Morgunblaðið - 24.04.1988, Side 1
96 SÍÐUR B
92. tbl. 76. árg.
Forsetakosning-
ar í Frakklandi:
Mikið deilt
um Nýju-
Kaledóníu
Nevers, frá Steingrími Sigurgeirssyni
blaðamanni Morgunblaðsins.
FRAKKAR ganga að kjörborðinu
(dag til þess að velja þá tvo fram-
bjóðendur sem munu takast á í
síðari umferð forsetakosning-
anna sunnudaginn 8. mai. Það
sem sett hefur mestan svip á
umræðuna síðustu daga fyrir
kosningarnar eru morðin á fjór-
um frönskum herlögreglumönn-
um á frönsku Kyrrahafseyjunum
i Nýju Kaledóniu.
Aðskilnaðarsinnar úr röðum frum-
byggja eyjanna, kanakar, réðust á
fimmtudag inn í búðir franskra her-
lögreglumanna, myrtu þijá þeirra
og halda nú rúmlega tuttugu í
gíslingu. Einn lögreglumaður til við-
bótar lést síðar af sárum sínum.
Sósíalistar segja ríkisstjómina
bera ábyrgð á þessum atburðum, en
þeir hafa samúð með aðskilnaðar-
sinnum sem styðja framboð Fran-
cois Mitterrands Frakklandsforseta.
Einna harðorðastur hefur verið Jac-
ques Lang fyrrum menningarmála-
ráðherra sósíalista óg einn kosninga-
stjóra Mitterrands. Lang sagði að
ríkisstjómin hafi fengið það sem hún
ætti skilið.
Jacques Chirac forsætisráðherra
segir það hins vegar ekki vera tilvilj-
un að þessir atburðir gerðust svo
skömmu fyrir kosningar. Hann hélt
neyðarfund um þetta mál í ríkis-
stjóminni á föstudag og einnig átti
hann viðræður við Mitterrand.
Chirac segist ekki vilja gera þetta
að kosningamáli, en ýmsir reyna þó
að nýta sér þessa atburði sér í hag.
Fyrir utan sósíalista hefur öfgamað-
urinn Jean-Marie Le Pen gengið
hvað lengst í þá átt. Hann segir
þetta vera niðurlægingu fyrir
frönsku þjóðina.
Noregur:
Skoða betur
samhengíðí
vistkerfinu
Ósló. Frá Rune Tímberlid, fróttarítara
Morgunblaðsins.
SVO illa er komið fyrir þorsk-
stofninum í Barentshafi eftir
áratugi rányrkju, að nauðsyn-
legt er að takmarka veiðina
verulega þótt hann hafi að vísu
aðeins rétt úr kútnum.
Kom þetta fram hjá Odd Nakk-
en, forstjóra Hafrannsóknastofn-
unarinnar í Bergen, fyrir nokkrum
dögum, og einnig, að mikið skorti
á nægilega vitneskju um vistkerfí
sjávarins í Barentshafí. „í framtíð-
inni verðum við að taka meira til-
lit til samhengisins f sjónum, ekki
bara einblína á hvem fískstofn
fyrir sig,“ sagði Marius Hauge,
embættismaður í sjávarútvegs-
ráðuneytinu.
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
STAKKHOLTSGJA A ÞORSMERKURLEIÐ
Morðið á Palme:
Rannsókn-
in sögð víta-
vert klúður
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
Morgunblaðsins.
SÆNSK þingnefnd lagði í fyrra-
dag fram skýrslu um rannsókn-
ina á morðinu á Olof Palme og
er í henni farið iqjög hörðum
orðum um þá, sem henni stjórn-
uðu.
í skýrslunni er Hans Holmer,
fymim lögreglustjóri, sakaður um
að hafa klúðrað rannsókninni og
misnotað stöðu sína og um Sten
Wickbom, fyrrverandi dómsmála-
ráðherra, er sagt, að hann hafí
ekki alltaf verið með á nótunum
þegar hann var inntur eftir rann-
sókninni. Þá er ríkisstjómin sökuð
um að hafa verið með óeðlileg af-
skipti af starfí lögregiunnar og sak-
sóknara auk þess sem nauðsynleg
samskipti og Qarskipti hafí gjör-
samlega farið í vaskinn morðnóttina
28. febrúar 1986.
Núverandi dómsmálaráðherra,
Anna Greta Leijon, kveðst líta mjög
alvarlegum augum á niðurstöðu
þingnefndarinnar.
Grænland:
Mikið tap á
fiskvinnslu
Nuuk. Prá N. J. Bruun, fréttaritara Morg-
unblaðsins.
MIKIÐ tap var útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækjum grænlensku
landsstjórnarinnar á siðasta ári
eða næstum tveir milljarðar ísl.
kr.
Fyrirtæki landsstjómarinnar eru
í þremur deildum: Togaraútgerð,
fískvinnsla og útflutnings- og sölu-
fyrirtækið Royal Greenland. Á
síðasta ári var rekstrarhalli togar-
anna 17 rúmlega 850 millj. ísl. kr.
og á fískvinnslunni litlu minni. Út-
flutningsstarfsemin hefur gengið
betur og jókst salan frá árinu 1986
um 22%.
Lars Chemnitz, sem situr á
landsþinginu fyrir stjómarand-
stöðuflokkinn Atassut, sagði í við-
tali við grænlenska útvarpið, að
ástandið í grænlenskum efnahags-
málum væri svo óskaplegt, að hann
óttaðist, að landsstjómin yrði sett
beint undir stjómina í Kaupmanna-
höfn.
Tug’ir manna farast í gífur-
legri bílsprengingu í Líbanon
Beirut. Reuter.
FIMMTÍU manns létust og 75
slösuðust þegar öflug sprengja,
sem komið hafði verið fyrir i bíl,
sprakk í gær við fjölfarin gatna-
mót í borginni Tripoli i Libanon.
Segja sjónarvottar, að skelfilegt
hafi veríð um að litast eftir
sprenginguna; hrunin hús, brenn-
og dáið og deyjandi
fólk allt um kríng.
Sprengingin varð í ijölfarinni
verslunargötu og þustu sýrlenskir
hermenn, sem halda uppi eftirliti í
borginni, á vettvang og girtu hana
af og nálægt svæði. Slökkviliðs-
menn réðust strax til atlögu við
brennandi bíla og byggingar og urðu
jarðýtur að ryðja bflunum leið í
gegnum rústimar. Talið er víst, að
tala látinna og slasaðra eigi eftir
að hækka mikið.
Auðveldaði það ekki hjálparstarf-
ið, að eftir sprenginguna flykktist
fólk niður í miðbæinn enda áttu
margir vini eða ættingja, sem þang-
að höfðu farið til að versla. Er þetta
fyrsta bflsprengingin, sem verður í
Líbanon í þessum mánuði, en í
mars létust þrír og 15 slösuðust í
þess konar hryðjuverki. Ekki er vit-
að hverjir bera ábyrgð á ódæðinu í
gær.