Morgunblaðið - 28.05.1988, Qupperneq 60
EIGNA
MIDUNIN
27711
l> I N~G H 0 115 i T « Ít"T 1 1
sienir Knsftisson, sölustiön - Méhii GuSmundssott, ritm.
MrélK»HsMáí|s».ldgi.-U™«tBWiBeek!tfl,siml?320 |
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 60 KR.
ÁGRÆNNIGREIN
SVFÍ formlega
falin öryggis-
fræðsla sjómanna
Á ÁRSÞINGI Slysavamafélags
íslands í gær var undirrítaður
samningur milli félagsins og
samgönguráðherra, þar sem
hann fól SVFÍ formlega rekstur
öryggisfræðslu sjómanna, sam-
kvæmt starfsreglum sem Slysa-
vamaskóla sjómanna vom settar
síðastliðinn mánudag.
Að sögn Ragnhildar Hjaltadótt-
ur, deildarstjóra í samgönguráðu-
neytinu, er í starfsreglunum stefnt
að því að öryggisfræðslunámskeið
verði haldin í öllum helstu útgerðar-
stöðum landsins og að allir sjómenn
á landinu fái þessa fræðslu. Ríkið
mun leggja skólanum til rekstrarfé
á fjárlögum, en þátttakendur munu
greiða námskeiðsgjald. Ragnhildur
sagði að SVFÍ hefði hins vegar
sjálft lagt fé til ýmissa þátta fræðsl-
unnar, til dæmis kennsluskipsins
Sæbjargar.
Samkvæmt reglunum mun ráð-
herra skipa 9 manna nefnd til þess
að fjalla almennt um öryggis-
fræðslu, en þriggja manna undir-
nefnd hennar fer með stjóm nám-
skeiðanna.
Matthías Á. Mathiesen, sam-
gönguráðherra, skýrði einnig frá
því á ársþinginu, að á næstu dögum
yrði stofnuð þriggja manna sam-
starfsnefnd Samgönguráðuneytis,
Pósts og síma og Slysavamafélags-
ins um tilkynningaskyldu íslenskra
skipa.
Sjá frásögn af þingi SVFÍ á
miðopnu.
Islensk-þýskur rannsóknarleiðangur:
Reynir að slá heims-
met við Kolbeinsey
Morgunblaðið/KGA
Netaveiðin hafin íHvítá
NETAVEIÐIN hófst í Hvítá í Borgarfírði þann 20. maí og hefur
veiðst ágætlega fyrstu dagana. Yfír 20 bændur eiga veiðirétt í Hvítá
og fengu þeir í fyrra rúmlega 4.500 laxa í net sín, sem er allmjkið
undir meðallagi. Byrjunin í ár lofar þó góðu. Á myndinni má sjá Ólaf
Davíðsson bónda á Hvítárvöllum II vitja um net sín í gærmorgun,
og vom 14 laxar í þeim. Hann var ánægður með veiðina enda er
netaveiðitímabilið rétt að heíjast, en það stendur til 20. ágúst.
Sjá frásögn á bls. 33.
Verð á þorskblokk
lækkar um 4 til 5%
ÍSLENSKIR og þýskir vísinda-
menn fara í rannsóknarleiðang-
ur að Kolbeinsey f næstu viku
til að kanna þar jarð- og líffræði-
legar aðstæður, en megintil-
gangurinn með ieiðangrínum er
að athuga hvort við eyjuna lifi
hitakærar örverur við hærra
hitastig en þekkt er. Við eyjuna
eru hverir á um 100 metra dýpi
þar sem suðumark er trúlega
140 til 150 gráður á Celcíus
vegna þrýstings sjávar, að sögn
Jakobs Kristjánssonar, forstöðu-
manns líftæknisviðs Iðntækni-
stofnunar íslands. Jakob stendur
fyrir leiðangrínum ásamt Karli
O. Stetter, prófessor við háskól-
ann f Regensburg f Vestur-
Þýskalandi.
Karl Stetter fann fyrir nokkrum
árum örveru sem lifír við 110 gráðu
hita á Celcíus við hveri á 15 til 20
metra dýpi við ftölsku eyjuna Vulc-
ano en ekki er vitað til að örverur
lifí við hærra hitastig, að sögn Jak-
obs Kristjánssonar. Hitakærar ör-
verur eru m.a. notaðar f sykur- og
þvottaiðnaði, svo og við mælingar
og sjúkdómsgreiningar.
Vfsindamennimir fara í leiðang-
urinn frá Akureyri á morgun,
sunnudag, á stærsta rannsóknar-
skipi Vestur-Þjóðveija, Polarstem,
sem er 4.000 tonna ísbrjótur. Með
skipinu verður tveggja manna raf-
knúinn kafbátur, sem Max Planck-
stofnunin í Seewiesen í Vestur-
Þýskalandi leggur til. Polarstem
er með útbúnað til að taka
þrívíddarmyndir af sjávarbotninum
við Kolbeinsey og kafbáturinn er
með útbúnað til að taka ljós- og
kvikmyndir af botninum.
Polarstem kemur til Reylq'avíkur
úr leiðangrinum 4. júní nk. og verð-
ur þar til sýnis daginn eftir, á sjó-
mannadaginn. Skipið fer þaðan til
Vestur-Þýskalands en kafbáturinn
og áhöfti hans verða eftir í
Reykjavík. Vitaskipið Árvakur fer
svo með hann þaðan í þriggja daga
rannsóknarleiðangur að Surtsey
þar sem einnig verða kannaðar
jarð- og líffræðilegar aðstæður á
sjávarbotninum, að sögn Jakobs
Kristjánssonar.
„ÞORSKBLOKK hefur lækkað í
verði um 4 til 5% f Evrópu í þess-
arí viku og þegar næsta sending
fer héðan til Bandaríkjanna eftir
I hálfan mánuð lækkum við trúlega
verðið á þorskblokk þar úr 1,60
f 1,50 dali pundið,“ sagði Bjami
| Lúðvíksson, framkvæmdastjórí
þjá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna, f samtali við Morgunblaðið
í gær.
„Við höfum sáralítið selt af þorsk-
blokk í Bandaríkjunum undanfarið,"
sagði Bjami. „Kaupendur halda að
Góðar horf-
ur með lax-
veiði í sumar
GÓÐ laxveiði í net f Hvítá í vor
eykur mönnum bjartsýni á að
sumarið verði laxveiðimönnum
gjöfult. Um það voru þeir sam-
mála Fríðrík Stefánsson fram-
kvæmdastjórí Stangveiðifélags
Reykjavíkur og Rafn Hafnfjörð
formaður Landssambands
stangaveiðfélaga, er Morgun-
blaðið leitaði álits þeirra á horf-
unum.
Smálax skilaði sér illa í ámar
í fyrra og em menn að vonast
eftir að heimtur verði betri í sum-
ar. Einnig virðist laxinn vera frem-
ur snemma á ferðinni enda skil-
yrði góð þar sem vatnið er hlýrra
nú en í fyrra. Lax hefur sést í
Elliðaánum og í fleiri ám og neta-
veiði í Hvítá hefur verið með besta
móti það sem af er. Allt lofar þetta
góðu fyrir Iaxveiðimenn, en ámar
verða opnaðar hver af annarri á
næstu vikum. Friðrik Stefánsson
sagði að verð veiðileyfa hefði
hækkað nokkum veginn í takt við
verðbólgu á milli ára, en nokkuð
væri það þó misjafnt eftir ám.
Algengasta hækkun væri á bilinu
16—18%, en þó væm dæmi um
að veiðileyfí í einstaka ám hefðu
lækkað. Rafn Hafnfjörð sagði að
veiðimenn væm sffellt að snúa sér
meira að silungsveiðum enda væm
1300 veiðivötn á landinu og þar
væm margir ónýttir möguleikar
fyrir þá sem eiga veiðirétt í vötn-
unum.
Friðrik Sigurðsson hjá Lands-
sambandi Fiskeldis- og hafbeitar-
stöðva sagði að heimtur á laxi í
hafbeitarstöðvamar hefðu verið
þokkalegar á síðasta sumri en of
snemmt væri að segja nokkuð til
um það í ár þar sem laxinn fer
ekki að skila sér fyrr en seinni
hluta júní og í júlí.
sér höndum og birgðasöfnun hefur
færst frá kaupendum til seljenda.
Margir af smærri aðilunum hafa
hins vegar ekki efni á að bíða með
vömna og selja hana því á lágu
verði. Við höfum heyrt að sumir
selji þorskblokk á 1,40 dali pundið
og vafalaust heldur verðið áfram að
lækka. Það væri því skynsamlegt
að veiða ekki mikið af þorski í sum-
ar,“ sagði Bjami.
Ferskur fiskur flutt-
ur á markað í Róm?
útlit nord-austur
Iþróttahöll í Laugardal
Handknattleikssamband íslands hefur látið gera fmmdrög að íþróttahöll vegna fyrirhugaðrar heimsmeistar-
keppni í handknattleik hér á landi. Höllin, sem hugsuð er sem íþrótta-, ráðsteftiu- og sýningarhöll, er um
7.500 fermetrar að stærð. Húsið tekur um 8.000 áhorfendur í sæti skv. þeim teikningum sem nú hafa
verið gerðar. HSÍ hefur sótt um heimsmeistarakeppnin verði haldin hér á landi 1993 eða 1994 og yrði hún
þá hluti af hátíðahöldum vegna 50 ára afmælis lýðveldins 1994. Nánar á íþróttasiðu á bls. 57.
„ VERULEG AR líkur eru á að tveir
ítalskir fiskinnflytjendur gerí
samning við aðila á Suðurnesjum
á næstunni um að kaupa af honum
30 til 40 tonn af ferskum sjávaraf-
urðum á viku sem seldar yrðu á
fiskmarkaðinum í Róm,“ sagði
Ragnar Borg, aðalræðismaður ít-
alfu, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„Italimir hafa m.a. áhuga á að
kaupa ferskan þorsk, silung, regn-
bogasilung, lax, skötusel, skelfisk,
rækju, humar, ál, kola, háf og hugs-
anlegt er að þeir kaupi síðar reyktan
fisk,“ sagði Ragnar. „Fiskurinn yrði
fluttur út með vöruflutningavél tvisv-
ar í viku en það er mjög dýrt að
fljúga með hann alla leið til Rómar.
Það er því hugsanlegt að fiskurinn
yrði fluttur með flugvél til t.d. Amst-
erdam, Frankfurt, Miinchen eða Lúx-
emborgar og þaðan með vömflutn-
ingabílum til Rómar. “ sagði Ragnar.