Morgunblaðið - 24.12.1987, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
28444
HÚSEIGMIR
VELTUSUNDI 1 O Ol#BgSI
SIMI 28444 OL wlmlBl
DanM Ámason, lögg. fast.,
Helgi Steingrímsson, sölustjóri.
Óskurn öllum viðskiptavinum
okkar gleðilegrajóla
og farsœls komandi árs.
Þökkum viðskiptin á árinu.
ff
J,
r ii
jF
— FASTEIGNASALAN —
BANKASTRÆTI S-20455
Friðrik Stafinuon vitokipUfraAingur.
Óskum öllum
viðskiptavinum
okkar nœr og fjœr
gleðilegra jóla
FASTEIGNA m
MARKAÐURINN
ÓAinsgötu 4, símar 11540 — 21700.
Jón Guómundsson sölustj.,
Leó E. Löve lögfr., Ólafur Stefánsson viöskiptafr.
Gleðileg jól!
EICINAMIDLUNIN
2 77 11
V_ INGHOLTSSTRÆTI 3
Svcrrir Kristinsson. sölustjóri - Þorleifur Cuðmundsson, sölum.
Þorólfur Halldórsson. lögfr.—Unnsteinn Bcck, hrl., sími 12320
LD
I
TOLLARI ’88
Léttir mjög tollskýrslugerð eftir áramót.
Toliari ’88 er fullkomið forrit sem sparar inn-
flytjendum miklar þjáningar við tollskýrslu-
gerð og verðútreikninga.
Tollareglur breytast verulega um áramótin.
Tollari ’88 er arftaki Tollara II, sem er eitt
vinsælasta tollaforritið í dag.
Tollari ’88 borgar sig á nokkrum mánuðum í
hreinum tímasparnaði.
★ Tollskrá með gömlum og nýjum tollflokk-
um er innbyggð. Ef sleginn er inn gamall
tollflokkur, stingur Tollari upp á þeim nýja
eða þeim nýju sem til greina koma.
Tollari fæst í ölíum helstu tölvuverslunum.
ÍSLENSK TÆKI,
Garðatorgi 5, Garðabæ,
sími 656510.
Áki Pétursson
Kristín Grímsdóttir
Þorsteinn Jónsson
REYKJAÆTTIN
Békmenntir
Sigurjón Björnsson
Reykjaætt á Skeiðum. Niðjatal
Eiríks Vigfússonar bónda og
dbrm. á Reykjum á Skeiðum og
kvenna hans Ingunnar Eiríks-
dóttur og Guðrúnar eldri Kol-
beinsdóttur. Áki Pétursson,
Kristín Grímsdóttir og Þorsteinn
Jónsson tóku saman. Islenskt ætt-
fræðisafn. Niðjatal VI, 1. Rit-
stjóm: Þorsteinn Jónsson.
Sögusteinn — bókaforlag 1987.
358 bls.
Nú er að hefja sögu sína stórt og
mikið niðjatal, Reykjaætt á Skeið-
um. Er gert ráð fyrir að niðjatalið
verði alls fimm bindi og er það fyrsta
þeirra nýútkomið. Hefur þetta niðja-
tal verið lengi í smíðum. Áki heitinn
Pétursson (d. 1970), deildarstjóri í
Hagstofu íslands, sonur hins kunna
ættfræðings Péturs Zophoníassonar
hafði unnið að samantekt þess um
langt árabil. Við fráfall hans lagðist
vinna að niðjatali niður þar til fyrir
rúmlega tveimur árum að ekkja Áka
frú Kristín Grímsdóttir og Þorsteinn
Jónsson ættfræðingur hófu starfið á
nýjan leik.
Ættfaðirinn, Eiríkur Vigfússon,
sem bjó á Reykjuni á Skeiðum fædd-
ist árið 1757 og andaðist árið 1839.
Hann var tvíkvæntur. Með fyrri konu
sinni Ingunni (dáin 24 ára) Eiríks-
dóttur átti hann tvær dætur sem upp
komust, Ingibjörgu og Katrínu. Er
mikill ættbogi frá þeim systrum.
Niðja Ingibjargar, en hún var gift
Eiríki smið á Laugarbökkum Þor-
steinssyni, er alla að finna í þessu
bindi bls. 9—103. Katrín, sem gift
var Magnúsi Andréssyni í Syðra-
Langholti, alþingismanni, átti tólf
böm. Niðjar tveggja þeirra elstu,
Andrésar og Eiríks, eru taldir í þessu
bindi bls. 104—358. Mun næsta bindi
hefjast á þriðja bami þeirra hjóna,
Magnúsi.
Með seinni konu sinni, Guðrúnu
*
Oskum viðskiptavinum
okkar gleðilegra jóla og
farsœls komandi árs.
Þökkum viðskiptin á
liðnu ári.
Bergur Oliversson hdl.,
GunnarGunnarssonhs: 77410. f*
Valur J. Ólafsson hs: 73869. “
Kolbeinsdóttur, átti Eiríkur átta
börn. Fimm þeirra komust til aldurs,
Vigfús á Reykjum, Kolbeinn á Hlem-
miskeiði, Loftur í Austurhlíð, Eiríkur
dbrm_. á Reykjum og Ingunn er gift
var Ófeigi ríka á Fjalli Vigfússyni.
Niðjar Eiríks og Guðrúnar verða
raktir í næstu bindum.
I þessu bindi er einungis niðjatal
að fínna. Ævisaga ættforeldra, fram-
ættarakning og nafnaskrár bíða
seinasta bindis.
Hönnun og öll uppsetning þessa
niðjatals er sams konar og verið hef-
ur í öðrum ritum þessarar ritraðar.
Hef ég í umsögnum um þau rit gert
grein fyrir því og hirði ekki að endur-
taka það í hvert sinn. En það er allt
með hinum mesta sóma. Myndefni
er mikið og margvíslegt eins og ver-
ið hefur. Skreytingar í upphafi kafla
eru hér oft sérstaklega skemmtileg-
ar. — Eitt er frávik frá hinu venjuíega
sem vert er að nefna. í fyrri niðja-
tölum hafa yflrleitt einungis böm
ættforeldranna (1. liður, stundum
einnig 2. liður) fengið sérstakan
kafla. Nú fá þrír liðir (þ.e. böm,
bamaböm og bamabamaböm) hvert
sinn kafla. Þetta helgast að sjálf-
sögðu af því hversu langt niðjatalið
er. Það er einir átta liðir, þar sem
lengst er fram gengið.
Eg fæ ekki betur séð en unnið
hafí verið að þessu niðjatali af mestu
vandvirkni. Þær villur sem ég rakst
á við fljótan lestur voru fáar og
smávægilegar. Ekki þýðir að fást um
þó að ekki hafl alltaf fengist full-
nægjandi upplýsingar um ættfólkið
sem flutti vestur um haf og niðja
þess. Þær upplýsingar vilja oft verða
seinfengnar. Og lesendur verða að
láta sér lynda þó að nafnaskrár, efn-
isyfírlit og önnur hjálpartæki komi
ekki fyrr en í seinasta bindinu. Bót
er í máli að Sögusteinsmönnum er
vel treystandi til að láta þá bið verða
ekki úr hófi langa. Þess má minnast
að ekki eru nema tvö ár síðan þessi
ritröð byrjaði að koma út og samt
er þetta sjöunda bókin.
I formála er það haft eftir Áka
Péturssyni að tvennt einkenni
Reykjaætt öðru fremur: langlífl og
miidir skákhæfíleikar. Skáksnillinga
fann ég a.m.k. tvo í þessari bók. Og
langlífið er auðvelt að reikna og bera
saman við aðrar ættir. Það er býsna
forvitnilegt viðfangsefni. En hvað
sem þessum eiginleikum líður dylst
engum að þessi ættbogi geymir
margt merkra hæfileikamanna og
maður þarf því yflrleitt ekki að lesa
lengi til að rekast á fólk sem vel er
þekkt.
Það er mikill fengur að þessu
mikla og vel gerða niðjatali.
aöurinn
Hafnarstr 20, ■ 28033
ÍNýim húainu viö Laukiartoro)
Brynjar Franaaon, a(ml: 36568.
26933
' Sendum viðskiptavinum
okkar
og landsmönnum öllum
bestujóla- og
nýársóskir.
Jón Ólafaaon hrl.