Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988 41 Hollustuvernd ríkisins: Flúoríðmengun frá álver- inu hefur ekki minnkað Hér fara á eftir athugasemdir Mengunarvarna Hollustuvemdar ríkisins við frétt í Morgunblaðinu um mengun frá álverinu í Straumsvík, sem birtist í blaðinu í síðustu viku. „Islenska álverið starfar skv. lög- um frá árinu 1966 ásamt síðari breytingum. í lögum þessum eru nánast engin ákvæði um mengunar- vamir. Þó segir í grein 12.02. „ÍSAL mun gera allar eðlilegar ráð- stafanir til að hafa hemil á og draga úr skaðlegum áhrifum af rekstri bræðslunnar í samræmi við góðar venjur í iðnaði í öðrum löndum við svipuð skilyrði." Þegar lögin um álverið voru samþykkt árið 1966 voru engin íslensk lög eða reglu- gerðir til um atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun. Árið 1981 tóku gildi lög nr. 50 um hollustuhætti og heilbrigðiseft- irlit. Með þeim lögum voru Mengun- arvarnir Hollustuvemdar ríkisins settar á laggimar og ótvíræður lagagrundvöllur fékkst fyrir reglu- gerð nr. 390, um starfsmengun. Samkvæmt reglugerð nr. 390/1985, grein 1.1, er álfram- leiðsla starfsleyfisskyld starfsemi. Það er skoðun Hollustuvemdar ríkisins og heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins, að með þessum breytta lagagrunni beri ál- verinu í Straumsvík fortakslaust að sækja um starfsleyfi. Hollustuvemd ríkisins er ekki kunnugt um nokk- urt dæmi þess að álverksmiðja sé undanþegin opinberu mengunar- eftirliti, jafnvel þótt slíkt eftirlit hafi verið byggt upp eða því breytt eftir að starfræksla fyrirtækisins hófs. Útblástursmælingar við álverið í Straumsvík, sem framkvæmdar voru sumarið 1986, fóru fram að kröfu heilbrigðisyfirvalda. Mæling- amar vom gerðar samkvæmt áætl- un, sem samin var, samþykkt og unnin sameiginlega af ISAL og Hollustuvemd ríkisins. Var það samstarf með ágætum að mati allra hlutaðeigendi aðila. Samkvæmt fullyrðingu Einars Guðmundssonar, tæknilegs fram- kvæmdastjóra álversins, hefur dregið mjög úr flúorðíðmengun í útblásturslofti frá þurrhreinsistöðv- Félag pípulagn- ingameist- ara60ára FÉLAG pipulagningameistara hélt upp á 60 ára afmæli sitt 20. mai sl., en félagið var stofnað 19. mai 1928. Til að minnast þessa merka áfanga stóð félagið fyrir hófi í Skip- holti 70. Mikill fjöldi gesta heiðraði félagið með komu sinni og bárust félaginu margar góðar gjafir og heillaóskir í tilefni dagsins. Þetta er merkur áfangi í sögu félags sem ávallt hefur staðið í fremstu röð í uppbyggingu góðrar verkmenntunar í byggingariðnaði í þessu landi og átt dugmikla menn í forsvari sem tekið hafa þátt í mótun hinna ýmsu hagsmuna og félagslegu samtaka í byggingariðn- aðinum. Núverandi stjóm félagsins er þannig skipuð: Formaður: Stefán Jónsson. Vara- formaður: Sigurður L. Einarsson. Ritari: Gísli Sigurðsson. Gjaldkeri: Davíð Atli Oddsson. Meðstjórnandi: Gísli Benediktsson. (Fréttatilkynningf) unum frá því að mælingar fóm fram su'marið 1986. Fram komu að nú fara vikulega fram eftirlitsmæling- ar í þurrhreinsunarstöðvum álvers- ins. Hollustuvernd ríkisins fagnar því að eftirlit með þurrhreinsunarstöðv- um hefur verið bætt, en rangt er að flúorðímengun hafi minnkað. I skýrslu álversins dagsettri 4. maí síðastliðinn, er meðaltal úr nið- urstöðum flúormælinga fyrir 1. árs- fjórðung 1988 heldur hærra en fram kom í skýrslu Hollustuvemdar ríkisins þ.e. 0,8 kg á hvert tonn af áli. Ef hinsvegar má marka tölulegar upplýsingar, sem hafðar em eftir Einari í fréttinni, er um verulega aukningu á flúorðímengun að ræða frá þurrheinsistöðvunum. Samkvæmt mælingum 1986, fór mun, meiri flúoríðmengun út um þakviftur kerskálanna en frá þurr- hreinsistöðvunum. Rekstur í ker- LU Við ætluðum bara að minna þig á ljúffenga PRINCE súkkulaðikexið. IEGGERT KRISTJÁNSSON H/F SÍMI 6-85-300 skálunum hefur síðan verið með þeim hætti, m.a. vegna gallaðra rafskauta, að ástæða er til að ætla að mengun frá þakviftum kerskál- anna hafí aukist. Engar mælingar hafa hinsvegar farið fram á því síðan árið 1986. Að lokum skal tekið fram, að þáttur álversins í þeirri brenni- steinsdíoxíðmengun, sem upprunn- in er hér á landi, er alls ekki óveru- legur eins og haft er eftir Einari í fréttinni, heldur um það bil 25% af heildinni skv. þeim upplýsingum sem Hollustuvernd ríkisins hefur aflað. Óþarfi ætti að vera að minna á skaðleg áhrif brennisteinsdíoxíð- mengunar í allri þeirri umræðu, sem átt hefur sér stað undanfarin ár um súmun regns, skógardauða o.fl. Mikil áhersla er nú lögð á það á alþjóðlegum vettvangi að draga úr mengun andrúmsloftsins af völdum brennisteinsdíoxíðs. Morgunblaðið/Bjarni Hús Steinullarverksmiðjunnar við Lækjargötu i Hafnarfirði sem væntanlega hverfa á næstunni. Haf narfj ör ður: Lækjargata breytir um svip VIÐ Lækjargötu i Hafnarfirði er fyrirhugað að reisa 23ja íbúða blokk með áföstu skrifstofuhús- næði og verslunar- og atvinnuað- stöðu á neðstu hæð, sem snýr að Lækjargötu. Að sögn Jóhannesar Kjarval skipulagsstjóra Hafnar- fjarðar, verður væntanleg bygg- ing kynnt bæjarbúum á næst- unni, þar sem nýting lóðarinnar verður mun meiri en samþykkt skipulag gerir ráð fyrir. Skipulagsstjóm Hafnarfjarðar hefur samþykkt hærri nýtingu og um leið stærri byggingu á lóðinni en aðrar nefndir bæjarins eiga eftir að fjalla um þá samþykkt. Fyrir- huguð bygging er 3.700 fermetrar eða 1.500 fermetrum stærri en gild- andi skipulag gerir ráð fyrir. „Lækj- arsvæði er viðkvæmt og þess vegna verður væntanleg breyting kynnt vel eins og lög gera ráð fyrir áður en til framkvæmda kemur,“ sagði Jóhannes. „Þetta er ákaflega skemmtilegur staður. Bæjarbúar hafa lengi haft hús Steinullarverk- smiðjunnar fyrir augum og verða væntanlega fegnir þegar þau hverfa.“ Úrval l.flokks notaðra bíla í okkar eigu. Allir skoðaðirog yfirfarnir. Sýnishorn úr söluskrá: MAZDA 323 1.3 Árg. ’85. Brúnn. Ek. 39 þ/km. MAZDA 323 1.3 Árg. '82. Grœnn. Ek. 60 þ/km. MAZDA 323 1.3 Árg. ’83. Vínrauöur. Ek. 54 þ/km. MAZDA 323 1.3 Árg. ’82. Brúnsans. Ek. 91 þ/km. MAZDA 323 1.B Arg. ’84. Vfnrauflur. Ek. 67 þ/km. MAZDA 323 1.3 Arg. ’83. Gullsans. Ek. 71 þ/km. HOIUDA ACCORD Arg. '82. Brúnsans. Ek. 101 þ/km. MAZDA 929 LTD Árg. ’8A. Hvítur. Ek. 63 þ/km. MAZDA 820 2.0 QLX Árg. ’86. Hvftur. Ek. 48 þ/km. MAZDA 828 2.0 LX Árg. ’84. Brúnsans. Ek. 48 þ/km. MAZDA 828 HARDTOP Arg. ’83. Laxableikur. Ek. 67 þ/km. VOLVO 380 Arg. ’86. Grér. Ek. 41 þ/km. TOYOTA COROLLA Árg. 88. Hvftur. Nýr. óekinn. Munið okkar hagstæðu verð og greiðslukjör! MMC COLT TURBO Árg. '84. Grór. Ek. 47 þ/km. FORD E8CORT Arg. '86. Beigo. Ek. 27 þ/km. FIAT UNO 4B Arg. ’85. Brúnn. Ek. 26 þ/km. LADA 1200 Árg. ’87. Rauflur. Ek. 14 þ/km. 8UBARU E-IO 4X4 Árg. '87. Blér. Ek. 57 þ/km. NISSAN PULSAR Árg. ’86. Hvftur. Ek. 32 þ/km. MAZDA 323 Árg. ’81. Graensans. Ek. 76 þ/km. BMW 7201 Árg. ’85. grór. Ek. 70 þ/km. LAINICIA SKUTLA Árg. ’86. Brúnn. Ek. 34 þ/km. MAZDA 323 1.3 Árg. ’84. Blór. Ek. 63 þ/km. MAZDA 323 1.S OLX STATION Arg. ’87. Hvítur. Ek. 8 þ/km. MAZDA 323 TURBO Árg. ’87. Hvftur. Ek. 12 þ/km. Fjöldi annarra bíla á staðnum. Opiö laugardaga MAZDA 323 1,3 LX Árg. ’87. Ðlósans. Ek. 18 þ/km. FORD FIESTA Árg. ’84. Blógrór. Ek. 57 þ/km. Árg. '83. Grór. Ek. 74 þ/km. LANCIA PRISMA Árg. ’86. Grór. Ek. 34 þ/km. LANCIA THEMA Árg. ’87. Blór. Ek. 14 þ/km. MAZDA 628 Arg. ’84. Hvftur. Ek. 72 þ/km. BILABORG H.F. FOSSHÁLS11 ,SÍMI 68 12 99 Áskriftiirsimimi er 83033 s||fy p ¥ Metsölublað á hvetjum degi! 03 CT Á •V)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.