Morgunblaðið - 30.03.1988, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 30.03.1988, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988 45 TIL UMHUGSUNAR eftirÁstríði Karlsdóttur I dag, 30. mars, ei-u liðin 39 ár síðan samþykkt var á alþingi inn- ganga Islands í hernaðarbandalagið NATO. Þótti þá mörgum sem vegið væri aftan að landsmönnum, því þjóðin var aldrei spurð. Ekki ætla ég að tíunda þessa ljótu sögu um landsölumenn nema lítillega, því það hafa margir gert með sinni rit- leikni bæði í ' bundnu máli og óbundnu. En ég ætla að benda á nokkur atriði svona til umhugsun- ar. Þegar sjálfstæði Islands var við- urkennt 1918, var lýst yfir ævar- andi hlutleysi landsins auk þess vopnlaus þjóð. En það hefur margt farið í annan veg. Margir stjórn- málamenn hafa lýst yfir að aldrei skuli erlendur her vera hér á frið- artímum en orðið friðartímar hafa vafist fyrir þeim mörgum eftir geð- þótta hvers og eins. í síðari heimsstytjöldinni her- námu Bretar landið en 1941 tóku bandarískar hersveitir við og sitja hér enn. Þegar reiknað var með að herinn hyrfi héðan í styrjaldarlok höfðu þeir það ekki í huga og árið 1945 fóru Bandaríkjamenn fram á herstöð til 99 ára. Á þeim tíma þótti ekki pólitískur möguleiki á því að Islendingar léðu máls á því og var þessum tillögum hafnað að sinni. Keflavíkursamningurinn var gerður 1946 og Bandaríkjaher fékk þá takmarkaða aðstöðu á Keflavík- urflugvelli. Eitthvað af þeirra her fór í bili en hinn hlutinn skipti um föt og látið var heita svo að flugfé- „Ekki vantar heldur að fégráðugir Islendingar hafa notfært sér skjót- fenginn gróða á her- bröltinu, og hermangs- gróða hefur verið dælt inn í Iandið.“ lagið ótengt hemum ræki flugvöll- inn. Þetta var þó eftir á að hyggja augljóslega bráðabirgðaráðstöfun af hálfu Ameríkana og senniiega þeirra íslenskra stjómmálamanna sem með þeim störfuðu á bak við tjöldin. I stað þess að fá umsvifa- laust opinber yfirráð yfir íslensku landi til hemaðarumsvifa gerðu Bandaríkjamenn augljóslega áætl- un með nokkmm hægvirkari að- ferðum. Þegar tekist hafði að magna hysteríu kaldastríðsins sem vesturveldin stóðu einkum fyrir þótti sumum pólitíkusum orðið óhætt 1949 að láta til skarar skríða. Eftir nokkrar utanstefnur og leyni- makk í Pentagon sáu þessir íslensku ólánsmenn til þess að íslandi var troðið inn í NATO 30. mars 1949. Þessar örlagaríku ráðstafanir vom gerðar að þjóðinni forspurðri og vöktu geysileg andmæli. Til þess að fá þessu framgengt í eigin röðum þurftu þessir forkólfar þó samþykki og lýsa því yfir að enginn her yrði hér á friðartímum, og 1951 birtist hér bandarískur her fyrirvaralaust og án ófriðartilefnis og hefur setið hér síðan í skjóli hagsmunatengsla hans við íslenska aðila sem að her- inn hefur unnið leynt og ljóst að því að efla. Ekki vantar heldur að fégráðugir Islendingar hafa notfært sér skjótfenginn gróða á herbrölt- inu, og hermangsgróða hefur verið dælt inn í landið. Hvert hemaðarmannvirkið á fæt- ur öðm hefur verið reist og eða áform um að reisa og endurnýja. Ætla ég að nefna örfáar fram- kvæmdir sem nú em í fullum gangi: Uppbygging stjómstöðvar, radar- stöðvar í hvem landsfjórðung, Helguvíkurframkvæmdir, íbúða- húsabyggingar og síðast en ekki síst ísland er orðið aðili að kjarn- orkuáætlunamefnd NATO, fleira mætti telja upp. Öllum lesandi mönnum ætti að vera ljóst að hætta sem stafar af hverskyns hermangi og sjá að eina raunsæja vömin.er hlutleysi og að ísland standi utan við allt hemaðar- brölt því við viljum líka geta kallað okkur sjálfstæða þjóð. Markmiðið er að losna við erlendan her úr landinu sem er á allan hátt hættu- legri þjóðinni en nokkuð annað. Markmiðið er einnig að losna úr kverkataki hemaðarbandalagsins NATO. Í tilefni af þessu halda her- stöðvaandstæðingar 30. mars bar- áttusamkomu á Hótel Borg í kvöld og er fólk eindregið hvatt til að mæta þar til þess að sýna þar vilja sinn og samstöðu. Kjörorðið er her- laust og hlutlaust ísland, ísland úr NATO herinn burt. Höfundur er týúkrunarfræðingur og húsmóðir. Waldorfsalat er víða orðinn ómiss- andi hluti af hátíðamatnum, enda bragðast það einstaklega vel með fugla-, nauta- og svínakjöti, fyrir utan hreindýrakjötið. Við mœlum með þessari uþþskrift úr tilraunaeldhúsinu okkar: Waldorfsalat. 2 dósir sýrður rjómi — '/4 tsk salt — 70 g sellerí — 300 g grœn vínber — 2 grœn eþli — 50 g valhnetukjamar. Bragðbœtið sýrða rjómann með saltinu. Skerið selleríið í litlarþunnar rcemur, helmingið vínberin og fjar- lœgið steinana, skerið eþlin í litla teninga og saxið valhnetukjamana. Blandið þessu saman við sýrða rjómann í þeirri röð sem það er talið upp. Fyrir utan bragðið hefur sýrði rjóminn þann kost að í hverri matskeið eru aðeins 28 hitaeiningar! Lítið atvinnuleyndarmál í lokin. Setjið sýrðan rjóma í súpuna (ekki í tcerar súpur) og sósuna, rétt áður en þið berið þœr á borð. Það er málið. Gleðilega hátíð. Gleðjið með blómum um páskana. OPIÐ ALLA DAGA TIL 21. VIÐ MIKLATORG SÍMI22822 í BREIÐHOLTI SÍMI 76225
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.