Morgunblaðið - 28.05.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
39
Afmæliskveðja:
Jónasína Þ. Sigurð
ardóttir á Hrauni
Jónasína Þorbjörg Sigurðardóttir
er fædd að Hrauni í Aðaldal 28.
maí 1903 og verður því 85 ára á
þessu vori.
Foreldrar hennar voru hjónin í
Hrauni, Kristín Þorgrímsdóttir og
Sigurður Jónasson.
Jónasína er gift Kjartani Sig-
tryggssyni frá Jarlsstöðum í Aðal-
dal, tóku þau við búi af foreldrum
Jónasínu og hafa búið í Hrauni allan
sinn búskap með rausn og myndar-
brag, enda verið einstaklega sam-
hent.
Áttatíu og fimm ára? Enginn sem
sér þessa broshýru konu getur trúað
að hún hafi lagt svo mörg ár að baki.
Síðastliðið vor var hún á ferming-
arbarnamóti, þ.e.a.s. sjötíu ár voru
síðan hún fermdist í Grenjaðarstað-
arkirkju. Þau voru 12 börnin sem
fermd voru á Grenjaðarstað árið
1917, 6 af þessum fermingarsystkin-
um mættust í kirkjunni á Grenjaðar-
stað 10. júní, sem var fermingardag-
ur þeirra, það var fallegur og
lífsreyndur hópur.
Heimili Jónasínu er fágað og hlý-
legt, smekkvísi hennar gefur því list-
rænan svip, enda er hún einstaklega
lagin við allt sem hún leggur hönd
að, hún hlýtur líka að hafa það sem
kallað er „grænir fíngur“ því árið
um kring eru ræktarleg blóm að
breiða úr blöðum sínum, eða
sprengja knúppa í gluggunum henn-
ar.
Jónasína er bóndakona og hefur
verið önnum hlaðin allt sitt líf.
Á meðan heimili hennar var fólks-
flest voru þau ár í íslensku þjóðlífi
að fátt var til þæginda eftir því
mati sem nútíðin leggur á slíka
hiuti, ekkert rafmagn og þar af leið-
andi engin rafknúin heimilistæki. í
Hrauni hefur alla tíð verið gest-
kvæmt, ekki síst á haustin þegar
bændur reka fé sitt til rétta. í
Hraunslandi er gömul og landsfræg
skilarétt, Hraunsrétt. Á haustin var
heimilið í Hrauni búið, að segja má
til veisluhalds, það stóð opið öllum
þeim sem þurftu mat og húsaskjól
fyrir sig og hesta sína, öllum sem
komu þreyttir og hraktir úr fjárleit-
um, yfirleitt öllum sem leið sína
lögðu að Hrauni og'þeir voru marg-
ir, þar var veitt af rausn og með
glöðu geði. Ég veit að margir minn-
ast glaðra og góðra stunda á
Hraunsheimili.
Þrátt fyrir allt það annríki sem
fylgir því að vera bóndakona og
standa fyrir umsvifamiklu heimili
átti Jónasína nóg af fómfýsi og hlýju
hjartans til að veita öldruðum foreld-
rum sínum athvarf, þau lifðu bæði
langa ævi og góða elli.
Móðir Jónasínu var blind sín
síðustu ár, faðir hennar var rúm-
fastur nokkurn tíma áður en hann
lést, en ekki var verið að flytja ósjálf-
bjarga fólk frá Hrauni svo lengi sem
ekki þurfti sérstakrar læknismeð-
ferðar. Jónasína hafði tíma til allra
þeirra hluta sem slík hjúkrun og
aðhjynning krefst, hún hefur samt
trúlega orðið að vinna meira en það
sem nú er talið hæfileg vinnuvika,
og sjálf var hún ekki hraust og gekk
oft á tíðum ekki heil til skógar.
Þessar línur eiga ekki að vera
æviágrip, enda yrði það of viðamikið
efni í eina grein þó stiklað væri á
stóru því margt hefur lífið fært Jón-
asínu, bæði erfítt og gott, en hveiju
því sem að höndum bar hefur hún
tekið með stillingu hins þroskaða og
trúaða manns. Hún átti þá hugarró
að koma sterkari og betri úr hverri
raun og hógvær gleði hennar hefur
alltaf verið ljósgjafi heimilisins.
Jónasína er gæfukona í sínu fjöl-
skyldulífi enda lífsförunautur hennar
einstakt ljúfmenni og traustur heim-
ilisfaðir, þau hjónin hafa eignast tvö
börn sem bæði eiga myndarlegar
fjölskyldur og hópurinn sækir til
ömmu og afa í Hrauni þó að lífíð
hafi dreift honum til ýmissa starfa
í þjóðfélaginu.
Enn halda Jónasína og Kjartan
heimili í Hrauni með tilstyrk sonar
og tengdadóttur og njóta elsku og
virðingar fjölskyldu sinnar.
Ég sendi þessari kæru frænku
minni bestu kveðjur og ámaðaróskir.
Jóhanna Á. Steingrímsdóttir,
Árnesi.
NARSSARSSUAK
FLUGLEIDIR
-fyrirþíg-
JÖGURT
með jarðarberjum
HNETU
100GR0MM
IIO
ÞUFÆRÐ
lOOg MEIRIJOGURT
ÞEGAR ÞÚ KAUPIR 500g DÓS! *
* Eða réttara sagt 102 g þegar miðað er við verð á jógúrt í 180 g dósum.
Tílheyrir þú samrýndri fjölskyldu sem kemur sér Sjáöu nú til: 500 g dós af jógúrt kostar 73 kr.*
saman um hlutina, þar á meöal bragðtegundir? 180 g dós af jógúrt kostar 33 kr.*
Pú drýgir heimilispeningana meö því aö kaupa Sem sagt: Þaö er 20,4% ódýrara aö kaupa stóra dós.
eina stóra dós af jógúrt frekar en 2-3 litlar. ^
Það er óneitanlega smábúbót þessa dagana.
HVERVHlEKKIGERAGÓfiKAUP?-TD5~--------