Morgunblaðið - 28.05.1988, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
<, AbpLlu.mrie&uetn'ið « dag e-r-. (
„H'\r\n. cCrVökuti almennirxgvr."
Með
morgnnkaffinu
Stóran pakka af hunda-
kexi. — Hver skrifaði
þetta?
HÖGNI HREKKVlSI
Maður líttu þér nær
Til Velvakanda.
Reagan forseti hefur verið mik-
ið í fréttunum eins og venjulega
og nú er það ferð hans á fund
Gorbatsjovs, sem mest er talað
um. Forseti Bandaríkjanna hefur
í ávörpum sínum og viðtölum við
fjölmiðla lagt mikla áherslu á að
hann muni í komandi viðræðum
við Kremlarleiðtogann setja mann-
réttindi á oddinn og er það vissu-
lega vel og þar kemur hann við
kaunin á kommúnistaleiðtoganum.
Þetta ógeð, sem menn kalla
kommúnisma, er þekkt fyrir flest
annað en að virða almenn mann-
réttindi enda hefur engin þjóð og
mun aldrei kjósa þessa helstefnu
yfir sig af fijálsum vilja. Engin
þjóð talar eins mikið um frelsi og
mannréttindi og Bandaríkjamenn
og engir gagnrýna meira komm-
únistastjórnirnar en þeir.
Þeir sem gagnrýna einhvem eða
eitthvað verða að hafa efni á því,
það er að vera heilir í þeirri af-
stöðu, hafa hreinan skjöld eins og
það er stundum kallað, og þá fer
nú heldur betur að kárna gamanið
fyrir Bandaríkjamenn.
Gegnum tíðina hafa miskunnar-
lausir einræðisherrar tröllriðið
gervallri Rómönsku-Ameríku, öll
mannréttindi fótum troðin og allur
almenningur búið við afar bág
kjör. Bandaríkjamenn hafa með
ráðum og dáð stutt þessa skúrka,
enda átt þama mikilla hagsmuna
að gæta, hafa átt og eiga enn
miklar eignir og raka saman óg-
rynni fjár á sama tíma og mikill
meirihluti landsmanna rétt nær
að draga fram lífið. Ámm saman
traðkaði Marcos á löndum sínum
á Filippseyjum, tryggur vinur
Bandaríkjamanna. Lítið hefur far-
ið fyrir lýðræði eða mannréttind-
um í S-Kóreu, stjómendur þar
sömuleiðis tryggir Washington-
herrunum, Pakistan náinn banda-
maður þeirra Hvítahúss- manna,
Zía ul Haq, eða hvað hann nú
heitir, sem þar öllu ræður, er ekki
þekktur af lýðræðisást. Taiwan-
stjómin hefur ekki frekar gengið
braut lýðræðisins. Hvíti minnihlut-
inn í S-Afríku heldur 80% lands-
manna í heljargreipum, þar er
ekki um neina pólitík í venjulegri
merkingu að ræða. Þessi mikli
meirihluti landsmanna hefur það
eitt til „saka“ unnið að vera ekki
hvítur á hörund, því skulu þeir
meðhöndlaðir nánast sem skepnur.
Er það ekki alveg forkastanlegt
að svona skuli raunverulega eiga
sér stað í heiminum í dag. Þræla-
haldaramir í S-Afríku eru dyggir
stuðningsmenn Bandaríkjanna.
Ekki kemur til mála af hálfu
Bandaríkjamanna að grípa til
neinna róttækra aðgerða gegn
kynþáttakúgurunum eins og til
dæmis viðskiptabanns sem vitan-
lega myndi fljótlega neyða stjóm-
völd til þess að láta af kynþátta-
stefnu sinni. En þeir settu við-
skiptabann á smáríkið Panama
vegna þess að valdamaðurinn þar
er ekki lengur sá hundtryggi
bandamaður þeirra og hann var
um árabil.
Ekki má gleyma nánasta banda-
manni Bandaríkjanna, ísrael, þar
ráða ferðinni einhverjir mestu
grimmdarseggir mannkynssög-
unnar. Þeir byggðu upp ríki sitt
með því að tortíma því ríki er þar
var fyrir, Palestínu, og er hún nú
að hverfa og mun heyra sögunni
til og íbúamir sem þar bjuggu
Palestínumenn. Þeim er verið að
útrýma sem þjóð, þetta sjá þeir í
Washington ekkert athugavert
við. Maður líttu þér nær, er oft
sagt í þessu sambandi, og þeir í
Washington ættu að reyna að
skilja hvað felst í þeim orðum.
Guðjón V. Guðmundsson
Yíkverji skrifar
Víkveija hefur borist eftirfar-
andi tilskrif frá Páli Magnús-
syni, fréttastjóra Stöðvar 2:
Um Hvítasunnuhelgi sendi
Víkveiji Morgunblaðsins okkur á
fréttadeild Stöðvar 2 áminningu í
föðurlegum umvöndunartón (eða
ætti ég kannski að segja: af hefð-
bundnum hroka og yfirdrepsskap
sumra Moggamanna?). Víkveiji tel-
ur okkur hafa misst sjónar af
grundvallaratriðum í frétta-
mennsku, en gerist sjálfur sekur
um þvílíkar rangfærslur, að ekki
er undir þeim sætt. Efnisinnihald
fréttarinnar, sem um er rætt, var
þetta: Vegna orðróms um að Lands-
virkjun, meðal annarra, hafi leyst
út óeðlilega mikið af gjaldeyri dag-
ana fyrir gengisfellingu hafði fjár-
málaráðherra farið fram á sérstaka
skýrslu um málið frá viðskiptabönk-
unum. Þetta fengum við auðvitað
staðfest hjá ráðherranum sjálfum.
Stöð 2 „leitaði" sem sé engra
sökudólga og „fann" þarafleiðandi
engan. Fréttin var því ekki úr lausu
lofti gripin, eins og Víkveiji segir,
heldur sannleikanum samkvæm.
Hins vegar var framsetning frétt-
arinnar ósmekkleg vegna mynd-
birtingar og tvítekningar á nafni
Jóhannesar Nordal. Af þeim sökum
var beðist afsökunar þótt fréttin
væri efnislega rétt. Blaða- og
fréttamenn bera oft fyrir sig tímas-
korti þegar eitthvað fer miður, og
í þessu tilfelli fékkst fréttin stað-
fest um klukkan 19 þannig að
fréttastofan hafði um það bil stund-
arQórðung til að skrifa fréttina,
finna myndefni og ganga frá því
til útsendingar.
Ég og Víkveiji erum þó vonandi
sammála um að tímaskortur getur
í besta falli þjónað sem skýring, en
aldrei sem afsökun. Sú niðurstaða
Víkveija, að þetta mál teljist „meiri-
háttar áfall" fyrir fréttadeild Stöðv-
ar 2 er því vægast sagt litt ígrun-
duð. Kannski bara óskhyggja. Ef
hún væri rétt væri Mogginn fyrir
löngu hættur að koma út. Nema
þá að Víkveiji geri miklu meiri sið-
ferðiskröfur til Stöðvar 2 en Mogg-
ans, — þá^lítum við reyndar silfrið
sömu augum.
Páll Magnússon
fréttastjóri Stöðvar 2
P.S. Ég gleymdi því, að Víkveiji
telur okkur til hnjóðs, að innan
19:19 rúmist bæði eiginlegur frétt-
atími og efni af léttara tagi. Hvem-
ig er það aftur með Moggann. Mig
minnir, að í honum sé bæði að finna
fréttir og léttmeti, en það er trúlega
allt annað mál...
Sami
XXX
já. Eftir lestur þessa yfír-
klórs hljóta menn að spyija
sig hvar sé að fínna „hroka og yfír-
drepsskap".
Én til að hressa upp á minni
Páls Magnússonar er rétt að rifja
upp aðalatriði fréttarinnar sem hér
um ræðir. Það er ágætlega dregið
saman í upphafí fréttatilkynningar
Landsvirkjunnar sem birtist í Morg-
unblaðinu fímmtudaginn 19. maí
út af þessu máli en þar segir: „í
fréttatíma Stöðvar 2 í gærkvöldi
var því haldið fram að fjármálaráð-
herra, Jón Baldvin Hannibalsson,
hefði krafíst sérstakrar skýrslu frá
Landsbankanum vegna orðróms um
að Landsvirkjun hefði átt stóran
hlut í gjaldeyrisútstreyminu í
síðustu viku. Jafnframt var að því
látið liggja í fréttinni að Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóri og form-
aður stjómar Landsvirkjunnar, hafí
hér komið við sögu og gerst sekur
um að hafa misnotað aðstöðu sína
til að Landsvirkjun gæti með gjald-
eyriskaupunum hagnast á gengis-
breytingunni, sem ákveðin var um
sl. _helgi.“
í sama blaði er viðtal við fjár-
málaráðherra sjálfan og þar segir
m.a.: „Ástæðan fyrir því að beðið
er um þessar upplýsingar er sú, að
mér fínnst rétt að staldra við það,
hversu snöggt þetta gjaldeyrisút-
streymi var og hvernig upplýsinga-
ferillinn er. Annað sem fyrir mér
vakti var að fá upplýsingar til að
annaðhvort staðfesta eða kveða nið-
ur sögur, sem ganga fjöllunum
hærra í viðskiptaheiminum um mik-
il gjaldeyriskaup einstakra aðila,
svo sem Eimskips, Flugleiða, Sam-
bandsins, Landsvirkjunnar og jafn-
vel bankanna sjálfra. Landsvirkjun
hefur þegar gert hreint fyrir sínum
dyrum og vil ég sérstaklega staldra
við það, vegna þess að Stöð 2 mun
hafa eignað mér þá skoðun að ég
hafí leitað eftir þessum upplýsing-
um til að fá staðfestar sögusagnir
um gjaldeyriskaup Landasvirkjunn-
ar, en það er algjör tilbúningur.“
Hér fer því ekkert á milli mála
um skilning manna á frétt Stöðvar
2. Reyndur fréttamaður á borð við
Pál Magnússon veit að frétt er ekki
aðeins orðanna hljóðan heldur ekki
síður túlkun á því hvað í þeim orð-
um felst. Fjármálaráðherra hrekur
hér á undan að þáttur Landsvirkj-
unnar sérstaklega hafí orðið honum
tilefni til að leita eftir þeim upplýs-
ingum sem hann hefur óskað frá
bankakerfínu. Landsvirkjun hefur
þegar sýnt fram á að gjaldeyriskaup
fyrirtækisins hinn umdeilda tíma
fyrir gengisfellingu voru með full-
komnlega eðlilegum hætti. Þar með
er meintur þáttur Jóhannesar Nord-
al í þessu máli úr sögunni. Hið eina
sem er rétt i frétt Stöðvar 2 er að
fjármálaráðherra óskaði eftir
skýrslu um gjaldeyriskaup dagana
fyrir gengisfellingu. Fréttin er því
ein allsheijar dylgja, ekki frétta-
mennska heldur slúður sem reynd-
ist úr lausu lofti gripið. Að ætla
að skýla sér bak við orðanna hljóð-
an er ómerkileg hártogun og ekki
til þess fallin að vekja traust á
fréttastjóm hjá Stöð 2. Karlmann-
legra væri að viðurkenna mistökin
og læra af þeim.
Eftirskrift Páls vegna hugleið-
inganna hér í þessum pistli um
fréttatímann og 19:19 nennir
Víkveiji ekki að svara enda greini-
legt að fréttastjórinn hefur lesið þá
klausu í einhverri geðshræringu og
dregur þar af leiðandi rangar álykt-
anir.
Að síðustu: f blöðum undanfarið
hafa birst auglýsingar frá Stöð 2
um fréttastofu sína og með ein-
kunnarorðunum „Frjáls frétta-
stofa". Samkvæmt orðana hljóðan
er frelsið takmarkalaust. Vonandi
túlkar fréttastjóri Stöðvar 2 þó
þetta hugtak ekki á þann veg, —
frelsi til að senda út hvaðeina sem
fréttamönnum Stöðvar 2 berst til
eyma án þess að ganga fyrst úr
skugga um sannleiksgildið.