Morgunblaðið - 30.03.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.03.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1988 Valur Arnþórsson, stjórnar- formaður Sambandsins: Ekki SÍS að fjalla um brottvikninguna STJÓRN Sambandsins fjallaði á fundi sinum í gær meðal annars um uppsögn Eysteins Helgason- ar og Geirs Magnússonar, for- stjóra og aðstoðarforstjóra Ice- land Seafood. Valur Arnþórsson telur það ekki i verkahring stjórnar Sambandsins að fjalla um það mál, en stjórnin var þó sammála um að hraða bæri samningum við þá um starfs- lokalaun. Hann sagði uppsögn þeirra vera á ábyrgð stjórnar lceland Seafood og uppsögnin yrði ekki dregin til baka. Inn á fundinn barst bréf frá Eysteini Helgasyni, fyrrum for- stjóra Iceland Seafood, varðandi uppsögn hans úr starfi án fyrir- vara. Vegna þess samþykkti stjómin eftirfarandi: „í tilefni af bréfí Eysteins Helgasonar, fyrrver- andi forstjóra Iceland Seafood Corporation, dagsettu 27.3. 1988, ályktar stjóm Sambands íslenzkra samvinnufélaga fyrir sitt leyti, að hið fyrsta verði lokið samningum við hann og aðstoðarforstjóra fyrir- tækisins um starfslokalaun þeirra." Valur Amþórsson sagði, að það væri ekki í verkahring stjórnar Sambandsins að fyalla um mál Eysteins. Honum og Geir hefði verið vísað úr starfí og því yrði ekki breytt. Aðspurður hvort við- hlítandi skýring á brottvísun þeirra hefði fengizt, sagði Valur: „Guðjón B. Ólafsson hefur starfað lengi fyrir samvinnuhreyfinguna og hef- ur gert það af miklum dugnaði og skilað miklum árangri. Eysteinn Helgason hefur unnið býsna lengi fyrir samvinnuhreyfínguna og tók meðal annars við Samvinnuferðum í heldur slæmu rekstrarástandi og skilaði þeim mjög vel af sér. Hann hefur starfað með ágætum árangri fyrir hreyfínguna. Eg sagði það í samtali við sjónvarpsstöð, það lítið ég vildi segja um þessi mál á þeim tíma, að ég liti svo á, að því miður hefði gerzt þama eins og oft vildi verða, að tveir góðir menn deildu. Það getur verið út af fyrir sig næg ástæða fyrir því að menn geta ekki verið lengur saman í störfum ef þeim semur ekki. Meirihluti stjómar Iceland Seafood mat það svo að lokum að það væri óhjá- kvæmilegt að segja þeim upp störf- um, Eysteini og Geir. Guðjón hefur tilgreint opinberlega nokkrar ástæður fyrir því, að hann taldi nauðsyn bera til að skipta um for- ystu í fyrirtækinu, en stjóm Sam- bandsins hefur ekkert kafað í það mál og leggur ekki dóm á það út af fyrir sig. Það er meirihluti stjómar Iceland Seafood, sem tek- ur þessa ákvörðun og ber ábyrgð á henni.“ FORMAÐUR og varaformaður Kennarasambands Islands munu ganga á fund fjármálaráðherra f dag og eftir þann fund ætlar KÍ að meta stöðuna f samningavið- ræðunum við rfkið. Samninga- nefndir þessara aðila funduðu f gær og var þar skoðaður ákveðinn umræðugrundvöllur sem ríkið hefur lagt fram. Svanhildur Kaaber formaður KÍ sagði við Morgunblaðið í gær að rúmar 3 vikur væru síðan beðið var um viðtal hjá fjármálaráðherra en svar hefði fyrst komið í gærmorgun. Svanhildur sagði að staðan yrði met- in eftir fundinn með fjármálaráð- herra og samninganefnd ríkisins til- kynnt um niðurstöðuna á fundi í dag. Málflutningur hefst í dag fyrir félagsdómi í staðfestingarmáli KÍ um lögmæti verkfallsboðunar sambands- ins en málið var þingfest í gær. Kennarasambandið heldur því fram að kosið hafi verið um verkfalls- boðun, samkvæmt lögum um um kjarasamninga opinberra starfs- manna, og sagðist Svanhildur Kaa- ber vilja ítreka að stjóm KÍ væri þess fullviss að fyllilega löglega hefði verið staðið að málinu og væri því kappsmál að þetta gengi sem fyrst fyrir sig. Indriði H. Þorláksson formaður samninganefndar ríkisins segir lögin kveða mjög skýrt á um það að það sé verkfallsboðun, en ekki heimild til verkfallsboðunar, sem lögð er undir atkvæðagreiðslu, en samninga- nefndin lítur svo á að atkvæða- greiðslan hafi verið um verkfalls- heimild. Indriði sagði að meginkeppikeflið væri í sjálfy sér ekki að fyrirhugað verkfall KÍ nái ekki fram að ganga, heldur að fá skýrt fram það grund- vallaratriði í lögunum að ekki væri hægt að framselja heimild til verk- fallsboðunar. Og ef það yrði niður- staða dómsins, að atkvæðagreiðslan hefði í reynd verið um verkfalls- boðun, þá væri það viðunandi niður- staða. Morgunblaðið/Ami Sæberg Stjórn Sambandsins og Guðjón B. Ólafsson forstjóri við upphaf stjórnarfundarins í gærmorgun. Stjórn Sambands íslenzkra samvinnufélaga: Agreiningurinn um laun Guðjóns að fullu skýrður Laun hans og launahlunnindi um 90 milljónir á 6 árum Forustumenn KÍ hitta fjármálaráðherra í dag STJÓRN Sambandsins lýsti því yfir í ályktun á fundi sínum í gær, að hún teldi að ágreiningur í launa- og kjaramálum Guðjóns B. Ólafssonar, fyrrverandi for- stjóra Iceland Seafood og núver- andi forstjóra Sambandsins, hefði verið að fullu skýrður. Stjórnin fagnar samstöðu um lausn málsins innan stjórnar Iceland Seafood og lýsir yfir trausti sínu á stjórnend- um Samvinnuhreyfingarinnar. Á síðustu 6 árum Guðjóns B. Ólafs- sonar hjá Iceland Seafood námu laun hans og launahlunnindi 2,3 milþ'ónum dala um 90 milljónum króna. Auk þess greiddi fyrirtæk- ið um 8 milljónir króna inn á llfeyrisreikning Guðjóns allan þann tíma, sem hann vann hjá fyrirtækinu. Stjóm Sambandsins hlýddi í upp- hafi fundar síns á skýrslur Geirs Geirssonar, endurskoðanda Sam- bandsins, og Sigurðar Markússonar, framkvæmdastjóra Sjávarafurða- deildar, um ágreining þann, sem ver- ið hefur í stjóm Iceland Seafood Corporation um laun Guðjóns B. Ól- afssonar. Guðjón var viðstaddur skýrsluflutninginn, en er stjómin hóf umljöllun um málið vék hann af fundi. Að tilefni þessa hefur stjómin sent eftirfarandi ályktun frá sér: „Stjómin harmar mjög þann ágrein- ing sem verið hefur í Iceland Seafood Corp. og fagnar því að full samstaða náðist í stjóm fyrirtækisins á fundi hennar þann 23.3. 1988 um lausn þessa ágreinings. í því sambandi er lögð áherzla á, að stjóm Iceland Seafood Corp. hefur fulla ábyrgð og vald í málinu sem í hvetju öðru mál- efni fyrirtækisins, enda rétt kjörin stjóm í sjálfstæðu fyrirtæki skráðu í Bandaríkjunum. Stjóm Sambands- ins telur að ágreiningur í launa- og Iq'aramálum fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins hafi að fullu verið skýrður. Stjómin leggur áherzlu á fulla samstöðu um úrlausn á viðfangsefn- um Sambandsins og samvinnuhreyf- ingarinnar, en framundan bíða mörg erfið verkefni vegna óhagstæðra ytri skilyrða í rekstri atvinnufyrirtækja. Treystir stjómin forstjóra og fram- kvæmdastjóm sambandsins, svo og öðrum stjómendum hreyfingarinnar, til þess að hafa öfluga forustu um úrlausn þeirra verkefna." Ályktun þessi var samþykkt samhljóða. Valur Amþórsson, formaður stjómar Sambandsins, kynnti þessi mál á blaðamannafundi í gær. Hann sagðist ekki telja nauðsynlegt að leggja opinberlega fram skýrslur þær, sem gerðar hefðu verið vegna ágreiningsins um laun Guðjóns. Ekki hefði verið um flárdrátt eða neitt þvílíkt að ræða, heldur aðeins ágrein- ing um útreikning á launahlunnind- um. Á síðustu 6 árum sínum hjá fyrirtækinu hefðu laun Guðjóns að meðtöldum launahlunnindum verið 2,3 milljónir dala, nálægt 90 milljón- um króna. Ágreiningurinn hafi verið um 500.000 til 600.000 dala greiðsl- ur, 20 til 24 milljónir króna, í launa- hlunnindi á þessum tíma. Að auki hefði fyrirtækið lagt um 200.000 dali, um 8 milljónir króna, inn á lífeyrisreikning Guðjóns frá upphafí starfa hans þar. Valur kvaðst ekki vilja leggja mat á það hve skaðleg launadeilan hefði verið fyrir ímynd Sambandsins, en hún hefði ekki ver- ið heppileg. Greinilegt væri að heppi- legast hefði verið að gera ítarlegan skriflegan launasamning við Guðjón til að fyrirbyggja mögulegan ágrein- ing um túlkun. Suðurland: Danir gera kvikmynd um leiðtogafund í Höfða f slenskir leikarar hugsanlega í mörgum hlutverkanna DANSKI kvikmyndaleikstjór- inn Saren Kragh-Jacobsen hef- ur fengið styrk frá Dönsku kvikmyndastofnuninni til 10 daga handritsvinnu á íslandi vegna kvikmyndarinnar „Hús- vörðurinn og heimsástandið“. Hún á að fjalla um húsvörð Höfða við vinnu í kjallara húss- ins þegar leiðtogar Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna hitt- ast á hæðinni fyrir ofan hann. Utanhússatriði kvikmyndarinn- ar verða tekin upp hérlendis og er áætlað að um mánuð taki að kvikmynda þau. Innanhúss- atriðin verða hins vegar kvik- mynduð í Danmörku. Soren Kragh-Jacobsen hefur m.a. gert kvikmyndimar „Viltu sjá sæta naflann minn?“, „Gúmmí-Tarsan“ og „Skugginn af Emmu“. Hann sagðist vonast til að íslenskir leikarar yrðu í mörgum hlutverkanna i „Hús- vörðurinn og heimsástandið". Einnig væri möguleiki á tækni- samvinnu íslenskra og danskra kvikmyndagerðarmanna við upp- tökur kvikmyndarinnar hérlendis. Ef allt gengi að óskum myndu Danska kvikmyndastofnunin og Metronome framleiða kvikmynd- ina en Metronome hefði fj'ármagn- að fjórar af kvikmyndum hans. Saren Kragh-Jacobsen sagðist hafa fengið hugmyndina að þema kvikmyndarinnar þegar leiðtogar stórveldanna hittust í Reykjavík haustið 1986. í kvikmyndinni heyrði húsvörður Höfða allt sem á milli leiðtoganna færi í gegnum pípulagnir hússins. Húsvörðurinn ætti hins vegar erfitt með að skilja samtalið vegna vankunn- áttu í ensku. Þegar húsvörðurinn næði loks inntaki samtalsins kæmist hann að þeirri niðurstöðu að leiðtogamir treystu ekki hvor öðrum og ættu því við sama vandamál að stríða og hann og eiginkona hans. Sairniingamir samþykktir Selfoasi. FIMM verkalýðsfélög á Suður- landi samþykktu nýgerða kjara- samninga á fundum í gærkvöldi. Eitt félag, Bjarmi á Stokkseyri, heldur fund um samningana á annan í páskum. Hjá verkalýðsfélaginu Þór á Sel- fossi voru 22 meðmæltir samningn- um, 12 á móti og 4 seðlar auðir. Hjá Boðanum í Þorlákshöfn var 21 með, 3 á móti, 2 seðlar auðir og 1 ógildur. Á fundi Bárunnar á Eyrar- bakka sögðu 17 já, 1 nei og 1 seð- ill var auður. í Víkingi í Vík í Mýr- dal var samningurinn samþykktur með 8 samhljóða atkvæðum. Hjá Rangæingi í Rangárvallasýslu var samningurinn samþykktur með 28 atkvæðum gegn 3 og 2 seðlar voru auðir. Þar féll Iðjusamningurinn á jöfnum atkvæðum meðal þeirra sem eru í verksmiðjustörfum. Á Stokkseyri verður samningur- inn borinn upp eftir að rætt hefur verið við vinnuveitendur nánar um sératriði varðandi orlofs- og sjúkra- sjóð, unglingakaup og kaffitíma á kvöldin. Sig. Jóns. Framsókn og Fram- tíðin samþykktu SAMNINGAR vinnuveitenda og verkalýðsfélaga, sem undirritaðir voru á Akureyri, voru samþykktir í Verkakvennafélaginu Framsókn í Reykjavík með 115 atkvæðum gegn átta og i Verkakvennafélag- inu Framtíðinni i Hafnarfirði með 50 atkvæðum gegn 24. í Framsókn eru um 3.200 félags- menn, en tæplega 700 í Framtíðinni. Þá voru samningamir samþykktir á almennum félagsfundi í Verkalýðs- félaginu á Kópaskeri með 17 atkvæð- um gegn einu I gær. Önnur félög á Norðurlandi munu hins vegar flest bíða með að kjósa um samningana þar til eftir páska, en frestur til þess rennur út þann 12. apríl næstkom- andi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.