Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 40
Hvemig líst þér á
að bera út skó?
SJÖTTA og jafnframt síðasta
blaðberahátíð Morgunblaðsins
var haldin á Egilsstöðum á
sunnudag í sól og hita. 40 blað-
berar og tæplega 20 umboðs-
menn víðs vegar af Austurlandi,
allt frá Seyðisfirði til Hafnar í
Homafirði, mættu í Hótel Vala-
skjálf þar þeir þáðu veitingar
og horfðu á skemmtiatriði og
myndbönd.
Upp úr hádegi fóru blaðberamir
að streyma að, flestir í stuttbuxum
og bol enda hitinn um 25 stig í
forsælu. Öllum hópnum voru af-
hentar peysur með merki Morgun-
blaðsins og blaðberamir myndaðir
í bak og fyrir utandyra áður en
sest var að borðum. Voru þeir
þeirri stund fegnastir er þeir kom-
ust inn úr hitanum og gátu gætt
sér á hamborgurum og frönskum
og íspinnum í eftirrétt.
Lilja Leifsdóttir innheimtustjóri
Morgunblaðsins setti hátíðina og
bauð gesti velkomna. í ávarpi
hennar kom fram að blaðberahátíð-
imar em haldnar í tilefni af 75 ára
afmæli Morgunblaðsins sem er á
þessu ári og til þess að efla sam-
band blaðsins við blaðbera og um-
boðsmenn á landsbyggðinni. Síðan
var sýnt myndband um starfsemi
Morgunblaðsins og blaðberum boð-
ið í skoðunarferð um prentsmiðjuna
við tækifæri.
Ómar Ragnarsson tók þá við og
brást hann ekki áhorfendum sínum,
frekar en fyrri daginn; söng og
sagði brandara, hermdi eftir bílum
og húsdýrum og hljóp út um allan
sal. í mestu látunum flaug annar
skórinn inn í miðjan áhorfendahóp-
inn og þegar einn blaðberanna
færði honum skóinn með æfðum
handtökum, spurði Ómar hann
hvemig honum litist á að bera út
skó? „Ágætlega," svaraði stráksi
og áfram hélt skemmtunin.
Að henni lokinni stjómaði Ómar
spumingakeppni fyrir blaðberana,
ásamt starfsfólki blaðsins, og voru
vegleg verðlaun í boði. Á meðan
funduðu umboðsmennimir með
Lilju innheimtustjóra og Jóhönnu
Viborg verkstjóra í afgreiðslu.
Þá vom blaðberar og umboðs-
menn kvaddir og hver hópur hélt
til síns heima að lokinni síðustu
blaðberahátíðinni. Alls sóttu um
400 manns blaðberahátíðir Morg-
unblaðsins sem vom sex talsins.
Yfímmsjón með þeim hefur haft
Hanna Björg Þrastardóttir starfs-
maður afgreiðslu.
Ómar Ragnarsson sýnir austfirskum blaðberum hvernig trítilóðar
hænur láta.
■.« :
.
* *
-V '
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
Blaðberarnir tóku hraustlega
til matar síns og 40 hamborgar-
ar með frönskum hurfu eins
og dögg fyrir sólu.
Allur blaðbera- og umboðsmannahópurinn samankominn í sól og hita á Egilsstöðum á sunnudag.
Morgunblaðið/Sverrir
Mamma hjálpar
okkur að gera upp
„Ég keypti mér afruglara fyr-
ir launin sem ég fékk fyrir blað-
burðin en ég á eftir að borga
hluta af honum." sagði Sigurður
Halli Jónsson 8 ára, sem ásamt
systkinum sínum ber út Morgun-
blaðið í Neskaupstað. Þar eru 7
blaðberar, sem jafnframt eru
umboðsmenn, hver fyrir sitt
hverfi. Aðspurð sögðust krakk-
arnir, sem eru á aldrinum 5-14
ára, njóta aðstoðar foreldra, og
þá yfirleitt mömmu, við upp-
gjörið.
Þau Þórstína, María, Unnur,
Anna, Sesselja, Sigurður og Ólafur
sögðu blaðaútburð vera vel borgað-
an og fannst þeim yngri hann
skemmtileg vinna en eldri krakk-
amir sögðu hann ágætan. Erfiðast
þótti þeim að bera út þegar blaðið
væri mjög þykkt en sögðu kaup-
endur taka þeim vel þegar þeir
væru rukkaðir.
Frá Höfn í Homafírði kom vask-
ur 8 manna hópur sem svaf í tjöld-
um á Egilsstöðum nóttina fyrir
skemmtunina. „Það var alveg frá-
bært,“ sögðu þeir Stefán Rósar
Esjarsson og Vigfús Þórarinn Ás-
bjömsson. Mest þótti þeim varið í
að sjá Ómar skemmta og ekki
spillti fyrir að Stefán hélt á glænýju
vasadiskói sem hann hafði unnið í
spumingakeppninni. Þeir vom því
harla ánægðir með blaðberahátí-
ðina, þar sem þeir hefðu kynnst
krökkum víða að og skemmt sér
vel þennan sunnudagseftirmiðdag.
Morgunblaðið/Sverrir
Blaðberarnir í Neskaupsstað eru einnig umboðsmenn fyrir sín hverfi en njóta þó aðstoð-
ar foreldra. F.v.: María Dögg Línberg, Anna Jónsdóttir, Unnur Asa Wilson og Sesselja
Jónsdóttir. Fyrir framan þær standa Sigurður Halli Jónsson og Þórstína Hrönn Sigurðar-
dóttir. En á innfelldu myndinni eru Stefán Rósar Esjarsson og Vigfús Þórarinn Ásbjörns-
son frá Hornafirði kampakátir í lok blaðberahátíðarinnar á Egilsstöðum. Enda báru þeir
úr býtum Morgunblaðspeysur og merki auk þess sem Stefán hélt heim með nýtt vasadiskó
í farteskinu.