Morgunblaðið - 10.02.1988, Page 26

Morgunblaðið - 10.02.1988, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 10. FEBRÚAR 1988 Atli Dam, lögmaður Færeyja: Engin afsökun fyrir lax- veiðum utan landhelginnar Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter Soweto-búar sungu frelsissöngva á laugardag þegar lögreglan hafði meinað þeim að vera viðstadda útför Sicelo Dlomo, sem var myrtur eftir að hafa lýst því yfir í bandarískri heimildarmynd að hann hefði verið pyntaður í suður-afrísku fangelsi. Suður-Afríka: 10 manns farast í átökum svertingja Jóhannesarborg, Reuter. „ÞAÐ er ekki hægt að afsaka það á nokkum hátt, að færeysk- ir bátar stundi veiðar á alþjóð- legu hafsvæði. Þeir eiga að halda New York, Reuter. ÁSTRALSKI fjölmiðlarisinn, Rupert Murdoch, hefur selt dagblaðið The New York Post byggingaverktaka nokkrum , Peter Kalikov að nafni. Ágrein- ingur er kominn upp milli Murdochs og starfsmanna blaðsins og segir Murdoch að ekki geti orðið af sölunni ef starfsmenn failast ekki á kaup- lækkun. Murdoch og Kalikov náðu sam- komulagi á sunnudag um söluna og er kaupverðið 37 milljónir Bandaríkjadala (rúmlega 1,3 millj- arðar ísl. kr.). Samkomulagið er þó bundið því að starfsmenn fallist á verulega kauplækkun auk þess em gert er ráð fyrir að 77 manns verði sagt upp störfum. sig innan við færeysku 200 mílumar." Atli Dam lögmaður lét þessi orð falla fyrir nokkrum dögum þegar Murdoch sagði á fundi með full- trúum starfsfólks í á mánudag að ekki gæti orðið af sölunni ef starfs- menn blaðsins féllust ekki á 12 prósent lækkun launa. Hótaði hann að hætta útgáfu blaðsins eftir tæpan hálfan mánuð ef starfsmennimir gengju ekki að þessari kröfu hans. Að sögn tals- manna starfsfólks er áætlað að unnt verði að spara 24 milljónir dala (tæpar 900 milljónir ísl. kr.) á næstu þremur árum með þessum hætti. Tap The New York Poster talið nema um einni milljón Bandaríkja- dala á mánuði og krafðist kaup- andinn þess að gerðar yrðu breyt- ingar á rekstri blaðsins. skipstjórinn á danska varðskipinu Vædderen hafði skipað nokkrum færeyskum laxveiðibátum að halda til hafnar en þeir höfðu verið staðn: ir að veiðum utan 200 mílnanna. I alþjóðlegum samningum, sem Fær- eyingar eru aðilar að, er skýrt tek- ið fram, að aðeins megi stunda lax- veiðar innan lögsögu viðkomandi ríkis. Vædderen kom að tíu skipum utan lögsögunnar en skipaði fimm að sigla til lands. Áhafnimar á hin- um bátunum ákváðu þá að sýna félögum sínum samstöðu og komu þeir allir til hafnar á miðvikudags- kvöld í síðustu viku. Daginn eftir var réttað í máli þeirra og á föstu- dag var dómurinn kveðinn upp. Vom skipstjóramir dæmdir í 50.000 dkr. sekt hver, nærri 290 þús. ísl. kr., auk þess sem afli og veiðarfæri vom gerð upptæk. Afla- verðmætið var frá 110.000 ísl. kr. upp í rúmar 400.000 en veiðarfæri hvers skips em metin á 54.000 ísl. kr. Skipstjóramir áfrýjuðu sektar- greiðslunni til landsréttarins. Skipstjórar færeysku laxveiði- bátanna héldu því fram, að danskir bátar hefðu einnig verið á miðunum og kváðu það undarlegt, að þeim skyldi ekki vera skipað til hafnar. Vegna þessa leituðu skipverjar á Vædderen betur á miðunum en fundu engin önnur skip. TÍU manns létust í átökum and- stæðra fylkinga svertingja i Na- tal-héraði í Suður-Afríku um helgina. Meðal þeirra sem létust voru tvær konur sem skornar voru á háls þegar ráðist var inn í kofa þeirra. Á þessu ári hafa 130 manns lát- ist í átökum sameinuðu lýðræðis- fylkingarinnar, UDF, og Inkatha- hreyfingarinnar, sem beijast gegn aðskilnaðarstefnu suður-afrísku stjómarinnar. Átökin hafa aðallega átt sér stað í Pietermaritzburg- héraði, þar sem UDF og Inkatha- hreyfingin hafa barist um völdin. Bretland: Gaddafi greiddi trotskí- Bandaríkin: Murdoch selur New York Post Kaupin bundin skilyrðum Ekkja Francos látin CARMEN Polo de Franco, ekkja Francos, fyrrum einræðisherra Spánar, lést á laugardag, 87 ára að aldri. Minningarathöfn var haldin í iítilli kappellu i þorpinu E1 Pardo, skammt frá Madrid, og hægrisinnaðir öfgamenn heilsuðu Juan Carlos konungi og Sofiu drottningu með fasistakveðju þegar þau gengu inn í kapell- una til að votta hinni látnu virðingu sína. istum hálfa milljónpimda St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins. Gaddafi, leiðtogi Líbýu, greiddi trotskiistaflokknum Workers Revolutionary Party um hálfa milljón sterlingspunda fyrir njósnir um gyðinga í Brétlandi, að sögn The Sunday Times síðastliðinn sunnudag. Blaðið segist hafa undir höndum skjöl úr fómm flokksins, sem sýni, að á ámnum 1976-84 hafi Líbýa greitt þessum flokki trotskíista ríflega 542.000 sterlingspund (um 35 millj. ísl. kr.) og fengið í staðinn skýrslur um hagi og háttu ýmissa gyðinga í Bretlandi. Þessir gyðingar áttu að vera tengdir síonistum. Meðal þeirra, sem njósnað var um, vom þingmennimir Leon Brittan, fyrmrn viðskiptamálaráðherra, sir Keit Joseph, fyrmm menntamála- ráðherra, og Young lávarður, sem nú er viðskiptaráðherra. Féð notaði flokkurinn til að reka dagblað, Newsline, setja á fót æskulýðsmið- stöðvar til að þjálfa unglinga og til kaupa á tækjum til að nota í „yfír- vofandi byltingu". Þekktustu félag- ar flokksins em Vanessa Redgrave leikkona og bróðir hennar, Corin Redgrave, en hann gerði samning- inn upphaflega við Líbýu í apríl- mánuði 1976. Flokkurinn hefur aldrei verið fjölmennur, taldi um 1200 manns, þegar flest var. Blað- ið seldist aldrei i meira en í nokkr- um þúsundum eintaka. Árið 1985 klofnaði flokkurinn, þegar Jerry Healy, einn helsti áhrifamaður hans, varð uppvís að því að hafa beitt 26 konur í flokkn- um flokksaga til að fá þær til að sænga með sér. Healy var rekinn og tók með sér harðan kjama flokksmanna, þeirra á meðal Redgrave-systkinin. Einn fyrmm félagt í flokknum segir, að þetta hafí ekki verið njósn- ir nema að nafninu til. Starfsmenn flokksins hafí safnað upplýsingum úr árbók gyðinga og fréttablaði þeirra, lagað þær til og sent Líbýu- mönnum. Leiðtogar gyðinga hafa tekið þessum fréttum illa og óttast, að aðrir öfgahópar séu á mála hjá Líbýumönnum og frammámenn gyðinga séu á dauðalista þeirra. M. Latham, þingmaður Ihalds- fiokksins og formaður bresk-ísra- Segja má, að grænlenska al- þýðusambandið sé í rúst. Berjast tvær fylkingar um völdin og hvor um sig telur sig réttkjöma til for- ystu. Auk þess hefur aðalskrifstof- unum í Nuuk verið lokað til að spara peninga. í tvö ár hafa full- trúar á alþýðusambandsþingi ekki fengið að sjá neina reikninga yfir reksturinn og fundartíminn hefur að mestu farið í gagnkvæmar ásakanir og bræðravíg. Ein af ástæðunum fyrir gjald- þroti alþýðusamtakanna er, að þau hafa lagt út í húsbyggingu í mörg- um bæjum. I þessum húsum átti vera afgreiðsla fyrir atvinnuleysis- sjóðina, sem landsþingið hafði samþykkt og SIK átti að annast, en nú hefur því fyrirkomulagi ver- elskrar þingmannanefndar, sagði, að vitneskja um slíka lista mundi auka ótta gyðinga. Hann sagði það skammarlegt, að bresk samtök hefðu tekið við fé frá manni eins og Gaddafí. Tengslin við trotskíistana virðast hafa rofnað, þegar Líbýumönnum var vísað frá Bretlandi, eftir að Yvonne Fletcher lögreglumaður var skotin utan við sendiráð Líbýu af starfsmanni sendiráðsins. ið breytt. SIK stendur hins vegar uppi með húsin og það er ekki síst þess vegna, sem landsstjórnin ákvað að bæta því skaðann með einni milljón dkr. Um næstu helgi verður haldin í Nuuk ráðstefna þar sem aðalvið- fangsefnið verður hvernig unnt er að ná betri tökum á stjóm græn- lenskra efnahagsmála. Lands- stjómin hefur við hlið sér ráðgjafa frá OECD, Efnahags- og fram- farastofnun Evrópu, og auk þess hefur hún nú fengið veruleg lán hjá dönskum lánastofnunum. Það hefur því verið komist hjá greiðslu- þroti en afborganir og vextir af lánunum munu verða landssjóði þung í skauti á næstu ámm. Grænlenska alþýðu- sambandið gjaldþrota Nuuk. Frá NJ. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. Landsstjórnin hefur ákveðið að styrkja SIK, grænlenska al- þýðusambandið, með einni milljón danskra króna, um 5,75 millj. ísl. kr., þrátt fyrir þá erfiðleika, sem hún hefur sjálf við að stríða í efnahagsmálunum. Þar að auki ætlar hún að ábyrgjast fyrir það lán upp á tvær milljónir dkr. eða 11,5 millj ísl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.