
GLEÐILEG
WBKBBBBBHBBkWtBBmýr WBBBHtBBBBBBBBBBBBBB
JOL
Óskar og Emma og 115 skátar á leiðinm á Jamboreemót í
Ástraiíu senda öllum á gamla góða Fróni bestu kveðjur.
HVERTSEMÞÚFERÐ
- við höfum gjaldeyrinn
lónaóarbankinn
-nútim fauiki
Gleðilegjól
- hiffumst í háloftunum 1988