Morgunblaðið - 29.06.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVÍKÍtDAGUR 29. JÚNÍ 1988
Stjórnsýsluendurskoðun Ríkisútvarpsins:
Munum fara eftir þeim
ábendingum sem fram koma
- segir Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri RUV
„ÞESSI skýrsla verður tekin alvarlega hér innan Ríkisútvarpsins og
við munum reyna að fara eftir öllum þeim ábendingum sem þar koma
fram,“ sagði Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, er
hann var inntur álits á niðurstöðum skýrslu Ríkisendurskoðunar um
stjórnsýsluendurskoðun hjá stofnuninni. Eins og fram kom í frétt
Morgunblaðsins í gær telur Rikisendurskoðun meðal annars að ekki
sé nægileg festa þjá yfirstjórn Sjónvarpsins og að efla beri yfirsljórn
fjármála hjá Ríkisútvarpmu í heild.
Hörður Vilhjálmsson sagði að
unnið hefði verið að endurbótum á
ýmsum þeim atriðum, sem bent er á
í skýrslunni að séu í ólestri hjá
Ríkisútvarpinu, og þeirri vinnu yrði
haldið áfram. „Við munum hafa
þessa skýrslu við hendina og leitast
við að lagfæra þau atriði sem þar
eru nefnd. Ég tel að þessi skýrsla
sé mikils virði, bæði fyrir okkur
starfsmenn Ríkisútvarpsins og aðra
sem um málefni þess fjalla," sagði
Hörður.
í skýrslu Ríkisendurskoðunar
kemur fram að unnið er að endur-
skipuiagningu á stjómskipulagi
stofriunarinnar og telur Ríkisendur-
skoðun nauðsynlegt að flýta þeirri
vinnu með það í huga að brátt verði
öll starfsemin komin undir sama
þak. í því sambandi bendir Ríkisend-
urskoðun á möguleika á aukinni
samvinnu hljóðvarps og sjónvarps,
einkum á sviði frétta, dagskrárgerð:
ar, tónlistar og skrifstofuhalds. í
skýrslunni er ennfremur bent á að
starfslýsingar og skráðar reglur um
framkvæmd einstakra starfa séu
yfirleitt ekki fyrir hendi hjá stofnun-
inni. Afleiðingin sé sú að boðmiðlun
sé veik og komi það m.a. fram í því
að upplýsingar berist seint og illa
innan stofnunarinnar. Ennfremur er
bent á að starfemenn viti ekki í öllum
tilvikum hver þeirra næsti yfirmaður
sé.
í skýrslunni segir m.a. að almennt
megi segja að starfsemi Ríkisút-
varpsins sé í samræmi við markmið
og lög stofnunarinnar. Hins vegar
hafi Ríkisútvarpið ekki náð þvi tak-
marki að koma upp aðstöðu til dag-
skrárgerðar og hljóðvarps í öllum
kjördæmum landsins, en nú starf-
rækir stofnunin svæðisútvarp í
tveimur kjördæmum. Ríkisútvarpinu
hafi hins vegar ekki verið skapaður
ij árhagsgrundvöllur til fjárfestingar
og endumýjunar dreifikerfis sem
nær til alls landsins, þannig að
ákvæði laga um Ríkisútvarpið, sem
segir að það skuli senda út til alls
landsins og næstu miða tvær hljóð-
varps- og eina sjónvarpsdagskrá,
hafi ekki náð fram að ganga.
VEÐUR
v
í DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá td. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 29. JÚNÍ 1988
YFIRLIT í GÆR:
Á Grœnlandshafi er minnkandi lægðardrag en yfir Norðaustur-
Grænlandi er vaxandi hæðarhyggur. Norðan til á landinu kólnar í
veðri á morgun, en sunnanlands breytist hiti lítið.
SPÁ: Gert er ráð fyrir hægri breytilegri átt. Skýjað verður viðast
hvar en þurrt að kalla. Vindátt snýst til norðausturs þegar líður á
daginn og léttir heldur til. Hiti verður 8—14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Austan- og norðaustan-
átt. Skýjað og smáskúrir eða súld við norður- o’g austurströndina
en víða bjart veöur um landið sunnan- og vestanvert. Hiti verður
10—15 stig syðra, en heldur svalara fyrir norðan.
Heiðskírt
TAKN:
O
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
Norðan, 4 vindstig:
*' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
oo Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HjEIM
kl. 12:00 í gær að isl. tíma
Akureyri Reykjavík hhi 11 6 veóur alskýjað rigning og súld
Bergen 17 lóttskýjað
Helsinki 28 lóttskýjað
Jan Mayen 4 skýjað
Kaupmannah. 20 skýjað
Narssarssuaq 9 léttskýjað
Nuuk 6 heiðskfrt
Osló 35 hálfskýjað
Stokkhólmur 28 léttskýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 23 léttskýjað
Amsterdam 20 skýjað
Aþena vantar
Barcelona 22 skýjað
Chicago 16 léttskýjað
Feneyjar 25 hálfskýjað
Frankfurt 24 hálfskýjað
Glasgow 18 mistur
Hamborg 20 skýjað
Las Palmas vantar
London 15 alskýjað
Los Angeles 18 heiðskírt
Lúxemborg 22 léttskýjað
Madrfd 22 þokumóða
Malaga 22 súid
Mallorca 24 alskýjað
Montreal 18 léttskýjað
New York 17 heiðskfrt
Parfs 21 skýjað
Róm 24 rigning
San Diego 17 þokumóða
Winnipeg 18 hálfskýjað
Sólskinsstundir fyrstu
27 daga júnímánaöar
Skífurnar sýna fjölda sólskinsstunda
á dag fyrstu 27 daga mánaðarins. Heil grá skífa
þýöir aö ekki hafi sést til sólar.Það sem af er
júní hafa borgarbúar aðeins litið sólina í 60
stundir en meöaltal eru 174 sólskinsstundir
þessum mánuði. Ekki er spáö sólskini fram að
mánaðamótum og stefnir því í metár að þessu
leyti.
Morgunblaöiö/BS - Heimild: Veöurstofa íslands
Sólarminnsti júní
frá upphafi mælinga
EF FER sem horfir verður jún-
ímánuður sá sólarminnsti í
Reykjavík frá því að mælingar
hófust. Á þriðjudag hafði aðeins
mælst sólskin í sextíu klukku-
stundir í þessum mánuði, en
meðaltal júnímánaðar árin 1951
til 1980 er 174 sólskinsstundir.
Úrkoma í júní er ekki óvenju
mikil að sögn Öddu Báru Sigfús-
dóttur veðurfræðings. Fremur
hvasst hefur verið þennan mánuð
og sólarleysið á sér enga hliðstæðu.
Frá því að samfeldar veðurmæling-
ar hófust í Reykjavík hafa sólskins-
stundir í júní aðeins tvisvar verið
færri en 100. Það var árin 1926,
þegar þær urðu 95, og 1986, þegar
þær voru 80. Áður var veðurstöð á
Vífílsstöðum og sýna gögn frá þeim
tíma að árið 1921 mældist aðeins
51 sólskinsstund í júní.
„Einn mánuður segir okkur ekk-
ert um veðrið næstu mánuði. Það
gæti þessvegna orðið metsólskin í
júlí," sagði Adda Bára. Framan af
árinu var fremur kaldara en í með-
alári, en aprílmánuður sker sig úr
sökum þess hvað hann var sólríkur
og maímánuður var hlýrri en al-
mennt gerist. Tal um mikla úrkomu
í sumar er ekki á rökum byggt,
samkvæmt gögnum Veðurstofunn-
ar.
Heimsbikarmótið í skák í Belfort:
Urslit biðskáka urðu
eins og við var búist
„ Belfort, Frakkíandi. Frá Margeirí Péturs
ÚRSLIT S biðskákunum hér á
heimsbikarmótinu í Belfort urðu
eins og búist hafði verið við.
Þeir Sokolov og Andersson
sömdu um jafntefli án frekari
taflmennsku, en Karpov tefidi
báðar skákir sinar til þrautar.
Fyrst gegn Robert Hubner frá
Vestur-Þýskalandi og lauk þeirri
skák með jafntefli. Að henni lok-
inni settist Karpov að tafli við
Jan Timman og tókst honum að
leggja Hollendinginn að velli.
Kaipov er því kominn í 2. til 3.
sæti með Ehlvest og á því enn
möguleika á sigri, en þarf helst
að vinna Kasparov i innbyrðis-
uppgjöri þeirra í næstsíðustu
umferðinni á föstudag.
Ósigurinn gegn Karpov var mjög
beiskur fyrir Timman. Hann átti
lengst af vinningsstöðu í skákinni,
en tefldi mjög illa í tímahraki, þrátt
fyrir að hann ætti meiri tíma en
Karpov. Timman er þriðji stiga-
hæsti skákmaður í heimi, en er
samt einn í botnsætinu hér í Bel-
fort. Á heimsbikarmótinu í Brussel
vegnaði honum heldur ekki vel og
hann hefur því ekki verið farsæll í
þessari nýju keppni þrátt fyrir, að
það sé ekki síst fyrir hans tilstilli
að henni var hleypt af stokkunun.
Staðan eftir 11 umferðirerþann-
ig: 1. Kasparov 8V2 vinningar, 2.-3.
Ehlvest og Karpov V/2 v., 4.-6.
Spasskíj, Hubner og Sokolov 6V2
v., 7. Ribli 6 v., 8. Short 5V2 v.,
9.-12. Andersson, Nogueiras, Spe-
elman og Jusupov 4'/2 v., 13.-15.
ií, fréttaritara Morgfunblaðsins.
Beljavskíj. Jóhann Hjartarson og
Ljúbójevítsj 4 v. og Timman 3V2
vinningar.
Páll Magnússon, fréttastjóri á
Stöð 2 kom hingað til Belfort í
gær, meðal annars til að taka við-
tal við Kasparov og til að sjá að-
stæður á mótinu. Það er Stöð 2,
sem heldur þriðja heimsbikarmótið
í Reykjavík í október.
12. umferð á mótinu verður tefld
í dag. Þá hefur Jóhann Hjartarson
svart gegn Ribli, sem hefur ekki
tapað skák á mótinu til þessa, en
gert 10 jafntefli og unnið eina.
Flestra augu munu beinast að skák
Kasparovs og Ehlvests og einnig
þeirra Speelmans og Karpovs.
Innbrot í íbúð
og kjötvinnslu
BROTIST var inn í mannlausa
íbúð við Hátún í Reykjavík á
mánudagskvöld og stolið þaðan
myndbandstæki, myndböndum
sjónvarpstæki og hljómflutnings-
tækjum. Rannsóknarlögreglan
fékk máiið til meðferðar og var
það að mestu upplýst siðdegis i
gær.
Þá var brotist inn í kjötvinnslu
við Vitastíg aðfaranótt þriðjudags-
ins og hafði þjófurinn á brott með
sér um 50 þúsund krónur í pening-
um. RLR vinnur að rannsókn máls-
ins.