Morgunblaðið - 31.03.1988, Blaðsíða 42
P&Ö/SÍA
42 C
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988
vm
FRAMLEIBUM
STEVPU SEM
ENDIST
Við notum eingöngu valin iandefni laus við alkalívirkni.
Steypuverksmiöjan Ós hefur frá upphafi kappkostað aö framleiöa steypu sem upp-
fyllir ströngustu kröfur. Pess vegna er aðeins notaö fylliefni úr landefnum sem eru óalk-
alívirk með mikiö veörunarþol.
Öll blöndun steypunnar er tölvustýrð, svo innbyrðis hlutföll fylli- og íblöndunarefna
eru mjög nákvæm.
Til frekari tryggingar fyrir kaupandann fylgir hverjum steypufarmi tölvuútskrift sem
sýnir nákvæmlega hlutföll þeirra hráefna sem eru í steypunni og er hún jafnframt
ábyrgöarskírteini kaupandans.
• j.*.'■ ■, v --rf
IUUHHi nnna
Óháð framleiðslu- og gæðaeftirlit:
ós var fyrsta steypuverksmiöjan til aö gera samning
viö Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins um óháö
gæðaeftirlit á allri framleiöslu fyrirtækisins.
Hafðu samband við okkur. við veit-
um þér með ánægju nánari upplýsing-
ar um framleiðslu okkar.
10 ára ábyrgð á steypu.
Finnskir
græningjar
klofna
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara
Morgunblaðsins í Finnlandi.
FLOKKUR græningja í Finn-
landi klofnar formlega innan
tíðar og upp úr rústunum munu
tveir græningjaflokkar rísa.
Astæðan er ágreiningur um
stefnumál og flokksskipulag. Því
er spáð að áhrif græningja í
finnskum stjórnmálum muni
stórminnka eftir klofninginn.
Græningjar hafa deilt um það
að undanfömu hvort flokkurinn eigi
að helga sig umhverfismálum ein-
vörðungu eða hvort hann eigi einn-
ig að láta önnur þjóðfélagsmál til
sín taka.
Eero Paloheimo, einn fjögurra
þingmanna flokksins, hefur reynt
að sætta sjónarmið og koma skipu-
lagi á flokksstarfíð. Hann er
harðlínumaður og hefur honum ver-
ið núið um nasir að vilja þvinga
fólk til að taka tillit til umhverfis-
ins. Tillögur hans um skipulegt
flokksstarf hafa mætt mikilli mót-
spymu. Árangurinn er sá að Palo-
heimo fer nú fyrir öðmm klofnings-
arminum. Deila fylkingarnar nú
hart um hvor þeirra megi kalla sig
græningja.
Óslóarlögreglan:
Víðtækar
ráðstafanir
vegna páska-
innbrota
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara
Morgunbladsins.
ÓSLÓARLÖGREGLAN hefur
gert víðtækar ráðstafanir til þess
að freista þess að draga úr fjölda
þjófnaða í borginni, eftir að íbú-
arnir flykkjast upp í fjöllin um
páskahelgina.
Tíu af illræmdustu innbrotsþjóf-
um borgarinnar voru fangelsaðir
fyrir skömmu — sakaðir um marg-
vísleg afbrot. Þar að auki voru 68
afbrotamenn, sem eiga óafplánaða
dóma, færðir í fangageymslur.
Páskamir eru venjulega aðal-
vertíð innbrotsþjófa í Osló. Þá
standa þúsundir íbúða mannauðar,
á meðan eigendur þeirra veija
páskafríi sínu í fjallakofum og hót-
elum uppi f norska hálendinu. Lög-
reglumenn hafa þá farið tveir og
tveir saman í bíl um yfirgefna borg-
ina. Að þessu sinni verður aðeins
einn lögreglumaður í hveijum bíl,
svo að unnt sé að ná meiri yfirferð
en áður. Verður hver þeirra með
nafnalista, myndir og aðrar upplýs-
ingar um 64 aðila, sem lögreglan
hefur hug á að fylgjast grannt með
yfir páskahelgina — fyrir utan þá
78, sem búið er að loka inni.
Ame Huuse, yfirrnaður rann-
sóknarlögreglunnar í Ósló, vonar,
að með þessum hætti takist að
fækka páska-innbrotunum, svo að
um munar.
A