Morgunblaðið - 28.05.1988, Síða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
Hans Jóhannsson hljóðfærasmiður
heldur hér á fiðlu, sem hann
smiðaði handa Tónlistarskólanum
i Garðabæ. Dekkið, lokið á fiðl-
unni, er smíðað úr grenibjálka,
sem Hans fann þegar hann vann
við að rífa gamla bjálka innan úr
gamla Bernhöftsbakarii i Bakara-
brekkunni. Liklega 150 ára önd-
vegisviður . . .
útliti. Það er samt hægt að smíða
breiðar og karlmannlegar fiðlur, eða
fíngerðar og kvenlegar, og útlitið
segir töluvert um hljóminn. Eg bytja
að að teikna útlínur, alla grunnfleti,
sem er mjög mikilvægt upp á hvem-
ig plötumar sveiflast. Teikna frá öli-
um köntum, þannig að hlutimir geti
unnið saman. Alveg í anda endur-
reisnartímans að hugsa mikið um
samræmi heildarinnar, þannig að
hvert smáatriði lifí ekki sjálfstæðu
lífí, heldur sem hluti af heildinni.
Heildin þá summa allra smáatrið-
anna . . .
Svo er að velja viðinn. í bakið og
hliðamar er oftast notaður hlynur.
Ég nota hlyn af Balkanskaganum,
er kominn í góð sambönd í Júgó-
slavíu, og það gildir að velja viðinn
sjálfur. Grenið í dekkið er úr sviss-
nesku Ölpunum. Það vex hátt uppi í
mögrum jarðvegi við hörð skilyrði,
vex þá hægt og beint og viðurinn
verður gallalaus. Timbrið þarf að
þoma í átta til tíu ár, áður en hægt
er að nota það i hljóðfæri. Verður
að vera orðið alveg þurrt. Spýtumar
em valdar eftir því hvemig þær em
skomar, hvemig þær hljóma og líta
út, þó mér fínnist útlitið skipta minna
máli en hljómurinn. Sumar spýtur em
fallegar, en alveg dauðar, aðrar
hljóma kannski í hálfa mínútu."
Fiðla með sætabrauðsilmi
„Ég vann einu sinn við 'að rífa
gamla bjálka innan úr Bemhöfts-
bakaríi, þar sem Lækjarbrekka er
núna. Þá rakst ég allt í einu á greni-
bjálka, þennan líka fína fíðluvið, og
fékk að hirða hann. Notaði hann svo
í fíðlu, sem ég smíðaði handa Tónlist-
arskólanum í Garðabæ. Líklega um
150 ára gamall viður. Alveg ein-
stakt, að rekast á svona við. Þama
vom margir fleiri bjálkar, sem vom
alveg ónothæfir.
Það em til þorp í Suður-Þýska-
landi, sem sérhæfa sig í að velja og
verka fíðluvið. Lakari hlutinn fer í
fíöldaframleiðslu en þann góða kaup-
um við fíðlusmiðimir á morðprís.
Spýtur, sem ókunnugum sýnast góð-
ar í eldinn, kaupi ég kannski á tíu,
tuttugu þúsund. Það þarf mikla kunn-
áttu til að þurrka viðinn rétt. Nýr
viður er blautur og alls kyns flóra í
honum, sem getur skemmt hann. Þá
gildir að kunna réttu tökin, til dæmis
að snúa honum reglulega eins og
þarf að gera við kampavínsflöskur.
Innleggið sem er límt ofan á brún-
imar, til að afmarka útlínumar bet-
ur, ltmi ég saman úr hefílspónum,
þannig að það verði hvít-svart-
röndótt. í bretti og strengjahaldara
nota ég íbenholt frá Afríku. Kaupi
það grófskorið og það hefur þá þom-
að þannig í nokkur ár.
Límið er notað heitt. Það er eins
og húsgagnalím var fyrr á öldinni.
Mestmegnis gelatín, soðið úr húðum
og hófum. Það er vatnsleysanlegt,
sem er nauðsynlegt svo hægt sé að
taka fiðlumar í sundur, án þess að
skemma viðinn. Það eru ekki ófáar
fíðlur, sem hafa verið eyðilagðar, af
því það hefúr verið gert við þær með
uhulími eða gripi. Þegar nýtt og
öflugt lím er notað, þá gefur viðurinn
sig á undan líminu.
Fiðlan er svo látin jafna sig í sólar-
ljósi eða kassa með útfjólubláu ljósi,
dökknar þá aðeins um leið. Síðan er
að grunna hljóðfærið. Grunnurinn
lokar viðnum, til að koma í veg fyrir
að óhreinindi fari ofan í viðinn og
eins til að vetja viðinn fyrir áhrifum
hita og raka. Grunnurinn þarf að
vera slitsberkur. Hann hefur áhrif á
hljóminn, svo það þarf að gera ráð
fyrir því, þegar einstakir hlutar fíðl-
unnar eru stemmdir saman. Lakk
getur verið skaðlegt ef það er of
hart eða of þykkt, en það getur aldr-
ei betmmbætt hljóm hljóðfærisins.
Það er einstaklega skemmtilegt að
vinna við lakkið og þar sér sannar-
lega móta fyrir 16. öldinni. Ég sýð
lakkið í þijá til fíóra mánuði í lokuð-
um tækjum. Auðvitað stórhættulegt,
því þessu fylgir sprengihætta, en er
ofsagaman. I lakkið nota ég meðal
annars olíu úr rafí. Það eru engin
litarefni í því. Og fiðlur eru ekki
bæsaðar, eins og sumir halda. Lakkið
dökknar af þessari löngu suðu. Þaðan
kemur liturinn. Ef liturinn er fenginn
eingöngu með suðu, þá hefur hann
tilhneigingu til að dökkna með aldrin-
um, ef eitthvað er. Litarefni hafa til-
hneigingu til að dofna með aldrinum.
Með tímanum slitnar lakkið af, og
fiðlur verða bara fallegri með aldrin-
um, því þá koma fleiri litir í ljós.
Undanfarið hef ég dundað mér við
að smíða „gamlar’ fíðlur, fíðlur með
sliti og höggum, bara til að sjá hvern-
ig mínar fíðlur verða, þegar þær eld-
ast. Læri heilmikið af þvi. Það fer
enginn alvöru fiðlusmiður út í búð
að kaupa lakk!
Það fer eftir veðri, en ég er um
þijár vikur að lakka hveija fíðlu.
Lakkið þomar ekki nema í sólarljósi,
því sólarljósið er hvati að hömun-
inni. Lakkið þomar alls ekki í myrkri.
Ég hengi þá fíðlumar mínar út á
snúm Um leið og þvottinn, nágrönn-
um mínum til óblandinnar skemmtun-
ar.“
Nýjar fiðlur þurfa tíma
til að lifna við
En það er væntanlega ekki hægt
að taka fíðluna beint af snúmnni og
fá hana til að hljóma vel?
„Það tekur um tvö til þijú ár að
spila fíðlu til. Fólk er oft hrætt við
ný hljóðfæri, að þau þurfí sextíu ár
eða tvær aldir, til að taka við sér,
en slíkt er fjarri lagi. Þetta er lóga-
ritmískt ferli, þannig að það gerist
mest á fyrstu tveimur eða þremur
vikunum, ef mikið er spilað á hljóð-
færið, en svo miklu hægar, þegar
líður frá.- Það er kannski einkum
tvennt sem gerist, þegar hljóðfæri
er spilað til. Eitthvað, sem gerist í
hljóðfærinu sjálfu, og svo er það sál-
rænn þáttur, hjá þeim sem spilar á
hljóðfærið, hann lærir á það.
Varðandi hljóðfærið sjálft, þá er
eins og hlutar þess þurfí þennan tíma
til að aðlagast hver öðmm. Til að
losa um spennuna, sem myndast þeg-
ar einstökum hlutum hljóðfærisins
er klambrað saman. Svo þarf fíðlu-
leikarinn að venjast hljóðfærinu,
fínna hljóminn batna þegar líkami
hans lærir að bregðast við fíðlunni,
fínna hvemig fíðlan svarar boganum.
Þetta em hárfín, ómælanleg við-
brögð.“
Hljómfræði, fagurfræði og
sálfræði — allt snertir þetta
fiðlur og f iðlusmíðar
„í hljómfræðirannsóknum er þetta
atriði í tilspilun kannski ekki undir-
strikað nægilega. Heym er nefnilega
ekki aðeins mælanleg stærð, heldur
líka sálfræðilegt fyrirbæri. í mæling-
um er alltaf gert ráð fyrir að enda-
stöð heymarinnar sé við hljóðhimn-
una, en hún er í heilanum, því það
er þar, sem við skynjum hljóðin. Og
skynjunina er ekki hægt að mæla.
Það er til dæmis ofsalega erfitt að
heyra muninn á ítölsku meistara-
hljóðfæri og nýju hljóðfæri, ef það
er spilað á þau bak við skerm. En
gamalt hljóðfæri svarar boganum
betur en glænýtt hljóðfæri, sem hefur
ekki verið spilað til. Þess vegna býr
fíðluleikarinn kannski til fallegri tón
á því gamla."
Það er varla hægt að skilja svo
við fíðlusmið að hann sé ekki spurður
út í tvö höfuðnöfn í fíðlusmíði, Stradi-
varius og Guamerius. Hver em helstu
einkenni fíðla þessara meistara?
„Stradivarius-fíðlur þurfa meiri
viðkvæmni í spilamennskunni,
fínlegri boganotkun. Guamerius-fíðl-
umar þurfa meira afl úr bogahend-
inni, öðruvísi tak. Það þarf meira
eins og að draga hljóminn úr Stradi-
variusnum. Guamerius-fíðlur em
þykkari, meira efni í þeim, Stradivar-
ius þynnri.
Fiðlur frá verkstæðum þessara
manna em einfaldlega frábærar og
mesti hvati, sem er hægt að hugsa
sér fyrir fíðlusmiði. Það er oftast
einblínt á hljómfegurð þeirra, en þær
em ekki síður frábærar að fagur-
fræðilegri uppbyggingu. Sjálfur
dunda ég mikið við útlit hljóðfæra
minna, atriði sem fæstir sjá, nema
þeir örfáu fíðluáhugamenn og fíðlu-
leikarar, sem hafa ræktað með sér
að horfa á hljóðfærin."
EINA
GASGRILLIÐ
MEÐ GAMLA
GÓÐA
GRILLBRAGÐINU
har-Broil verksmiðjurnar sem fundu upp útigasgrillið kynna í dag mestu framför
í 30 ár, þ.e. Char-Broil gasgriilkolin. ■ í stað þess að nota hraunmola, eru notuð sérstök
viðarkol, sem gefa “ekra viðarkolabragð“ í allt að 10 klst. þ.e. 10-20 grillskipti.
Eftir það nýtast þau eins og steinar eða hraun, en einnig má skipta þeim út fyrir ný.
Öllum grillunum fylgir:
* Emaljeruð grillgrind.
* Gler á loki
* Vinnuborð til hliðar og að framan
* Hitamælir í gleri (dýrari gerðir)
* Upphækkuð grillgrind fyrir kartöflur og grænmeti
* Gaskútur
* Góðar leiðbeiningar
Verð á CHAR-BROIL firá:
12.900.-
*
Char-Broil
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 91-691600