Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
*>
— f
HNEFALEIKAR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Mike Tyson gerði útaf við
Michael Spinks á 91 sekúndu
Tysonfékk 900 milljónir fyrir sigurinn og segist vera hættur
ÞAÐ tók Mike Tyson ná-
kvæmlega 91 sekúndu að
gera gjörsamlega útaf við
Michael Spinks í hnefaleika-
hringnum í fyrrinótt. Á þess-
um stutta tíma tókst Tyson
að berja Spinks tvisvar sinn-
um í gólfið. í fyrra skiptið
náði Tyson góðu vinstri hand-
ar höggi á háls Spinks, sem
steinlá. Hann staulaðist þó
skjálfandi á fætur og reyndi
alit hvað hann gat að verjast
en ekkert stoðaði því högg
Tysons skullu á honum ótt
og títt, bæði frá vinstri og
hægri, á skrokk og höfuð, og
áður en lotan var liðin lá
Spinks aftur á gólfinu stein-
rotaður. Er þetta fjórða stysta
hnefaleikakeppni sem fram
hefur farið um heimsmeist-
aratitilinn í þungavigt.
Aður en keppni þeirra Tysons
og Spinks fór fram hafði
hvorugur þeirra nokkru sinni tap-
að í hringnum, og var búist við
að þetta yrði mesti hnefaleikavið-
burður allra tíma. Var það mál
manna, að þessi viðureign, yrði
keppnin um það hvor stíllinn væri
betri; hinn einkennilegi stíll
Spinks eða stíll Tysons, sem mest
einkennist af brjáiæðislegri árás-
arhneigð. Það kom líka á daginn
að Tyson gaf Spinks engin grið,
frekar en fyrri andstæðingum, og
Spinks fékk ekkert tækifæri til
að sýna hvað í sér byggi.
Æfði í átta vikur til að gera
þetta svona létt
„Ég sá það strax eftir að ég hafði
barið hann á hálsinn, að ég myndi
vinna, en það að sigra gekk ekki
áreynslulaust fyrir sig því ég
þurfti að æfa mig í 8 vikur til
þess að gera þetta svona létt,“
sagði Tyson, sem eftir keppnina
varð rúmlega 900 milljónum
króna ríkari.
Tyson stendur nú ekki ógn af
neinum hnefaleikara í þungavigt
því hann hefur lagt alla þá helstu
af velli með lítilli fyrirhöfti, og það
gæti orðið bið á að hann fínni sér
verðugan andstæðing.
Reuter
Dómarinn, Rocky Casteilanl, visar Mike Tyson út í hom eftir að
hann hafði slegið Michael Spinks öðru sinni niður í 1. lotu.
til hans, reyndi ég að notfæra
mér það, en allt kom fyrir ekki.
Þess í stað gaf ég honum færi á
mér,“ sagði Spinks, og kvað Ty-
son hafa verið mun betri í þessari
viðureign.
„Ég tek ofan fyrir honum. Það
verður erfítt að fínna einhvem
sem á möguleika gegn honum í
hringum. Við ætluðum okkur hins
vegar að fá úr því skorið hvor
væri betri, og það tókst, auk þess
sem áhorfendur fengu nokkuð
Ég tek ofan fyrlr Tyson
Pyrirfram var búist við að Spinks
gæti veitt þessum lágvaxna 21
árs gamla harðjaxli talsverða
keppni. Hann átti að vera fær um
að dansa í kringum Tyson, rugla
hann í ríminu og leika á hann
með öllum mögulegum ráðum.
„Ég kom bara til að gera það sem
ætlast var til af mér, en það var
að beijast," sagði Spinks við
fréttamenn eftir útreiðina í fyrri-
nótt. „Ég reyndi að hreyfa mig
eins mikið og ég gat, og þegar
mér sýndist ég hafa færi á að ná
fyrir sinn snúð. Það sem ég ætla
að gera núna er að taka mig sam-
an í andlitinu og búa mig undir
að mæta Tyson aftur í hringn-
um,“ sagði Spinks.
Tyson gaf hins vegar út þá yfirlýs-
ingu eftir keppnina að hann væri
hættur að beijast, en mátulega
mikið mark var tekið á honum,
þar sem hann sagði einnig að það
að beijast hefði hann í blóðinu,
og um það skal enginn efast.
Reuter
Það efast englnn lengur um
hæfíleika Mike Tysons í hringnuih.
Hnefaleikasamböndin þijú; WBC,
WBA og IBF viðurkenna hann nú
öll sem heimsmeistara, eins og fjöldi
skrautbeltanna gefur til kynna.
Olympi'uhlaup
5 og 10 km
Laugardaginn 2. júlí í Reykjavík og á Akureyri
Hlaupið hefst kl. 11.00 á túninu við sundlaugina í Laugardalnum
í Reykjavík og kl. 14.00 á Ráöhústorginu á Akureyri.
Eyðublöð til skráningar fyrir hlaupið liggja frammi á sundstöðum
á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Fyrir fólk utan af landi er
hægt að láta skrá sig í síma 91-685525.
Verðlaun verða minnispeningar Ólympíunefndar Islands, einnig
verður dregið úr 7 pörum af Nike- skóm í Reykjavík og 3 pörum
á Akureyri, síðan fá allir stuttermabol fyrir hlaupið.
Skráningargjaldd er 200 kr. fyrir fullorðna og 100 kr. fyrir 16 ára
og yngri.
Frjálsiþróttasamband íslands Ólympiunefnd íslands
íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur
FRJALSAR IÞROTTIR
Landsliðið utan til keppni
LANGSTÆRSTI landsliðshóp-
ur sem FRÍ hefur nokkru sinni
sent til keppni innan lands sem
utan, varvalinn ígær. Landslið-
ið mun taka þátt í landskeppni
í Edinborg laugardaginn 9. júlí
og etja þar kappi við Skota og
íra.
Landskeppnin í Edinborg er
mjög veigamikil og verður þar
keppt í öllum landsliðsgreinum
nema 10.000 langhlaupi. Þrátt fyr-
ir fjölda keppnisgreina tekur mótið
aðeins einn dag.
Islenska liðið sem heldur utan
fímmtudaginn 7. júlí er skipað okk-
ar sterkusta fijálsíþróttafólki.
Landsliðið skipa eftirtaldir:
Karlar:
100 m hlaup: Jón A. Magnússon, Jóhann
Jóhannsson
200 m hlaup: Gunnar Guðmundsson, Jóhann
Jóhannsson
400 m hlaup: Oddur Sigurðsson, Guðmundur
Sigurðsson
800 m hlaup: Guðmundur Sigurðsson, Hannes
Hrafnkelsson
1500 m hlaup: Steinn Jóhannsson, Bessi Jó-
hannesson
5000 m hlaup: Már Hermannsson, Frímann
Hreinsson
3000 m hindrunarhlaup: Daníel Guðmunds-
son, Jóhann Ingibergsson
110 m grindahlaup: Þorvaldur Þórsson,
Hjörtur Gíslason
400 m grindahlaup: Egill Eiðsson, Hjörtur
Gíslason
4x100 m boðhlaup: Jón A. Magnússon, Jó-
hann Jóhannsson, Þorvaldur Þórsson, Einar
Þ. Einarsson
4x400 m hoðhlaup: Oddur Sigurðsson, Egill
Eiðsson, Gunnar Guðmundsson, Hjörtur Gísla-
son, Guðmundur Sigurðsson
Langstökk: Jón A. Magnússon, Ólafur Guð-
mundsson
Þristökk: Ólafur Þórarinsson, Unnar Vil-
hjálmsson
Hástökk: Gunnlaugur Grettisson, Unnar Vil-
hjálmsson
Stangarstökk: Sigurður T. Sigurðsson, Kristj-
án Gissurarson
Kúluvarp: Pétur Guðmundsson, Eggert Boga-
son
Kringlukast: Vésteinn Hafsteinsson, Eggert
Bogason
Spjótkast: Sigurður Einarsson, Einar Vil-
hjálmsson, Unnar Garðarsson
Sleggjukast: Guðmundur Karlsson, Jón A.
Siguijónsson
Konur:
100 m hlaup: Súsanna Helgadóttir, Svan-
hildur Kristjónsdóttir
200 m hlaup: Svanhildur Kristjónsdóttir, Guð-
rún Amardóttir
400 m hlaup: Oddný Ámadóttir, Unnur Stef-
ánsdóttir
800 m hlaup: Unnur Stefánsdóttir, Rakel
Gylfadóttir, FVíða Rún Þórðardóttir
1500 m hiaup: Fríða Rún Þórðardóttir, Rakei
Gylfadóttir
3000 m hlaup: Martha Emstdóttir, Margrét
Brynjólfsdóttir
100 m grindahlaup: Helga Halldórsdóttir,
Þórdís Gísladóttir
400 m grindahlaup: Helga Halldórsdóttir,
Ingibjörg ívarsdóttir
4x100 m boðhlaup: Helga Halldórsdóttir,
Svanhildur Kristjónsdóttir, Guðrún Amardótt-
ir, Súsanna Helgadóttir
4x400 m boðhlaup: Heiga Halidórsdóttir,
Oddný Ámadóttir, Svanhildur Kristjónsdóttir,
Ingibjörg ívarsdóttir, Guðrún Amardóttir
Langstökk: Súsanna Helgadóttir, Bryndís
Hólm
Hástökk: Þórdís Gísiadóttir, Björg Össurar-
dóttir
Kúluvarp: Guðbjörg Gylfadóttir, íris Grön-
feldt
Kringlukast: Margrét Óskarsdóttir, Guðbjörg
Gylfadóttir
Spjótkast: íris Grönfeldt, Birgitta Guðjóns-
dóttir