Morgunblaðið - 24.12.1987, Page 37

Morgunblaðið - 24.12.1987, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987 37 V erkmenntaskólinn: Brautskráir tólf nemendur af hinum ýmsu brautum Verkmenntaskólinn á Akureyri útskrifaði tólf nemendur síðastlið- inn föstudag-, fjóra sjúkraliða, tvo sjókokka, einn kjötiðnaðarmann, einn bifvélavirkja, þrjá bakara og einn stúdent af viðskiptasviði. Bernharð Haraldsson skólameist- ari sagði meðal annars við tækifærið: „Önnin, sem hófst fyrir hartnær fjór- um mánuðum, hefur verið næsta fljót að líða og komandi önn er rétt utan seilingar okkar þessa dagana, en fyrr en varir er hún komin og örstuttu seinna liðin. Og þá verður sólin kom- in hátt á loft. Þannig líður tíminn rétt eins og ör flygi af boga. Þessi tímans hraðferð minnir okkur á, að fara með gát, að láta ekki glepjast af fljótheitunum, að gæta að hvar fæti er drepið niður, að lifa af var- færni. Það er að vísu erfitt á ungum aldri að vera hægur, þegar allt lífið virðist fullt af fyrirheitum og á næsta þrepi eru dýrgripir og dásemdir, sem höndla verður, svo fljótt, svo fljótt. Þess vegna er gott að gefa sér stund til næðis, gefa sér tíma til að slaka á í iðukasti annasamra dægra, að skoða sig um með sjálfum sér og sínum, að stöðva sig á þrepskildi framtíðar. Vissulega boðar þessi dagur, þessi stund breytingu í' lífi ykkar. Þetta er ykkar kveðjustund. Nú kveðjið þið stofnunina, sem hefur fóstrað ykkur um sinn, þið gangið nú til annarra verka á öðrum vettvangi, þið gangið inn í framtíðina, þessa óráðnu og óræðu gátu hvers æskumanns, rétt eins og við öll göngum nú brátt mót hækkandi sól. Ekki skulum við spá fyrir um framtíðina, það er okkur ekki hollt að þekkja hana, nema þá andrá Sem við lifum hveiju sinni. Væri það mér eða þér til góðs að geta séð fyrir hið nkomna, sagt fyrir um örlög og ævintýr? Þrátt fyrir það skulum við ekki óttast framtíðina af því að hún er okkur óþekkt, ekki fælast hana af því hún er okkur fram- andi, heldur lifa í sátt, við hana, læra af henni, verða af henni meiri og betri,“ sagði skólameistari. Morgunblaðið/GSV Frá vinstri á myndinni eru: Gréta Björg Björgvinsdóttir sjúkraliði, Guðrún H. Gunnarsdóttir sjúkra- liði, Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir sjúkraliði, Sigrún Bjarnhéðinsdóttir sjúkraliði, Asa Jakobsdóttir sjókokkur, Sólveig Haraldsdóttir sjókokkur, Jóhann Rúnar Sigurðsson bifvélavirki, Sigurður Bjarnar Pálsson bakari, Soffía Jóhannesdóttir hakari, Sveinbjörn Tryggvason bakari og Guðmundur Karl Guð- jónsson stúdent. A myndina vantar Halldór Kristján Hjaltason kjötiðnaðarmann. Jólasýning Leikfélags Akureyrar: „Piltur og stúlka“ frum- sýnt á annan í jólum JÓLALEIKRIT Leikfélags Akur- eyrar að þessu sinni er hið gamalkunna íslenska verk Piltur og stúlka, leikrit mec söngvum, sem Emil Thoroddsen ,'erði eftir samnefndri skáldsögu afa sins Jóns Thoroddsens. Frumsýningin verður í Samkomuhúsinu á Akur- eyri á annan í jólum. Piltur og stúlka var fyrsta skáld- saga (roman) sem íslenskur höfund- ur gaf út, en Jón Thoroddsen er jafnan talinn faðir skáldsögu seinni tíma á Islandi. Ymsar tilraunir voru gerðar til að gera leikrit úr sög- unni, en best þótti Emil Thoroddsen takast upp og hann samdi auk þess tónlist og söngva fyrir sýninguna við ljóð Jóns. Þar á meðal má nefna Búðarvísur, Litfríð og ljóshærð og Sortnar þú ský. Borgar Garðarsson kom frá Finn- landi til að setja Pilt og stúlku á svið á Akureyri. Jón Hlöðver Áskels- son stjórnar tónlistinni, einsöngvur- um, Leikhúskórnum og hljómsveit. Leikmynd er eftir Örn Inga Gíslason og lýsingu, sem er afar mikil í sýn- ingunni, stýrir Ingvar Björnsson. Einhverjar eftirminnilegustu per- sónur í Pilti og stúlku eru jafnan Gróa á Leiti, Búrfellsfeðgar og hinir saklausu elskendur, Sigríður og Ind- riði. Að þessu sinni er Þórey Aðal- steinsdóttir í hlutverki Gróu, Búrfellsfeðgar í höndum Marinós Þorsteinssonar og Skúla Gautason- ar, Sigriði í Tungu leikur Arnheiður Ingimundardóttir og Indriða á Hóli Pétur Eggerz. Margir leikarar gegna fleiri en einu hlutverki. Til dæmis leikur Þráinn Karlsson bæði Þorstein matgogg og Kristján búðarloku í Reykjavík, Sunna Borg leikur Ing- Sigríður og Indriði á unga aldri og á fullorðinsáruni!orgunblaðlð/GSV veldi móður Sigríðar og Maddömu Ludvigsen og Theodór Júlíusson leikur sóknarprestinn Tómas í sveit- inni og Möller kaupmann í Reykjavík. Ekki má gleyma Jóni karlinum, þeim Reykvíkingi sem hangir löngum í búðum og sýpur dijúgum snafsinn, en hann leikur Guðmundur Jónsson óperusöngvari. Guðmundur lék einmitt þetta sama hlutverk í Pilti og stúlku í Þjóðleik- húsinu 1956. Frumsýningin á Pilti og stúlku verður á annan í jólum. Ástæða er til að benda á sýningartímann, en frumsýningin hefst klukkan 17.00. Annars eru sýningar að jafnaði fyrir- hugaðar á föstudags- og laugar- dagskvöldum klukkan 20.30 og á sunnudögum klukkan 15.00. Morgunblaðið/Guðmundur Svansson Jól á Akureyri Umferðanmðstöð tekur til starfa á Akureyri Umferðarmiðstöð hefur vænt- anlega starfsemi sína um miðjan janúar í Hafnarstræti 82 á Akur- eyri. Fyrirtækinu er ætlað að reka þjónustumiðstöð fyrir sérleyfis- hafa, eða umferðarmiðstöð með öðrum orðum. Bifrciðastöð Norð- urlands var stofnuð þann 27. nóvember sl. af fjórum aðilum á aðalfundi sérleyfishafa sem fram fór í húsakynnum Bifreiðastöðvar íslands. Stofnendur eru: Norður- leið, Sérleyfisbílar Akureyrar, Björn Sigurðsson á Húsavík og Ævar Klemenzson á Dalvík. Hingað til hefur þjónusta sérleyf- isbifreiða verið rekin á tveimur stöðum á Akureyri sem ekki hefur þótt heppilegt fyrirkomulag. Rútu- bifreiðir hafa haft aðsetur í Hafnar- stræti 82 og hinsvegar á Geislagötu 10 þar.sem aðstaðan hefur vægast sagt verið óviðunandi. Nú er mein- ingin að steypa þessu saman undir eitt þak í Hafnarstræti 82 og kemur Akureyrarbær inn sem hvati að fyrir- tækinu, að sögn Þorleifs Þórs Jónssonar atvinnumálafulltrúa bæj- arins. Bærinn leggur til 15% hlutafj- ár og ætlar að nýta sér aðstöpu sína og setja á fót upplýsingamiðstöð fyr- ir ferðamenn á sama stað og þar með styrkja þau tengsl sem sérleyfis- hafar á Norðurlandi hafa við Reykjavík. Með þessu má reikna með meiri samnýtingu en ella og búast menn við að hægt sé að leggja upp frá stöðum eins og Húsavík og jafn- vel Raufarhöfn að morgni og komast suður til Reykjavíkur á sama degi með rútu sem hingað til hefur verið illmögulegt. Hafnarstræti 82 er í eigu Kaup- félags Eyfirðinga og er núverandi rútumiðstöð aðeins til húsa á neðstu hæðinni, en alls telur húsið þijár hæðir. Forráðamenn umferðarmið- stöðvarinnar vonast til að fá hinar tvær hæðirnar einnig til umráða og helst vildu þeir fá að kaupa húsið af KEA. Ekki er þó vitað hvort KEA-menn vilji selja húsið að sinni. Stór hluti þess er nú ónýttur og óupp- hitaður, en alls er það hátt í 1.000 fermetrar að stærð. Þrjú skip á sjó yfir hátíðina ÞRÍR togarar frá Akureyri verða á veiðum yfir jólahát íðina. Tveir togarar Utgerðarfélags Akur- eyringa, Kaldbakur EA 301 og Svalbakur EA 302, eru farnir á miðin og Samhetjatogarinn Þor- steinn EA 610 fór út á mánudags- kvöldið. Kaldbakur er væntanlegur til heimahafnar þann 27. desember og Svalbakur þann 30. desember, en Harðbakur EA 303 fer á veiðar þann 27. desember og verður úti yfir ára- mótin, að sögn Baldvins Þorsteins- sonar hafnarvarðar. Þorsteinn EA er ekki væntanlegur inn aftur fýrr en á næsta ári þar sem meiningin er að sigla með aflann, að öllum líkindum til Bretlands. Skipstjóri í túrnum verður Jón ívar Halldórsson og er þetta þriðji túr Þorsteins EA síðan Samhetji eignaðist skipið. Tveir akureyrskir togarar komu til hafnar hádegi í gær, Sléttbakur EA 304; hinn nýendurbyggði frysti- togari UA úr sinni fýrstu veiðiferð og auk þess Akureyrin. ORÐ DAGSINS Á AKUREYRI HringiO, hlustið og yður mun gefaat Ihugunarefni. SÍMÍ (96)-2l840

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.