Morgunblaðið - 29.06.1988, Síða 15

Morgunblaðið - 29.06.1988, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988 15 Kaffimenning* í 30 ár Myndiist Bragi Ásgeirsson Tíminn lætur ekki að sér hæða, og það er fleira en mannfólkið sem eldist, en jafnframt sannar hann afstæði sitt með því að endumýja lífíð jafnóðum — er því opinn á alla enda, að segja má. Fyrir skömmu kom ég við á Mokka- kaffí á Skólavörðustíg og sá þar sérdeilis fallega ljósmyndasýningu áhugaljósmyndara hér í borg, Davíðs Þorsteinssonar, mennta- skólakennara. Myndimar sem eru í svart-hvítu minna um margt á sjálfan meistara Jón Kaldal og er þá ekki leiðum að.líkjast. Þetta eru myndir af ýmsum gestum kaffistofunnar í rúman áratug og ber hér ýmsa fastagesti hæst, en einnig má þar líta tilfall- andi gesti og jaftivel óþekkta blómarós. Yfír kaffibolla og nýbakaðri ijómavöfflu upplýsir Guðmundur í Mokka mig á því, að staðurinn eigi 30 ára afmæli og leyfir mér að glugga í albúm, sem geymir myndir og minningar frá fýrstu starfsárunum. Athafnasemin var algjört nýnæmi í höfuðborginni, þegar hann hleypti henni af stokk- unum á sínum tíma og vakti enda mikla athygli og þá einkum meðal listamanna, sem ijölmenntu á staðinn næstu árin og urðu marg- ir fastagestir. Sumir hafa verið Fasteignasalan EIGNABORG sf. - 641500 - Ástún — 2ja 60 fm nottó á 4. hœð. Vestursv. Vandaóar Ijósar innr. Laus. Einkasala. Hrafnhólar — 2ja 50 fm á 8. hæð. Vestursv. Laus strax. Lyklar á skrifst. Þverholt — 3ja 80 fm á 2. hæð. Afh. tilb. u. trév. í okt. 1988, ésamt bilskýli. Verð 4,6 millj. Kjarrhóimi — 3ja 75 fm nettó á 1. hæð. Suöursv. Þvotta- hús innaf ib. Laus 1. ágúst. Einkasala. Hlfðarhjalli — nýbygg. Erum mað i sölu 2ja, 3ja, 4ra, 5 og 6 herb. ibúðir tilb. u. tróv. Sameign fullfrág. Mögul. að kaupa bílsk. Afh. eftir ca 14 mán. Bygglngaraðili: Markholt hf. Egilsborgir Eigum eftir 2ja, 3ja og 5 herb. ib. i bygg- áfanganum við Þverholt sam afh. tllb. u. trév. i okt. og aprll ásamt bilskýli. Sameign fullfrág. Hamraborg — 6 herb. 132 fm á 2. hæð. Suðursv. 4 svefnherb. Vandaðar innr. Utið áhv. Einkasala. Nýbýlavegur — 3-4ra 98 fm á 2. hæð í fjórb. Nýtt eldhús. Stór bflsk. Ákv. sala. Einkasala. Kópavogsbr. — 8 herb. 140 fm jarðh. i þrib. 5 svefnherb. Miklð endumýjuð. Ekkert áhv. Verð 5,7 millj. Mýs eru sólgnar i kaffi ÖLLUM kaffidrykkju- mönnum getum viö fært þaer gleðilegu fréttir, að það er langt frá þvi :»ð kafíið hafi skaðvænleg áhrif á heilsuna, heldur þvert á móti. Vísindaleg rannsókn, sem framkvæmd var við hinn nafnkunna Corncll- háskóla i Bandaríkjun- um, sannar þetta áþreif- anlega. Þeir gerðu til- raunir með hvítar mýs, eins og visindamönnum er tamt, og reyndu áhrif ýmiss konar drykkja á mýslurnar. Músunum var skipt 1 fjóra flokka, sem fengu sams konar fæðu, en hins /»/ ' 1,1 >7 vegar hver sina tegund af drykk. Flokkurinn, sem íékk nýlagað k^| á hverjum degi. var við langsamlega bezta heilsu og allar mýsnar af hon- um lifðu við hestaheilsu, þar til þær létust úr elli. Vísindamennirnir höfðu gaman af að gefa mýsl- unum kaffið. vegna þes3 hversu æstar þær voru I það. Þær virðast sem sagt hafa svipaðan smekk og mannskepnan, blessaðar. Niðurstaðan af rann- sókn vísindamannanna sannar þvi, að það er langt frá því að vera hættulegt að drekka kaffi frá blautu barns- beini. Þvert á móti er það hollt og gott. Mýs og menn hafa ýmislegt sameiginlegt svo sem kemur fram í þessari frétt, er birtist í Mbl. stuttu eftir opnun Mokka, en þó án nokkurra beinna tengsla við staðinn viðloðandi kaffistofuna alla tíð, en þeir eru fjölmargir sem voru fasta- gestir um árabil, en eru nú sjald- séðir vegna breyttra einkaað- stæðna eða einfaldlega horfnir af mannlífssviðinu. Útlendir ferðalangar sóttu og mikið kaffistofuna líkt og á svip- aða staði í erlendum stórborgum og þar á meðal fjölmiðla- og ljós- vakafólk, og man ég eftir einni upptöku, sem ég tók ofurlítinn þátt í. Var hér á ferð sjónvarps- flokkur frá BBC í London og var m.a. ung kona, Vigdís Finnboga- dóttir, þeim til aðstoðar. Þjóðkunnir listamenn svo og ýmsir skrítnir fuglar sátu sem límdir við stólana á Mokka árum saman, en hurfu svo sumir jafn skyndilega og þeir komu líkast því, að þeir hafi verið settir inn á einhveija kaffíafvötnunarstofnun og þeim fyrirlagt að forðast fyrri félagsskap og umhverfí — jaftivel skilja við makann! Að sjálfsögðu tóku aðrir upp þessa nýjung í hinu nýjungagjama landi, jafnvel með húð og hári og segja má, þannig að sumum þótti fullnóg um. En þrátt fyrir að meira væri lagt í þær — og ein jafnvel klædd skinnum og íslenzkum eðal- steinum og væri á sjálfum snerti- punkti borgarinnar, Austurstræti, þá lognuðust þær útaf á nokkrum árum og sumar við næsta lítinn orðstír. Glæsilegt umhverfi gat einfald- lega ekki komið í stað hins sér- staka andrúms, sem einkenndi Mokka frá upphafí með Guðmund og freyju hans sem gestgjafa. Hér komust og menn ekki upp með neina vitleysu, enda er Guðmundur einhver mesti snillingur, sem ég veit um við að bægja í burt óæski- legu fólki — og gera það með góðu, svo að viðkomandi kveðja jafnvel með virktum. Og þá er mér minnisstæð sú fágæta nátt- úrugáfa, er blómstraði suður í Róm fyrir 35 árum, er hann talaði við allra þjóða kvikindi, lét móðan mása í gríð og erg, — og allir virt- ust skilja hann til fullnustu eða máski varðaði það heimsendi að viðurkenna annað. En það skiptir minna máli, enda verður það aldr- ei upplýst. Slíkir menn eru víst fæddir heimsborgarar. Kvenblóminn úr nánustu fjöl- skyldu hefur verið iðinn við að aðstoða við afgreiðsluna um árin, jafnt tengdamóðir, mágkona sem dætumar tvær, sem nú hafa hleypt heimdraganum, en voru ekki til í árdaga Mokka. Kaffíð kostaði fyrst fímm krón- ur og sú mæta kona, Guðrún Á. Símonar, ritaði þá í gestabókina „fímmkallamir rúlla" — og svo mjög hafa þeir rúllað, að þeir hafa gleypt allar hæðimar fyrir ofan, þar sém fjölskyldan hreiðraði um sig nokkmm áum. Reif mörg lög af veggfóðri til að komast að innsta kjama þess — gera það sem upprunalegast eins og lífrænt eð- alkaffíð. 011 árin hafa verið mjmdlistar- sýningar á veggjunum og þeim ekki markaður neinn bás. En í upphafi varð þó að vera B í nöfn- um allra sýnendanna, er fyrir- huguð einkasýning mín varð að samsýningu. Og þafinig sýndu þar auk mín, Barbara Amason og Bjami Jónsson á veggrýminu. Benedikt Gunnarsson sýndi gler- mynd f glugganum, en Jón Bene- diktsson höggmynd á palli. Teiknaði á rómantíska auglýs- ingu fyrir staðinn, sem ekki var notuð einhverra hluta vegna, en hins vegar vom stafímir með heiti kaffistofunnar notaðir í skiltið, sem enn trónir fyrir utan. Margur ágætur og þjóðkunnur listamaðurinn hefur sýnt verk sín á veggjunum um árin, en engin Norðurlandskjördæmi vestra Hlíðarhjalli - sérh. Eigum eftir nokkrar aérh. viö Hliöarhjalla. Afh. fullfrég. utan, tilb. u. trév. innan ásamt bílskýli. Áætl. afh. júli-ág. Vallhólmi - olnb. 220 fm alls. 3 svefnh. á efrl hæð. A neðri hæö er forstherb., sauna og atór bflsk. Hlfðarhjalli - einb. 272 fm fokh. á tveimur hæðum. Tvöf. bílsk. 2ja herb. ib. er samþ. á jarðh. Seljandi býður efitir veðdláni og getur lánað allt að 3 millj. til 5 ára. Lóð — Mosbæ 766 fm við Reykjabyggö. Allar teikn. fylgja. Bygghæf strax. EFasleignasalan EIGNABORG sf. Hamraborg 12, s. 641 500 Sölumenn: Jóhann Hallöánaraon, hs. 72057 Vilhjálmur Einsrsson, hs. 4U9(L Jón Einksson hdl. og C Runar Mogenson hdl. #1 Friðrik Sóphusson, iðnaðarráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og Pálmi Jónsson, alþingismaður, hafa viðtalstíma í Norðurlandskjördæmi vestra á næstu dögum sem hérsegir: 29. júní miðvikudag í Sjálfstæðishús- inu, Grundargötu 11, Siglu- firði, kl. 17.00. 30. júní fimmtudag í Sjálfstæðishús- inu, Aðalgötu 8, Sauðárkróki, kl. 10.00 f.h. 30. júní fimmtudag í Fellsborg, Skagaströnd, kl. 18.00. 1. júlí föstudag í Sjálfstæðishúsinu, Blönduósi, kl. 10.00f.h. 1. júlí föstudag íVertshúsinu, Norð- urbraut 1, Hvammstanga, kl. 14.00. Tillaga um auglýsingu sem aldrei birtist Guðmundur i Mokka við Kaffivélina myndskoðun hefur þó ríkt um val sýninga, sem sennilega var skyn- samlegasta lausnin í jafn litlu þjóð- félagi. Ungt fólk átti hér griðar- stað fyrir myndir sínar og þreytti hér margur knár frumraun sína á listasviði. íbúar landsins eru vísast allir af konungakyni og rekja ættir sínar til vígdjarfra herkonunga svo sem Magnúsar berfætta og afa hans Haraldar Harðráða. Færri til rólega mannsins þar á milli er nefndur var Ólafur friðsami (Olav Kyrre), er ríkti fyrst fyrst ásamt Magnúsi bróður sínum 1066-1069 varð seinna einvaldur Noregs og blómstraði fjárhagur landsins í tíð hans. Báðir voru þeir synir Har- alds harðráða og frillu hans Þóru Þorbergsdóttur. Magnús berfætti fékk viðumefnið vegna þess að hann klæddist stuttum kyrtli af skoskum hætti svo að sá í be'ar fætuma. Þessi norræni siður með viður- nefnin er ágætur og má Guðmund- ur Baldvinsson vel við una með Mokka- viðumefnið og hann líkist helst þeim í miðjunni með því að hafa haldið kyrm fyrir í friðsemd á staðnum í 30 ár og ávaxtað sitt pund. — Og hvað svo sem uppi er á veggjum kaffistofunnar hveiju sinni, sem vísast ergir suma, en gleður aðra, þá er það trúa mín, að fáir geti hugsað sér Skólavörðu- stíg án Mokka kaffís, sem með tímanum hefur orðið einhvers kon- ar kennileiti götunnar. Og stefnu- mótin, sem menn hafa sett sér á þessum stað, skipta vafalítið tug- þúsundum og mörg þeirra vafalítið endað fyrir framan (kvistótt) alta- rið. Þannig hefur lífrænn sköpunar- krafturinn verið á fullu á þessum stað frá upphafi og Guðmundur og freyja hans markað sérstaka sögu í list- og veitingamenningu höfuðborgarinnar með kaffí sem konungum sæmir. Félagsheimili - Sumarbústaðaeigendur Við skiptum um! Af þeim sökum seljum við húsgögn, rúmdýnur og salemistæki. Upplagt í sumarhúsið. Upplýsingar í súm 82200.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.