Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MTOVnCUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
sr
hám
FOLK
■ AZUMAH Nelsoa boxari frá
Ghana varðveitti heimsmeistaratitil
sinn í fjaðurvigt, þegar hann keppti
við bandaríska áskorandann Lupe
Suarez Aætluð keppni var 12 lot-
ur, en Nelson rotaði Suarez í 9
lotu, eftir aðeins 27 sekúndur. Þetta
var í fyrsta sinn sem Nelson varði
titilinn.
■ Á suanudag fóru fram undan-
úrslit í knattspymumóti sem haidið
er í Seoul. Úrslit urðu þau að Tékk-
ar sigruðu Suður Kóreu 4:3 eftir
vítaspymukeppni. Staðan eftir
venjulegan leiktíma og framleng-
ingu var 0:0. Þá vann ólympíulið
Sovétríkjanna 1:0 sigur á Nígeríu.
Staðan í leikhléi ar 1:0. Markið
skoraði Sergei Puchkov.
■ OPNA ESSO-mótið í goifi fer
fram í Grafarholti hjá GR S dag,
miðvikudag. Bakhjarl mótsins og
gefandi verðlauna er Olíufélagið hf.
Leikin verður 18 holu punktakeppni
með forgjöf. Ræst verður allan dag-
inn út í mótið. Skráning og pantan-
ir á rástímum fer fram í síma 82815
og 84735.
■ ÍBÚAR Lausanne f Sviss
felldu tillögu borgarstjómarinnar
þess efnis að vetrarólympíuleik-
arnir 1994 færu fram þar í borg.
Um 60% íbúanna voru á móti þess-
ari hugmynd en það er mál manna
í borginni að svona stórt og fjöl-
mennt mót yrði til þess að skemma
sérstakan heildarsvip hennar. Þær
borgir sem nú bítast um að fá
vetrarólympíuleikana eru Anc-
horage í Alaska, Öestersund í
Svíþjóð, Sofia f Búlgaríu og Lille-
hammer í Noregi. Ákvörðun um
hvar leikamir fara fram verða tekn-
ir 15. september í Seoul.
■ StfömuIeikmaðurinnMiche\
Gonzales hjá Real Madrid hlaut á
dögunum 9 leikja bann í Evrópu-
keppni félagsliða vegna framkomu
sinnar við dómara í undanúrslitaleik
gegn PSV Eindhoven. Real
Madrid hefur ákveðið að áfrýja
þessum dómi, því hann verður þess
valdandi að Gonzales mun ekki
geta tekið þátt neinum leik í næstu
Evrópukeppni, að þvi tilskyldu
að liðið komist alla leið í úrslitin.
Spænsku blöðin hafa gert mikið
veður út af þessu, því þeim fínnst
þetta vera allt of strangur dómur.
KNATTSPYRNA / HUSAVIK
Völsungar búnir að
reka þjálfarann
Arnar Guðlaugsson ráðinn í hans stað
VÖLSUNGAR ráku þjálfara
meistaraf lokks í knattspymu,
Sigurð Halldórsson, í gœr-
morgun og hafa ráðið Arnar
Guðlaugsson i hans stað.
Arangurinn hjá okkur hefur
verið ákaflega slakur það
sem af er þessu keppnistímabili.
Það þarf ekki annað en að Ifta á
stigatöfluna til að sannreyna það,
og það að reka Sigurð er bara
einn liðurinn í því að stokka upp
spilin," sagði Ingólfur Freysson,
formaður félagsins, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Óhætt er að taka undir þau orð
því liðið hefur einungis hlotið eitt
stig í þeim 7 leikjum sem liðið
hefur leikið í íslandsmótinu, og
fékkst það stig í jafnteflisleik á
heimavelli gegn Þór frá Akureyri.
„Við tókum þessa ákvörðun eftir
töluverða umhugsun og ég held
að hún sé flestum auðskiljanleg,"
sagði Ingólfur. „Við erum í buli-
andi fallhættu og þurfum að rífa
liðið upp eigi okkur að takast að
halda liðinu f deildinni. Það að
leysa Sigurð frá störfum er bara
eitt af mörgu sem við töidum að
þyrfti að gera til að bæta árangur
liðsins," sagði Ingólfur.
Amar Guðlaugsson stjómaði sinni
fyrstu æfíngu með liðið í gær-
kveidi og fyrsti leikur Völsunga
undir hans stjóm verður í kvöld
gegn Víkingum. Er það mjög mik-
ilvægur leikur fyrir bæði liðin,
sem bæði verma botninn um þess-
ar mundir. Næsti ieikur Völsunga
verður svo gegn Leiftri á Ólafs-
fírði og verður þar áreiðanlega
um hörkubaráttu að ræða.
Völsungar hafa ekki haft ástasðu tii að fagna sigri það sem af er keppn-
istimabilinu. í kvöld leika þeir við Víkinga undir stjóm Amars Guðlaugssonar.
KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILD
Bandarískur þjálfari
til Tindastóls
TINDASTÓLL, sem vann sér
rétt til að leika í úrvalsdeild
íslandsmótsins í körf uknattleik
á síðasta vetri, hefur ákveðið
að ráða Bandaríkjamanninn,
Daniel Dunnie, sem þjálfara
liðsins nœsta vetur.
Við höfum náð munnlegu sam-
komulagi við Dunnie um að
hann þjálfí liðið næsta vetur. Hann
kemur til landsins 12. júlí og ég
reikna með að hann skrifi þá und-
ir,“ sagði Friðrik Jónsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Tinastóls, í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Dunnie var aðstoðarþjálfari hjá
háskólaliðinu New York Brockprot
á síðasta keppnistimabili. Hann er
28 ára og hefíir fengist við þjálfun
síðustu fímm árin.
„Við bindum miklar vonir við
Dunnie og leikmenn hafa þann
metnað sem þar til að standa sig.
Við setjum okkur það markmið að
halda okkur í deildinni og helst að
sleppa við fallbaráttu. Við verðum
með sama mannskap og í fyrra og
Kári Marísson, sem þjálfaði liðið f
fyrra, leikur með liðinu f vetur,“
sagði Friðrik.
KNATTSPYRNA
Guðmundur
æfir með
austurrísku
meisturunum
Spilar æfingaleik á sunnudaginn
GUÐMUNDUR Torfason,
landsliðsmiðherji íknatt-
spyrnu, er nú í Austurríki og
æfir þar meö austurrísku
meisturunum Rapíd Vfn.
Guðmundur fór utan á sunnu-
daginn og hefur æft með
Rapíd Vín sem hefur tryggt sér
forkaupsrétt á honum frá belgíska
liðinu Winterslag fram að mánað-
armótum. Guðmundur verður í
Vínarborg alla vega fram yfír
næstu helgi og leikur æfíngaleik
með liðinu á sunnudaginn.
Eins og áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu fór Guðmundur til
viðræðna við forráðamenn Rapfd
Vín í byijun júní. Nú eru austur-
ríkismenn að undirbúa sig fyrir
næsta keppnistfmabil og vilja
skoða Guðmund og hugsanlega
bjóða honum samning.
Fleiri félög eru á höttunum eftir
Guðmundi, þ.á.m. gríska 1. deild-
arliðið Panionios, og svissnesk
félagslið.
Rapíd Vín hefur verið eitt besta
félaglið Austurríkis og vann með-
al bæði og deildarmeistaratitilinn
og bikarinn á sfðata keppnistfma-
bili.
Símamynd/AP
Guðmundur Torfason sést hér á æfingu með Rapfd Vfn f Austurríki í
gær.
I kvöld
íslandsmótið l.deild
Fram-Leiftur....Laugardalsvelli
KA-ÍA............Akureyrarvelli ’
V ölsungur-V fkingur.Húsavíkurv.
Bikarkeppni KSÍ
Selfoss-Árvakur
ReynirS-ÞrótturR
Tindastóll-Magni
ÞrótturN-Einheiji
1. deild kvenna
ÍA-ÍBK..............Akranesvelli
V alur-KR..............V alsvelli
Allir leikimir hefjast kl. 20.00.
BIKARINN
FHáfram
eftir fram-
lengingu
FH sigraði lið Grindvíkinga 2-1
á Kapplakrikavelli í gærkveldi
eftirframlengdan leik.
Leikurinn var varla byijaður
þegar staðan var orðin 1-0,
Grindvíkingum í hag, og leit lengi
vel út fyrir að FH-ingum tækist
ekki að jafna. Jöfnunarmarkið kom
svo í seinni hálfleik, og þannig var
staðan þegar veirjulegum leiktfma
lauk. í framlengingunni tókst svæ**
Herði Magnússyni að skora sigur-
markið fyrir FH.
HANDBOLTI
Birgir til
Víkings
Birgir Sigurðsson, línumaðurinn
snjalli úr Fram, hefur gengið
til liðs við Víkinga. Birgir er í
fslenska landsliðshópnum sem æfir
nú að kappi fyrir Ólympíuleikana í
Seoul.
Það er mikill strykur fyrir Víkinga
að fá Birgi sem var mjög atkvæða-
mikill með Fram á sfðasta keppi?
istímabili.