Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988 Sprenging á hús- næðismarkaði? eftirAsmund Stefánsson Það er einkum þrennt sem gef- ur okkur upplýsingar um það hvort þensla er á húsnæðismarkaðinum. í fyrsta lagi íbúðaverð, en Fasteignamat ríkisins safnar upp- lýsingum um sðluverð íbúða á hveijum tíma. í öðru lagi útborgunarhlutfall. Fasteignamat ríkisins saftiár einn- ig upplýsingum um hlutfall út- borgunar af söluverði íbúða. I þriðja lagi fjárfestingar í íbúðarhúsnæði, sem Þjóðhags- stofnun safnar upplýsingum um á hverju ári. Hafí orðið sprenging í verðlagi kemur það óhjákvæmilega fram á þessum þáttum öllum, íbúðaverði, útborgunarhlutfalli og íbúðabygg- ingum. Þegar breytingamar eru metnar er hins vegar óhjákvæmi- legt að hafa í huga að lánveitingar Húsnæðisstofnunar eru alls ekki það eina sem veldur breytingum á húsnæðismarkaðinum. Flest bend- ir til þess að sveiflur í tekjum al- mennings ráði mestu um sveiflur á húsnæðismarkaði. Satt að segja virðist sem uppsveiflan síðustu misserin eigi frekar rætur að rekja til vaxandi kaupmáttar en hækk- unar á húsnæðislánum. Um þetta ætla ég að tjalla hér á eftir. íbúðaverðið Það er rétt að íbúðaverð hefur hækkað á síðustu misserum. Þar sem þessi hækkun verður á sama tíma og nýtt húsnæðislánakerfí er tekið upp er eðlilegt að menn tengi þetta tvennt saman og dragi þá ályktun að nýja kerfíð hafí sprengt upp allt verðlag á íbúðamarkaðin- um. Því má hins vegar ekki gleyma að þegar nýja lánakerfínu var komið á var íbúðaverð í mikilli lægð í kjölfar kjaraskérðingarinn- ar 1983. Jafnframt er ljóst að tekjuaukning síðustu tveggja ára hefði örugglega leitt til hækkunar íbúðaverðs þó engin breyting hefði orðið á lánakerfínu. Allar tölumar sýna reyndar að þótt kaupmáttur atvinnutekna launþega hafí á síðastliðnu ári verið hærri en hann var árin 1981 og 1982 hafði sölu- verð íbúða ekki náð því sem var á þeim tíma eins og mynd 1. sýnir. Misgengi í verði vegna kerf isins Því er víða haldið fram að nýja húsnæðiskerfíð hafí leitt til mis- gengis á húsnæðisverði. Kerfíð hafí sprengt upp verð á stórum íbúðum en litlar ekki hækkað í sama mæli. Rökin em þá væntan- lega þau að þeir sem em að kaupa í fyrsta sinn og fá forgang í kerf- inu geti nú keypt stærra en áður og sæki í stórar íbúðir. Þeir sem eigi stóm íbúðimar em aftar í biðröðinni og geti því ekki látið þær af hendi. Ef við skoðum verðbreytingar kemur hins vegar í ljós að verð- hlutföll stórra og lítilla íbúða vom árið 1987 mjög svipuð og tímabil- ið 1980—1982. Með kjaraskerð- ingunni 1983 breytast hlutföllin þannig að 1—2 herbergja íbúðir hækka umfram 4 herbergja íbúð- ir. í reyndinni gerðist það þannig að íbúðaverð hækkaði minna en nam almennum verðhækkunum hvort sem mælt er á mælikvarða Sérblöð ALAUGARDOGUM iSS"- A uglýsingar íLesbók með ferðabiaði þurfa aðhafa borist auglýsingadeild fyrir kl. 16.00 á föstudögum, vikufyrir birtingu ogímenningarblaðið fyrir kl. 16.00 á miðvikudögum. e,w$rj0tsttM$&Í& v — hlaá allra lanH Qmcmriú Ársfjórðungslegar breytingar söluverðs eins til tveggja og fjögurra herbergja ibúða i fjölb.húsum í Reykjavík frá 1. ársfj. 1980 tíl 4. ársfj. 1984 miðað við lánskjaravísitölu. Ásmundur Stefánsson „Niðurstaðan er í stuttu máli að verð íbúða og fjárfesting í íbúðum hafi ekki aukist í sam- ræmi við vaxandi tekjur eftir samdráttarskeið. Útborgunarhlutfall hefur hækkað eins og búast mátti við.“ byggingarvísitölu eða lánskjara- vísitölu. Að raunvirði féllu íbúðir því í verði. Litlu íbúðimar féllu minna en þær stóm sem ekki kem- ur á óvart. Allir þurfa þak yfír höfuðið og í erfíðu árferði verða fleiri að láta sér lítið nægja. Þegar tekjur jukust aftur gengu verð- hlutfollin aftur í sama horf og áður með því að stóm íbúðimar sem höfðu dregist aftur úr náðu sama hlutfalli og áður var. Það er augljóslega ekki um að ræða misgengi vegna kerfísins. Útborgnnarhlutfallið Það er rétt að útborgun hefur einnig hækkað síðustu misserin. Útborgun í fjögurra herbergja íbúðum hefur raunar náð því að verða örlítið hærri en á II. árs- fjórðungi ársins 1983 eins og fram kemur á mynd 2. Enn verðum við að hafa í huga að sveiflur í tekjum hafa auðvitað áhrif á útborgun í íbúðum og eins á sjálft íbúðaverð- ið. Fjárfesting í íbúðarhúsnæði Ef við skoðum mynd 3 sem sýn- ir samhengi tekjubreytinga og Qárfestinga við íbúðabyggingar Ársfjórðungslegar breytingar útborgunar í eins til tveggja og fjög- urra herbergja ibúðum í fjölbýlishúsum í Reykjavík frá 1. ársfjórð- ungi 1980 til 4. ársfjórðungs 1984 miðað við lánskjaravísitölu Samtök um jafnrétti milli landshluta: Landsfundur hald- ínn að Hallormsstað UM næstu helgi verður lands- fundur Samtaka um jafnrétti milli landhluta haldinn á Eddu- hótelinu að Hallormsstað, og er fundurinn opinn öllu áhugafólki um byggðamál. Ræðumenn á fundinum verða þau Jóhanna Sigurðardóttir félags- málarðherra, Kristín Halldórsdóttir alþingismaður og Björn Hafþór Guðmundsson formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Að ræðum loknum verða umræður. Starfshópar munu þinga og skila áliti, og verða umræður þar að lút- andi og afgreiðsla mála. Kvöldvaka verður á laugardags- kvöldinu og þar mun Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi mennta- málaráðherra mæta með frásagn- argáfuna. Auk þess verður farið í skógarferð undir leiðsögn Jóns Loftssonar skógarvarðar á Hall- ormsstað ef veður leyfir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.