Morgunblaðið - 24.04.1988, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1988
57
Morgunblaðið/Þorkell
Stefanía Sæmundsdóttir ásamt fleiri ungtemplurum, sem voru að leggja siðustu hönd á frágang nýja
húsnæðisins við Barónsstíg. Stefanía er lengst til vinstri, að baki henni situr Ingibergur Jóhannesson,
formaður ÍUT, þá kemur Linda Björg Þorgilsdóttir, stjórnarmaður í IUT. Lengst til hægri er unnusti
Lindu, Þór Ólafsson, varastjórnarmaður og fyrrum formaður ÍUT með dóttur þeirra, Sunnu.
Allt að vinna með bindindi
Ungtemplarafélagið Hrönn í
Reykjavík er elsta aðildarfélag
ÍUT, stofnað 8. apríl 1958. Stef-
anía Sæmundsdóttir var kjörin
formaður Hrannar í febrúar á
síðasta ári. Morgunblaðið átti
stutt spjall við hana um starf
ungtemplara í Reykjavik.
Stefanía sagði að félagar í
Hrönn störfuðu aðallega á vett-
vangi IUT og stunduðu ferðalög
og fundi með samtökunum. í fé-
laginu eru um 150 manns. Þar
af eru um 100 manns í Skíðadeild
Hrannar, sem verið hefur mjög
virk um langt árabil og hefur
meðal annars komið sér upp skíða-
skála í Skálafelli.
„Tilgangur félagsins er auðvit-
að fyrst og fremst sá að stuðla
að bindindi og að skapa félagsað-
stöðu fyrir fólk, sem vill vera í
vímulausu umhverfi,“ sagði Stef-
anía. Hún sagði að fremur fá-
mennur en samstilltur kjarni væri
burðarásinn í starfinu. „Við erum
kannski dálítið feimin og kynnum
okkur ekki mjög mikið út á við,
en þó höfum við reynt að koma
til dæmis fréttabréfi IUT í skólana
og kynna þannig starfsemi okkar.
Draumurinn er auðvitað að eiga
nóga peninga til að geta haft fólk
á launum við kynningarstarfsemi,
en það er nú ekki alveg komið
að því að hann rætist.“
Stefanía sagði að einn þáttur í
starfi Hrannar væri orðinn að
hefð, en það er að skreyta salinn
í Slysavarnarfélagshúsinu fyrir
aðfangadagskvöld, en þá getur
fólk, sem hvergi á höfði að halla,
komið og fengið jólamáltíð þar.
— En hvemig getur fólk gerst
ungtemplarar?
„Það er best að hafa samband við
skrifstofu ÍUT, sem framvegis
verður til húsa í nýja húsnæðinu
okkar við Barónsstíg," sagði Stef-
anía. Hún bætti við að til þess að
verða fullgildur meðlimur þyrfti
að sitja þijá fundi félagsins áður.
„Það er best að ná til yngri krak-
kanna, svona á aldrinum 13-15
ára, sagði Stefanía. „Fólk, sem
komið er um tvítugt, er lítið fyrir
að ganga í ungtemplarafélag."
— Hvað er unnið með bindindi?
„Það er í rauninni allt að
vinna,“ sagði Stefanía. „Það er
auðvitað heilsusamlegra að neyta
ekki vímuefna, og það gerir fólk
líka að hæfari þjóðfélagsþegnum.
Það segir sig sjálft að fólk er ekki
í neitt sérlega góðu formi útúr-
drukkið - við erum alltaf til í allt.
Þetta er líka góður félagsskapur,
fínt fólk og góður andi.“
- segir Stefanía Sæmundsdóttir, formaður ungtemplara-
félagsins Hrannar
íslenskir ungtemplarar 30 ára:
Afmælishóf og vígslu-
hátíð í nýju húsnæði
SAMTÖK íslenskra ungtemplara
(ÍUT) eru 30 ára sunnudaginn
24. apríl. í tilefni afmælisins
verður hóf fyrir félagsmenn og
velunnara samtakanna i nýju
húsnæði þeirra að Barónsstíg 20.
Jafnframt verður húsnæðið
formlega vígt.
í fréttatilkynningu frá ÍUT segir
að stofnun samtakanna megi rekja
allt aftur til áranna fyrir 1956.
Norrænir ungtemplarar sýndu þá
mikinn áhuga á að stofna samtök
ungtemplara hér á landi og höfðu
samband við Stórstúku íslands í því
skyni. 1958 var undirbúningi lokið.
Fyrsti formaður ÍUT var Árelíus
Níelsson, sem gegndi formannsem-
bættinu í átta ár.
ÍUT hyggst gera ýmislegt til
hátíðabrigða á afmælisárinu. Nú í
fyrstu viku sumars kemur út af-
mælisrit, með ágripi af 30 ára sögu
og starfí samtakanna, og um miðjan
maí gefa samtökin út tímaritið
Sumarmál, þar sem fjallað verður
um uppeldi og heilbrigði. Síðar k'
afmælisárinu verður svo efnt til
ráðstefnu og samkomuhalds í tilefni
afmælisins.
Morgunblaðið/Sveinn J. Þórðarson
Þátttakendur í sýsluskákmóti grunnskólanna á Barðaströnd.
Barðaströnd:
Sýsluskákmót gninnskólanna
Barðaströnd.
Sýsluskákmót grunnskólanna
var haldið á Barðaströnd fyrir
nokkru. Mótsstjórar voru Hall-
dór Leifsson og Torfi Steinsson
skólastjóri.
Þátttakendur voru frá Patreks-
fírði, Bíldudal, Örlygshöfn og
Barðaströnd. Sýslumeistari í eldri
flokki varð Sverrir Guðmundsson,
grunnskóla Örlygshafnar. Annar
varð Jón Páll Jakobsson, Bíldudal.
í yngri flokki varð sýslumeistari
Róbert Rúnarsson Örlygshöfn og
annar Þórólfur Sveinsson Barða-
strönd. Þessir fjórir fara svo til ísa-
fjarðar og keppa um áframhaldandi
rétt.
- SJÞ
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
húsnæði óskast
s.o.s.
Ég er 4ra ára. Ég og mamma erum heimilis-
laus og okkur vantar íbúð fyrir 1. maí.
Reglusemi og skilvísi heitið.
Upplýsingar í síma 41653, Sigurdís.
Húsnæði vantar
Okkur vantar 4ra-6 herb. íbúð, fyrir 6 manna
fjölskyldu, nú þegar eða fljótlega.
Allar nánari upplýsingar veittar hjá Eddu og
Birgi í síma 30528.
Reykjavíkursvæðið
- Gautaborg
Ung hjón sem koma heim frá námi í sumar
vantar íbúð á leigu á höfuðborgarsvæðinu.
Leiguskipti á góðri íbúð nálægt miðborg
Gautaborgar koma til greina.
Upplýsingar í síma 52991.
atvinnuhúsnæði
Bíldshöfði
Til leigu ca 85 fm og 130 fm skrifstofuhús-
næði á 2. hæð við Bíldshöfða.
Upplýsingar í síma 651039 á kvöldin.
Atvinnuhúsnæði óskast
til leigu fyrir þjónustufyrirtæki. Þarf að vera
á 1. hæð í þjónustu- eða verslunarkjarna á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Stærð ca 100 fm.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 27.
apríl merkt: „SD - 2240“.
Húsnæði óskasttil leigu
Bílaleiga óskar eftir að taka húsnæði á leigu
í Reykjavík. Stærð ca. 300-400 fm.
Upplýsingar í síma 621115.
Lyngháls
Til leigu húsnæði á tveimur hæðum 225 fm
á götuhæð og 440 fm á 2. hæð. Hentar vel
fyrir skrifstofur, veitingarekstur eða léttan
iðnað. Laust 1. maí nk.
Eftona 26933
nruumadurinn
>l«*iinli1l 20. MN (Nýi* htoimi *(A I
Atvinnuhúsnæði í Austur-
borginni 2400 fm til leigu
1. hæð: 1000 fm með stórum innkeyrsludyr-
um. Lofthæð 4,30 m.
2. hæð: 400 fm skrifstofuhúsnæði.
Kjallari 1000 fm með stórri innkeyrslu. Loft-
hæð 3,80 m.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 27.
apríl merkt: „Atvinnuhúsnæði - 4955".
Óskast í Árbæjarhverf i
ca 80 fm húsnæði undir tannlæknastofu.
Upplýsingar sendist auglýsingad. Morgun-
blaðsins merktar: „T - 935“.