Morgunblaðið - 29.06.1988, Qupperneq 1
64 SIÐUR B
145. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Fundur leiðtoga Evrópubandaiagsins:
Nefnd kanni sameiginlegt
efnahags- og peningakerfi
Thatcher mótfallin einum gjaldmiðli
Hannover, Daily Telegraph, Reuter.
Leiðtogar Evrópubandalags-
ins samþykktu að koma á fót
nefnd undir forsæti Jacques
Delors, forseta framkvæmda-
stjórnar bandalagsins, sem hef-
ur það hlutverk að kanna hvern-
ig koma megi á sameiginlegu
efnahags- og peningakerfi að-
ildarríkja bandalagsins. Wil-
fried Martens, forsætisráð-
herra Belgiu, sagði að flest að-
ildarrikin vildu koma á fót
seðlabanka Evrópubandalags-
ins og sameiginlegum gjald-
miðli, en Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands,
kvaðst mótfallin þeim hug-
myndum.
Jacques Delors, sem endurkjör-
inn var forseti framkvæmdastjórn-
ar bandalagsins til tveggja ára,
sagði að mikil bjartsýni hefði ríkt
á fundinum. Margaret Thatcher
var ekki eins ánægð með fundinn,
en sagði að hann hefði markað
þáttaskil í þróun Evrópubanda-
íagsins. Hún samþykkti með sem-
ingi tillögu um að koma skyldi á
könnun um sameiginlegt efna-
hags- og peningakerfi, en kvaðst
þó þeirrar skoðunar að einn gjald-
miðill og sameiginlegur seðlabanki
kæmu ekki til greina. „Við þurfum
ekki einn gjaldmiðil til að koma á
sameiningu og þaðan af síður sam-
eiginlegan seðlabanka," sagði hún.
„Slíkur banki kæmi aðeins að
gagni lyti Evrópa einni stjóm."
Þegar hún var spurð hvort hún
hefði beðið ósigur á fundinum fyr-
ir leiðtogum Frakklands og Vest-
ur-Þýskalands, sem börðust einna
helst fyrir því að tillagan næði
fram að ganga, neitaði hún því.
Embættismaður hjá Evrópu-
bandalaginu sagði að tekið gæti
tíu ár að koma á sameiginlegum
gjaldmiðli aðildarríkja bandalags-
ins. Framkvæmdastjóm banda-
lagsins telur að tillagan sé eðlilegt
framhald af innri markaðinum,
sem áformað er að koma á fót
árið 1992.
Ellefu seðlabankastjórar, tveir
úr framkvæmdastjóm Evrópu-
bandalagsins og þrír utanaðkom-
andi fjármálasérfræðingar skipa
nefndina, sem leiðtogamir ákváðu
að koma á fót. Fyrirhugað er að
nefndin skili skýrslu á fundi leið-
toga bandalagsins í Madrid næsta
sumar.
Reuter
Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, greiðir atkvæði við setn-
ingu ráðstefnu sovéska kommúnistaflokksins í Moskvu i gær.
Setningarræða Gorbatsjovs á flokksráðstefnunni:
Boðar róttækar breyting-
ar á sovéska stj ónikerfinu
Moskvu, Reuter.
RAÐSTEFNA sovéska kommúnistaflokksins var sett í gær og boð-
aði Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétrikjanna, róttækar breytingar
á sovéska stjórnkerfinu i setningarræðu sinni. Hann lagði til að
Sovétrikin tækju upp stjórnkerfi þar sem forseti réði ásamt komm-
únistaflokknum. Hann sagði að frá og með næsta vori ætti þjóðþing
með 2.250 fulltrúum að kjósa sér forseta úr hópi frambjóðenda með
leynilegri kosningu. Forsetinn myndi hafa utanrikis- og vamarmál
á 'sinni könnu og útnefna forsætisráðherra.
Tillaga Gorbatsjovs gekk lengra
en umbótatillögumar sem miðstjóm
flokksins gaf út í síðasta mánuði.
Hann lagði til, að við þá 1.500 full-
trúa, sem nú sitja í Æðstaráðinu,
þingi landsins, bættust 750 fulltrú-
ar frá ýmsum hagsmunasamtökum.
Hin nýja stofnun sem þannig yrði
til skyldi kallast Þing fulltrúa fólks-
ins og koma saman árlega til að
ræða grundvallarmálefni. Þingið
yrði kosið á fimm ára fresti. Þingið
veldi úr sfnum hópi 400-452 fulltrúa
sem tækju að sér dagleg störf.
Forsetinn yrði kosinn af þinginu
og hefði það rétt til að setja hann
af í leynilegri atkvæðagreiðslu.
Hlutverk kommúnistaflokksins
yrði að móta meginstefnuna í inn-
anríkis- og utanríkismálum.
Gorbatsjov sagði ekki hver yrðu
tengsl aðalritara flokksins, en því
embætti gegnir hann nú, og forset-
ans, en búist er við því að hann
ætli sjálfum sér það hlutverk. Hann
hvatti til þess að tekin yrði afstaða
til tillagna hans á ráðstefnunni, en
henni lýkur í þessari viku.
Sjá ennfremur fréttir
á bls. 24-25.
Reuter
Ungverjar mótmæla íBúdapest
Ungveijar fjölmenntu við sendiráð Rúmeníu í Búdapest á mánudag til að mótmæla áformum Nic-
oláis Ceausescus, forseta Rúmeníu, um að leggja helming rúmenskra þorpa í auðn, en í þeim búa
margir Ungveijar. Ungversku rithöfundarnir Istvan Csurka og Sandor Csoori sögðu í gær að
100.000 manns hefðu tekið þátt í mótmælunum. Rúmenar tilkynntu í gær að loka ætti ræðismanns-
skrifstofu Ungveijalands í héraði við landamæri ríkjanna, og gáfu starfsmönnum hennar tveggja
daga frest til að hverfa úr landi.
Svíþjóð:
Þing’ið fjallar ekki
um einkarannsókn-
ina á morði Palme
Stokkhólmi, frá Claes von Hofsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
LEYNILEGA rannsóknin á morð-
inu á Olof Palme, fyrrum forsætis-
ráðherra, sem varð til þess að
Anna-Greta Leijon, dómsmálaráð-
herra Svíþjóðar, sagði af sér £
byijun þessa mánuðar, er talin
vera mesta hneykslismál innan
sænska réttarkerfisins £ áratugi.
Leijon varð uppvis að því að hafa
falið einkaaðila að rannsaka
morðið á Palme. Jafnaðarmenn
hafa hafnað þeirri tillögu að
stjórnarskrárnefnd þingsins fjalli
um málið.
Leiðtogi Hægriflokksins, Carl
Bildt, hefur gefið harðorðar yfírlýs-
ingar um málið á flokksfundi hægri-
manna. Talið er að Palme-rannsókn-
in geti orðið mesta hitamál kosninga-
baráttunnar í september.
„Sænska réttarkerfið riðar til falls
vegna þessa máls. Dómsmálaráð-
herrann varð að segja af sér og hátt-
settir embættismenn hafa orðið að
víkja vegna þess að sannast hefur á
þá að þeir hafi tekið þátt í að bijóta
lög og reglugerðir og stutt aðgerðir
sem eru brot á sænsku stjómar-
skránni," segir Bildt.
Frá því uppvíst varð um einkar-
annsóknina á morðinu á Palme, hef-
ur verið deilt um það á Þjóðþinginu
hvort stjómarskrámefnd sænska
þingsins eigi að fjalla um málið. Jafn-
aðarmenn og kommúnistar greiddu
atkvæði gegn því. Mun rannsókn á
vegum þingsins því ekki fara fram
fyrr en eftir kosningamar í septemb-
er.
Stjómarandstöðuflokkamir, sem
gagnrýnt hafa málsmeðferðina, eign-
uðust á dögunum óvæntan banda-
mann úr röðum stjómarsinna þegar
lögfræðingur úr Jafnaðarmanna-
flokknum gekk af þingfundi eftir að
hafa gagnrýnt meðferð þessa máls.
Sagði hann flokksbræður sína hafa
tekið hagsmuni flokksins fram yfir
þjóðarhagsmuni og að brýn nauðsyn
væri að málið yrði rannsakað.