Morgunblaðið - 28.05.1988, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
25
Sýning á verkum
Johanns
SÝNING á verkum Jóhanns
Eyfells verður opnuð í dag í
Gallerí Svart á hvitu á Laufás-
vegi 17. Sýningin er hluti af
dagskrá Listahátíðar 1988.
Jóhann Eyfells er fæddur 1923.
Hann hefur verið búsettur í
Bandaríkjunum frá árinu 1946,
að undanskildum árunum 1965—
1969, er hann kenndi við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands.
Jóhann nam arkitektúr og mynd-
list við háskóla í Bandaríkjunum
og hefur síðan 1969 gegnt próf-
essorsstöðu við University of
Florida í Orlando.
Jóhann hefur aðeins haldið eina
einkasýningu í Reylq'avík, 1961,
en 1964 og 1968 sýndi hann
ásamt eiginkonu sinni, Kristínu
Eyfells, í Listamannaskálanum.
Þá var Jóhann einn af 10 gestum
Listahátíðar á Kjarvalsstöðum
1984. Hann hefur tekið þátt í •
samsýningum bæði austan hafs
og vestan og haldið einkasýning-
ar.
Á sýningunni í Gallerí Svart á
hvítu verða verk unnin úr pappír
og einn skúlptúr. Pappírsverk sín
kallar Jóhann „Paper Collaptions"
eða pappírssamfellur. Þessi verk
eru unnin þannig að pappír er
pressaður undir þungu fargi í
móti úr ýmsum málmum. Mótið
eða stimpillinn ummyndar pappír-
inn og fargið, sem oft er sandur
og blautur jarðvegur, hefur einnig
áhrif á pappírinn.
Sýning Jóhanns Eyfells í Gall-
Eyfells
erí Svart á hvítu stendur til 15.
júní. Hún er opin alla daga, nema
mánudaga, frá kl. 14.00—18.00.
Leiðrétting:
Frá Bessastöð-
um en ekki
Skálholti
MEINLEG villa slæddist í
myndatexta á forsíðu og inn-
gang fréttar á blaðsíðu þijú í
blaðinu í gær, þar sem fjallað
var um útskrift stúdenta frá
Menntaskólanum í Reykjavík.
Sagt var að þetta væri í 142.
skipti skólinn brautskráði stúd-
enta frá þvi hann fluttist til
Reykjavíkur frá Skálholti.
Skólahald lagðist af í Skálholti
árið 1784 og var þá enginn skóli
í landinu þar til Hólavallaskóli tók
til starfa haustið 1786. Þar var
skóli til 1805 er Bessastaðaskóli
tók til starfa í stiftamtmannshúsi
á Bessastöðum. Bessastöðum var
ætlað að hýsa skólann til bráða-
birgða enda húsrými þröngt.
Haustið 1846 fluttist svo skóla-
hald í nýbyggt hús Reykjavíkur-
skóla við Lækjargötu, þar sem enn
í dag er Menntaskólinn í
Reykjavík. Undir myndinni á fors-
íðu og í inngangi fréttarinnar átti
því að standa: ...frá því að skólinn
fluttist til Reykjavíkur frá Bessa-
stöðum. Lesendur eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Hvammstangavegur:
Lægsta tilboð 75%
af kostnaðaráætlun
NÝR vegur verður lagður að
Hvammstanga f sumar. Heima-
menn áttu lægsta tilboðið f útboði
Vegagerðarinnar, 10,8 mil\jónir
kr., sem er 74,5% af kostnaðará-
ætlun Vegagerðarinnar sem var
14,5 miRjónir kr.
Vegurinn sem leggja á f sumar
er frá Norðurlandsvegi að Hvamm-
stanga og er 4,5 km að lengd. Verk-
taki á að skila honum fyrir 15. októb-
er í haust. Lægsta tilboðið var frá
Stefáni Péturssyni, Guðmundi Vil-
helmssyni og Valgeiri Ágústssyni á
Hvammstanga. Fjögur önnur tilboð
bárust í verkið og voru öll nema eitt
undir kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar.
Nýlega voru opnuð tilboð f Siglu-
fjarðarveg um Gljúfurá sem er^,4
km kafli. Veginn á að leggja f sum-
ar og skilast fyrir 1. júlí. Lægsta
tilboðið átti verktakafyrirtækið
Hvítserkur, 3,6 milljónir kr., sem er
85,8% af kostnaðaráætlun.
Höfn:
Gísli Bjömsson látinn
HSfn, Horaafirði.
Látinn er á Höfn Gísli Bjömsson
fyrrverandi rafveitustjóri. Gísli
fæddist í Nesjum fyrir röskum 92
árum og voru foreldrar hans þau
Bjöm Gíslason og Borghildur Páls-
dóttir.
Gfsli hóf snemma vinnu við véla-
viðgerðir og jámsmíði og sinnti
lengi bátaflotanum á Höfn. Þá byij-
aði hann auk þess að annast vél-
gæslu á rafstöðinni á Höfn og varð
rafveitustjóri frá 1947. Gísli sat í
hreppsnefnd Hafnarhrepps í 16 ár,
um margra ára skeið í sýslunefnd
Austur-Skaftafellssýslu. Hann var
einn af höfundum Byggðasögu
Austur-Skaftafellssýslu, sem út
kom 1976.
Fyrri konu sína, Ambjörgu
Amgrímsdóttur, missti Gfsli 1935,
en þau eignuðust tvo syni, Amgrím
og Bjöm, sem báðir eru búsettir á
Höfn, og tvær dætur, Katrínu, sem
búsett er í Reykjavík, og Borghildi,
sem býr á Stöðvarfírði. Eftirlifandi
kona Gísla er Regína Stefánsdóttir,
en þeirra böm eru Kristín, skóla-
Gísli Björnsson
stjóri í Nesjaskóla, og Baldur, kenn-
ari í Reykjavík. Gísli var heiðurs-
borgari Hafnarhrepps.
MERKI UM GÓBAN UTBUNAÐ
FLUGUVESTI
Fást f nœstu sportvöruverslun.
Laugavegi ^ l0_i6laUg
Trímmgallar barna
frá kr. 590
Trímmgalíar fyrír dömur
frákr. 1.290
Herranáttföt kr. 490
Nærfatasett herra
kr. 150
Sportskór barna
frá kr. 290
T-bolir, hvítir, kr. 190
Gúmmístígvél
frá kr. 500
dD PIONEER
PLÖTUSPILARAR
- JGG