Morgunblaðið - 28.05.1988, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
29
Hjá Koivisto
Tveimur tímum áður en ræðan
hófst var formleg móttaka og hádeg-
isverður hjá Mauno Koivisto Finn-
landsforseta í forsetahöllinni. Þessir
tveir dagskrárliðir er hið eina form-
lega sem bandarísku forsetahjónin
hafa á dagskrá sinni í þriggja daga
dvöl sinni í Helsinki. Hingað til hafa
þau Ronald og Nancy Reagan hvílt
sig í gestahúsi finnska ríkisins og
gengið sér til hressingar. Á föstu-
daginn hófst svo dagskráin með
móttöku hjá Koivisto og ræðunni í
Finlandia-höllinni. í dag er hvíldar-
dagur.
Þrátt fyrir að hér sé ekki um form-
lega heimsókn Bandaríkjaforseta til
Finnlands að ræða var móttakan við
hlið forsetahallarinnar með stærsta
sniði. Finnlandsforseti tekur form-
lega á móti háttsettum gestum
sínum fyrir framan höllina í mið-
borginni og vanalega er almenningi
gefið tækifæri til að sjá gestina. Nu
var „almenningur" hins vegar valinn
hópur skólakrakka og blaðamanna
sem var raðað á nokkra palla við
hallarhliðin. Til vamar gegn leyni-
skyttum var torginu fyrir utan höl-
lina lokað og segl spennt sem „vegg-
ir“ umhverfís staðinn þar sem at-
höfnin fór fram. Reagan kom á stór-
Beinskiptur, 5 gíra eða 4 gíra, sjálfskiptur, vökvastýri.
Vél 16 ventla, 1,4 I, 90 hestöfl, 2ja blöndunga.
(0 HONDAl Á ÍSLANDI, Opiðídagkl. 13-17
VATNAGÖRÐUM 24. S. 689900.
Ronald Reagan í Finnlandi:
Mannréttindi eru hluti
traustrar afvopnunar
Fékk lax, rjúpur og pönnu-
kökur í forsetahöllinni
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti flutti í
gær stefnuræðu um utanríkismál i Finlandia-
höllinni í Helsinki, þar sem hann ítrekaði að
friðar- og afvopnunarmál tengjast óhjákvæmi-
lega mannréttindum. Hann undirstrikaði að
Bandaríkin mundu halda fast í styrk sinn og
semja við Sovétmenn út frá þeim forsendum.
Þá vék hann vinsamlega að Finnum og utanrík-
isstefnu þeirra, sem hefur verið fagnað hér.
Rauði þráðurinn í ræðu Reagans var þáttur
einstaklingsfrelsis og mannréttinda annars
vegar i anda ráðstefnunnar um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu (RÖSE) og hinsvegar i tvíhliða
samskiptum risaveldanna. Reagan fagnaði
þeim árangri sem hefur náðst eftir að Hels-
inki-sáttmálinn um öryggi og samstarf í Evr-
ópu var undirritaður fyrir 13 árum í sama sal
og hann talaði.
Reagan harmaði það hins vegar
að austantjaldsríkin hefðu ekki
gengið lengra á sviði einstaklings-
frelsis og mannréttinda. Að hans
mati er ennþá langt í land að Sovét-
menn nái þeim markmiðum í þessum
efnum, sem eru skjalfest í Helsinki-
sáttmálanum og Sovétmenn hafa
undirritað af fijálsum og fúsum vilja.
Reagan minntist þess að Míkhaíl
Gorbatsjov aðalritari kommúnista-
flokksins hefði látið í ljós skoðanir
um aukið pólitískt og trúarlegt frelsi.
Til þess að sanna vilja sinn í fram-
kvæmd hvatti Reagan Gorbatsjov til
dæmis til að leyfa klukkum að
hljóma í kirkjum Sovétríkjanna og
rífa múrinn sem skiptir Berlín.
Ræða Reagans í Finlandia-höll-
inni var hápunktur á formlegri dag-
skrá hans í þeirri heimsókn sem
hófst seint á miðvikudag og endar
á sunnudagsmorgni, er hann heldur
til leiðtogafundarins í Moskvu. Tón-
leikasalurinn í Finlandia-höllinni var
fullsetinn fólki í boði Bandalags vin-
áttufélaga Bandaríkjanna og Finn-
lands og Paasikivi-félagsins, sem er
umræðuvettvangur um stjómmál.
(Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
talar væntanlega einnig í boði Paa-
sikivi-félagsins er hann verður í
Helsinki í júní.) Félögin tvö báðu
Reagan upphaflega að halda ræðuna
sem þátt í 350 ára afmæli fyrstu
finnsku nýlendunnar í Ameríku.
Minntist Reagan oftar en einu sinni
á þátt Finna í þeirri hugmyndafræði-
legu hefð, sem er homsteinn vest-
rænna lýðræðisríkja. Lauk Reagan
ræðu með því að óska Finnum alls
góðs á fínnsku.
Reuter
Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, Iagfærir blóm
Tellervo Koivisto, forsetafrúr, við hádegisverð,
sem haldin var til heiðurs bandarísku forsetahjón-
unum i Helsinki í gær.
um svörtum bíl sem var sérstaklega
fluttur frá Bandaríkjunum. Þau
hjónin stigu úr bílnum klukkan
13.03, hlustað var á þjóðsöngva
landanna tveggja, hermönnum í
heiðurssveit heilsað og helstu tignar-
mönnum í fylgdarliði forsetanna og
gengið inn í höllina. Athöfninni lauk
klukkan 13.13. Öryggisverðir Reag-
ans og fínnskir lögreglumenn gátu
andað léttar og einbeitt sér að því
að snúa bíl Reagans við, sem reynd-
ist of langur og þungur til þess að
geta tekið U-beygju fyrir framan
höllina.
Andstætt því sem menn héldu
urðu engar formlegar viðræður milli
forsetanna Reagans og Koivistos.
Þeir spjölluðu saman í 10 mjnútur
fyrir framan ljósmyndarana. Á borð
var borinn hádegisverður; reyktur
lax, ijúpur og pönnukökur. Til þess
að heiðra heimafylki Reagan-hjón-
anna var drukkið rauðvín frá Kali-
forníu.
Menn bjuggust við að Reagan vildi
heyra álit Koivistos á síðustu þróun
í Sovétríkjunum, en Shultz utanríkis-
ráðherra hefur oft hitt Koivisto í
þeim erindum. En í þetta skipti var
ekki nema lauslega fjallað um þýð-
ingu perestrojku Gorbatsjovs. For-
setamir voru sammála um að engin
vandamál væru í samskiptum Finna
og Bandaríkjamanna. Álit Reágans
var að samband Finna og Banda-
ríkjamanna væri „sterkt, innilegt og
traust".
Afvopnun í norðurhöfum
Ekki var minnst á hugmyndir
Míkhaíls Gorbatsjovs og Koivistos
um afvopnun og öryggi á norður-
höfum. Reagan vísaði öllum tillögum
um niðurskurð hemaðarlegra um-
svifa á Norður-Atlantshafi á bug í
viðtali í Helsingin Sanomat, stærsta
blað Finnlands, rétt áður en hann
lagði af stað frá Washington.
Kalevi Sorsa utanríkisráðherra
Finna hefur túlkað umsögn Reagans
á þá leið, að Bandaríkjamenn og
NATO vilji helst ekki ganga til móts
við Sovétmenn í því að minnka hem-
aðarumsvif við_ strendur Noregs,
Grænlands og íslands. Hugmyndir
Koivistos í þessum efnum fela hins-
vegar í sér að auka traust en ekki
endilega að minnka hemaðarlegt
öryggi.
Álit fínnskra ráðamanna er að
dvöl Reagans í Finnlandi og sér-
staklega þau atriði í ræðu hans setn
undirstrika hlutleysisstefnu Finn-
lands og þátttöku Finna í RÖSE séu
góð og gagnleg viðurkenning frá
leiðtoga Bandaríkjanna.
PC-tölvur
og prentarar
tV’k
á gamla
verðinu/
(PC-tölvur frá kr. 49.900)
f/TÖUfWANO
v/Hlemm, s. 621122.
RITVELAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
Valkostur vandlátra