Morgunblaðið - 29.06.1988, Qupperneq 2
2
MORGÚNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAÓUR 29. JÚNÍ 1988
VÉLFRYST
SKAUTASVELL
Húsdýragarður
Grasagarðurinn
kf.u.m.
■Gervigrasvöllur
rdalshöll
gjiVlMÍ
Lóð Tónlistarhúss
Húshitunartaxtar RARIK
munu hækka um 13-15%
Magni ogBlikuson
Magni Kjartansson bóndi í Árpcrði í Eyjafirði varð landskunnur
þegar hann hjúkraði Snældu-Blesa sinum sem lengst þegar hann
fótbrotnaði um árið. En hann Magni er magnaður í hrossarækt-
inni. Hann bregður á leik með nýlega fæddan son Bliku sem er
systir Snældu-Blesa. Blika var hæst dæmda kynbótahryssan á
landinu í fyrra. Ekki ætti faðernið að spilla fyrir, því að folaldið
er undan þeim fræga Otri frá Sauðárkróki. Er ekki nema von
að Magni sé kátur á svipinn því hér er fæddur einn stærstætt-
aði gripur seinni tíma.
Ríkisstjórnin frestar afgreiðslu
hækkunarbeiðni Pósts og síma
Á rikisstjórnarfundi í gær-
morgun voru teknar fyrir beiðn-
ir opinberra fyrirtækja um
hækkun á gjaldskrám. Samþykkt
var að veita heimild til 8% hækk-
unar á gjaldskrá Rafmagns-
veitna rikisins er beðið höfðu um
11,5% hækkun. Að sögn Þor-
steins Pálssonar, forsætisráð-
herra, kom ríkisstjórn saman um
að gera ekki athugasemdir við
8% gjaldskrárhækkun Lands-
virkjunar sem gengur í gildi
næstkomandi föstudag. Gjald-
skrár dreifiveitna hækka yfir-
leitt um 5-8%.
Ákveðið var á ríkisstjómarfund-
inum að fresta beiðni Pósts og síma
um 25-30% hækkun gjaldskrár. Var
samgönguráðherra, sjávarútvegs-
ráðherra og fjármálaráðherra falið
að kanna nánar þörf stofnunarinnar
fyrir hækkun og munu þeir gera
tillögur í þá átt.
Gjaldskrárhækkun Rafmagns-
veitna ríkisins um 8% leiðir til
13-15% hækkunar á verði raforku
til húshitunar að sögn Eiríks ISriem, -
deildarstjóra hjá RARIK. Ástæða
þessa er að niðurgreiðslur á rafhita
og svonefndur afsláttur Landsvirkj-
unar vegna rafhitasölu til heimila
em óbreyttar, hafa ekki aukist í
samræmi við hækkun heildsölu-
verðs Landsvirkjunar.
Stærstu dreifiveitur utan RARIK
em í Reykjavík, Hafnarfirði, Suður-
nesjum, Akureyri og Vestfjörðum.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum
í gær að hækka gjaldskrá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur um 5% frá
og með 1. júlí næstkomandi. Raf-
orkuverð hækkar um 6% frá mán-
aðamótum hjá Rafveitu Hafnar-
fjarðar að sögn rafveitustjóra, Jón-
asar Guðlaugssonar.
Finnbogi Bjömsson, stjómar-
formaður Hitaveitu Suðumesja,
sagði að rafmagn þaðan hækki í
verði um 5-7% í kjölfar hækkunar
Landsvirkjunar og hitunarverð
hækki jafn mikið 1. júlí vegna al-
mennrar dýrtíðar.
Að sögn Svanbjöms Sigurðsson-
ar, hitaveitustjóra á Akureyri,
hækkar gjaldskrá um 8% frá og
með föstudeginum. Kristján Har-
aldsson, orkubússtjóri á Vestfjörð-
um, sagði að ákvörðun um verð-
hækkun raforku yrði tekin á fundi
stjómar í dag og miðaðist líklega
við hækkun RARIK. Hann sagði
óveijandi hve lítinn aðlögunartíma
Landsvirkjun gæfí dreifiveitum,
með því að tilkynna um hækkun
heiidsöluverðs á raforku örfáum
dögum áður en hún skellur á.
í Laugardal er fyrirhugað að koma upp vélfrystu skautasvelli og húsdýragarði.
Vélfryst skautasvell í Laugardal
Áætlaður kostn-
aður er 45 millj-
ónir króna
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð
Reykjavíkurborgar hefur sam-
þykkt tillögu fulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins um að byggja vélfryst
skautasvell í Laugardal. Svellið
verður 62x32 metrar að stærð
og er heildarkostnaður áætlaður
um 45 milljónir króna.
Júiíus Hafstein formaður íþrótta-
og tómstundaráðs, sagði að stærð
svellsins gerði meðal annars ráð
fyrir að þar mætti leika ísknattleik.
„Umhverfís svellið verða 2,5 metra
háar jarðvegsmanir, þar sem gróð-
ursett verða barrtré," sagði Júlíus.
„Það er gert til að skapa allt að
fjögurra metra háan skjólvegg
umhverfis svellið en ein forsendan
fyrir vélfrystu útisvelli er sæmilegt
skjól." í þeim áætlunum sem liggja
fyrir er gert ráð fyrir litlu húsi við
svellið svipað því sem er við gervi-
grasvöilinn. Þá er gert ráð fyrir
bifreiðastæði austan við svellið og
á það einnig að þjóna fyrirhuguðum
húsdýragarði, sem ráðgert er að
verði enn austar og nær Grasagarð-
inum í Laugardal.
„Verði af þessari framkvæmd,
sem við vonum að verði samþykkt
við gerð næstu flárhagsáætlunar,
þá verður byijað á svellinu á næsta
ári og það væntanlega tekið í notk-
un upp úr áramótum 1990,“ sagði
Júlíus.
Bandaríkjadalur hefur hækkað um 5% frá gengisfellingu:
Helmingur hækkunarinnar
skilar sér til frystingarinnar
- segir Friðrik Pálsson hjá SH
GENGI Bandaríkjadals hefur
hækkað um tæp fimm prósent
gagnvart krónunni síðan gengi
hennar var fellt um miðjan maí.
Friðrik Pálsson, forstjóri SH,
segir að þessi hækkun skili sér
í um 2,5% verðhækkun til fryst-
ingarinnar. Hækkun hefur haft
áhrif til lækkunar á verðbólgu
innanlands, ef eitthvað er, að
sögn Þórðar Friðjónssonar, for-
stjóra Þjóðhagsstofnunar.
Við síðustu gengisfellingu þann
16. maí var kaupgengi dalsins skráð
á 43,16 krónur. I gær var dalurinn
hins vegar skráður á 45,31 krónu,
eftir að hafa lækkað lítillega í verði
í kjölfar ráðstafana seðlabanka
annarra helstu iðnríkja í fyrradag.
Hækkunin á þessu timabili nemur
því um 4,98 prósentum.
Að sögn Þórðar Friðjónssonar,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar, hefur
þessi hækkun komið að góðu þeim
íslensku fyrirtækjum sem selja vör-
ur sínar fyrir dali, svo sem þeim
sem selja fiystar fiskafurðir til
Bandaríkjanna. Hins vegar verði
jafnframt að hafa í huga þá lækkun
sem orðið hefur á frystum fiskaf-
urðum í Bandaríkjunum sem vegur
þann hagnað upp.
Friðrik Pálsson, forstjóri Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna,
sagði að búast mætti við að um
helmingur hækkunar dalsins skilaði
sér I hærra verði til frystingarinn-
ar. Samkvæmt því hækkar afurða-
verðið um 2,5%. „Heildaráhrifín af
hækkun dalsins eru okkur augljós-
lega í hag,“ sagði Friðrik. „Maður
veit auðvitað ekkert hvaða fram-
hald verður á þessu, það eru sveifl-
ur bæði upp og niður," sagði Frið-
rik.
Þórður Friðjónsson taldi heldur
ekki hyggilegt að slá því föstu að
styrkleiki dalsins muni haldast. Hin
góða staða hans nú stafar einkum
af hagstæðum vöruskiptajöfnuði
Bandarílg'anna að undanfömu og
bjartsýni sem ríkti í kjölfar fundar
• ....
■jsJí*
<2
Morgunblaðið/ GÓI: Stuðst er við teilcníngu Teilcnístofu Reynis Vilhjálmssoriar fra apríl 1986.
leiðtoga helstu iðnríkja heims. Þó
kvað Þórður að sér sýndist sem
breytingar yrðu ekki miklar á næst-
unni, að minnsta kosti fram í miðj-
an júlí er fréttir af vöruskiptajöfn-
uði Bandaríkjanna í maímánuði fara
að birtast.
Að sögn Þórðar meta Norðmenn
nú stöðu sína þannig að þeim beri
að draga úr þorskafla. Ef þorskur
minnkaði á mörkuðum í kjölfar
þessa er hugsanlegt að það styrkti
mjög stöðu Islendinga.
Verðbólguáhrif þau sem hækkun
dalsins hefur innanlands kvað Þórð-
ur vera lítilvæg í landi þar sem
verðbreýtingar væru upp á 3 til 5
prósent á mánuði, eins og hér á
landi að undanfömu Þau áhrif væru
þó frekar til lækkunar, þar sem
Islendingar kaupa mest inn frá
Evrópu og innflutningsverð ræðst
af evrópskum gjaldmiðlum.
Mosfellsheiði:
Bílbelti
komu í veg
fyrir stórslys
FÓLKSBIFREIÐ, sem var á
leið frá Þingvöllum til
Reykjavíkur, fór út af vegin-
um hjá Svanavatni á Mos-
feUsheiði um hádegi í gær.
Þrír menn voru i bílnum og
sluppu þeir svo tíl ómeiddir,
en bíIUnn er talinn gjörónýt-
ur.
Mennimir voru allir í bflbelt-
um og er talið fullvíst að beltin
hafí komið í veg fyrir stórslys.
Ovíst um lánveitingn
til fóðurstöðvanna
ÞORSTEINN Pálsson forsætis-
ráðherra gerði á ríkisstjómar-
Þörungaverksmiðjan:
Samning-
ar tókust
Miðhúsum, Reykhólasveit.
SAMNINGAR tókust í gær milli
starfsmanna og stjómar Þörunga-
verksmiðjunnar hf. á Reykhólum,
samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Sæmundssonar, fuUtrúa
verkalýðsfélagsins Grettis hjá
Þörungaverksmiðjunni.
Um samdist að eftirvinna fellur
niður og einn launataxti gildir fyrir
alla vinnu umfram dagvinnu. Séu
útköll utan vinnutíma greiðast þijár
vinnustundir hið minnsta og auk
þess einn tími fyrir ferðir. Kaffitímar
verða tveir, tuttugu mínútur í hvort
sinn.
Að öðru leyti er samningurinn í
samræmi við bráðabirgðalög ríkis-
stjómarinnar að sögn Guðmundar.
Reinhard Reynisson, sveitarstjóri,
sagði alla ánægða að þessari samn-
ingalotu væri lokið.
Sveinn
fundi í gær grein fyrir áliti
sljómar Byggðastofnunar um að
rikisstjórnin verði að tryggja að
byggðasjóður beri ekki skaða af
80 miBjón króna lánveitingu til
loðdýrafóðurstöðva, þar sem
óvist sé að lánin fáist endur-
greidd vegna slæmrar stöðu
stöðvanna. Ríkisstjómin gaf ekki
loforð um annað en að mál
Byggðastofnunar yrðu skoðuð
við næstu fjárlagagerð. Guð-
mundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, segir að þetta
séu ekki þau svör, sem um hafi
verið beðið, og því sé óvist að
stofnunin geti lánað fóðurstöðv-
unum féð, sem þær þurfa.
„Án þess að geta svarað fyrir
munn stjómar Byggðastofnunar,
þá tel ég ólíklegt að við munum
fara út í erlenda lántöku," sagði
Guðmundur Malmquist. „Það var
samþykkt að gera þetta með því
skilyrði að ríkisstjómin styddi við
bakið á stofnuninni."
„Ég gerði grein fyrir því að ég
myndi svara Byggðastofnun á þann
veg að ákvarðanir um ijárveitingar
til stofnunarinnar á næsta ári yrðu
samkvæmt venju teknar við gerð
íjárlaga. „Það er engin ákvörðun
tekin um þessi mál fyrirfram en við
munum skoða stöðu Byggðastofn-
unar,“ sagði Þorsteinn Pálsson for-
sætisráðherra.