Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 39
Akranes- kaupstaður gefur út vandaða árs- skýrslu Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa sent frá sér ársskýrslu fyrir árið 1987, er hún vönduð og g-efur glögga mynd af rekstri og ann- arri starfsemi bæjarfélagsins. Þetta er annað árið í röð sem slík ársskýrsla er gefin út. í formála skýrslunnar sem Gísli Gíslason bæj- arstjóri ritar segir hann að skýrslan sé samantekt á því sem stofnanir bæjarins hafi unnið að hver á sínu sviði. í ýmsum málaflokkum hefur vel til tekist og bæjarfélaginu miðað áfram í þeirri viðleitni að móta góðan bæ með blómlegu samfélagi. A öðr- um sviðum hefur minna miðað áfram og erum við í þeim verkefnum minnt á að eitt er viljinn til að vinna verk- in, en annað fjárhagsleg geta. í skýrslunni er skrá yfír helstu embættismenn bæjarins og sömuleið- is skrá yfir þá er skipa ráð og nefnd- ir innan bæjarfélagsins.Þá er grein- argott yfirlit yfir starfsemi bæjarins og einnig er ársreikningur bæjarins með skýringum og yfirlit yfir árs- reikning einstakra stofnana svo sem rafveitu, vatnsveitu, hafnarsjóðs og Sjúkrahúss Akraness. í skýrslunni eru margar myndir úr bæjarlífínu sem gefa skýrslunni skemmtilegt yfirbragð. Yfirumsjón með útgáfu skýrslunnar hafði Jón Pálmi Pálsson bæjarritari. —JG TANNHJÓLA- DÆLUR Gæði og ending meginþorra þjóóarinnar daglega! Auglýsinga- síminn er224 80 8861 ÍkQH, .es HUOACnraiVaiM .OIÖAJaMUDHOM MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988 ÍS$ Enn án dóms og laga Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Án dóms og laga („Street Justice"). Sýnd í Regnbogan- um. Bandarísk. Leikstjórn: Richard Sarafian. Handrit: James J. Docherty. Framleiðendur: Mic- hael A. Masciarelli og David Witz. Helstu hlutverk: Michael Ontkean, Joanna Kerns, WUl- iam Windom, Chatherine Bach og J.D. Cannon. Curt Flynn (Michael Ontkean) er fúlskeggjaður og mæddur CLA-maður sem sloppið hefur frá Sovétríkjunum eftir 12 ára fanga- vist en lendir aftur í fangelsi í Bandaríkjunum vegna þess að CLA vill ekki að hann kjafti frá einhverri leyniaðgerðinni. Aftur sleppur hann með því að búa til sprengju í fangaklefanum sfnum! (sjálfsagt úr skítugum sokkum). En svo fáum við það staðfest: Fyrrum yfirmaður hans í leyni- þjónustunni segir að hann geti búið til sprengju úr engu og drep- ið hratt og hljóðlega marga hans Úr myndinni Án dóms og laga. menn án þess að þeir geti svo mikið semsagt „Best að koma sér“. Þannig er hetjan kynnt í mynd- inni Án dóms og laga („Street Justice"), sem sýnd er í Regn- boganum (Án dóms og laga er greinilega mjög vinsælt heiti á B-myndum hér, Stjömubíó sýndi eina verri en þessa um daginn með sama nafni). Hetjuna leikur lítt þekktur leikari að nafni Mic- hael Ontkean og fer létt með hina útjöskuðu, þöglu einfaratýpu sem hefur allt heimsins réttlæti á bak við sig en er dæmdur til að þjást að eilífu, illa rakaður og verr fat- aður. Leikstjórinn, Richard Sarafian, hefur ekki unnið nein stórvirki á ferli sínum en er talsvert laginn fagmaður sem sýnir sig best í fyrri hluta myndarinnar þegar hetjan er að flýja og snúa aftur á heimaslóðir og vondir CIA-menn leggja á ráðin um að drepa hann. Margur hefði getað gert verr sérstaklega með þetta burðarlitla handrit úr að moða. Það byggir á þremur hliðarsögum án þess að gefa neinni þeirra forgang svo úr verður frekar samhengislaus blanda af dáðlausu CIA-samsæri, hasarkenndri baráttu nokkurra borgara við ríka og spillta fjöl- skyldu sem stjómar heimabæ hetjunnar með ofbeldi og loks angurværri heimkomu hetjunnar til konunnar sinnar sem hefur gift sig aftur og stendur, ásamt 1 nýja manninum sínum, í stappi við téða fjölskyldu. Áður en maður veit af er allt orðið fullt af lélegum aukaleikur- um og grátklökkum andartökum á nærliggjandi sjúkrahúsi og víðar þegar dóttir hetjunnar og fyrrum eiginkonunnar liggur nær dauða en lífi af völdum vondu fjölskyld- unnar (eitt af því sem handritið svarar aldrei er hvemig Qölskyld- an, sem samanstendur af aldraðri móður, syni hennar og mellunni hans, tengist borgarmálum yfir- leitt). Myndbandamarkaðurinn verð- ur fljótlega enn einni B-myndinni ríkari. Heimkoman „Tiger Warsaw“. Sýnd í Stjömubíói. Bandarisk. Leikstjóm: Amin Q. Chaudri. Handrit: Roy Lon- don. Framleiðandi: Amin Q. Chaudri. Kvikmyndataka: Rob- ert Draper. Tónlist: Ernest Trost. Helstu hlutverk: Patrick Swayze, Piper Laurie, Lee Ric- hardson og Mary McDonnell. Hvemig bregst fjölskyldan við þegár glataði sonurinn, sem lagði líf föður síns í rúst og eyðilagði giftingu systur sinnar, snýr aftur eftir 15 ár? Illa. Systirin sér um að honum er bannaður aðgangur að ijölskyldunni, pabbinn ætlar að skjóta hann, Gene frændi ræð- ur pönkara til að beija hann. Úff, það er erfítt að vera glataði sonur- inn í dag. Hér einu sinni var sauði slátrað og veisla haldin sneri maður aftur. En ekki í „Tiger Warsaw", sem sýnd er í Stjömubíói. Það er fýrsta myndin sem hingað berst með Patrick Swayze í aðalhlutverkinu eftir að hann sló í gegn í „Dirty Dancing" og svo virðist sem Swa- yze sé strax orðinn fastur í hlut- verki hins misskilda svarta sauðs er samfélagið hafnar en tekur í sátt um síðir. Hann leikur Tiger Warsaw sem lifað hefur í sukki og svínaríi í 15 ár frá því hann hljóp að heiman eftir að hafa lagt líf hinnar pólskættuðu Qölskyldu sinnar í rúst. Nú leitar hann fyrir- gefningar en mætir engu nema andúð og hatri. Nema hjá móður sinni, sem hin ágæta Piper Laurie leikur af Swayze í „Tiger Warsaw' hjartnæmum myndarskap. Þar finnur hann hæli og huggun og einnig hjá gamalli kæmstu sem hann hyggst byija nýtt líf með. Allir aðrir viija hann burtu og þar kemur að hánn bugast. „Tiger Warsaw" er tilfinninga- hlaðið flölskyldudrama í dmnga- legu umhverfi bandarísks smá- bæjar. Það besta við myndina ásamt dapurlegri tónlist Emests Trosts er leikur tiltölulega lítt' þekktra leikara sem kveikja líf f frekar gloppóttu en snaggaralegu handriti Roys Londons. Leikstjóm Amins Q. Chaudris einkennist öðm fremur af ofstjóm; leikaram- ir fá varla að draga andann án þess að bresta í grát eða fallast í faðma útaf fortíðardraugnum. Tilfinningasemin verður yfirdrifin og táraflóðið óstöðvandi. Svoleiðis er vænlegra að fara með án þess að maður taki eftir því sérstaklega en hér gengur allt útá tárvot augu. V IWannei Spray ftrBíid&W msr ímgerjl ‘hleru! saubcí stfenlos klaí Froðuhreinsar fyrir gler og hreinlætistæki. Skýnandi gljái ... Engir taumar - engin ský. Einkaumboð Gæði á lágmarks verði Anöb*itteri<+ Ný sending af þýskum fatnaði JOSS \ LAUGAVEGI 101 SÍMI17419
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.