Morgunblaðið - 24.12.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
Hef verulegar áhyggjur af
framvindunni á næsta ári
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
FORYSTUMENN vinnuveitenda gengu á fund ríkisstjórnarinnar á
mánudagsmorgun að hennar ósk og skýrðu henni frá horfum í samn-
ingamálunum. „Við skýrðum frá því að það væri afskaplega ólíklegt
að okkar mati, að það gætu náðst samningar á næstu vikum eða jafn-
vel mánuðum. Okkur virðist að það beri það mikið á milli og það
skorti vilja hjá ráðandi öflum í launþegahreyfingunni til þess að ta-
kast á við vandamálin eins og þau blasa við núna,“ sagði Þórarinn
V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri
samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að ríkisstjómin hefði
boðað til fundarins til að afla sér
upplýsinga um stöðu mála. Hún hefði
ekki lagt fram nein tilboð og vipnu-
veitendur ekki lagt fram neinar óskir
til ríkisstjómarinnar um aðgerðir,
enda væm samningamálin ekki á því
stigi að það hefði neitt upp á sig.
Ef til þátttöku ríkisstjórnarinnar
kæmi í lausn kjarasamninga fyrir
næsta ár yrði það að vera með
þríhliða viðræðum hennar, vinnuveit-
enda og launþegahreyfingar.
Um dræmar undirtektir fram-
kvæmdastjómarfundar Verka-
mannasambands íslands á sunnudag
við framkomnum hugmyndum um
Vinnuveitendasambands Islands í
kjarasamninga sagði Þórarinn:
„Þessar hugmyndir em greinilega
ekki nógu freistandi til þess að for-
ysta VMSÍ treysti sér til þess að
ganga til samninga ein og óstudd.
Eg met það svo að það sé óttlnn við
framtíðina sem valdi því að menn
treysti sér ekki til þess að taka á
þessum málum," sagði Þórarinn.
„Við látum ekki teyma okkur ótil-
neydda langt út á þá braut að semja
um eitthvað sem við getum ekki stað-
ið við,“ sagði hann ennfremur. „Það
er ekki fordæmalaust að vinnuveit-
endur hafi verið þvingaðir til þess
að skrifa undir samninga, sem engin
innistæða var fyrir. Þess em mörg
dæmi og það kann vel að vera að
það eigi fyrir okkur að liggja að
verkalýðshreyfingin neyði okkur til
þess að skrifa undir einhvers konar
draum, sem áður en lýkur verður
mactröð okkar allra, en ég held að
þjóðin muni ekki kunna okkur þökk
fyrir. Menn em svo oft búnir að reyna
þetta á eigin skinni. Hagur fólks
verður ekki bættur með því að magna
hér upp verðbólgu og ef við ætlum
að fara út á þá braut að semja um
launabreytingar á gmndvelli ein-
hvers sem ekki er til endar það annað
hvort með Qöldagjaldþroti fyrirtækja
með tilheyrandi atvinnuleysi eða með
aukinni verðbólgu, sem er öllu
líklegra."
Hann sagðist alls ekki telja það
útilokað að hægt væri að ná samn-
ingum á gmndvelli þess sem væri
mögulegt, en ennþá hefði ekki fund-
ist gmndvöllur til þess og hann væri
farinn að hafa vemlegar áhyggjur
af framvindunni á næsta ári.
VEÐURHORFUR í DAG, 24.12.87
YFIRLIT 6 hádegi f gær: Norðaustan stinningskaldi eða allhvasst
og slydda noröantil á Vestfjöröum, annars austangola eða kaldi
og skúrir. Hiti 0—3 stig norðanlands en 5—7 stig syðra.
SPÁ: Norðaustan stinningskaldi eða allhvasst og slydda eða snjó-
koma norövestanlands en austan- og suðaustangola eða kaldi og
skúrir eða slydduél í öðrum landshlutum. Hiti 0—2 stig norðan-
lands en 4—6 fyrir sunnan.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á JÓLADAG OG ANNAN í JÓLUM: Austlæg vindátt og
fremur hlýtt á Suður- og Vesturlandi, en heldur svalara norðaustan-
lands. Súld eða rigning sums staðar á Austfjöröum og suöaustan-
lands en annars þurrt aö kalla.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x, Noröan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
lll
* / *
i*i* Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * #
j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
I Þoka
: Þokumóða
’ Súld
OO
4
K
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavlk hltl 1 4 veöur alskýjað rlgnlng
Bergen 6 skýjað
Heltlnkl +8 snjókoma
Jan Meyan +18 skafrennlngur
Kaupmannah. 7 lóttskýjað
Narsiarssuaq +16 helðskfrt
Nuuk +8 helðskfrt
Osló 2 skýjað
Stokkhólmur +1 þokumóða
Þórshöfn 9 rlgnlng
Algarve 14 skýjað
Amsterdam 4 þokumóða
Aþena 14 léttskýjað
Barcelona 11 þokumóða
Berlln S skýjað
Chlcago +1 alskýjað
Feneyjar 2 þoka
Frankfurt 1 þokumóða
Glasgow 7 rigningogsúld
Hamborg 4 þoka
Las Palmas 21 skýjað
London 4 þokumóða
LosAngeles 10 heiðskfrt
Lúxemborg 4 lóttskýjað
Madrfd 8 þokumóða
Malaga Mallorce 15 vantar alskýjað
Montraal 1 snjóél
NewYork 4 léttskýjað
Parfa 3 þokumóða
Róm 16 þokumóða
Vln 8 Sýld
Washingtcn 1 Mttskýjað
Winnlpeg +9 alskýjað
Valencla 14 alskýjað
Morgunblaðið/Þorkell
Starfsmenn Bræðranna Ormsson hafa á undanförnum dögum varla
haft undan að afgreiða þvottavélar til kaupenda.
Heimilistækjaverslanir:
Ekkert lát á eftirspum
EKKERT lát virðist vera á eftir-
spurn eftir heimilistækjum fyrir
jólin. „Isskápar og uppþvottavél-
ar eru uppseldar hjá okkur en
eitthvað er enn eftir af eldunar-
tækjum," sagði Snorri Ingason,
sölustjóri heimilistækjadeildar
Bræðranna Ormsson.
„Á þriðjudag fengum við þijá
gáma af þvottavélum og seldum
samdægurs 100-150 stykki," sagði
Snorri. Hann sagði ennfremur að
allar flestar gerðir heimilistækja,
brauðristar, ryksugur, hrærivélar
og kaffivélar, virðist'ætla að seljast
upp fyrir jólin.
Eins og fram hefur komið í hér
í blaðinu undanfarna daga segjast
sölumenn í heimilistækjaverslunum
á höfuðborgarsvæðinu ekki muna
eftir annarri eins törn og verið hef-
ur undanfarna daga eða eftir að
umræða hófst um tollabreytingár
um áramót. Einnig segja margir
verslunarmenn að ótti við gengis-
breytingar um áramót glæði við-
skiptin.
Brandajól í ár
ARNI Björnsson, þjóðháttafræð-
ingur, sagði í samtali við
Morgunblaðið að menn hafi kali-
að það Brandajól þegar jóla-
dagarnir og sunnudagur voru
samliggjandi, eins og í ár. Fram
til ársins 1770 hafi þriðji í jólum
einnig verið helgur dagur hér á
landi og fyrir 1770 hafi því fleiri
helgidagar getað komið í röð um
jólin heldur en nú.
„Það er ekki vitað,“ sagði Árni,
„hvað menn meintu með Litlu- og
Stóru-Brandajólum en það gæti t.d.
verið að menn hafi kallað það Litlu-
Brandajól þegar aðfangadagur var
á sunnudegi. Það er hugsanlegt að
nafnið Brandajól sé alþýðuskýring
og dregið af latneska nafninu Dom-
inica Brandorum sem er fyrsti
sunnudagur í lönguföstu. En nafnið
gæti einnig verið dregið af orðinu
eldibrandur, þ.e.a.s. að menn hafi
dregið _að mikinn eldivið fyrir jólin,"
sagði Árni.
Ungir skákmenn á far-
aldsfæti um áramótin
UNGIR íslenskir skákmenn
verða á faraldsfæti kringum ára-
mótin. Þrír islenskir unglingar
fara á jólaskákmótið i Hastings
f Bretlandi á vegum Taflfélags
Reykjavíkur, og einnig taka tvö
ungmenni þátt í Evrópumóti
unglinga 16 ára og yngri sem
nú er haldið í fyrsta skipti.
Þeir Hannes Hlífar Stefánsson,
Tómas Björnsson og Sigurður Daði
Sigfússon taka þátt í áskorenda-
flokki jólamótsins í Hastings sem
hefst 27. desember og lýkur 7. jan-
úar. I þessum flokki keppa 3-4.
stórmeistarar og 12-14 alþjóðlegir
meistarar en alls verða þátttakend-
ur í kringum 60.
Þröstur Árnason keppir síðan
fyrir íslands hönd á Evrópumóti 16
ára og yngri sem hefst í Svíþjóð
27. desember og lýkur 5. janúar.
íslandsmeistari kvenna, Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, keppir á sama
móti í telpnaflokki.
Færð á vegum lands-
ins er með besta móti
FÆRÐ hefur verið með allra
besta móti að undanförnu og í
gær var nánast fært um allt land.
Víða var þó hálka. Á þriðjudag-
inn var vegurinn um Möðrudals-
öræfi ruddur.
Vegagerðarmenn hafa haft lítið
að gera í snjómokstri að undan-
fömu, að sögn Sigurðar Hauksson-
ar vegaeftirlitsmanns, en á móti
kemur viðhald á malarvegum vegna
hlýinda og bleytu. Miklar rigningar
hafa verið og á haustin og veturna
ná vegirnir ekki að þoma.
Nokkur aurbleyta hefur verið á
vegum og þungatakmarkanir á
Vestfjarðarvegi milli Skálaness og
Þingeyrar.
Sigurður sagði að snjór yrði
tnokaður ef þyrfti, en vegagerðar-
menn vinna ekki á jóladag og
nýjársdag, nema brýna nauðsyn
beri til.
Demants-
brúðkaup
60 ára hjúskaparafmæli eiga á
morgun, jóladag 25. desember,
hjónin Sigurlaug Friðriksdóttir
og Hermann Árnason Drekavogi
20 hér i bæ.
Demantsbrúðhjónin ætla að taka
á móti gestum í safnaðarheimili
Innri-Njarðvíkurkirkju á brúð-
kaupsdaginn eftir kl.16.