Morgunblaðið - 28.05.1988, Síða 11

Morgunblaðið - 28.05.1988, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988 11 Rafmagnið er á Myndllst Bragi Ásgeirsson Það hlaut að koma að því, að tölvan yrði virkjuð til listrænna athafna hér á landi sem og í útlandinu. í Bókakaffi í Garðastræti 17 sýnir þannig Ólafur Engilberts- son nokkrar tölvugrafískar ljós- myndir. Ólafur er af nýrri kynslóð ungra og velmenntaðra mynd- listarmanna og hefur m.a. ritað fróðlegar og upplýsandi greinar í blöð, sem ég hef ánægju af að iesa. Bókakaffi þetta virðist vera tiltölulega ný stofnun í tengslum við mjög fnimlega og áhuga- verða bókabúð þar sem kennir margra grasa í bókakosti. Einnig eru þar til sölu og lestrar á kaffi- stofu norræn og ýmis önnur er- lend blöð meira að segja hið víðfræga ítalska kvöldblað „Corriere della Sera“ (hraðfréttir kvöldsins). Kaffistofan er lítil en þó mjög heimilisleg og minnir mjög á litl- ar kaffistofur á suðlægari slóð- um og ekki er amalegt að geta sest niður og lesið heimsfréttim- ar víða að, ásamt tilfallandi greinum, sem í heimspressunni birtast. Myndir Ólafs Engilbertssonar eru mjög nýstárlegar og meira að segja svo nýstárlega, að ég hefði þurft að koma oftar til að melta þær til fulls — innlit mitt var síðbúið margra hluta vegna og ég á hraðferð og slíkt var því útilokað að þessu sinni. En mér þóttu myndimar forvitnilegar og verð betur viðbúinn næst. Og eiginlega skrifar maður ekki um sýningar á kaffistofum nema þegar þeim er hleypt af stokkunum, af þannig má kom- ast að orði, en það skal viður- kennt að iðulega em þær engu síðri sýningum í virtum sýning- arsölum og vísa ég hér m.a. til sýningar Asgeirs Lárussonar á Mokka nú nýverið og kannski hangir hún enn uppi. En menn- ingarlegt framtak á kaffístofum er ákaflega þakkarvert og sjálf- sagt að lyfta sem mest undir það á einhvem hátt. Þar sem ég treysti mér ekki til fulls að ijalla um ljósmyndim- ar eftir fyrstu skoðun og sýning- unni að ljúka vil ég grípa til skilgreiningar á töivugrafískum ljósmyndum, sem er á gulum einblöðungi á staðnum. Ólafur Engilbertsson „Allar ljósmyndimar á þessari sýningu em unnar með teiknifor- ritinu Lumena frá Time Arts í Kalifomíu. Fmmmyndimar, sem em í kverinu „Áður en raf- magnið kemst á“, vom teknar inn á tölvuskjáinn með vídeó- tökuvél. Þeim var síðan breytt, unkt fyrir punkt og lit fyrir lit. þessu tilviki hafði skjárinn 640*480 punkta upplausn og 256 lita „herbergi", sem hvert um sig hafði 256 tóna. Hver og einn þessara 307.200 punkta og 65.536 litatóna gat síðan teygst i allar áttir og fyllt skjáinn. Vinnsla hverrar mjmdar tók yfir- leitt 3—8 klukkustundir. Ekki var um neinar forskissur að ræða og var reynt að láta myndimar umskapa sig sjálfar. Það má segja að þessi tækni bjóði uppá útvíkkun á súrrealískum aðferð- um eins og „átómatisma" og „collage". Hér er byggt á raun- vemleika ljósmyndarinnar og einn af óteljandi draumvemleik- um hennar leiddur fram í raf- eindabirtuna. Engin bið eftir málningar eða límþurrki — bara að setja rafmagnið á. Skyggnutökuvél er einnig tengd í tölvuna og þannig var unnt ða ná því sem næst full- komnum myndgæðum, þrátt fyr- ir að um þijá miliiliði væri að ræða; ljósmynd í tölvu, tölvu á skyggnu og skyggnu á ljós- mynd.“ Nokkuð flókið fyrir þá sem ekki em innvígðir en þó í hæsta máta áhugavert... BREYTT KÍLÓMETRAGJALD ÍSTAÐGREÐSLU FRÁ T.MAÍ1988 Frá og með i. maí 1988 breytist áður auglýst skattmat á kilómetragjaldi, sbr. auglýsingu ríkisskattstjóra nr. 3 frá 4. janúar sl. Mattil tekna á endurgjaldslausum afnotum launamanns af bifreið sem launagreiðandi hans lœtur honum í té hœkkar þannig: Fyrir fyrstu 10.000 km afnot úr 15,50 pr. km í kr. 16,55 pr. km. Fyrlrnœstu 10.000 kmafnotúr 13,90 pr. km í kr. 14,85pr.km. Yfir20.000 km afnotúr 12,25pr. km íkr. 13,10pr. km. Mat á endurgreiddum kostnaði til launamanns vegna afnota launagreiðanda af bifreið hans, sem halda má utan staðgreiðslu, hœkkar þannig: Fyrir fyrstu 10.000 km afnot úr 15,50 pr. km f kr. 16,55 pr. km. Fyrimœstu 10.000km afnotúr 13,90 pr. kmfkr. 14,85 pr. km. Yfir 20.000 km afnot úr 12,25 pr. km fkr. 13,10 pr. km. Fái launamaður greitt kflómetragjald frá opinberum aðilum vegna aksturs í þágu þeirra sem miðast við „sérstakt gjald' eða „torfœrugjald" sem Ferðakostnaðamefnd ákveður má hœkka kílómetragjaldið sem hér segir: JBI IX I UÓSRITUNARVÉLAR Fyrir 1 -10.000km akstur-sérstaktgjaldhœkkun um 2,55 kr. pr. km. torfœrugjald hœkkun um 6,90 kr. pr. km. Fyrir 10.001 -20.000kmakstur-sérstaktgjaldhœkkunum2,25kr.pr. km. torfœrugjald hækkun um 6,10 kr. pr. km. Umfram 20.000 km akstur - sérstakt gjald hœkkun um 2,00 kr. pr. km. torfœrugjald hœkkun um 5,40 kr. pr. km. Önnur atriði í áðurnefndri auglýsingu nr. 3 frá 4. janúar sl. breytast ekki. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Forkeppni Ólympíuleikanna ísland - Ítalía Laugardalsvöllursunnudaginn 29. maí. kl. 20.00. Dómari: Keith Cooper. U'nuvörður: Keith Burge og John Pearle. Forsala á Laugardalsvelli á leikdag frá kl. 11.00 Fiskbúðin Sæbjörg ísafoldarprentsmiðja „þarsem knattspyrnan átti upphafsittá íslandi. “

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.