Morgunblaðið - 30.03.1988, Blaðsíða 17
8861 SÍLAM .08 HUOAQUHIVQIM (GIQAUH14U0ÍI0M _____61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988 17
Steingrímur fer með sví-
virðileg ósannindi um af-
stöðu ungs sjálfstæðisfólks
Yfirlýsing frá
Arna Sigfússyni
formanni SUS
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Arna
Sigfússyni formanni Sambands
ungra sjálfstæðismanna.
Steingrímur Hermannsson ut-
anríkisráðherra mætti á Stöð 2 sl.
mánudagskvöld til þess að ræða um
hugmyndir sínar um viðræður við
PLO.
Þar var hann meðal annars
spurður um álit á afstöðu ungra
sjálfstæðismanna til viðræðna hans
við PLO. Steingrímur sagði orðrétt:
— Eg satt að segja get ekki
tekið þær alvarlega. Mér þótti
sorglegt að heyra að þeir virðast
styðja að einhverju leyti hroða-
verk ísraelsmanna og ég trúði
því nú varla þegar ég heyrði það
sömuleiðis um kynþáttaiaðskiln-
aðarstefnu Suður-Afríku. En ég
trúi því ekki að þeir mæli fyrir
munn, hvað á að segja, alvöru
sjálf stæðismanna. “
Ég vil minna á að hér talar ut-
anríkisráðherra íslensku þjóðarinn-
ar svo svívirðiléga um stærstu
stjómmálahreyfingu ungs fólks á
Islandi. Ummæli hans eru að sjálf-
sögðu rakin ósannindi. Ungt sjálf-
stæðisfólk hefur jafnan lagt ríka
áherslu á að fordæma mannrétt-
indabrot hvar sem þau birtast og á
nýafstöðnu þingi okkar var sam-
þykkt ályktun um mannréttindamál
þar sem segir m.a. „Ungt sjálf-
stæðisfólk fordæmir mannrétt-
indabrot hvar sem er í heiminum.
Mannréttindabrot og ofríki
stjórnvalda gegn þegnum sínum
ber hvarvetna að fordæma".
Að hætti Steingríms skiptir ekki
máli hvort hann hefur sjálfur heyrt
eða lesið ályktun þá sem hann vísar
í um afstöðu okkar til PLO, en
hann sér engu að síður ástæðu til
þess að gera ungu sjálfstæðisfólki
upp svívirðilegar skoðanir um
stuðning við mannréttindabrot.
Ungt sjálfstæðisfólk harmar og
fordæmir að sjálfsögðu þau óhæfu-
verk sem eiga sér stað í ísrael, líkt
og ísraelsstjóm hefur sjálf gert um
leið og hún hefur ítrekað að hér
er um að ræða framferði einstakl-
inga innan ísraelshers sem hafa
brotið gegn yfírlýstri stefnu ísraels-
þjóðarinnar.
Steingrímur Hermannsson er að
verða frægur um allan hinn vest-
ræna heim fyrir óábyrgar yfirlýs-
ingar sínar. Háttur hans er sá að
vera stóryrður í upphafi en eyða
síðan tíma sínum vikurnar á eftir
við að draga í land. Þannig stendur
sjaldnast steinn jrfír steini í mál-
flutningi hans og nú þegar svo er
komið hjá honum enn einu sinni
beitir hann þeim hryggilegu að-
ferðum að skrökva skoðunum upp
á andstæðinga sína. I raun skiptir
minna máli hvort hann skrökvar á
okkur ungt sjálfstæðisfólk eða ekki
til þess að vetja og upphefja sjálfan
sig, en alvarlegra er að með yfirlýs-
ingum sínum kann hann að vera
að skaða hagsmuni okkar á al-
þjóðavettvangi. .
Hér fer á eftir ályktun ungs sjálf-
stæðisfólks eins ög hún var endan-
lega samþykkt á aukaþingi okkar
í Vestmannaeyjum, 25. og 26. mars
sl. er tengist málefnum Steingríms
og PLO og getur þá hver og einn
um það dæmt hvað hæft er í orðum
utanríkisráðherra íslensku þjóðar-
innar um skoðanir ungs sjálfstæðis-
fólks varðandi afskipti Islendinga
af hryðjuverkahópum og mannrétt-
indabrotum fyrir botr.i Miðjarðar-
hafs og í Suður-Afríku.
Utanríkisstefna íslands
Utanríkisstefna íslands hefur
staðið á föstum grunni frá önd-
verðu. Upphaflega markaðist hún
af hlutleysi, en þegar útþenslu-
stefna Sovétríkjanna ógnaði hinum
fijálsa heimi skipaði þjóðin sér á
bekk með lýðræðisríkjum heims.
Vera íslands í Atlantshafsbanda-
laginu, auk samstarfs okkar með
norrænum þjóðum og þátttöku okk-
ar í Sameinuðu þjóðunum, eru enn
sem áður hornsteinar íslenskrar
utanríkisstefnu. Að þessu leyti hef-
ur ekkert breyst, eins og formaður
Sjálfstæðisflokksins og forsætis-
ráðherra Þorsteinn Pálsson, hefur
reyndar séð ástæðu til þess að
árétta. Því fagnar ungt sjálfstæðis-
fólk.
Á hinn bóginn hefur utanríkis-
ráðherra kynnt ýmsar áherslubreyt-
ingar, sem Samband ungra sjálf-
stæðismanna telur varhugaverðar.
Utanríkisráðherra hefur verið
mjög harðorður í garð ísraelsríkis
að undanförnu og tilkynnt að hann
kunni að hafa forgöngu um for-
dæmingu þess á vettvangi norr-
ænna þjóða. Er ekki annað að skilja
en þama tali ráðherra fyrir hönd
allrar ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir
að ungt sjálfstæðisfólk geti vissu-
lega tekið undir hluta gagnrýni
þessarar, þá sem snýr að framferði
hópa ísraelskra hermanna, lýsir það
furðu sinni á því að ráðherra taki
ísraelsþjóðina til bæna öðrum frem-
ur og harmar þessa ákvörðun ríkis-
stjómarinnar, sem ekki hefur farið
hátt. Telur ungt sjálfstæðisfólk að
ekki sé síður ástæða til að gagn-
rýna stjómarfar, hernað og svívirði-
leg mannréttindabrot í ríkjum á
borð við Eþíópíu, Zimbabwe, Kúbu
og Víetnam. Þá telur SUS þessi
hörðu viðbrögð ekki síst undarleg
þegar litið er til fyrri samskipta
ríkjanna, en íslendingar viður-
kenndu Israelsríki fyrstir allra þjóða
á alþjóðavettvangi.
Að undanförnu hefur utanríkis-
ráðherra beitt sér fyrir aðgerðum,
Dómsmálaráðherra hefur
skipað Bjarka Elíasson, yfirlög-
regluþjón í Reykjavík, til þess
að vera skólastjóra við Lögreglu-
skóla rikisins og tekur skipunin
gildi frá 1. júní nk.
Frá því að Lögregluskóli ríkisins
var settur á fót árið 1965 hefur
lögreglustjórinn í Reykjavík jafn-
framt veitt lögregluskólanum for-
ystu og verið skólastjóri hans.
Umfang skólastarfsins hefur farið
vaxandi undanfarin ár og því orðið
fyllilega tímabært að skólastjóra-
starfið yrði gert að sjálfstæðu og
Arni Sigfússon
sem beinast eiga gegn Suður-
Afríkustjóm og kynþáttaaðskilnað-
arstefnu hennar. Ungt sjálfstæðis-
fólk fordæmir harðlega stjómar-
hætti og mannréttindabrot í Suð-
ur-Afríku og „heimalöndum“ svo-
nefndu, en telur aðgerðir ráðherra
ekki til þess fallnar að breyta
ástandinu þar til batnaðar. Kynlegt
þótti bréf utanríkisráðherra til
íslenskrar ferðaskrifstofu, þar sem
hann fór þess á leit að hætt yrði
við hópferð til Suður-Afríku. Varar
ungt sjálfstæðisfólk eindregið við
því að í starfi utanríkisráðherra
felist að leggja siðferðilegt mat á
ferðlög einstaklinga. Hyggist ut-
anríkisráðherra grípa til ráðstafana
fullu starfi.
Á síðari hluta þessa árs og á
næsta ári er skólastjóranum ætlað
að kynna sér tilhögun skólastarfs
á Norðurlöndum og víðar og vinna
síðan að því að skipuleggja og und-
irbúa sjálfstæða skólastarfsemi frá
haustinu 1989 að telja.
Jafnframt því að skipa sérstakan
skólastjóra mun ráðuneytið beita
sér fyrir frekari eflingu skólans,
t.a.m. auknu húsnæði og föstum
kennumm, en síðastliðinn vetur var
gengið frá fastráðningu þjálfara og
tryggð íþrótta- og æfíngaaðstaða
Lögregluskóli ríkisins:
Bjarki Elíasson
skipaður skólastjóri
sem þessara gegn einstökum ríkjum
þarf að láta eitt yfír alla ganga,
eigi þær ekki að missa marks.
Hyggist hann stöðva viðskipti við
eitt ríki sem fremur mannréttinda-
brot, þarf jafnframt að banna við-
skipti við 108 ríki önnur, sem ekki
geta talist hafa hreinan skjöld í
mannréttindamálum.
Ungt sjálfstæðisfólk lýsir furðu
sinni á uppátæki utanríkisráðherra
íslands í Svíþjóð á dögunum. Við-
ræður ráðherrans við fulltrúa PLO
án þess að ráðafæra sig við ríkis-
stjóm Islands og án hennar vitund-
ar lýsa best utanríkismálasérvisku
ráðherrans og lítilsvirðingu hans á
stjómarsamstarfinu. Það er ljóst
að með framgöngu sinni í Svíþjóð
hefur ráðherrann farið langt út fyr-
ir samþykktir ríkisstjórnarinnar.
Það er auk þess vafasamt fyrir Is-
land að blanda sér í jafn viðkvæm
deilumál og málefni Palestínuaraba
er.
Utanríkisþjónusta íslands býður
gnótt verkefna sem meðal annars
em tilkomin vegna breytts skipu-
lags á utanríkisviðskiptum þjóðar-
innar.
Ennfremur bendir ungt sjálf-
stæðisfólk á hversu alvarlegt það
er fyrir utanríkisstefnu ísiands er
utanríkisráðherra kynnir sjálfan sig
á alþjóðavettvangi sem mann sem
ekki er samkvæmur sjálfum sér,
eins og reyndin hefur orðið í þessu
máli og því til stuðnings bendir
ungt sjálfstæðisfólk á þá staðreynd
að aðilum er tóku þátt í viðræðunum
ber ekki saman við ráðherrann um
niðurstöður þess fundar er hann
átti með fulltrúa PLO.
Bjarki Elíasson
til margra ára. Þá verður endur-
menntun lögreglumanna efld frá
því sem verið hefur.
(Fréttatilkynning)
rúma allt að 6 manns.
Verð frá
á farþega
böm).
AttAWIIK