Morgunblaðið - 10.02.1988, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988
19
„Kæra Herdís“
eftirÞórarin Jón
Magnússon
Það er með miklum hroka, sem
Herdís Þorgeirsdóttir ritstjóri Heims-
myndar gerir athugasemdir í Morg-
unblaðinu á laugardaginn við skrif
mín í blaðinu daginn áður. Finnst
henni ég í meira lagi „vogaður" að
ávarpa persónu hennar í tilefni af
dylgjum hennar í garð okkar Magn-
úsar Hreggviðssonar vegna setu okk-
ar í undirbúningsnefnd fyrir nýaf-
staðna lesendakönnun. Herdís hefur
engan einkarétt á umræðum um les-
endakönnun þessa og ástæðulaust
fyrir hana að ráðast að mér með
ofstopa þegar ég á kurteislegan hátt
leyfi mér að upplýsa menn um það,
að þrátt fyrir vitneskju mína um að
lesendakönnun stæði fyrir dyrum var
nákvæmlega engin kynningarherferð
í gangi á vegum SAM-útgáfunnar
mánuðina fyrir könnunina.
Gagmýni Herdísar í fjölmiðlum
undanfarið hefur einmitt byggst á
því, að vegna setu minnar í undirbún-
ingsnefnd (það var einn einasti fund-
ur, sem ég sat með nefndinni) hafí
ég getað hrundið af stað kynningar-
herferð. í grein minni í Morgun-
blaðinu sl. föstudag skýrði ég frá
því, að síðasta tölublað Húsa & híbýla
var nákvæmlega ekkert auglýst og
blaðið þar á undan með einni einustu
auglýsingabirtingu. Útkomu Samú-
els stöðvuðum við í haust og hófum
ekki að nýju fyrr en í þessum mán-
uði og þrátt fyrir að við vorum að
taka við Vikunni á síðasta ári höfum
við ekki enn hafið áskriftarherferð
og kynningarherferð var ákveðið að
láta bíða fram yfír áramót og tengja
50 ára afmæli blaðsins. Þetta voru
einfaldlega þær upplýsingar sem ég
var að koma á framfæri í grein
minni. Mér fannst ástæðulaust að
sitja undir því, að Herdís væri að
gefa í skyn með skrifum sínum og
útvarpsviðtali, að kynningarátak
gæti hafa átt þátt í því að H&H og
Vikan komust í annað og þriðja sæti
lesendakönnunarinnar. Heimsmynd
situr neðar og er það vafalaust
ástæðan fyrir óróleika Herdísar.
Herdís segir í laugardagsblaðinu,
að sér þyki „nöturlegt að ég skuli
telja mig’þess umkominn að svara
fyrir gagnrýni sem beinist að Há-
skóla Islands". Ég vil vekja athygli
Herdísar á því, að ég hef ekki sett
á blað eitt orð þar að lútandi. Skipti
mér ekkert af því orðaskaki, sem
Herdís vill eiga þar í. Og heldur hef
ég ekki gert tilraun til að svara fyr-
ir Fijálst framtak sem Magnús
„Mér fannst ástæðu-
laust að sitja undir því,
að Herdís væri að gefa
í skyn með skrifum
sínum og útvarpsvið-
tali, að kynningarátak
gæti hafa átt þátt í því
að H&H og Vikan kom-
ust í annað og þriðja
sæti lesendakönnunar-
innar.“
Hreggviðsson stýrir. Hins vegar get
ég ekki látið eins og dylgjur Herdís-
ar vegna setu minnar á áðumefndum
nefndarfundi komi mér ekkert við.
„Markmið vísindanna er að leita
sannleikans og enginn hefur fullyrt
að Þórarinn Jón Magnússon standi
þar í vegi," segir Herdís í laugar-
dagsblaðinu. Og áður hefur hún látið
hafa eftir sér í viðtali við Morgun-
blaðið: „Það er ekki hægt að fullyrða
að þessir útgefendur hafi haft áhrif
á könnunina," en getur síðan ekki
stilit sig um að tala um grunsemd-
ir. Það var af þessu tilefni sem mér
fannst ástæða til að stinga niður
penna. Sýna fram á að góð útkoma
tímarita SAM-útgáfunnar í lesenda-
könnuninni stafaði einfaldlega af vin-
sældum ritanna, en ekki vegna kynn-
ingarátaks eða áskriftarherferðar.
Grunsemdir þar að lútandi em
ástæðulausar.
Að lokum vil ég taka fram, að þó
mér í niðurlagsorðum mínum í föstu-
dagsblaðinu yrði það á, að ávarpa
ritstjóra Heimsmyndar með orðunum
„kæra Herdís" táknar það ekki að
mér finnist ég þekkja hana eitthvað.
Ég þekki konuna ekki nokkum skap-
aðan hlut. Þykir mér vænt um að
hún skuli einmitt láta þess getið í
grein sinni í laugardagsblaðinu og
forða þannig slæmum misskilningi,
sem hugsanlega hefði getað hlotist
af þessu ávarpi.
Eg geri ekki ráð fyrir að ritstjóri
Heimsmyndar hafí ekki sagt sitt
sfðasta orð og eigi eftir að skrifa
nokkra pistla til viðbótar í dagblöðin
vegna könnunarinnar — svona til
„tilbreytingar" frá skrifunum í
Heimsmynd. Ég hef hins vegar kom-
ið á framfæri því sem ég vildi sagt
hafa.
Höfundur er ritsijóri og útgef-
andi.
Morgunblaðið/Guttormur V. Þormar
Loðdýrabúið i Eyrarlandi er í eigu bræðranna Sveins og Þorvarðar
Ingimarssona. Eru þeir nú með 370 minkahvolpa en hyggjast stækka
búið seinna.
Fyrsta loðdýra-
búið í Fljótsdal
Geitagerði, FljótsdaJ.
HÉR I sveit reis fyrsta loðdýra-
búið sfðastliðið haust.
Það er á Eyrarlandi, í eigu
bræðranna Sveins og Þorvarðar
Ingimarssona. Fengu þeir fyrstu
dýrin, 370 minkahvolpa, í desem-
ber. Þeir hyggjast stækka búið
seinna, en húsið tekur um það bil
1.000 dýr. Hingað til hefur ein-
göngu verið stundaður hér sauð-
fjárbúskapur, ef frá er talið eitt
kúabú, sem sett var á laggimar
fyrir fjórum árum.
Eftir langan góðviðriskafla fyrir
hátiðar hefur veðráttan verið sveiflu-
kennd síðan um áramót. 12. janúar
gekk í hvassa norðaustanátt með
slyddu. Snjór hlóðst mjög í tijágróð-
ur og braut greinar og jafnvel heil
tré. Upp úr miðjum mánuði kólnaði
og var frost í 4—5 daga um og yfir
20 gráður. Storka er mikil nú í byij-
un febrúar og jarðlaust að kalla.
í öllum sveitum hér blóta menn
þorra um þessar mundir að góðum
og gömlum sið. Fljótsdælingar halda
væntanlega sitt þorrablót 20. febrú-
ar, á þorraþræl. GVÞ
KRAFAN ER:
HAGKVAMNI MÓTI REKSTURINN
- HVERNIG VERÐUR HENNI MÆTT?
EFNI: Hlutverk stjórnandans • Fjármál • Hagræðing
starfsmannahalds • Upplýsingaöflun o.m.fl.
LEIÐBEINENDUR: Gunnar Maack og Reynir
Kristinsson, ásamt öðru starfsfólki Hagvangs hf.
TÍMIOG STAÐUR: 23. og 24. febrúar kl. 8.30-12.30
að Ánanaustum 15.
iW
19.FEB.
SIMI:
621066
621066
LáZ£
rrm
ER MARKAÐSKONNUN A ÞINU FÆRI?
Þarf hún ekki að vera neitt stórmál? Getur hún bent
þér á nýja, ónotaða möguleika til söluaukningar?
EFNI: Öflun upplýsinga • Úrvinnsla upplýsinga •
Notkun upplýsinga við ákvarðanatöku.
LEIÐBEINANDI: Christian Dam, framkvæmdastjóri hjá Vikurvörum hf.
TÍMI ÖG STAÐUR: 22. febrúar kl. 8.30-17.30 að Ánanaustum 15.
Engin ein stjórnunaraðferð er algild. Rétt greining
aðstæðna er forsenda fyrir því hvaða aðferð beri að
beita hverju sinni.
NÁMSKEIÐ FYRIR STJÓRNENDUR
í LYKILSTÓÐUM FYRIRTÆKJA,
STOFNANA OG FÉLAGASAMTAKA.
Brian Murrey er reyndur ráðgjafi í stjórnendaþjálfun. Hann hefur m.a.
unnið fyrir Uniroyal og British Steel.
TÍMI OG STAÐUR: 22.-23. feb. kl. 9.00-17.00 að Hótel Sögu.
ST.
INNRITUN TIL
19.FEB.
SÍMi.
STARFSMANNAFRÆÐSLA ER EINN
MIKILVÆGASTI ÞÁTTUR REKSTRAR-
INS OG ÞARF AÐ SKILA HÁMARKS
ÁRANGRI EKKI SÍÐUR EN AÐRIR
Þess vegna þarf hún að lúta öruggri stjórn.
Aðferðina lærirðu hér.
LEIÐBEINANDI: Randall Fleckenstein, M.A. Ed.s.
TÍMIOG STAÐUR:22. og23. febrúarkl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15.
INNRITUN ER AÐ LJUKA I: Mannlegi þátturinn 16. og 17. febrúar
STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKIR FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í ÞESSUM NÁMSKEIÐUM.
Stjórriunarfélag Islands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66