Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 23
' 'MORGUNBtAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29!UÚNÍ'1Ö88 Góðar horfur í hafbeit: Tvö þúsund laxar eru komnir í Vogalaxstöðina NÝLEGA hóf Vogalax í Vogum á Vatnsleysuströnd að taka upp hafbeitarlax sem sleppt var í sjó á síðast liðnu vori. Utlit er fyrir að endurheimtur á þessum laxi muni fara fram úr björtustu von- um fyrirtækisins, þó full snemmt sé að slá því strax föstu, að sögn Vilhjálms Guðmundssonar fram- kvæmdastjóra. Alls var sleppt 400 þúsund seið- um í hafbeit frá Vogalaxi í fyrra og voru það tífalt fleiri seiði en árið áður. í sumar verður hins veg- ar sleppt um einni milljón seiða og er áætlað að rúmlega 2,6 milljónum laxaseiða verði sleppt í hafbeit frá Vogalaxi á næsta ári, að sögn Vilhjálms. Vogalax hefur stundað laxeldi með hafbeit síðan 1982 og hefur fyrst og fremst verið um tilrauna- rekstur að ræða hingað til. „Sá laxagangur sem skilar sér nú í sum- ar er fyrsti stóri gangurinn sem beitt er í sjó frá Vogalaxi og því er það fyrst nú sem hægt verður að svara þeirri spumingu hvort hafbeitin ber sigfjárhaglega," sagði Vilhjálmur. Ekki er útlit fyrir annað, því þegar á fyrstu dögunum hafa skilað sér nærri 2000 laxar. Það er mun meira en Vogarlaxmenn bjuggust við svo snemma, enda skilar mestur hluti laxanna sér í júlímánuði. Það þykja góðar endurheimtur að fá um 10% seiða til baka, en á síðasta ári skilaði sér 15% eldisseið- anna hjá Vogalaxi sem er óvenju- lega gott hlutfall. „Við gerum okk- ur ánægða með að fá um 10% seiða til baka í ár. Eftir fyrstu dögunum að dæma bendir margt til þess að við verðum yfir þessu takmarki," sagði Vilhjálmur. Hátt verð fæst fyrir hafbeitarlax í Evrópu um þessar mundir, enda er hann flokkaður sem villtur lax. Áætlað er að slátra rúmlega 100 tonnum af laxi hjá Vogalaxi í sum- ar en um 70 tonn verða seld fryst til Evrópu, aðalega til Sviss. Vogalax hefur unnið mikið að staðbundnum rannsóknum á haf- beitarlaxi. Kannað hefur verið hve mörgum seiðum má sleppa, fæði utan við ströndina rannsakað og heppileg stærð seiða. Þessar rann- sóknir hafa meðal annars verið gerðar í samvinnu við Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði, þar sem unnið er nú að ýmiss konar tilraunum á hafbeitarlaxi. Við Laxeldisstöð ríkisins er áætl- að að taka upp 15 til 20 þúsund laxa í sumar og eru þá gert ráð fyrir 10% endurheimtum. Að sögn Vigfúsar Jóhannssonar fiskifræð- ings hafa endurheimtur aukist um einn hundraðshluta á hveiju ári að undanfömu. Laxeldisstöðin í Koliafirði er fyrst og fremst tilraunastöð þar sem unnið er að því að auka hag- kvæmni hafbeitar, að sögn Vigfús- ar. Er það einkum gert með tvenn- um hætti. Annars vegar með því að finna heppilega seiðastærð til þess að sleppa í sjó og hins vegar með vali og kynbótum á laxastofn- um. Norræna ráðherranefndin ákvað fyrir nokkrum árum að á íslandi yrði miðstöð kynbóta á hafbeitislaxi á Norðurlöndum. Var nýlega tekið í notkun 200 kera hús í Kollafírði þar sem þessar kynbætur fara fram á þremur íslenskum laxastofnum. Með kynbótarannsóknunum er vonast til að sjá hvaða stofn stend- ur sig best og hvemig velja má bestu fjölskylduna innan þess stofns. Á þann hátt verður reynt að fá stærri lax og um leið finna þá fjölskyldu sem skilar sér best til baka. í vor var 220 þúsund seiðum sleppt í hafbeit frá Laxeldisstöðinni í Kollafirði. Seiðin em flutt úr köldu vatni í sleppitjamir í byijun maí og þau fara svo út á sjó fyrstu vikur júnímánaðar. í ár hafa þau þó ver- ið heldur sein á ferðinni vegna þess hve sjór hefur verið kaldur það sem af er sumri. Fyrsti laxinn var tekinn upp í byijun júní við Laxeldisstöðina í Kollafírði, en að sögn Vigfúsar kemur nánast allur fiskur inn í júlí. Fyrstu laxamir sem berast em yfír- leitt teknir í klak en um 14 til 15 þúsund fiskum verður slátrað og þeir settir á sölu. Pólarlax í Straumsvík hefur stundað hafbeitarlaxeldi í nokkur ár. Þar er nú verið að gera lón klárt fyrir hafbeitaseiðin þar sem þau em sjóvanin áður en þeim er sleppt. Eftir 10 til 14 daga er svo gert ráð Morgunblaðið/Ámi Sæberg Starfsmaður hjá Pólarlaxi i Straumsvík hugar að laxaseiðum sem - sleppt verður í hafið á næstu dögum. Morgunblaðið/Sverrir Hafbeitarlaxinn hefur skilað sér vel það sem af er sumri hjá Voga- laxi. Hér stinga starfsmenn stöðvarinnar spriklandi laxi í tankbíl sem fyrirtækið keypti nýlega til flutninga á honum. fyrir að seiðunum verði sleppt að taka upp lax en það verk mun frjálsum út í sjó. Ekki er enn farið væntanlega heflast á næstu dögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.