Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDÁGUR 29. JÚNÍ1988 OP 31 Sauðárkrókur: Skátar á vinabæja- mót í Danmörku Sauðárkrókur FÉLAGAR í Skátafélaginu Eilífsbúar á Sauðárkróki eru í þann mund að leggja af stað í vinabæjarheimsókn til Kege í Danmörku. Þar er nú haldið veg- legt skátamót í tilefni af 700 ára afmæli Kage, og munu þar hitt- ast nokkur hundruð skátar frá öllum Norðurlöndunum. Þijátíu og fimm skátar frá Skátafélaginu Eilífsbúar leggja af stað þriðjudaginn 28. júní, en morg- uninn eftir mun hópurinn fljúga út. Þijá fyrstu dagana gista skátamir á einkaheimilum í Koge, en mótið sjálft hefst 2. júlí og stendur til 9. júlí. Þeir skátar sem þátt taka í þessari ferð hafa undirbúið hana allt frá síðastliðnu hausti og hafa unnið ötullega að söfnun farareyris. Hafa þeir víða komið við og lagt gjörva hönd á margt, sem gefið hefur þeim nokkuð í ferðasjóð. Meðal þess sem þeir hafa tekið að sér, er að hreinsa götur og opin svæði í bænum, þegar ástæða hefur þótt til, svo sem eftir helgar, og hafa þeir þá oft sést að störfum nokkru fyrir dagrenningu. Þá hefur verið bakað og haldnir kökubasar- ar, búnir til bolluvendir og seldir fyrir bolludag, haldin bamabingó og einnig hafa þessir skátar tekið að sér að sjá um fána hjá fyrirtækj- um á opinberum fánadögum. Þá hafa foreldrarnir stutt vel við bakið á ferðalöngunum, meðal annars steikt kleinur og annað góðgæti sem skátarnir hafa svo gengið með í hús og selt. En síðast en ekki síst gengu skátamir á fjöll og söfnuðu áheitum frá fyrirtækjum, félögum og einstaklingum. Var gengið á Leiðrétting Tvær villur slæddust inn í grein Bjöms S. Stefánssonar í blaðinu í gær. Næst fyrsta setning greinar- innar á að heijast þannig: „Er því haldið fram, að of mikið fé og vinnu- afl verði lagt í fiskveiðar," o.s.frv. — Þá á að standa efst í 2. dálki: „Ekki er víst að menn vildu treysta því að fé sem fengist á slíku opin- beru útboði yrði skilað beint til sjáv- arútvegsins, heldur vildu eins búast við því,“ o.s.frv. Blaðið biðst velvirðingar á þess- um mistökum. Veðráttan lækkar verð á tómötum Á GRÆNMETISUPPBOÐI Sölufélags garðyrkjumanna á mánudagsmorgun var gildandi lágmarksverð lækkað um 50 kr., úr 110 kr. í 60. Á uppboðinu seld- ust 12,8 tonn af tómötum, sem er metsala og rúmlega þrefalt meira en seldist á næsta uppboði á undan, síðastliðinn fimmtudag. Meðalverðið var 71,80 kr. á mánudag en fór niður undir lág- marksverðið í gær eða 63,94 kr., en þá seldust tæp 10 tonn. Að sögn Hrafns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Sölufélagsins, var verðið lækkað þar sem salan hefur verið í nokkurri lægð undan- farið vegna veðursins. Þegar veður er gott er sala á grænmeti og ávöxt- um meiri en dregst saman þegar hið gagnstæða er uppi á teningnum. Eins og kunnugt er féll verðið á tómötum niður í rúmar 40 kr. fyrir nokkru, þegar tilraun var gerð á einu uppboði með að hafa ekkert lágmarksverð. Það var síðan ákveð- ið 110 kr. og hefur meðalverðið ekki farið mikið upp fyrir það. Framleiðendur telja sig hins veg- ar þurfa talsvert hærra verð. Hrafn sagði að ef verðið héldist jafn lágt það sem eftir væri sumars og þyrfti jafnvel stundum að lækka lág- marksverðið eins og í gær og fyrra- dag þá gæti farið illa fyrir mörgum framleiðendum. Hann bætti því þó við að menn gæfu sér ekki þær forsendur og reiknuðu með hærra verði þegar líða tæki á sumarið. Innlend framleiðsla á tómötum nær að svara eftirspurn frá því í byijun maí og fram yfir miðjan október, þegar innflutningur tekur við. Egilsstaðir: Steinþór sýnir málverk Egilsstöðum. EINN helsti myndlistarmaður okkar Héraðsbúða, Steinþór Eiríksson, opnaði málverkasýn- ingu í RARIK-salnum á Egils- stöðum fyrir siðustu helgi. Steinþor sýnir þama 28 lands- lagsmyndir og eru myndimar allar til sölu. Steinþór, sem er afkasta- mikill málari, hefur haldið ijölmarg- ar einkasýningar hér á Austurlandi og víðar auk þess sem hann hefur tekið þátt í mörgum samsýningum. Einnig vinnur Steinþór mikið eftir pöntunum, verk sem ætluð em til tækifærisgjafa. Sýning Steinþórs er opin til kl. 22 á kvöldin og stend- ur fram á fimmtudagskvöld. - Björn Steinþór Eiriksson við verk sín sem hann sýnir nú í Rarik-salnum á Egilsstöðum. Merki íslenska hópsins. þijú fjöll: Tindastól, Gvendarskál og Tröllabungu og söfnuðust all vemlegar fjárhæðir vegna góðra undirtekta þeirra sem til var leitað með áheitin. Þá styrkir Sauðár- króksbær skátana til fararinnar. Einn félagi Eilífsbúa hefur hannað sérstakt mótsmerki íslenska hóps- ins út frá afmælismerki Koge, sem „Súrmjólk í hádeginu" i fjallgöngu. allir félagar hópsins munu bera. Félagsforingi Eilífsbúa er Inga H. Andreassen, og verður hún far- arstóri ásamt Amheiði Njálsdóttur, Pétri Helgasyni og Matthíasi Vikt- orssyni. 4. umferð Norðurlandamótsins í brids: Norðmenn teknir í bakaríið í seinni hálfleik _________Brids_______________ Guðmundur Sv. Hermannsson Áhorfendumir í sýningarsalnum á Hótel Loftleiðum skemmtu sér konunglega á mánudagskvöldið meðan islenska bridslandsliðið tók það norska hreinlega í bakaríið í seinni hálfleik 4. umferðar Norður- landamótsins í brids. íslendingamir, sem vom 18 stigum undir í hálfleik, mættu ákveðnir ( seinni hálfleikinn, og eftir aðeins þijú spil höfðu þeir jafnað metin og komist yfir, og leik- urinn vannst síðan 21—9. Eftirþetta virðist ljóst að baráttan um Norður- landameistaratitilinn stendur milli Dana, íslendinga og Svía. Jón, Valur, Karl og Sævar spiluðu fyrri hálfleikinn gegn Norðmönnum og vom ekki sérlega farsælir. Jon þræddi þó heim 4 spaða doblaða á meðan Sævar og Karl fengu 500 í 5 spöðum dobluðum við hitt borðið og ísland fékk 15 stig fyrir spilið. Mikið meiri varð inntektin ekki og staðan í hálfleik 39—21 fyrir Norð- menn. Harald Nordby og Kare Ivar Wang fóm útaf og Jón og Valur einnig. Sigurður og Þorlákur settust gegn Bentzen og Rasmussen en Karl og Sævar gegn Grötheim og Tundal. Strax í fyrsta spili fóm Sævar og Karl í punktalitla slemmu sem Norðmenn slepptu, siðan fengu þeir að spila 2 lauf dobluð sem unn- ust meðan Sigurður og Þorlákur spiluðu 4 spaða og unnu sex og í fimmta spili fengu Norðmennimir stærsta áfallið í leiknum: Norður ♦ DG872 ¥ÁD43 ♦ 9852 4 — Vestur Austur ♦ ÁK6 4 — ¥8752 llllll ¥G96 ♦ --- ♦ G10743 4KD10632 4 Á9754 Suður 4109543 ¥ K10 ♦ ÁKD6 4G8 í opna salnum sátu Sigurður og Þorlákur NS og Bentzen og Ras- mussen AV: Vestur Norður Austur Suður — pass pass 1 spaði 2 lauf 4 lauf 5 lauf dobl pass 5 spaðar pass pass dobl pass pass pass Þorlákur doblaði 5 lauf til að sýna lágmarksopnun og engan áhuga á framhaldi en Sigurður tók eðlilega út í 5 spaða, Bentzen stóðst ekki freistinguna og doblaði með ÁK í trompi en það urðu einu sla- gimir hans og ísland fékk 850. Við hitt borðið sátu Sævar og Karl AV og Tundal og Grötheim NS: Vestur Norður Austur Suður --- pass pass 1 spaði 2 lauf 4 lauf 5 lauf 5 spaðar pass pass 6 lauf dobl. Það er merkilegt að bera saman spilamat Þorláks og Grötheims í suður annars vegar, og Karls og Bentzens í vestur hinsvegar. Ákvarðanir íslendinganna reyndust betri í þetta skiptið því Sævar í austur fómaði í 6 lauf, sem hefði gefíð vel þótt norður hefði fundið rétta útspilið, þ.e. hjarta. Hann spil- aði hinsvegar út spaðadrottningu, og Karl þakkaði fyrir sig með því að renna heim 12 slögum. 1090 til íslands og 18 impa gróði. Eftir þetta var aldrei spuming um hvoru megin sigurinn lenti og hálfleikurinn endaði 68—13 fyrir ísland og leikurinn vannst eins og áður sagði 21—9. Það var merkilegt að fyrr um daginn töpuðu Norðmenn seinni hálfleiknum gegn Dönum 68—14 eftir að hafa verið 21 stigi yfír, og þá fóru Nordby og Wang einnig útaf í seinni hálfleik svo norski fyrirliðinn verður greinilega að fara að endurskoða uppstillin- gamar sínar. Svíar unnu Finna örugglega 20—10 í 4. umferðinni og virðast vera að sækja sig eftir rólega byij- un, Dönum var um og ó þegar Færeyingum tókst að halda jöfnu gegn þeim í fyrri hálfleik en í þeim seinni stóð ekki steinn yfír teini og Danir unnu leikinn 22—8. íslenska kvennaliðið var 21 stigi yfír í hálfleik gegn dönsku konun- um, en Danirnir náðu að jafna leik- inn í seinni hálfleiknum. íslensku konumar hafa nú væntanlega náð úr sér sviðsskrekknum og því má búast við að þær velgi hinum liðun- um undir uggum í seinni hluta móts- ins. Dönsku konurnar leiða enn kvennaflokkinn en Svíar og Norð- menn beijast um annað sætið. Staðan í opnum flokki eftir 4 umferðir var þessi: Danmörk 86 ísland 75 Svíþjóð 68 Noregur 54 Finnland 43 Færeyjar 30 í kvennaflokki var staðan þessi: Danmörk 74 Sviþjóð 64 Noregur 62 ísland 37 Flugmenn lögðu fram hugmyndir „Á samráðsfundinum, sem flugmenn óskuðu eftir, lýstu þeir hugmyndum sínum og kröfum," sagði Steinn Logi Björnsson, for- stöðumaður upplýsingadeildar Flugleiða er Morgunblaðið spurði hann um fund yfirmanna Flugleiða og flugmanna í gær. Steinn sagði að ekki væri hægt að kalla þetta samningafund, þar sem bráðabirgðalög ríkisstjómar- innar bindu hendur aðila fram í apríl á næsta ári, en samkvæmt þeim eru allir kjarasamningar fram- lengdir til þess tíma. Hann sagði að ekkert væri ákveðið með fram- hald málsins. Menn væru að velta fyrir sér þeim hugmyndum sem flugmenn hefðu lagt á borðið, og að líkindum yrði boðað til annars fundar þegar þær hefðu verið at- hugaðar. INNLENT 3 líefðsp lagjð Peysur Buxur Skyrtur Sokkar Hosur Regnfatnaður Gúmmístígvél Stil-ullarnærföt Hanes-bolir Gasluktir Gashitarar Gashellur Grill Grilikol (dönsk) SENDUM UM ALLT LAND Grandagarðl 2. sfml 28855. 101 Rvlk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.