Morgunblaðið - 24.12.1987, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1987
53
EgillFr. Hallgríms
son - Kveðjuorð
Það er ekki hægt að segja um
okkur frændur, Egil Fr. Hallgríms-
son verkstjóra, sem lést 11.
desember, og mig, að á okkur hafi
sannast að frændur séu frændum
verstir. Hann var drengur góður.
Við vorum í gamla daga saman á
trillu sem faðir hans átti á Eski-
firði. Fór einstaklega vel á með
okkur alla tíð. Vorum við sam-
hentir mjög. Hann fór suður til
Reykjavíkur mörgum árum áður en
ég. Samband okkar var gott þó fjar-
lægðin sem skildi okkur að væri
mikil a.m.k. í þá daga. Eftir að
Egill flutti að austan varð samband
okkar ekki eins náið en vel vissum
við hvor af öðrum og höfðum auga
með framvindu mála. Hann gat sér
gott orð sem sjómaður á yngri árum
og sem verkstjóri í Slippnum en þar
starfaði hann um áratuga skeið.
Hann , var maður stilltur og orðvar
og gæfumaður alla sína tíð.
Nú að leiðarlokum sendi ég ekkju
hans innilegar samúðarkveðjur og
öðrum ættingjum hans. Og frænda
mínum óska ég góðrar ferðar yfir
móðuna miklu.
Ken.ur mér í hug þetta erindi
úr sálmi V. Briem:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
Jóhann Þórólfsson
fra Reyðarfirði.
Guðrún Guðna-
dóttir - Minning
Fædd 30. maí 1917
Dáin 4. desember 1987
Leiðir okkar félaganna og Guð-
rúnar lágu fyrst saman snemma á
áttunda áratugnum. Synir hennar
og Andrésar Ingibergssonar, Sig-
urður Ingi, Gunnar og Einar voru
framarlega í hreyfingu kommúnista
á þessum árum. Það æxlaðist því
þannig að heimili Guðrúnar og
Andrésar varð nokkurs konar fé-
lagsheimili þessarar ungu hreyfing-
ar.
Og stundum gekk mikið á. Heim-
ilið breyttist í fundarsali eða
vinnustofu, allt eftir því hvað til
stóð. Og hún Guðrún tók þátt í öllu.
Guðrún var félagslynd kona og
hafði unun af fjölmenni kringum
sig og þótt erillinn hafi stundum
verið þreytandi þá var það aldrei á
henni að heyra. Þess vegna fannst
engum að erillinn væri átroðningur.
Þetta var framlag Guðrúnar til
starfs róttækrar æsku á síðasta
áratug. Þótt við værum ung að
árum þá var framkoma Guðrúnar
slík að aldursmunurinn þurrkaðist
út og kynslóðabilið varð einungis
misjöfn lífsreynsla.
En gjafir hennar til okkar fólust
ekki aðeins í því að dyr heimilis
hennar voru opnar fyrir pólitísku
starfi okkar. Hreinskilni Guðrúnar,
ákveðnar og fastmótaðar skoðanir
og mannþekking varð okkur drjúgt
veganesti. Hún var samheiji okkar
og vinur. Eftir að hreyfingin logn-
aðist út af þá héldu mörg okkar
áfram að venja komu sína i Álfta-
mýrina, kannski til að fá góð ráð,
skyggnast inn í framtíðina gegnum
spilastokkinn hennar, en mest til
að njóta vináttu og bergja af
reynslubrunni hennar.
Reynsla annarra og vinátta skipt-
ir ekki sköpum um ævi okkar. Það
veltur á úrvinnslu okkar. En víst
er að vinátta Guðrúnar og hlutur
hennar í mótun lífsviðhorfa setur á
okkur mark sem við viljum ekki
vera án og getum aldrei þakkað til
fulls. Við getum aðeins vonað að
við höfum lagt eitthvað á móti.
Við minnumst samheija og vinar.
Og Andrés, og þið strákar, Ingi,
Gunnar og Einar, tengdadætur og
barnabörn; við berum söknuð með
ykkur.
Nokkrir félagar úr KFÍ ml.
Kveðjuorð:
Tryggvi Jónsson
Er mér var tilkynnt um lát
Tryggva Jónssonar varð mér orð-
fátt, því skyndilega bar kallið að.
Tryggva minnist ég með djúpum
söknuði. Sem drengur góður reynd-
ist hann mér, er ég dvalist oftsinnis
hjá þeim hjónum á mínum yngri
árum.
Tryggvi var giftur frænku minni,
Kristínu Magnúsdóttur, dóttur
Magnúsar Magnússonar kaup-
manns og Helgu Jónsdóttir konu
hans, er var móðursystir mín.
Tryggvi var glæsimenni í alla staði
og þá var ekki hans innri maður
síðri. Hann var að eðlisfari yfirveg-
aður, rólyndur, heill og sannur í
öll glaðst yfir því, að gatan sem
hann gengur nú er umljómuð birtu
Guðs, já birtu eilífðarinnar. Ég kveð
nú kæran vin með þessum orðum.
í himnanna hásal hamingjan býr,
þar alfaðir friður og fógnuður gnýr.
Stjðmunar lýsa og leiftra til þín,
og leiða þig þar sem að guðsljósið skín.
(H.S. Hingumegin götunnar).
Elsku frænka mín, böm, tengda-
böm og barnabörn, við hjónin
vottum ykkur okkar dýpstu samúð.
Hrefna Sigurðardóttir.
hvívetna.
Sem forstjóri var hann mikilsvirt-
ur og kærleika vafinn af öllu sínu
starfsfólki. Betri föður og heimilis-
föður var vart hægt að eignast. Ég
minnist þess á sjötugsafmæli hans,
þá var af miklum myndarbrag tekið
á móti öllum þeim er hann vildu
sækja heim á þeim merku tímamót-
um í lífi hans. Þessi stórhuga maður
gjörði ekki mannamun, og sérstak-
lega var hann góður þeim er minna
máttu sín.
Mannkostir hans vom mildir og
blíðir. Hann var einn af þeim mönn-
um, er gaf mikið af sjálfum sér.
Já, ég tel að hann hafi gengið ljóss-
ins veg hér á jörðu. Nú getum við
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR f. GUÐMUNDSSON
fyrrverandi utanríkisráðherra,
sem andaðist 19. desember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í Reykjavík miðvikudaginn 30. desember kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vilja minnast hins látna
vinsamlegast láti líknarfélög njóta þess.
Rósa Ingólfsdóttir,
Guðmundur I. Guðmundsson, Rósa St. Jónsdóttir,
Grétar Guðmundsson, Kathleen Guðmundsson,
Örn Guðmundsson, Kristín Guðfinnsdóttir,
Ævar Guðmundsson, Guðrún Jóhannesdóttir
og barnabörn.
Fundarsamþykkt framkvæmdastj órnar
Alþýðubandalagsins:
Hörð og markviss bar-
átta nauðsynleg í
komandi kjaraátökum
Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins segir í fundarsam-
þykkt að mikilvægt sé að koma
i veg fyrir þá holskeflu sem ríði
á launafólki eftir áramót vegna
aðgerða rikisstjórnarinnar, og
að hörð og markviss barátta sé
nauðsynleg í komandi kjaraátök-
um. Segist Alþýðubandalagið
ekki munu liggja á liði sínu í
þeirri baráttu.
í samþykkt, sem gerð var sam-
hljóða á fundi framkvæmdastjóm-
arinnar 14. desember sl., segir að
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar hafí
aukið skattlagningu á landsmenn
um milljarða króna og nemi nýjir
skattar stjómarinnar 8,5 -9 mill-
jörðum króna. Verulegur hluti
þessara skatta, eða 5,75 milljarðar,
leggist á matvörur á sama tíma og
fyrirtækin sleppi sem fyrr, þrátt
fýrir stórfelldan gróða í góðæri lið-
inna ára.
í samþykktinni eru síðan for-
dæmdar harðlega stöðugar og
síauknar árásir ríkisstjórnarinnar á
launafólk, sem hafi hafist með ák-
vörðunum um auknar skattálögur
síðasta sumar. Um áramót muni
keyra um þverbak, fari fram sem
horfir, þegar nýr 25% matarskattur
leggist þyngst á þá sem eyða hlut-
fallslega mestum hluta launa sinna
í lífsnauðsynjar. Tekjuskattsfrum-
varp fjármálaráðherra geri síðan
ráð fyrir stóraukinni skattbyrði alls
launafólks og að auki æði verð-
bólgan áfram og hótað sé gengis-
fellingu.
í samþykKtinni segir að óhjá-
kvæmilegt sé að launamenn búi sig
undir baráttu gegn stjómarstefn-
unni sem í heild sé fyandsamleg
launamönnum. Mikilvægt sé, til að
koma í veg fyrir þessa holskeflu,
að samtök launafólks verði skipu-
lögð bæði af einstökum félögum og
heildarsamtökum og hörð og mark-
viss barátta sé nauðsynleg í
komandi kjaraátökum.
„Alþýðubandalagið mi . ekki
liggja á liði sínu í þeirri baráttu og
hvetur félaga sína til að hefja um-
ræður um nauðsyn aðgerða á
vinnustöðum, í samtökum launa-
fólks og annarsstaðar þar sem færi
gefst." segir síðan orðrétt í sam-
þykktinni.
t
Útför systur minnar, tengdamóður, ömmu okkar og langömmu,
ARNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR
fyrrv. námsstjóra,
Tjarnargötu 10c,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 29. desember kl. 13.30.
Þeir sem vilja minnast hennar eru beðnir að láta Heilsuhæli NLFI
í Hveragerði njóta þess.
Guðríður Jónsdóttir,
Ingveldur Dagbjartsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir mín og tengdamóðir,
MARGRÉT ÁSMUNDSDÓTTIR,
Granaskjóli 16,
veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 29. desember
kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bjarni Ásmunds,
Þórunn Guðmundsdóttir.
t
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR VALDIMAR ÁGÚSTSSON,
Sunnuhvoli,
Vatnsleysuströnd,
verður jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju þriðjudaginn 29. desember
kl. 14.00.
Kristján Guðmundsson,
Ágúst Sævar Guðmundsson,
Guðfinna Guðmundsdóttir.
t
Útför,
ÁSGEIRS BJARNÞÓRSSONAR,
listmálara,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 28. desember kl. 15.00.
Systkinabörn.
t
Þökkum innilega hlýhug og samúð við andlát og útför móður
okkar og tengdamóöur,
INGIBJARGAR THORARENSEN.
Ebba Thorarensen, Ebenezer Þ. Ásgeirsson,
Þétur Hannar Thorarensen,
Sigrún Thorarensen,
Anna Ragnheiður Thorarensen, Sigurður Hallgrímsson,
Bjarni Páll Thorarensen.