Morgunblaðið - 24.12.1987, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
P
% %11|| ■f;
■3»
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Baltic 13. jan.
Helios 26. jan.
Baltic 10. feb.
NEWYORK
Baltic 11. jan.
Helios 24. jan.
Baltic 8. feb.
HALIFAX
Helios 28. des.
Helios 29. jan.
BRETLAND/
MEGINLAND
IMMINGHAM
Álafoss 3.jan.
Eyrarfoss 10. jan.
Álafoss 17. jan.
Eyrarfoss 24. jan.
ANTWERPEN
Álafoss 5. jan.
Eyrarfoss 12. jan.
Álafoss 19. jan.
Eyrarfoss 26. jan.
ROTTERDAM
Vessel 30. des.
Álafoss 6. jan.
Eyrarfoss 13. jan.
Álafoss 20. jan.
HAMBORG
Álafoss 7. jan.
Eyrarfoss 14. jan.
Álafoss 21. jan.
Eyrarfoss 28.jan.
FELIXSTOWE
Dorado 6.jan.
Tinto 13. jan.
IMMINGHAM
Dorado 7. jan.
Tinto 14. jan.
BREMERHAVEN
Tirtto 29. des.
Dorado 5.jan.
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
ÞÓRSHÖFN
Reykjafoss 3. jan.
Reykjafoss 16. jan.
Reykjafoss 30. jan.
Arhus
Skógafoss 23. des.
Reykjafoss 5. jan.
Skógafoss 12.jan.
Reykjafoss 19. jan.
GAUTABORG
Skógafoss 29. des.
Reykjafoss 6. jan.
Skógafoss 13. jan.
Reykjafoss 20. jan.
HELSINGBORQ
Skógafoss 28. des.
Reykjafoss 7. jan.
Skógafoss 14. jan.
Reykjafoss 21.jan.
KAUPMANNAHÖFN
Skógafoss 28. des.
Reykjafoss 7. jan.
Skógafoss 14. jan.
Reykjafoss 21. jan.
FREDRIKSTAD
Skógafoss 30. des.
Reykjafoss 8. jan.
Skógafoss 15. jan.
Reykjafoss 22.jan.
HELSINKI
Selfoss 6. jan.
GDYNIA
Dettifoss 28. jan.
LENINGRAD
Selfoss 8. jan.
Áætlun innanlands.
Vikulega: Reykjavík, isa-
fjörður, Akureyri, Dalvik,
Húsavík. Hálfsmánaðar-
lega: Siglufjörður, Sauðár-
krókur og Reyðarfjörður.
Vikulega: Vestmannaeyjar.
EIMSKIP
í®
Pósthússtræti 2.
Sfmi: 27100
Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem voru brautskráðir á haustönn 1987.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
49 nemendur voru braut-
skráðir á haustönn skólans
Tæplega 600 nemendur hafa stundað nám við skólann í vetur
Keflavfk. ^
FJÖRUTÍU og níu nemendur voru brautskráðir frá Fjölbrautaskóla
Suðurnesja á laugardaginn. Athöfnin fór fram í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju, en brautskráning nemenda frá skólanum fer fram til skiptis
í bæjarfélögunum á Suðurnesjum. Að þessu sinni voru 19 stúdentar
brautskráðir, vélaverðir voru 11, byggingameistarar 8, á tveggja
ára bóknámsbraut voru 6, af verknámsbraut voru 3 og 2 af iðnbraut.
Að venju voru veittar viðurkenn-
ingar fyrir góðan námsárangur.
Þórdís Þormóðsdóttir, sem lauk stúd-
entsprófí úr öldungadeild, hlaut
þrenn verðlaun fyrir góðan náms-
árangur; í dönsku, íslensku og
félagsfræði. Guðrún E. Aðalsteins-
dóttir fékk tvenn ferðlaun, fyrir
þýsku og ensku. Guðbjörg Jónsdóttir
fékk viðurkenningu fyir góðan
árangur í stærðfræði, Sveinn Vald-
imarsson í raungreinum og þá fékk
sunddrottningin frá Akranesi, Ragn-
heiður Runólfsdóttir, viðurkenningu
fyrir góðan námsárangur á stúdents-
prófí.
Kári Húnfjörð, sem lauk námi í
meistaraskóla byggingamanna, hlaut
verðlaun fyrir frábæran námsárang-
ur, en hann lauk stúdentsprófí í
öldungadeild í fyrra og lauk þá 37
einingum á einni önn, en að meðal-
tali ljúka nemendur 18-20 einingum
á önninni. Gunnar Valdimarsson fékk
einnig viðurkenningu fyrir ágætan
námsárangur hjá byggingameistur-
um. Ólafur Aðalsteinsson náði
bestum námsárangri vélavarða og
loks hlaut Ólafur Öm Jónsson viður-
kenningu fyrir góðan námsárangur
í vetur. Ólafur er á 2. ári í skólanum
og hefur sýnt mikla hæfíleika í
stærðfærði.
Hjálmar Ámason skólameistari
kvaddi nemendur sína og í ræðu sinni
til þeirra lagði hann áherslu á nauð-
syn þess að halda vörð um og
varðveita íslenska tungu. Hjálmar
sagði að íslensk tunga væri undir-
staða sjálfstæðis þjóðarinnar sem nú
væri sótt að úr öllum áttum í frum-
skógi fjölmiðlunar. „Ég heyrði nýlega
í ágætu útvarpserindi hvar þessi
ásókn erlendra áhrifa var líkt við
hinn þekkta gríska trójuhest sem
dregin, væri hægt en bftandi inn í
málið. Munurinn væri bara sá að út
úr þessum trójuhesti stökkva ekki
vígreifír baráttumenn heldur kónar
á borð við Michael Jakson, He-man
og fleiri. Og þeir virðast eiga sorg-
lega greiðan aðgang að málvitund
okkar. Afleiðingamar láta ekki á sér
standa. Tölur frá bókasöfnum sýna
að almennur bóklestur hefur hrunið
á síðustu árum. Þar með er til hliðar
lagður sá kennari íslenskrar tungu,
bókin, sem þjóðinni hefur dugað fram
til þessa enda einkennist málfar
yngra fólks í dag af átakanlegri orð-
fæð og skrípiorðum ásamt erlendum
slettum. Eigi flölskrúðugt málfar að
bera vott um djúpa og rÖkræna hugs-
un má spyija hvort þessi átakanlega
orðfæð sé líka merki hugsunarleysis
og deyfðar. Við virðumst fljóta sof-
andi að feigðarósi og höfumst fátt
að. Með því móti er tilveru okkar,
sem sjálfstæðrar, hugsandi vemr í
hættu. Tilveru okkar, sem sjálfstæð-
ir einstaklinar, er ógnað. Og ekki
bara okkar sem einstaklinga heldur
líka þjóðarinnar sem heildar. Þvf
glatist tungan er skammt í að sjálf-
stæði líði undir lok eins og dæmin
sanna," sagði Hjálmar meðal annars
f ræðu sinni.
Nemendur á haustönn Fjölbrauta-
skóla Suðumesja vora tæplega 600
taisins að sögn Ægis Sigurðssonar
áfangastjóra og hefðu nemendur í
ár verið heldur fleiri en á sama tíma
í fyrra. í haust var nýbygging við
skólann tekin í notkunn, í henni era
7 kennslustofur og rými fyrir kenn-
ara. Ægir sagði að þeir hefðu orðið
að kenna bóknámsfög víðsvegar um
bæinn, en nú væri sú kennsla öll
undir sama þaki sem auðveldaði allt
skólahald frá því sem áður var.
- BB
l
l
i
i
imi i t